Morgunblaðið - 26.03.2010, Blaðsíða 6
6 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikar
A-DEILD, riðill 1:
Njarðvík – Haukar ................................... 1:1
Rafn Markús Vilbergsson 90. (víti) – Arnar
Gunnlaugsson.
Staðan:
ÍA 5 4 1 0 16:10 13
Grindavík 4 3 0 1 11:7 9
Stjarnan 5 2 1 2 14:12 7
Fylkir 3 1 1 1 4:3 4
Haukar 4 1 1 2 7:10 4
Þór 3 1 0 2 4:6 3
Fjarðabyggð 4 1 0 3 5:10 3
Njarðvík 4 0 2 2 4:7 2
A-DEILD, riðill 3:
Þróttur R. – ÍR .......................................... 3:4
Oddur Björnsson, Hörður S. Bjarnason,
Ingvar Ólason – Björn Viðar Ásbjörnsson
(2), Kristján Ari Halldórsson, Guðfinnur Þ.
Ómarsson.
Staðan:
KR 4 4 0 0 20:4 12
Keflavík 5 4 0 1 17:8 12
Breiðablik 5 4 0 1 10:6 12
ÍBV 6 2 2 2 11:8 8
ÍR 5 2 0 3 10:23 6
HK 5 0 3 2 6:11 3
Þróttur R. 5 0 2 3 6:12 2
Grótta 5 0 1 4 3:11 1
Spánn
Getafe – Real Madrid................................ 2:4
Atlético Madrid – Athletic Bilbao............ 2:0
Staða efstu liða:
Real Madrid 28 23 2 3 78:24 71
Barcelona 28 22 5 1 70:18 71
Valencia 28 15 8 5 45:29 53
Real Mallorca 28 14 5 9 45:32 47
Sevilla 28 13 6 9 40:32 45
Bilbao 28 12 6 10 36:34 42
Dep. La Coruna 28 12 6 10 31:32 42
Atl. Madrid 28 10 7 11 42:42 37
Ítalía
Napoli – Juventus ..................................... 3:1
Staða efstu liða:
Inter Mílanó 30 18 9 3 57:26 63
Roma 30 17 8 5 54:34 59
AC Milan 30 17 8 5 48:28 59
Palermo 30 13 9 8 43:37 48
Sampdoria 30 13 8 9 37:36 47
Napoli 30 11 12 7 40:36 45
Juventus 30 13 6 11 46:43 45
Holland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Go Ahead Eagles – Ajax........................... 0:6
Ajax mætir Feyenoord í úrslitaleik.
Danmörk
Bröndby – Köge........................................ 1:3
Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi
Bröndby.
Midtjylland – SönderjyskE ..................... 0:0
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn með
SönderjyskE en Ólafur Ingi Skúlason fór
meiddur af velli á 67. mínútu.
Esbjerg – OB............................................. 1:2
Rúrik Gíslason lék allan leikinn með OB
og skoraði sigurmarkið.
Randers – AGF ......................................... 2:1
Staðan:
København 22 14 4 4 40:13 46
OB 22 13 7 2 36:21 46
Esbjerg 22 10 7 5 34:25 37
Silkeborg 22 10 5 7 36:25 35
AaB 22 10 4 8 26:18 34
Nordsjælland 22 9 3 10 25:26 30
Brøndby 22 8 5 9 38:39 29
Midtjylland 22 8 5 9 28:33 29
AGF 22 7 6 9 26:34 27
SønderjyskE 22 6 7 9 17:22 25
Randers 22 2 8 12 16:35 14
Køge 22 2 5 15 20:51 11
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin
Akureyri – Fram ................................... 26:31
Haukar – Valur...................................... 20:24
FH – Grótta ........................................... 23:30
Stjarnan – HK ....................................... 33:28
Staðan:
Haukar 18 13 2 3 461:433 28
Akureyri 18 10 2 6 489:461 22
Valur 18 9 3 6 444:422 21
HK 18 9 2 7 487:469 20
FH 18 9 1 8 503:484 19
Grótta 18 6 0 12 454:481 12
Stjarnan 18 5 1 12 426:483 11
Fram 18 5 1 12 475:506 11
1. deild karla
Fjölnir – Þróttur ................................... 25:24
Staðan:
Selfoss 15 13 0 2 473:347 26
Afturelding 15 12 1 2 420:334 25
ÍBV 15 11 0 4 467:390 22
Víkingur R. 16 8 1 7 452:371 17
ÍR 15 7 0 8 402:406 14
Fjölnir 17 2 1 14 332:541 5
Þróttur 17 0 1 16 370:527 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Umspil, undanúrslit, oddaleikur:
Valur – Skallagrímur .......................... 84:77
Gangur leiksins: 16:14, 43:33, 56:59, 84:77.
