Morgunblaðið - 26.03.2010, Síða 8
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Gunnar Heið-ar Þor-
valdsson lék í
fyrradag með
varaliði enska
knattspyrnuliðs-
ins Reading eftir
að hafa verið frá
vegna nára-
meiðsla í tvær
vikur. Gunnar fór vel af stað en hann
skoraði mark, krækti í vítaspyrnu,
sem og í aukaspyrnu sem skorað var
úr, þegar Reading lagði Sailsbury að
velli, 4:3. Gunnar hefur vegna
meiðslanna misst af tækifæri til að
vera í aðalliðshópi Reading í und-
anförnum leikjum í 1. deildinni.
Joana Rita Nunes Pavao, portú-galska knattspyrnukonan sem
gekk til liðs við FH í vetur, sleit
krossband í hné fyrir skömmu og
spilar því ekkert með Hafnarfjarð-
arliðinu í sumar. Joana kom til FH
frá ÍR en hún er 34 ára, hefur spilað
með landsliði Portúgals og liðum í
heimalandi sínu og á Spáni. Meiðsli
hennar eru mikið áfall fyrir nýliða
FH sem leika í úrvalsdeildinni í
sumar eftir þriggja ára fjarveru.
Cristiano Ro-naldo skor-
aði tvö stór-
glæsileg mörk og
Gonzalo Higuaín
önnur tvö þegar
Real Madrid
vann öruggan úti-
sigur í nágranna-
slag gegn Getafe,
4:2. Staðan var orðin 4:0 eftir aðeins
37 mínútna leik. Þetta var tíundi sig-
ur Real í röð og með honum komst
liðið á ný uppfyrir Barcelona og í
toppsæti spænsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu. Liðin eru jöfn að stig-
um og langefst en markatala Real er
aðeins betri.
Portúgalski knattspyrnumað-urinn Ricardo Carvalho verður
ekki með Chelsea næstu vikurnar
vegna meiðsla sem hann varð fyrir í
5:0-sigri Chelsea gegn Portsmouth á
Fratton Park í fyrrakvöld. Carvalho
meiddist á ökkla í fyrri hálfleik og
varð að fara af velli eftir 37 mínútna
leik en hann þarf hugsanlega að fara
í aðgerð vegna meiðslanna.
Rafn Markús Vilbergssontryggði Njarðvík jafntefli, 1:1,
gegn úrvalsdeildarliði Hauka í gær-
kvöld en liðin mættust þá í Reykja-
neshöllinni í deildabikar karla í fót-
boltanum. Rafn skoraði
jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á
lokamínútu leiksins en Arnar Gunn-
laugsson hafði komið Haukum yfir í
fyrri hálfleik. Í Egilshöllinni skoraði
Björn Viðar Ásbjörnsson tvívegis
fyrir ÍR sem lagði Þrótt, 4:3, í slag
fyrstudeildarliðanna.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í Serbíu
seth@mbl.is
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
landsliðsþjálfari vill landa sex stig-
um í þessari mikilvægu úti-
leikjahrinu liðsins en helsti höf-
uðverkur Sigurðar verður að setja
réttu leikmennina í varnarlínu Ís-
lands. Sigurður sagði í gær að lík-
lega myndi hann færa til leikmenn
úr sínum „venjulegu“ stöðum til
þess að fylla í það skarð sem þarf að
fylla í vörninni.
„Meiðsli hafa sett ýmislegt í okkar
undirbúningi úr skorðum en ástand-
ið er mun betra í dag en fyrir tveim-
ur til þremur vikum,“ sagði Sigurður
í gær við Morgunblaðið, eftir kvöld-
verð liðsins á Vojvodina-hótelinu í
Zrenjanin í Serbíu í gær. „Eftir að
við komum heim úr Algarveferðinni
höfum við aðeins æft saman tvívegis,
um sl. helgi. Þar var settur upp æf-
ingaleikur gegn U-19 ára liðinu, en
við vorum aðeins með sjö leikmenn
úr þessum hópi í þeim leik. Eftir á að
hyggja þurfum við einfaldlega að
fara fyrr út í svona æfingaferðir í
framtíðinni. Það er vissulega dýrara
en ég tel mikilvægt að liðið nái fleiri
æfingum saman. Og það er komin
upp önnur staða en áður. Það eru
mun fleiri leikmenn liðsins að leika
með liðum erlendis og við þurfum að
leysa úr því fyrir næsta ár.“
Margrét Lára á réttri leið
„Margrét Lára hefur leikið þrjá
leiki í Svíþjóð með Kristianstad þar
sem hún hefur leikið í 90 mínútur án
vandræða. Það eru jákvæðar fréttir
en hún hefur glímt við meiðsli í aft-
anverðu læri í langan tíma. Hún fór í
meðferð hjá lækni á Íslandi um sl.
helgi og vonandi verða þessi meiðsli
úr sögunni hjá henni. Edda Garð-
arsdóttir og Dóra Stefánsdóttir hafa
átt við meiðsli að stríða í vetur en
þær eru hægt og bítandi að koma til
baka. Hólmfríður Magnúsdóttir var
þreytt þegar hún hitti okkur eftir
ferðalagið frá Bandaríkjunum. Það
er nýtt fyrir hana að glíma við tíma-
mismun og löng ferðalög. Að auki
hefur lið hennar Philadelphia æft
mjög stíft að undanförnu. Guðný Óð-
insdóttir lék vel á Algarve en hún
meiddist þar og hefur verið smátt og
smátt að ná sér.“
Tveir af lykilvarnarmönnum ís-
lenska liðsins undanfarin misseri
eru ekki með liðinu í þessari ferð.
