Morgunblaðið - 26.03.2010, Síða 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
ÞEGAR ég settist niður til að
fylgjast með útsendingu Stöðvar 2
Sport á vináttulandsleik Mexíkó og
Íslands í Charlotte í fyrrinótt vissi
ég ekki alveg á hverju var von.
Ólafur Jóhannesson tefldi fram níu
leikmönnum sem höfðu leikið á
bilinu einn til fjóra landsleiki og
þeim til halds og trausts voru
Bjarni Guðjónsson sem hefur lítið
komið við sögu með landsliðinu
undanfarin ár og Gunnleifur Gunn-
leifsson markvörður sem á aðeins
hálfs annars árs feril að baki með
því.
Mexíkósku mótherjarnir voru allt
leikmenn sem eru vanalega í lands-
liðshópi eða í baráttu um að vera
þar og voru margir hverjir að sýna
sig og sanna í síðasta sinn áður en
HM-hópur þjóðarinnar verður val-
inn eftir páskana.
Íslenska liðið kom mér þægilega
á óvart. Það náði ekki markalausu
jafntefli með því að liggja í vörn og
treysta á guð og lukkuna. Það lék
sem ein heild, varðist vel, gaf fá
færi á sér, og sótti síðan hratt og
yfirvegað þegar boltinn vannst.
Reynslulitlir strákar voru ófeimnir
við að halda boltanum undir pressu
á eigin vallarhelmingi, byggja þar
upp spil, og bruna síðan fram völl-
inn við öll möguleg tækifæri. Enda
var leikurinn í jafnvægi mestallan
tímann og það var ekki fyrr en á
síðustu 10 mínútunum sem Mexíkó-
ar náðu að setja talsverða pressu á
lið Íslands þegar þeir reyndu af öll-
um mætti að knýja fram sigur.
Tilbúnir í slaginn
Það fer vart hjá því að þessi hóp-
ur sem Ólafur valdi til að spila
gegn Færeyjum og Mexíkó valdi
honum höfuðverkjum næstu mán-
uðina. Af jákvæðum toga. Ég sé
nefnilega ekki annað en hann verði
í miklum vandræðum næst þegar
allir bestu knattspyrnumenn Ís-
lands verða gjaldgengir í A-
landsleik. Þeir ellefu sem hófu báða
þessa leiki sýndu allir í Charlotte
að þeir eru tilbúnir í slaginn. Til að
tína einhverja út úr þá lék Arnór
Sveinn Aðalsteinsson frábærlega
sem vinstri bakvörður, Steinþór
Þorsteinsson var geysilega ógnandi
á hægri vængnum, Kolbeinn Sig-
þórsson lét miðverði Mexíkóa hafa
fyrir sér allan tímann og er fram-
tíðarsóknarmaður landsliðsins, Val-
ur Fannar Gíslason og Jón Guðni
Fjóluson stigu vart feilspor í mið-
varðastöðunum. Guðmundur Krist-
jánsson var öflugur á miðjunni með
Bjarna Guðjónssyni og Matthíasi
Vilhjálmssyni, Skúli Jón Frið-
geirsson er stöðugt vaxandi sem
hægri bakvörður, Jóhann Berg
Guðmundsson á framtíðna fyrir sér
á vinstri kantinum og Gunnleifur
var óhemju öruggur í markinu.
Nú, ég taldi víst allt byrj-
unarliðið upp. En það var líka full
ástæða til þess. Þetta var öflug og
samhent liðsheild og fínn heild-
arbragur á liðinu. Fyrir mér er nið-
urstaða leiksins sú að við Íslend-
ingar eigum miklu fleiri
frambærilega fótboltamenn en við
gerum okkur alltaf grein fyrir sjálf-
ir.
Morgunblaðið/Golli
Góður Arnór Sveinn Aðalsteinsson var einn af bestu leikmönnum vallarins í Charlotte í fyrrinótt.
Höfuðverkur Ólafs
Óreynt lið Íslands gerði jafntefli gegn Mexíkó Góður heildarsvipur á liðinu
sem þorði að spila og halda boltanum Allir gera tilkall til sætis í landsliðinu
Bank of America-leikvangurinn í
Charlotte, vináttulandsleikur karla,
miðvikudaginn 24. mars 2010.
