Austri - 12.02.1964, Page 3

Austri - 12.02.1964, Page 3
Neskaupstað, 12. febrúar 1964. AUSTRI 3 Bœndafundur á Héraði Framh. af 8. síðu. Vilhjálmur Hjálmarsson, enda stóðu umræður fram undir morg- unn, eins og fyrr getur. Bankaútibúið á Egilsstöðum Miklar umræður urðu á fundin- um um starfsemi útibúsins og einkum um lán það er veitt var á sl. ári til kaupa á millilandaskip- inu Hvítanes, sem nýlega er kom- ið til landsins. Pétur Jónsson og Jón Péturs- son deildu harðlega á útibússtjór- ann fyrir þessa lánveitingu, sem þeir töldu skerða lánamöguleik- ana heima fyrir enda óviður- kvæmilegt að útibúið lánaði út- fyrir sitt starfssvæði, sem væri Austurland, og það til braskara í Reykjavík. Og Pétur Jónsson flutti vítur á útibússtjórann fyrir þessar aðgerðir. Halldór Ásgrímsson andmælti því að kaup og rekstur myndar- legra flutningaskipa heyrði undir brask, enda væri Islendingum höf- uðnauðsyn nú sem fyrr að annast sjálfir sínar siglingar. Lán þetta skerti í engu útlán hér eystra, þar sem velunnarar skipafélagsins syðra hefðu lagt inn í útibúið jafnháa upphæð, er stæði þar a. m. k. svo lengi sem lánið væri ekki greitt. Tryggingar bankans væru al- gerlega öruggar. Og hagnaður útibúsins vegna mismunar innláns og útláns vaxta væri vitanlega þó nokkur. Hér væii því um ekkert að sak- ast. Halldór ræddi einnig nokkuð um starfsemi útibúsins almennt. Það hefði verið illa fyrir því spáð af mörgum ráðamönnum og talið, að rekstur þess yrði þungur baggi á aðalbankanum. En rekstr- arhalli þess hefði þegar í upphafi orðið minni en búizt hefði verið við. Og sl. ár hefði enginn halli verið á rekstri þess. Fjármagn til útlána væri miklu minna en vera þyrfti. Þó hefði verulegt magn sparifjár verið lagt í útibúið af aðilum utan að- alviðskiptasvæðisins og hefði orð- ið að því verulegur stuðningur. Halldór kvaðst þakklátur fund- inum fyrir tækifærið til að skýra þessi mál og leiðrétta misskilning þann er gætt hefði í sambandi við þau. —o— I fundarlok voru tillögur born- ar undir atkvæði, en aðeins félag- ar Bændafélagsins taka þátt í at- kvæðagreiðslum. Egilsstöðum, 31. jan. — ME. Einmuna tíð- arfar hefur ver- ið á Héraði það sem af er vetri, ef frá er skilið ku’dakastið sein- ast í október. Hafa bændur getað sparað hey við sauðfé með kjarnfóðurgjöf. Einnig hefur verið hægt að vinna að húsbygging; m næstum eins og hásumar væri og komið sér vel, en eins og kunnugt er, eru mjög mörg hús í byggingu hér í kaup- túninu. svona gerum við, þegar við þvoum okkar þvott... Þvottadagurinn er léttari fyrir konuna og léttari fyrir börnin ef PERLU þvottaduft er notað. PERLA þvaer betur og þvær fljótar. PERLA fer samt vel með hendurnar og er drjúgt og ódýrt þvottaefni í notkun. LÁTIÐ PERLU LÉTTA STÖRFIN CSÍP^D Tillögur undirbúningsnefndar voru allar samþykktar í einu hljóði. En tillögu Péturs Jónsson- ar var vísað frá með 2 mótat- kvæðum. Lauk svo fundinum á því, að sett var nefnd til að undirbúa mál fyrir næsta umræðufund. Nú um þorrakomuna hafa menn komið saman til að skemmta sér á samkomum, sem nefndar eru þorrablót. Eru það eins konar árshátíðir hvers byggðarlags og sækir þær fjöldi fólks. Sérstak- lega eru þetta hátíðir fyrir eldra fólk, sem annars fer ekki á skemmtanir aðrar en þessar, og má segja, að það sem þarna fer fram, sé meira miðað við smekk og þarfir þessa fólks fremur en hins yngra, sem úr meiru hefur að velja. Félagslíf er alltaf dauft hér. Þó er hér starfandi taflfélag og koma menn saman einu sinni í viku og tefla í barnaskólanum sem lánaður er endurgjaldslaust og eiga forráðamenn skólans þakkir skildar fyrir það. Skákáhugi mun talsverður og sem dæmi sækja þessar æfingar menn utan úr Eiðaþinghá. Msiimtalsþátiur Beruneshreppur: Við manntalið 1703 voru 20 heimili í Beruneshreppi og mann- fjöldi 147. Á þessari öld hefur íbúatala hreppsins verið þessi: Árið 1910 182 íbúar — 1920 195 — — 1930 152 — — 1940 147 — — 1950 140 — — 1960 147 — G eithellnalireppur: Geithellnahreppi var skipt 1940 í Búlandshrepp og Gelthel'na- hrepp. Árið 1703 voru í Álfta- fjarðarhreppi 36 heimili og 212 menn. Á þessari öld hefur íbúata an verið þessi: Álf taf jarðarhreppur: Árið 1910 358 íbúar — 1920 419 — — 1930 434 — Búlandshreppur: Árið 1940 270 íbúar — 1950 309 — — 1960 302 — Geithellnahreppur: Árið 1940 158 íbúar — 1950 117 — — 1960 120 —

x

Austri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.