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir er enn
frá vegna höfuðhöggs sem hún fékk
á EM í Finnlandi í fyrrasumar. Erna
Sigurðardóttir sleit krossband á síð-
ustu æfingu landsliðsins og Ásta
Árnadóttir er meidd. Sigurður
Ragnar þarf því að gera breytingar
á varnarlínu liðsins. „Ég hef úr ýms-
um möguleikum að velja en ég á enn
eftir að taka lokaákvörðun. „Ég get
fært til leikmenn á vellinum og við
eigum hæfileikaríka leikmenn sem
geta leikið í hjarta varnarinnar. Ég
valdi líka ungan leikmann úr KR,
Mist Edvardsdóttur, sem steig sín
fyrstu skref með okkur á Algarve. Á
þessum tímapunkti á ég frekar von á
því að hreyfa leikmenn úr sinni
„venjulegu“ stöðu til þess að fylla
það skarð sem þarf að fylla í vörn-
inni. Það á eftir að koma í ljós hvað
ég geri,“ sagði Sigurður Ragnar
Eyjólfsson.
Ástandið mun betra í dag
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta
kom til Zrenjanin í Serbíu í gærkvöldi
en framundan eru tveir leikir í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins.
Leikið verður gegn Serbum á morgun
og á miðvikudag leikur Ísland gegn
Króatíu.
Ljósmynd/Algarvephotopress
Fagnað Íslensku landsliðskonurnar samgleðjast Dóru Maríu Lárusdóttur eftir að hún innsiglaði sigur, 3:0, á Portúgal fyrr í þessum mánuði.
Kvennalandsliðið komið til Serbíu Leikur þar í undankeppni HM á morgun
Meiðsli hafa sett undirbúning úr skorðum en horfurnar eru betri en áður
Í HNOTSKURN
»Ísland mætir Serbíu ámorgun klukkan 14 í bæn-
um Banatski Dvor, sem er í
rúmlega tveggja tíma akst-
urfjarlægð norðaustur af Bel-
grad.
» Ísland er með níu stig eftirað hafa sigrað Serbíu 5:0,
Eistland 12:0 og Norður-
Írland 1:0 en tapað 0:2 fyrir
Frakklandi.
»Serbía er með eitt stig eft-ir 1:1-jafntefli við Króatíu,
0:5-tap gegn Íslandi og 0:2
gegn Frakklandi.
„VIÐ höfum æft aðra hverja helgi frá því í janúar og um
s.l. helgi tókum við æfingu og æfingaleik gegn U-19 ára
landsliðinu. Það er stór hluti leikmannahópsins erlendis og
þetta er því aðeins öðruvísi en áður hjá okkur sem erum að leika
á Íslandi. Það eru færri A-landsliðsleikmenn á æfingum en þetta hefur
gengið vel að mínu mati. Algarvebikarinn í Portúgal er frábær und-
irbúningur fyrir þessa törn og þar fengum við að keppa gegn sterk-
ustu liðum heims – sem er ómetanlegt,“ sagði Katrín Jónsdóttir leik-
maður Vals og fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í gær við
Morgunblaðið. Það má leiða að því líkur að Katrín verði í hjarta varn-
arinnar gegn Serbum á laugardag en þeir miðverðir sem hafa leikið
með Katrínu undanfarin misseri eru báðir meiddir. Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir hefur ekkert leikið frá því hún fékk höfuðhögg á EM í Finnlandi, og Erna
Sigurðardóttir sleit krossband í hægra hné á síðustu æfingu landsliðsins fyrir ferðina til
Serbíu. „Það er alltaf slæmt þegar góðir leikmenn eru meiddir og geta ekki verið með.
Við verðum að leysa úr þessari stöðu sem komin er upp og ég er viss um að þetta á eftir
að ganga vel. Það eru margir góðir leikmenn í okkar liði og við höfum áður lent í því að
leikmenn séu meiddir og aðrir hafa einfaldlega tekið við keflinu og skilað sínu,“ sagði
Katrín. seth@mbl.is
Katrín
Jónsdóttir
„VIÐ þekkjum þetta serbneska lið ágæt-
lega, það gekk nokkuð vel gegn
þeim þegar við vorum síðast með
þeim í riðli. Aðalmarkmiðið fyrir
okkur er að halda einbeitingu
og gera það sem við þurf-
um að gera. Við höfum
brennt okkur á því að
mæta til leiks með rangt
hugarfar og það má ekki gerast í þessari ferð,“ sagði Þóra B. Helgadóttir landsliðsmarkvörður í
gærkvöld eftir að íslenska landsliðið hafði komið sér fyrir á Vojvodina hótelinu í bænum Zrenj-
anin í Serbíu.
„Það hafa orðið miklar breytingar á liði Serba frá því við mættum þeim síðast. Nýr þjálfari
hefur tekið við og margir leikmenn sem gáfu ekki kost á sér hafa skipt um skoðun og eru mættir
til leiks á ný. Við þurfum örugglega að hafa fyrir hlutunum gegn Serbum.“
Þóra samdi við sænska liðið Malmö FF s.l. haust eftir að hafa leikið með Kolbotn í Noregi.
Hún segir að undirbúningstímabilið með Malmö hefði vel getað gengið betur. „Já, ég var ekki al-
veg sátt við sjálfa mig í upphafi undirbúningstímabilsins. Ég var lengi í gang en smátt og smátt
hefur þetta lagast en samkeppnin er hörð um sæti í byrjunarliðinu,“ sagði Þóra. seth@mbl.is
„Við þurfum að hafa
fyrir hlutunum“
Reynd Þóra B.
Helgadóttir er þriðja
leikjahæst í íslenska
landsliðinu.
„Ég er viss um að þetta á
eftir að ganga vel“