Stig/fráköst Vals: Hörður Helgi Hreiðars-
son 33/8/5 stoðsendingar, Sigurður Friðrik
Gunnarsson 21/10, Byron Davis 12/11/11
stoðsendingar, Snorri Páll Sigurðsson 8/4,
Guðmundur Kristjánsson 4/3, Sigmar Eg-
ilsson 4/1, Benedikt Pálsson 2/3, Björgvin
Rúnar Valentínusson 0/2,
Stig/fráköst Skallagríms: Silver Laku
24/8, Hafþór Ingi Gunnarsson 22/2, Konrad
Tota 14/13, Trausti Eiríksson 14/14, Sigurð-
ur Þórarinsson 3/1, Kristján Guðmundsson
0/2, Óðinn Guðmundsson 0/3.
Valur sigraði, 2:1, og mætir Haukum í úr-
slitum um sæti í úrvalsdeildinni.
í kvöld
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Egilshöll: Leiknir R. – Valur .....................19
Ásvellir: ÍH – Hamar ................................. 20
Egilshöll: KV – BÍ/Bolungarvík ............... 21
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Austurberg: ÍR – Afturelding.............. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslit kvenna, fyrsti leikur:
DHL-höllin: KR – Hamar .................... 19.15
8-liða úrslit karla, fyrstu leikir:
Ásgarður: Stjarnan – Njarðvík............ 19.15
Grindavík: Grindavík – Snæfell ........... 19.15
Úrslit 1. deildar kvenna, fyrsti leikur:
Grafarvogur: Fjölnir – Þór Ak............. 19.15
SKÍÐI
Skíðamót Íslands hefst í dag kl. 17 með
sprettgöngu í Ólafsfirði. Mótið verður form-
lega sett á Dalvík í kvöld en það fer fram í
nágrannabæjunum og lýkur á mánudag.
BADMINTON
Meistaramót Íslands er haldið í TBR-hús-
unum um helgina. Það hefst í dag kl. 19 og
stendur til 21.30.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
TVÆR afar spennandi rimmur hefj-
ast í kvöld í átta liða úrslitum Ice-
land Express-deildar karla. Annars
vegar á milli Grindavíkur og Snæ-
fells en Stjörnunnar og Njarðvíkur
hins vegar. Þau höfnuðu í sætum
3.-6. í deildinni en eiga öll raunhæfa
möguleika á því að verða meistarar
að mati undirritaðs.
Grindvíkingar voru meistaraefni
fyrir leiktíðina. Frekar litlar breyt-
ingar urðu á liðinu sem missti svo
naumlega af titlinum síðastliðið vor.
Liðinu gekk hins vegar ekki sem
skyldi framan af og eftir tólf umferð-
ir var Grindavík einungis með 50%
vinningshlutfall. Þeir voru hins veg-
ar naskir þegar þeir nældu sér í
Bandaríkjamanninn Darrel Flake
því hann féll mjög vel inn í liðið.
Grindvíkingar hafa verið sterkir eft-
ir áramót. Þeir töpuðu reyndar bik-
arúrslitaleiknum en voru fljótir að
jafna sig og unnu nokkra leiki í röð.
Það var einmitt Snæfell sem lagði
Grindavík að velli í bikarúrslita-
leiknum. Það er eiginlega með ólík-
indum að Snæfell hafi aðeins náð 6.
sæti í deildinni en eins og áður segir
er ekki svo mikill gæðamunur á
efstu sex liðunum. Þessi niðurstaða
hefur sett Hólmara í erfiða stöðu.
Þeir þurfa að vinna einn leik í
Grindavík annars eru þeir úr leik.
Snæfell er eitt sterkasta varnarlið
deildarinnar ef ekki það sterkasta.
Þarna mætast kannski ólíkir stílar
því Grindvíkingar eru þekktari fyrir
að vera stuðkarlar í sókn og getuna
til að skora mikið. Snæfell byrjaði
leiktíðina án Kana en leikstjórnand-
inn Sean Burton sýndi í bikarúrslita-
leiknum að hann var happafengur
fyrir Hólmara.
Hvað gerir Bradford?
Stjarnan og Njarðvík eigast við í
fjórða leik átta liða úrslitanna.
