Austri - 15.12.1962, Side 9
JÓL 1962
AUSTRI
9
F'-
nú vil ég ekki leita lengur. Hér í
skóginum ætla ég að byggja mér
höll. Og það gerði hann, en svo
hittist á, að höllin var skammt
frá lindinni góðu, þar sem Anna-
Lísa týndi kórónunni. Og einn
heitan dag varð prinsinn þyrstur
og beygði sig niður að svalri lind-
inni. Þá sá hann eittlivað sem
glitraði og glóði djúpt niðri í vatn-
inu. Hann seildist niður með hend-
inni og upp kom dásamlega fögur
kóx'óna með fagra inngreipta
perlu. Skyldi þetta vera perla.n
hennar Önnu-Lísu? Og prinsínn
fór til hallar konungsins. Ekki
hafði kóngurinn fyrr séð kórón-
una en hann hrópaði: Kóróna
Önnu-Lísu — perla Önnu-Lísu, en
hvar er hún sjálf?
Nú lét kóngurinn þau boð út
ganga að ailar 18 ára gamlar
stúlkur í öllu kóngsríkinu skyldu
koma á tilteknum degi og miáta
kórónuna, því að væri Anna-Lísa
á lífi var hún einmitt 18 ára og
kórónan var þannig gerð, að hún
passaði engum nema Önnu-Lísu.
Þennan dag komu þúsundir
stúlkna til hallarinnar og stóðu
þær í löngum röðum, því að hver
vildi ekki verða prinsessa og eign-
ast prins og hálft kóngsríkið? Og
allan daginn gekk kórónan frá
einu höfðinu á annað, en engum
passaði kórónan fullkomlega.
Loksins, þegar komið var fram að
sólsetri, höfðu allar stúlkurnar
mátað kórónuna, en Anna-Lísa
fannst e-kki. Þá urðu stúlkurnar
reiðar og sögðu: Kóngurinn gabb-
ar okkur, nú skulum við varpa
hlutkesti og sú, sem vinnur fær
bæði kórónuna og prinsinn.
En það vildi prinsinn ekki, og
hann sendi mann að athuga hvort
ekki finndust fleiri stúlkur. Og
maðurinn kom og sagði: — Út við
skógarjaðarinn sá ég rykimökk og
þegar ég kom nær, sá ég að þetta
var stúlka sem rak geitur á undan
sér. Aðrar hef ég ekki séð?
— Komið með hana, sagði prins-
inn. Stúlkan var sótt og allir sáu,
þótt sólin væri senn setzt, að
stúlkan var bæði ófríð og óhrein
— en kórónan passaði nákvæm-
lega á höfuð hennar.
Þá. var hjarðstúlkan leidd í liöll
konungsins, sem ljómaði af þús-
undum kertaljósa. En fegurra en
öll ljós skein prinsessan Anna-
Lísa í undursamlegri fegurð. Því
að um leið og hún fann perluna
hlaut hún aftur gjafir rauðu álf-
konunnar og bezt af öllu var það,
að samtíimis fékk hún líka að
varðveita gjöf bláu álfkonunnar:
sitt auðmjúka hjarta. Þess vegna
féll hún á kné fyrir foreldrum sín-
um og bað þau að fyrirgefa ser
hrokann — og til sönnunar þeirr-
ar breytingar, sem nú var orðin á
hjartalagi hennar lét hún sækja
gömlu konuna út í skóginn, faðm-
aði hana að sér og sagði: Sá
miskunnsami er auðugur í fátækt
sinni, en sá ríki, sem ber kalt
hjarta, er auðnulaus og fátækur,
þrátt fyrir auðæfin.
Svo var haldið brúðkaup í mikl-
um fögnuði í höll konungsins.
Þjónamir fjórir og þemumar
fjórar losnuðu úr fangelsinu, og
rauði böðullinn með Ijóta skeggið
lét öxina sína í skammarkrókinn
og allir þegnar konungsins voru
glaðir og hrópuðu: Fögur er perla
Önnu-Lísu prinsessu en miklu
fegurra er auðmjúkt hjarta.
(Lauslega þýtt og sty.tt).
V. S.
>VWVWWVWW\AA/WWW\A/VA^WVWWN/WVW»AA/VWWWWWVWWWWW\^/V\AA^/>A«/^AAAAA
Samvinnutryggingar
Umboðið í Neskaupstað.
óskar öllum viðskiptamönnum sínum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
og þakkar viðskiptin á árinu, sem er að líða.
AAAA/\A/V\A/W\A/V\AA/W\AA/V\AAAAAAAAAAAAA/WW\AAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/\/\AAAAAA/\AAAA/\AAA<.
Bíll til sölu
Til sölu er vörubifreið, Ford ’60. í fyrsta flokks lagi. Bíllinn
;er með vökvastýri, fimm gíra kassa, útvarpi og miðstöð. Öll
dekk ný. Selst með góðum greiðsluskilmálum.
Ormur Sveinsson
Neskaupstað.
AAAAAAAAAAAAAAAA^AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/W
Félagsmönnum, sfarfsmönnum
viðskipfavinum vorum óskum
og farsæls komandi
Þökkum samsfarf og viðskiph
i a armu
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA
KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA
KAUPFÉLAG AUSTFJARÐA
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA
KAUPFÉLAGIÐ BJÖRK
KAUPFÉLAG FÁSKRÚÐSFIRÐINGA
KAUPFÉLAG STÖÐFIRÐINGA
KAUPFÉLAG BERUFJARÐAR
KAUPFÉLAG AU STUR-SKAFTFELLINGA