Morgunblaðið - 26.03.2010, Page 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Björgvin PállGúst-
avsson, lands-
liðsmarkvörður í
handknattleik,
lék í marki Ka-
detten fyrstu 48
mínúturnar gegn
Luzern í sviss-
nesku A-deildinni
í handknattleik í fyrrakvöld. Hann
varði 15 skot á þeim tíma og fékk
hrós fyrir framgöngu sína á heima-
síðu félagsins. Kadetten vann leik-
inn örugglega, 34:21, er sem fyrr
langefst í deildinni, hefur 46 stig að
loknum 25 leikjum.
Kári Kristján Kristjánsson ogsamherjar hans í Amicitia Zü-
rich unnu BSV Bern Muri, 27:26, á
útivelli og halda þar með öðru sæti
deildarinnar, átta stigum á eftir Ka-
detten. Kári Kristján skoraði tvö
marka Amicitia.
Jóhann Gunnar Einarsson skor-aði níu mörk, þar af fjögur úr
vítakasti þegar Kassel gerði jafn-
tefli við Budenheim, 34:34, í suð-
vesturriðli þýsku 3. deildarinnar í
handknattleik. Kassel er í 8. sæti af
16 liðum með 26 stig að loknum 22
leikjum.
Kristinn Björgúlfsson fór einnigá kostum með SG DJK Rimp-
ar í þýsku 3. deildinni í handknatt-
leik en það dugði ekki til gegn ESV
Lok Pirna. Rimpar tapaði með einu
marki, 26:25. Rimpar er í 13. sæti af
16 liðum í suðurriðli 3. deildarinnar.
Rakel DöggBragadóttir
var veik og gat
ekki leikið með
Levanger í fyrra-
kvöld þegar liðið
vann óvæntan
sigur á Stor-
hamar, 27:25, á
útivelli í norsku
úrvalsdeildinni í
handknattleik. Með sigrinum lyfti
Levanger, sem Ágúst Jóhannsson
þjálfar, sér upp í 9. sæti deild-
arinnar þegar þrjár umferðir eru
eftir. Liðið í 10. sæti fer í umspil um
sæti í deildinni og vilja leikmenn
Levanger gera allt til þess að forð-
ast það. Tvö neðstu liðin falla.
Gunnar Steinn Jónsson og fé-lagar hans í Drott unnu Guif,
29:27, í úrslitakeppninni um sænska
meistaratitilinn í handknattleik á
heimavelli í fyrrakvöld. Gunnar
Steinn skoraði þrjú mörk í leiknum
og Haukur Andrésson tvö fyrir Gu-
if. Drott hefur farið vel af stað og
unnið báða leiki sína í keppninni til
þessa. Úrslitakeppnin í Svíþjóð er
leikin með nýju sniði þetta árið, í
tveimur fjögurra liða riðlum í stað
átta liða útsláttarkeppni eins og síð-
ustu ár. Guif hefur unnið annan af
tveimur leikjum sínum í úr-
slitakeppninni til þessa.
Fólk folk@mbl.is
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
„ÞESSU lýkur ekki á sunnudaginn,
við komum hingað aftur í næstu
viku,“ sagði Gunnar Sverrisson
þjálfari ÍR-inga kokhraustur eftir
leikinn þrátt fyrir tapið og þrátt
fyrir slaka frammistöðu sinna
manna stóran hluta af leiknum. Þeir
létu KR-inga fara illa með sig í frá-
köstum og voru svo oft allt of lengi
að skila sér í tilbaka í vörnina og
það færði eldfljótum heimamönnum
auðveldar körfur.
Sá sem þetta skrifar fékk það
reyndar á tilfinninguna að í æsku
hefði leikmönnum ÍR aldrei gengið
vel í hinum sígilda leik „síðastur er
fúlegg.“ Þeir áttu það jafnvel til að
fagna stigum sínum líkt og um fót-
boltaleik væri að ræða og þurftu
svo að horfa upp á KR skora fárán-
lega auðveld stig í kjölfarið. Lagi
ÍR-ingar þetta til muna og taki
fleiri fráköst en í gær er enn von til
þess að baráttan um borgina verði
almennileg. Gunnar lofar að úr
þessum hlutum verði bætt.
