Austri - 15.12.1962, Blaðsíða 8

Austri - 15.12.1962, Blaðsíða 8
8 AUSTRI JÖU 1982 ÞAÐ VAR einu sinni kóngur og drottning, sem áttu litla dóttur, og sökum þess, að hún var kóngsdóttii, var hún kölluð prinsessa. Hún het Anna-Lísa og var einkabarn for- eldra sinna. Og einmitt þess vegna þótti þeim afskaplega vænt ura hana, næstum of vænt. Þegar Anna-Lísa prinsessa var skírð komu tvær góðar álfkonur til veizlunnar, rauðklædd og bliá- klædd og voru skírnarvottar sem venja var hjá þjóasagnakonungum. Og þessar góðu álfkonur gleymdu ekki að gefa litlu prinsessunni hvor sína skírnargjöf. Rauða álf- konan gaf henni stóra, dásamlega fagra perlu, fegurri en nokkur hafði áður augum litið, og perlunni fyigdu Mka þrjár aðrar gjafir: — Svo legg ég á, sagði álfkonan, að á meðan Anna-Lása á perluna skal hún stöðugt verða fegurri, stöðugt auðugri og stöðugt gáif- aðri. En glati hún perlunni sinni glatar hún uim leið öllum hinum þremur gjöfunum, fegurð sinni, auðæfum og gáfum og þær endurheimtir hún ekki, fyrr en hún íinnur perluna sína á ný. Þá sagði bláa álfkonan: — Anna- Lísa hetfur fengið svo góðar gjaf- ir, að enginn getur óskað sér ann- arra betri. Þó er ein gjöf miklu betri og hana vil ég gefa prinseiss- unni, en með einu skilyrði þó. Með- an Anma-Lísa á perluna sína og gjafirnar þrjár koma lálög min ekki fraim, en týni hún perlunni, fegurð sinni; auðæfum og gáfum, skal hún í bætur öðlast gjöf mína og hún er: auðmjúkt hjarta. Og þá var þessu lokið og álf- konurnar hneigðu sig að skilnaði og hurfu sem hvít ský á hinum biáa sumarhimni. Kóngurinn og drottningin voru afskaplega ánægð. Þau hugsuðu með sér: — Ef dóttir okkar verð- ur fögur, rík og gáfuð skiptir engu máli hvernig hjarta hennar er. Við verðum að gæta perlunnar hemmar vel og þá fær prinsessan ekki hina fátæklegu gjöf bláu álfkonunnar. Nei, sannarlega vissi rauða álf- konan hvað sæmdi prinsessu. Hennar gjafir voru konungsger- samar. Nú lét kóngurinn smíða gull- kórónu, sem passaði mákvæmlega á höfuð Önn-Lísu litlu og þannig var kórónan gerð, að hún stækk- aði jafnt og höfuð litlu prinsess- unnar og var alltaf mátulega stór — en engum öðrum passaði hún, var öllum annað hvort of stór eða of lítil. Efst á frambrún kórónunnar var perlan góða inn- felld og svo vel frá henni gengið, að hún gat ekki losnað, Svo lét kóngurinn sjálfur xór- ónuna á höfuð Önn-Lísu og effir það hafði hún einlægt kórónuna á kollinum, hvort sem hún svaf í gylltu vöggunni sinni eða var vak- andi og hljóp um höllina. En af því að kóngurinn og drottningin voru dauðhrædd um að hún gæti týnt perlunni, var stranglega bannað að láta prinsessuna fara lengra burt en að stóra hliðinu milli hallarinnar og garðsins og samt fylgdu henni stöðugt eftir fjórir herbergisþjónar og fjórar hci'bergisþernur hvert sem hún fór og þau höfðu ströng fyrirmæíi um að gæta prinsessunnar cg perlunnar hennar. Og þeim var betra að svíkjast ekki um, því að grimmi, rauðklæddi böðullinn með Ijóta skeggið og hræðilegu öxina var ekkert lamb að leika sér við. Svo óx litla prinsessan og ailt rættist, sem rauða álfkonan hafði mælt fyrir uim. Ann-Lísa varð sú fegursta prinsessa, sem nokkur maður hafði augum litið, já, svo fögur, að litlu augun hennar geist- uðu eins og tvær skínandi silfur- stjörnur að vorkvöldi, og hvar ssm hún fór var sólskin umhverf- is hana og öll blómin í garðinum hneigðu sig fyrir henni og sögðu: Þú ert fegurri en allt sem fagurt er. Og svo auðug var hún, að það ingin voru þau einu í öllu ríkinu, sem ekki fundu, hve hrokafull hún var. Dag nokkurn, þegar kóngsdótt- irin var fimmtán ára, var hún á skemmtigöngu í hallargarðinum. Þegar hún kom að hliðinu að ytri garðinum var það læst og enginn þorði að opna hliðið gegn tyrir- mælum konungsins, þótt prinsess- an skipaði þerunum fjórum og þjónunum fjórum að opna. Þá varð kóngsdóttirin reið, barði sína tryggu þjóna, klifraði yfir hliðið og hljóp svo hratt hún gat út í skóginn. Og hún hljóp lengi og fann í fyrsta sinn til þreytu, en þá kom hún að djúpri, tærri lind, I settist niður og drakk svalandi 1 vatn úr hönd sér. Hún beygði sig yfir lindina og sá mynd sína 1 tær- um vatnsfletinum. En hvað ég er fögur, sagði hún við sjálfa sig og teygði sig lengra skaltu fá að gera og fá að launum brauð og dálítið af geitamjólk. Þá varð Anna-Lísa svo glöð og þakk- lát, að hún kyssti hönd gömlu kon- unnar, því að án þess að hún vissi, höfðu álög bláu álfkonunnar ko>m- ið fram og Anna-Lísa