Austri - 03.04.1957, Page 3
Neskaupstað, 3. apríl 1957.
AUSTRI
r
AUSTRI
Útgefendur:
Framsóknarmenn
á Austurlandi.
Ritstjóri:
Ármann Eiríksson.
Kemur út hálfsmánaðarlega.
Verð í lausasölu 2 kr.
Árgangurinn kostar 40 kr.
NESPRENT H-P
Þörf samstæðs
v er ldýðsflokks
Afeð stjómarskiptunum í sumar
Urðu mikil umskipti í Stjórnar-
raðinu. Þar hafði íhaldið setið ó-
shtið í 12 ár og raunar lengur. Það
Var búið að hreiðra svo um sig,
því tók sárar að yfirgefa
hreiðrið, en dæmi eru til hér á
handi, ef mark má taka á skrifum
1-ess og öllu látæði foringjanna.
Hvað olli hinni löngu setu í-
haldsins í Stjórnarráði Islands á
sarna tíma og verkamenn og bænd
U:’ fóru löngum í sameiningu
með stjórn í ýmsum þefcm
^óndum sem okkur eru skyldust
11 m menningu og stjómarháttu ?
í*ví er fljótsvarað. Með stofnun
Kommúnistaflokks Islands og efl-
mgu hans undir fölsku merki, var
eining verkalýðsins rofin og mátt-
Ur hans til jákvæðra átaka í lands-
málabaráttunni stórlega veiktur.
Verður seint með tölum talið það
^ón, sem ringulreiðin til vinstri
hefur bakað þjóðfélaginu.
Þó íslenzku kommúnistarnir
hafi um árabil reynt að hylja úlfs-
hár stefnu sinnar undir sauðar-
Ssru sameiningarvilja og þjóð-
ru'kni, .þa hefur tilbeiðsla hins
austræna þjóðskipulags og ofsa-
kenndur andróður gegn samstarfi
Vestrænna þjóða gengið eins og
rauður þráður gegnum allt
Þeirra flokksstarf. Hafa þessi
annarlegu sjónarmið foringjaliðs-
ms orðið þess valdandi, að ekki
hefur komið til þátttöku í ríkis-
stjórn og þúsundum kjósenda,
sem fylgt hafa flokknum, án sam-
úðar með hinu austræna viðhorfi,
hefur þannig verið haldið óvirk-
i:m í landsmálastarfinu.
Síðustu misserin hafa verið
töluverð umbrot í Sósíalista-
I fltkknum. Samfelld keðja frétta
i frá höfuðbólinu í Moskva og hjá-l
kigunum í leppríkjunum hefur
valdið ólgu. Afleiðingar eru m. a.
hið einstæða fyrirbrigði er flokk-
urinn bauð ekki fram við Alþing-
iskosningarnar í sumar. Flestir
leiðtoganna gengu í nýjan flokk,
sem gtekk til stjórnarmyndunar
eftir kosningar og strikaði þá
yfir heilt herfylki stórra orða,
undirgekkst vestræna samvinnu í
utanríkismálum og ráðherrar
hans fordæmdu harðlega aðfarir
Rússa í Ungverjalandi (þvert of-
an í óumbreytanlega reglu nokk-
urra áratuga).
Hér hefur orðið mikil breyting,
sem ekki er rétt að vanmeta. En
umbrotin halda áfram. Og ótald-
ir eru þeir svitadropar og þær
vökunætur, sem það hefur kostað
ráðherra Alþýðubandalagsins að
sveigja órólegu deildina í flokkn—
um til stuðnings við stefnu ríkis-
stjórnarsinnar í efnahags- og ut-
anríkismálum. Einar Olgeirsson
og fleiri hafa heldur ekki látið
sií, muna um það að setjast inn
að borði lærifeðranna á erlendri
grund, þegar þeir nú, eftir ung-
verska blóðbaðið, gefa sér tóm til
að vinda ermarnar og þvo hendur
sínar, og láta vinum sínum á Is-
landi og öðrum Norðurlöndum
náðarsamlegast í té nýja línu-
Ástandið í íslenzkri verkalýðs-
póliitik, eins og það er í dag, er
ekki til frambúðar. Hér þarf að
verða lík þróun og á öðrum Norð-
urlöndum. Vilji einhverjir einir
búa við andlegt fóður úr hlöðu
alheimskommúmsmans, þá Iþeir
Tim það. En í landinu verður að
rísa stór, samstæður og sterkur
verkalýðsflokkur, sem grundvall-
ar stefnu sína á íslenzkum við-
hcrfum, flokkur sem tekur á mál-
um af festu og öryggi og getur
staðið að ríkisstjórn með þeim,
sem honum standa næstir 1 lands-
málunum.