„Fyrsti fjórðungur var flottur hjá
okkur og kafli í síðasta leikhlut-
anum en þá er það upptalið. Hlut-
irnir sem við einbeittum okkur að,
að vinna þá í fráköstunum og vera
fljótir til baka í vörnina, mistókust
algjörlega. Þeir eru fljótir, eins og
allir vita og allir hafa séð í vetur, og
þess vegna er svo sorglegt að þess-
ir hlutir hafi verið það sem líklega
skildi á milli. Þetta verður lagað
fyrir sunnudaginn,“ sagði Gunnar
en KR-ingar tóku 49 fráköst gegn
28 ÍR-inga í leiknum.
Getum unnið þá í fráköstunum
„Mér finnst við alveg eiga
tveggja metra stráka sem geta unn-
ið þessa baráttu í fráköstunum en
KR-ingarnir voru bara gráðugri að
þessu sinni. Þetta verður ekki
svona auðvelt fyrir þá í næsta leik.
Við náðum að minnka muninn í 12
stig í lokaleikhlutanum og ég var
ánægður með að við kæmum svona
til baka inn í leikinn. Við ætlum að
koma svona til baka í einvíginu á
sunnudaginn,“ sagði Gunnar.
Í baráttunni um fráköstin og
hröðum sóknum heimamanna, atrið-
unum sem skildu að í leiknum, fór
fremstur í flokki strákur sem farið
hefur mikinn í vetur að nafni Pavel
Ermolinskij. Hann náði þrefaldri
tvennu í gær, þ.e. tók 15 fráköst,
átti 16 stoðsendingar og skoraði 10
stig. Flestar sendingarnar fóru á
Morgan Lewis sem fór á kostum og
gerði 30 stig, þar af 10 með litrík-
um troðslum sem kættu áhorf-
endur. Það kom því ekki að sök að
leikmenn á borð við Brynjar Þór
Björnsson næðu sér ekki á strik og
að Tommy Johnson væri í leik-
banni.
„Það mætti halda að þetta væri
eitthvað auðvelt en málið er að
kerfið hjá KR hentar mér mjög vel
og með þessa leikmenn í kringum
mig er auðvelt að ná svona tölum.
Þeir láta mig líta vel út, hvort sem
það eru strákarnir fyrir utan í
þriggja stiga skotunum eða Morgan
undir körfunni sem ég get gefið á
blindandi því hann grípur allt,“
sagði Pavel eftir leikinn.
„Þetta var auðveldara en maður
bjóst við. Það var minni barátta og
minni slagsmál en maður býst við í
svona úrslitakeppni og mér fannst
svona eins og að við gætum haft
leikinn á þeim hraða sem við vild-
um, það er að segja miklum hraða.
Það hentar þeim illa en færði okkur
margar auðveldar körfur sem eiga
ekki að sjást í úrslitakeppni,“ bætti
Pavel við og gaf lítið fyrir orð
Gunnars um að einvígið myndi end-
ast fram í næstu viku. Þá ætlar Pa-
vel að taka lífinu rólega.
„Ég vona bara að þetta verði
hörkuleikur á sunnudaginn og auð-
vitað ætla þeir sér að halda áfram í
keppninni en ég stefni á að hafa
það bara náðugt í næstu viku.“
Síðastur er fúlegg
Morgunblaðið/hag
Góður Pavel Ermolinskij hefur reynst KR-ingum góður liðsauki og hann náði svokallaðri þrefaldri tvennu í gærkvöld.
Hér sendir hann boltann á samherja í leiknum við ÍR en Robert Jarvis reynir að halda aftur af honum.
Baráttan um borgina, eins og viðureign
KR og ÍR í 8-liða úrslitum Iceland Ex-
press-deildarinnar í körfuknattleik
hefur verið kynnt, verður heldur lítil og
aum ef mið er tekið af fyrsta leik lið-
anna sem fram fór í DHL-höllinni í gær-
kvöld. Gestirnir úr Breiðholtinu héldu í
við heimamenn framan af leik en dróg-
ust aftur úr í 2. leikhluta og máttu
sætta sig við 17 stiga tap, 98:81. Þeir
þurfa að laga ýmislegt til að jafna met-
in í Seljaskóla á sunnudag.
Með hraðann að vopni og yfirburði í fráköstum lögðu KR-ingar ÍR að velli í 1. leik
Pavel með þrefalda tvennu Einvígið endist fram í næstu viku segir þjálfari ÍR
KR – ÍR 98:81
DHL-höllin, úrslitakeppni karla, 8-liða úrslit,
fyrsti leikur, fimmtudag 25. mars 2010.