Skilyrði: Milt veður, 18 stiga hiti.
Skot: Mexíkó 12 (6) – Ísland 11
(6).
Horn: Mexíkó 11 – Ísland 5.
Lið Mexíkó: Luis Michel – Jonny
Magallón, Juan Valenzuela, Jorge
Torre Nilo, Paúl Aguilar, Gerardo
Torrado, Vicente Matías Vuoso
(Angel Reyna 73.), Adolfu Baut-
ista, Pablo Barrera, Adrián Aldrete,
Efraín Juárez (Miguel Sabah 46.)
Lið Íslands: (4-5-1) Mark: Gunn-
leifur Gunnleifsson. Vörn: Skúli
Jón Friðgeirsson, Valur Fannar
Gíslason, Jón Guðni Fjóluson, Arn-
ór S. Aðalsteinsson. Miðja: Stein-
þór F. Þorsteinsson (Gunnar Örn
Jónsson 87.), Guðmundur Krist-
jánsson, Matthías Vilhjálmsson,
Bjarni Guðjónsson, Jóhann Berg
Guðmundsson (Atli Guðnason 84.)
Sókn: Kolbeinn Sigþórsson.
Dómari: Mark Geiger – Bandaríkj-
unum.
Áhorfendur: 63.227.
Mexíkó – Ísland 0:0
„ÞETTA var engu líkt, strax þegar við komum
út í upphitun voru tugþúsundir mættar á völl-
inn og lætin voru ótrúleg allan tímann. Það
heyrðist ekki mannsins mál, við gátum nánast
ekkert talað saman í leiknum og urðum því að
vera enn betur vakandi en venjulega og halda
einbeitingu. En þetta var fyrst og fremst
skemmtilegt, áhorfendur voru mættir til að
skemmta sér. Þeir bauluðu reyndar á Mexí-
kóana þegar þeir gengu inn í hálfleik en annars
vara bara gaman hjá þeim í stúkunni allan tím-
ann,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðs-
markvörður Íslands, við Morgunblaðið um
leikinn gegn Mexíkó í fyrrinótt.
„Við fórum í þennan leik, frammi fyrir hátt í
70 þúsund áhorfendum, staðráðnir í að njóta
hverrar mínútu, spila fyrir stoltið og þjóðina,
og með það upplegg að þora að spila og halda
boltanum. Það gekk virkilega vel, og við vorum
sjaldan í vandræðum gegn
mönnum sem margir hverj-
ir eiga eftir að spila á HM í
sumar. Það bjóst enginn við
neinu af þessu liði okkar,
með alla þessa heimamenn
og tvo stráka frá Hollandi.
Liðsheildin var frábær,“
sagði Gunnleifur sem hafði
ekki mikið að gera í mark-
inu, fyrr en á lokakafla
leiksins. Hann varði þá m.a.
skalla úr opnu færi á síðustu andartökunum.
Gunnleifur hefur ekki fengið á sig mark í
samtals 245 mínútur í fjórum síðustu lands-
leikjum sem hann hefur spilað. Hann fékk á sig
mark á 33. mínútu gegn Georgíu í september
og hefur síðan haldið hreinu gegn Kýpur, Fær-
eyjum og Mexíkó. vs@mbl.is
„Gátum ekkert talað saman“
Gunnleifur
Gunnleifsson
„ÉG er mjög ánægður með leikinn og úrslit-
in, og með frammistöðu strákanna. Ég sagði
við þá fyrir leikinn að það væri ekki nóg að
liggja aftarlega og verjast vel, þeir yrðu að
þora að halda boltanum og spila honum, og
þeir gerðu það á köflum ágætlega,“ sagði
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu við Morgunblaðið, um leikinn gegn
Mexíkóum í Charlotte í fyrrinótt.
„Fyrri hálfleikur var betri af okkar hálfu.
Eftir því sem leið á þann seinni bættu
Mexíkóar í sóknina um leið og okkar menn
hugsuðu meira um að verjast og freista þess
að halda jöfnu. Það lá talsvert á okkur á
lokakaflanum en strákarnir stóðust press-
una,“ sagði Ólafur.
