Austri - 15.12.1962, Side 4

Austri - 15.12.1962, Side 4
4 AUSTRI JÓL 1962 sagði Ragnhildur og eptir því hljótið þið öll eða eitthvert að : heimsækja okkur. í Nú vík eg aptur að því gamla, ' að allt mitt traust er þar sem þú ert, bæði <með geimslu hjálp og heilræði viðvíkjandi kornkaupon- um mínum og sendimönnum. Eg vildi stuðla svo til að þeir yrðu þér sem koistnaðarminnstir. Fegintn vildi eg kaupa af þér hestlán uppá brún eina ferð. Eg vona þú reiðist ekki þó eg nefni það. Svo vík eg að öðru efni, nefnilega að eiga þig fyrir mína hönd við öll góð kaup hvort það er heldur á korni eða trjám eða hverju sem er af því sem úr skipinu fæst. Teldi eg ekki eptir mér þegar slóðir koma og stillt tíð að koma ef þú héldir það talsverðann hag minn. Eg bið þig tala um slíkt við Einar söðlasmið frænda minn, sem nú fer og vera í öllum ráðum með honum og manni mínum. Þettað er nú orðið of langort bónarugl og þó skal enn við bætt. Eg keypti von í þremur auker- um víns í skipinu fyrir 2 krónur og fól Birni Abrahamssyni (og fékk honum ost!!) að gefa gætur að hvort þau fyndust og sjá til að þeim yrði ekki stolið og geima þau. En af því þú átt hlut í strand- inu, kemur þar oft og átt mann við að rífa, þ fel ég þér á hönd að halda spurnum fyrir þessum romkútum að ekki verði eg „stol- inn hamri“ eins og Ása Þór. Hér var eg kominn þegar allir hættu við að brjótast ofan yfir. Nú er 24 apríl og ég sendi á morg- un ofan á Eyríksdal með skýða- grindúr eða ná minum 4 sekkjum þar af mjöli. Loxins er eg orðinn htæddur við tíðina, búinn að taka yfir 50 fjár og enn er hér ekki jarðarbragð nema í Kirkjubæav- iandi en það er langt að reka þang- að. Nú vildi eg rúgurinn væri kom- inn sem hjá þér er. Eg er sjaldan vel frískur og svo er enn, get því ekki gjört mér til gamans sem þo væri full þörf. Eg rispa hér þrjár vísur handa þér að raula fyrir munni^þér í minning mína. W Láfs er orðinn lekur knör, — líka ræðin fúin, básetanna farið fjör, og formaðurinn lúinn. Því er bezt að vinda upp voð, venda undan landi iáta byrinn bera gnoð, beint að Heljar-sandi. Þar mun brim við b!áan sand, brotna um háa stokka En þegar eg kem á lífsins land, ljær mér einhver sokka. Ví'ur til jafnaldra mins. Bísna móður orðinn er, æfiþráður spunninn og hjá báðum okkur hér, út er bráðuim runninn, Við höfum lengi saman sveist, sopið, gengið, riðið, vatnstrengjum rönd við reist, reyndar engu kviðið. Nú er eg kall og förlast flest, feta um pallinn skakkur. Eg kemst valla upp á hest, án þeiss hallist hnakkur. Vertu sæll kæri Eyjólfur og allir þínir segjum við, Ragnhildur Björnsdóttir og Páll Ólafsson. Páll Ólafsson hefur ritað mjög fagra hönd en letrið er mjög smátt svo að hann kemur furðu miklu máli á það litla blað, sam hann hefur skrifað á. Ekki verður af bréfinu ráðið, hvenær hann hefur verið á ferð- inni á Borgarfirði en sýnilega er ) nokkur tími um liðinn frá því hann kemur heim úr ferðinni og þar til hann iýkur bréfinu, en það er ó- dagsett í upphafi. Færð hefur spillzt og ferðir of- an í Borgarfjörð lagst niður um hríð. Það er 25. apríl, sem hann ætlar að láta sækja mjölsekkina ofan á Eiríksdal, sem er fjallveg- ur milli Borgarfjarðar og Héraðs hið næsta framan undir Dyifjöll- um. Ef til vill hefur hann fluct þá •rneð