Gangur leiksins: 24:22, 52:42, 77:58, 98:81.
Stig /fráköst KR: Morgan Lewis 30/9, Fann-
ar Ólafsson 16/4, Darri Hilmarsson 12/7, Jón
Orri Kristjánsson 12/5, Brynjar Þór Björns-
son 10/3/6 stoðsendingar, Pavel Ermolinskij
10/15/16 stoðsendingar, Finnur Atli Magn-
ússon 8/5, Ólafur Már Ægisson 0/0, Steinar
Kaldal 0/1.
Fráköst: 36 í vörn – 13 í sókn.
Stig/fráköst ÍR: Robert Jarvis 29/5/5 stoð-
sendingar, Nemanja Sovic 20/9, Kristinn
Jónasson 10/3, Eiríkur Önundarson 8/2,
Hreggviður Magnússon 6/4, Davíð Þór Fritz-
son 5/0, Elvar Guðmundsson 2/1, Steinar
Arason 1/3, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0/0,
Ólafur Þórisson 0/0, Ásgeir Örn Hlöðversson
0/1, Björgvin Jónsson 0/0.
Fráköst: 21 í vörn – 7 í sókn.
Villur: KR 16 – ÍR 19.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Björgvin
Rúnarsson.
Áhorfendur: Um 600.
Valur í úrslitin
göngukeppnin haldin nokkru fyrir framan Ólafs-
fjörð í svonefndum Skeggjabrekkudal,“ segir
Óskar. „Þar hefur allt verið gert klárt til að hægt
verði að keppa í göngu og okkur líst bara vel á,“
segir Óskar sem á von á öllum fremstu skíða-
mönnum landsins til þátttöku í mótinu, jafnt í
alpagreinum sem og í göngu.
„Endanlegur listi yfir keppendur liggur ekki
fyrir,“ sagði Óskar í gærmorgun. „En mér sýnist
að það verði ekki færri en 100 þátttakendur í
alpagreinum og á milli 30 og 40 keppendur í
göngu.
Okkur líst vel á mótið sem framundan er og
hlökkum til þess að það hefjist,“ segir Óskar Ósk-
arsson, mótsstjóri Skíðamóts Íslands.
iben@mbl.is
„ÞAÐ er allt klárt hjá okkur. Undirbúningur hefur
gengið mjög vel þannig að allir endar eru vel
hnýttir þótt við höfum svo sannarlega séð meiri
snjó á þessum slóðum. Við fáum hins vegar ekkert
við veðurguðina ráðið,“ sagði Óskar Óskarsson,
mótsstjóri Skíðamóts Íslands sem hefst kl. 17 í dag
með keppni í sprettgöngu í Ólafsfirði. Í kvöld verð-
ur mótið sett í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Keppni í alpagreinum hefst í fyrramálið í Bögg-
visstaðafjalli ofan Dalvíkur en göngugreinar fara
fram í Ólafsfirði. Mótslok verða síðdegis á mánu-
dag.„Þótt það mætti vissulega vera meiri snjór
fyrir hendi þá er nægur snjór á Dalvík fyrir alpa-
greinarnar.
Hins vegar er enginn snjór á hefðbundnum
skíðagöngusvæðum Ólafsfirðinga og því verður
Heimavöllur Dalvíkingurinn
Björgvin Björgvinsson ætti
að kunna vel við sig í Bögg-
visstaðafjalli.
Allt klárt fyrir Skíðamót Íslands
VALSMENN eru komnir í úrslitaleikina um sæti í
úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir sigur á
Skallagrími, 84:77, í oddaleik í undanúrslitum 1.
deildarinnar í gærkvöld. Haukar verða andstæð-
ingar Hlíð-
arendapiltanna en
þeir lögðu Þór úr Þorlákshöfn að velli, einnig í
oddaleik. Liðin heyja nú einvígi um hvort þeirra
fylgir KFÍ upp. Valsmenn tryggðu sér sigurinn
með góðum endaspretti en Skallagrímur var yf-
ir eftir þriðja leikhluta, 59:56. Hörður
Helgi Hreiðarsson átti stórleik með
Val og skoraði 33 stig og Sig-
urður Friðrik Gunnarsson 21.
Silver Laku skoraði 24 stig fyrir
Borgnesinga. vs@mbl.is