Kirkjan
Sunnud. 7. apríl: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. — Messa kl. 2.
Foreldrum og ættingjum vænt-
anlegra fermingarbarna er sér-
staklega boðið til messunnar.
Auglýsing
um endurgreiðslu innflutningsgjalds af benzíni.
Þeir, sem hafa notað meira en 250 lítra' af benzíni til ann-
ars en bifreiða á síðast liðnu ári, eiga rétt á endurgreiðslu
innflutningsgjalds af benzíni, eius og undanfarin ár.
Þeir, sem telja sig eiga rétt á endurgreiðslu eru beðnir að
koma á skrifstofu mína sem fyrst og hafa með sér kvittaða
sölureikninga frá seljanda benzínsins.
Neskaupstað, 26. marz 1957.
Bæjarfógeti Neskaupstaðar.
Auglýsing
frá menntamálaráðuneytinu
Menntamálaráðuneytið vill hér með brýna fyrir fræðslu-
ráðum og skólanefndum, að nauðsynlegt er að auglýsa svo
snemma að vorinu sem unnt erþær skólastjóra- og kennara-
stöður, sem lausar kunna að vera, þó þannig, að prófum í
Kennaraskóla Islands sé lokið nokkru áður en umsóknarfrest-,
ur rennup út, svo að hinum nýju kennurum gefist kostur á að
sækja um störfin. Sé um íþróttakennarastöður að ræða, skal
miða umsóknarfrest við, að prófum í Iþróttakennaraskóla Is-
lands sé lokið áður en umsóknarfrestur rennur út. Ber að senda
fræðslumálastjóra sem allra fyrst á árinu upplýsngar um,
hvaða stöður á að auglýsa og senda honum síðan strax að
umsóknarfresti liðnum tillögu aðila um setning í störfin. Einn-
ig skal svo fljótt sem unnt er senda fræðslumálastjóra tillög-
ur um skipun þeim til handa, sem gegnt hafa skólastjóra- eða
kennarastöðum sem settir tilskilinn tima, en skipa á.
Telur ráðuneytið nauðsyn bera til að þessi háttur verði
upp tekinn, til þess að komast hjá þeim óþægindum er því
fylgja fyrir alla aðila, er slík mál berast fræðslumálastjóra
og ráðuneyti eigi fyrr en í þann mund, er skólar eru að hefjast
að haustinu, og væntir góðs samstarfs við alla aðila um að
hraða afgreiðslu þessara mála.
Til þess að tryggt sé að þeir, sem um umsóknirnar eiga
að fjalla, fái strax í hendur nægilegar almennar upplýsingar
um umsækjendur, hefur ráðuneytið látið gera sérstök umsókn-
areyðublöð, sem verða fáanleg lijá fræðslumálastjóra, skóla-
nefndum og fræðsluráðum, og er þess vænzt að kennarar noti
þau eyðublöð undir umsóknir sínar.
Menntamálaráðuneytið, 11. febrúar 1957.
Gylfi Þ. Gíslason (sign).
Birgir Thorlacius (sign).
Frá samvmnutryggingum
Þar sem nokkur iðgjöld af innbústryggingum frá fyrra ári eru enn í vanskilum, viljum vér sérstak- Tifkynnmg
lega hvetja hlutaðeigendur til að greiða iðgjöldin hið allra fyrsta. frá Almannatryggingaumboðinu
Athugið, að tryggingin er ekki í lagi, fyrr en ið- gjaldið er greitt. Athygli bótaþega skal vakin á því, að greiðslur bóta fyrir apríl fara fram vikuna fyrir páska, dagana 15., 16. og 17. apríl.
SAMVINNUTRYGGINGAR Afgreiðslutími skrifstofunnar er frá kl. 13—15.30.
Umboð: Kí'. Fram. Bæjarfógeti Neskaupstaðar. ••■■■■■■■■■■■■■»■■■■»■■■■•■■■■■■■•■■■■•■■••■■»■•■■■■■■■■■•■■■£■■■»••»•»••■■■*••»••♦•»■••••••••*•■*•••••