Garðbæingar hafa leikið frábærlega
á löngum köflum á þessari leiktíð og
eru mjög erfiðir heim að sækja. Teit-
ur Örlygsson hefur skipulagt leik
Stjörnunnar afskaplega vel og menn
eru með sín hlutverk á hreinu. Koma
Djorde Pantelic hægir þó nokkuð á
leik liðsins en liðið ætti hins vegar að
geta verið öflugra varnarlið með
hann innanborðs. Forvitnilegt verð-
ur að sjá hvaða áhrif þetta hefur á
Fannar Frey Helgason sem spilaði
frábærlega framan af leiktíðinni og
er nú í öðru hlutverki. Njarðvíkingar
eru kannski það lið í úrslitakeppn-
inni sem erfiðast er að spá í. Þeir
sýndu meistaratakta fyrir áramót og
bjuggu til sterka liðsheild. Auk þess
var Magnús Gunnarsson í miklu
stuði en nú er óvissa um hans þátt-
töku vegna hnémeiðsla. Njarðvík-
ingar voru án Kana framan af móti
en nældu í Nick Bradford. Síðan þá
hefur allt gengið á afturfótunum hjá
liðinu, einhverra hluta vegna. Brad-
ford var drjúgur bæði fyrir Keflavík
og Grindavík og hefur ábyggilega
ekki sagt sitt síðasta orð.
Morgunblaðið/Golli
Sterkur Hlynur Bæringsson hefur átt frábært tímabil með Snæfelli. Hann
og Darrel Flake eiga eftir að takast hressilega á í Grindavík í kvöld.
Hefnir Grindavík
fyrir bikartapið?
Teitur Örlygsson freistar þess að slá Njarðvíkinga út
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
KR og Hamar takast á í fyrsta leik
úrslitarimmunnar um Íslandsmeist-
aratitilinn í körfuknattleik kvenna í
DHL-höllinni í Frostaskjóli í kvöld.
Þessi lið höfnuðu í tveimur efstu
sætunum í deildinni og má því færa
rök fyrir því að tvö bestu lið lands-
ins séu komin í úrslit.
Landsliðsfyrirliðinn og besti leik-
maður Iceland Express deild-
arinnar í fyrra, Signý Her-
mannsdóttir, gekk til liðs við KR
fyrir þessa leiktíð. Hún hefur reynst
liðinu drjúgur liðsauki eins og við
var að búast. Þrátt fyrir glæsilegan
feril hefur Signý aldrei orðið Ís-
landsmeistari og það má reikna með
því að hún muni drífa KR-liðið
áfram í þessari rimmu. Þetta er
hennar tækifæri til þess að vinna
titilinn því KR-liðið hefur hingað til
verið sterkasta liðið á þessari leik-
tíð. Signý mun berjast við Sigrúnu
Sjöfn Ámundadóttur miðherja
Hamars sem lék með KR í fyrra.
Sigrún hefur vafalaust mikinn
áhuga á því að vinna gömlu sam-
herjana og barátta þesara tveggja
verður áhugaverð.
Allt þegar þrennt er?
KR hefur tapað úrslitarimmum
sem þessari síðustu tvö ár. Gegn
Haukum í fyrra og þar áður gegn
Keflavík. Leikmenn KR þekkja því
það umhverfi sem fylgir því að berj-
ast um titilinn og virðast hafa lagt
mikið á sig til þess að geta klárað
dæmið. Margrét Kara Sturludóttir
hefur átt frábært tímabil. Hún not-
aði undirbúningstímabilið vel og
tókst að skerpa á snerpunni og
hraðanum. Það hefur skilað sér í
meira stigaskori hjá henni. Varn-
armaður ársins í fyrra, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir, hefur ekki lát-
ið sitt eftir liggja í lyftingasalnum
og er gríðarlega sterk maður á móti
manni eins og það er kallað.
Bæði lið búa vel þegar kemur að
þjálfun liðanna. Benedikt Guð-
mundsson þjálfari KR hefur tvíveg-
is unnið titilinn í karlaflokki en er
nýliði í kvennaboltanum. Ágúst
Björgvinsson gjörþekkir kvenna-
boltann og var ekki lengi að koma
Hamri í fremstu röð en félagið hef-
ur aldrei orðið Íslandsmeistari. Það
verður væntanlega hátt sungið
Heims um ból í Hveragerði ef liðinu
tekst að leggja vesturbæj-
arstórveldið og tryggja sér sinn
fyrsta titil.
Bið Signýjar á enda?
Úrslitarimma KR og Hamars að hefjast Verður lands-
liðsfyrirliðinn loks meistari? Hamar hefur aldrei unnið
Morgunblaðið/hag
Átök Signý Hermannsdóttir KR og Sigrún Ámundadóttir Hamri.