eignaðist auðmjúkt hjarta. Og þarna bjó Anna-Lísa — prinsessan fagra — gætti geita á daginn, borðaði sitt fátæklega brauð og svaf í hörðu fleti með mosa fyrir kodda — e_n samt leið henni svo vel og var glöð og ánægð. —□— I höil konungsins varð uppi fót- ur og fit þegar prinsessan hvarf og þjónunum og þernunum, sem áttu að gæta hennar, var varpað í fangelöi svo dimmt, að þar sást hvorki sól né máni, en rauði böð- ullinn með ljóta skeggið stóð við dyrnar og hélt á öxinni í hendinni, En kóngurinn og drottningin voru frávita af harmi. Ails staðar var Ævinfýrið um perluna og Önnu-Lísu kóngsdóttur var eins og allt yrði að auðæfum umhverfis hana. Gólfið 1 herberg- inu hennar varð að silfri og manmara, veggirnir að eintómum spsglum, þakið að gulli, alsett gimsteinum sem glóðu og glitruðu í ljósadýrðinni. Og svo gáfuð var hún að hún gat leyst erfiðustu þrautir og mundi allt sem hún átti að læra, ef hún las það einu sinni, og allir vitrustu menn í kóngsrík- inu komu og lögðu fyrir hana erf- iðustu spurningar og allir voru þeir sammiála um, að svo gáfuð og skílningsnæm prinsessa sem Anna-Lísa hefði aldrei verið til í veröldinni. Já, það er gaman að vera fögur, auðug og vitur, ef maður kann að hlýta Guðs vilja, en það er nú það erfiðia. Kónginum og drottning- unni fannst Anna-Lísa vera full- komnasta vera jarðarinnar og það versta var, að brátt fannst Önnu- Lísu þetta sama. Þegar allir stöð- ugt sögðu henni, að hún væri þúsund sinnum fegurri, ríkari og gáfaðri en annað fólk, trúði hún þvi og hjarta hennar fylltist hroka, því eldri sem hún varð, því hrokafyllri varð hún og með hrok- anum komu aðrir lestir. Anna- Lísa varð bæði ágjörn, harðbrjósta og öfundsjúk. Sæi hún fagurt blóm í garðinum, tróð hún það sundur imeð fæti sínum, mætti hún annarri prinsessu í gylltum vagni fylltist hún öfund og heyrði hún talað um skynsama stúlku grét hún beizkum tárum, því fögur, rík og gáfuð vildi hún ein vera. Og i svo kom, að ■ kóngurinn- og ■ drottn- út yfir vatnið til að spegla sig enn betur, — en pomms — þarna datt kórónan af höfði Önnu-Lísu og sökk eins og steinn í djúpið. Anna-Lísa tók varla eftir þessu, svo hugfangin var hún af fegurð sinni. En hvað gerðist? Þegar yf- irborð lindarinnar varð kyrrt að nýju, sá hún allt aðra mynd en sjálfa sig. Hún sá ekki lengur mynd hinnar fögru skrautbúnu prinsessu, en í þess stað sá hún fátæklega förustúlku. Og það sem verra var, í sama vetfangi hurfu gáfur hennar og minni og hún mundi ekki lengur hver hún var en fylltist skelfingu og hljóp í of- boði burt frá lindinni eitthvað út í skóginn án þess að vita hvert hún fór. Og nú fór að skyggja og úlfarnir vældu í skóginuni og Anna-Lísa varð dauðhrædd og hljóp enn lengra inn í skóginn. Loksins sá hún Ijós langt inn á milli trjánna og kom brátt að litl- um kofa, þar sem bjó gömul, fá- tæk 'kona. — Vesalings barnið, sagði konan, hvaðan kemur þú svo síðla kvölds ? En því gat Anna- Lisa ekki svarað og hún mundi ekki lengur hver hún var né hvar foreldrar hennar voru. Þetta þótti gömlu konunni skrýtið, en misk- unnaði sig j'fir hana og sagði: — Fyrst þú ert fátæk og átt eng- an að, skaltu fá að vera hjá mér. Mig vantar einhvern til að gæ.ta geitanna minna í skóginum og það ir Zach. Topelíus leitað, on hvergi íannst prinsess- an og þá skipaði kóngurinn, að allir skyldu ganga í sorgarklæð- um, þangað til þrinsessan fyndist, og hver sem það gerði skyldi fá prinsessuna að launum. og hálft rlkið, þv-í að þannig er það alltaf í ævintýrum. Og sannarlega voru þetta góð fundarlaun og margir reyndu að finna prinsessuna týndu, en án árangurs. -□- Svo liðu þrjú ár og þá gerðist það, að ungur prins, sem leitaði kóngdótturinnar horfnu kom að kofa gömlu konunnar. Þar sat hún í sorgarklæðum og var sannarlega ekkert fín. — Hvern syrgir þú, kona góð? spurði prinsinn. — Engan, svaraði gamla kon- an, en konungurinn skipar öllum að klæðast sorgarklæðum vegna prinsessunnar týndu, en það var ekki stór skaði í henni. Víst var hún fögur, auðug og gáfuð, en >hún var drambsöm og engum þótti verulega vænt um hana. Rétt í þessu kom Anna-Lísa með geiturnar sínar innan úr skógin- um. Prinsinn leit á hana og skildi ekki, hvemig svo ljót og óhrein stúlka gæti haft svo sterk áhrif á hann. Hann spurði hvort hún hefði séð prinsessuna. Nei, það hafði hún ekki. — Þetta er skrýt- ið, sagði prinsinn. I þrjú ár hef ég leitað prinsessunnar horfnu, en

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.