Athygli vakti að hann skipti aðeins tveim-
ur varamönnum inn á í leiknum. „Leikurinn
þróaðist þannig þegar á leið að það hefði að
mínu mati verið of mikil
áhætta að brjóta liðið of
mikið upp með innáskipt-
ingum. Það var ákveðinn
taktur í okkar leik sem
mér fannst ekki vænlegt
að breyta og þó að ég
hefði treyst öllum sem
voru á bekknum er það
einfaldlega þannig að í
svona leik tekur það tíma
fyrir varamenn að komast
inn í leikinn. Allir vilja taka þátt í leiknum,
ég hef 100 prósent skilning á því, og það er
alltaf sárt fyrir þá sem ekki koma við sögu.
En þó að þetta hafi verið vináttuleikur skipta
úrslitin máli og eins og staðan var og málin
höfðu þróast mat ég stöðuna á þennan hátt,“
sagði Ólafur Jóhannesson. vs@mbl.is
„Strákarnir stóðust pressuna“
Ólafur
Jóhannesson
21. Vicente Matías Vuoso
komst í færi á hægra markteigs-
horni en skaut yfir mark Íslands,
undir mikilli pressu frá Val Fann-
ari Gíslasyni.
34. Adolfo Bautista skallaði
rétt framhjá marki Íslands eftir
fyrirgjöf frá vinstri.
45. Jón Guðni Fjóluson átti
þrumuskot úr aukaspyrnu rétt ut-
an vítateigs sem Luis Michel
markvörður varði vel með því að
slá boltann til hliðar.
58. Miguel Sabah skaut rétt
utan vítateigs, í þverslá íslenska
marksins og yfir.
65. Kolbeinn Sigþórsson átti
hörkuskot frá hægra vítateigs-
horni, rétt framhjá markvinkl-
inum.
90. Besta færi leiksins, á fjórðu
mínútu í uppbótartíma. Miguel
Sabah skallaði frá markteig en
Gunnleifur Gunnleifsson var vel á
verði og varði örugglega.
I Gul spjöld:Guðmundur Kristjánsson
11. (brot), Vicente Matías Vuoso
26. (brot), Paúl Aguilar 90. (brot).
I Rauð spjöld:Engin.
Gunnar Örn Jónsson kom inn á
sem varamaður hjá íslenska liðinu
undir lokin og spilaði sinn fyrsta
landsleik. Atli Guðnason kom inn
á skömmu áður en þeir voru einu
varamennirnir sem komu við
sögu.
Á bekknum sátu allan tímann
þeir Fjalar Þorgeirsson, Baldur
Sigurðsson, Óskar Örn Hauks-
son, Alfreð Finnbogason, Guð-
mundur Reynir Gunnarsson,
Björgólfur Takefusa og Gunnar
Már Guðmundsson.
Mexíkóski þjálfarinn Javier
Aguirre tók leikinn jafn alvarlega
og Ólafur Jóhannesson og gerði
líka bara tvær breytingar á sínu
liði.
Þetta gerðist
í Charlotte
ÞAÐ er óhætt að segja að varn-
arleikur íslenska landsliðsins hafi
verið í lagi síðan Ólafur Jóhann-
esson tók við því. Ísland hefur
ekki fengið á sig þrjú mörk í leik
síðan í nóvember 2007, gegn Dön-
um í fyrsta leik Ólafs, og hefur
nú leikið 26 leiki í röð án þess að
fá á sig meira en tvö mörk.
Með jafnteflinu í Charlotte hef-
ur Ísland aðeins tapað einu sinni
í síðustu níu landsleikjum, 0:1
gegn Íran í Teheran, og aðeins
fengið á sig 5 mörk í þessum níu
leikjum. Síðast fékk Ísland á sig
tvö mörk í leik gegn Makedóníu í
júní 2009.
Íslenska liðið hefur haldið
hreinu í þremur fyrstu lands-
leikjum ársins, 0:0 gegn Kýpur,
2:0 gegn Færeyjum og 0:0 gegn
Mexíkó. vs@mbl.is
Eitt tap í níu
landsleikjum