sér upp á dalinn er hann kom úr neðra. Ekki fór hjá því að Hallíreðav- staðabóndi minntist á kútinn. Kann hefur keypt vonina í 3 anker- um af rommi á 2 kr. Nú er eitt anker 4*7 pottar, svo sjá má, að hafi kútarnir fundizt, hefur hann gert reifarakaup eins og það er kallað, þó tvær krónur væru að vísu peningar í þá daga. Björn Abrahamsson, sem geta átti gætur að kútunum, mun þá hafa búið á Bakkagerði. Hann var sonur Abrahams Ólafssonar Hall- grímssonar í Húsavík. AbraJham hafði haft jarðaskipti við Svein Snjólfsson mann Gunnhildar Jóns- dóttur hins sterka frá Höfn og fluttist Sveinn og hans fólk til HúsaJViíkur en Abraham að Bakka í Borgarfirði. Björn Abrahamsson fór síðar til Ameríku og hans fjölskylda, Sjálfsagt veit nú eng- inn, hvaða spaug liggur bak við upphrópunarmerkin á eftir ostin- um en að líkum lúta þau að ein- hverju, er þeir Páll og Eyjólfur hafa verið búnir að gamna sér yf- ir, meðan Páll var í neðra. Sigríður sú, er Báll nefnir 1 bréfinu, er Sigríður dóttir Eyjólfs sú er ein komst upp af börnujm þeirra Sigurbjargar Jónsdóttur. Hún er, þá atburðir þessir gerast, ógefin í föðurgarði, 24 ára gömul. Hún giftist síðar Hannesi, síðar hreppstjóra á Borgarfirði, Sig- urðssyni bónda á Hólalandi, Árna- sonar í Stokkhólma í Skagafirði. Voru þau Hannes og Sigríður hin merkustu hjón. En Páll Ólafsson átti eftir að bréfa meira til Eyjólfs í Gilsár- vallahjáleigu þetta vor. I rúmi mínu 15. maí 1888. Minn kæri Eyjólfur! „Margt ber smátt við á síð- kveldum" sagði Grettir, svo má eg nú segja. Önnur pípan í apturfætinum á mér hrökk í sundur. Skítt með það. Eg læt eú samt fara til þín þennan samtíning, sem er búinn að !iggja svo og svo lengi. Margt af því sem í hinum er er nú orðið anarkleysa, svo sem að eg geti íundið þig og fleira. Vertu nú í ráðum með piltum mínum, hvað þeir flytja, rúg eða mjöl. Sé rúg- urinn ónýtur þá er að fleyja hon- um en flytja mjöl. Hvort piltar mínir fara tvær ferðir upp á fjall- ið, eða hvort eg get fengið keypt- ann flutning upp á varpið, um það bið eg þig að leggja til heilræði þín. Eg er allur í kauponum enn þá, svo sem um það hvort ’ekki megi iþurrka svo minn rúg að hann verði til gripafóðurs, þá að vetri, eða hvort betra sé að kaupa nýjan rúg og þurk á honum, eg meina til gripafóðurs (helst í hesta) að vetri. Þettað er bara uppástunga, en ekkert áhugamál. Eg hef fengið lista yfir það, sem eg keypti og þar sé eg að eg er skrifaður fyrir númeri af trjám, mjórá og járnsleginn tré- j bútur, 5 kr. og svo tré á 13 krónur, það merkti eg mér ekki og man ekki að mér væri slegið, eg bauð samt víst í það, það hlýtur að vera stórtré, mig ránkar við því. Máske Björn Abrahamsson viti eitthvað um þettað hann tók hitt númerið til geimslu. Þú mátt ekki halda mig eins ágjarnann og eg er leið- inlegur að vera að suðast einlægt á rúg, mjöli, trjám, koniaki og fleiru. Berðu kæra kveðju konu þinni og Sigríði frá okkur Ragnhildi ykkar einlægir vinir Ragnhildur og Páll. Dóttur þinni sendi eg bókina og líyrfjöll. Framan þeirra er Eiriksdalur. Gleðileg jól! Farsælt komandi ár. Þökkum góða vinnu á liðnu ári. Sœsilfur hf. GLEÐILEG JÓL Farsælt komandi ár. IÞökkum viðskiptin. Verzlunin Fönn NESKAUPSTAÐ

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.