Austri - 12.02.1964, Side 4

Austri - 12.02.1964, Side 4
4 AUSTRI Neskaupstað, 12. febrúar 1964. Páll Þorsteinsson: Vegalögin — FYRRI HLUTI — Samgöngumálin eru mjög mik- ilvæg fyrir atvinnulíf hverrar byggðar og aðstöðu í þjóðfélag- inu. Á hinn bóginn er kostnaðar- samt að leggja góða vegi um land, sem er stórt í hlutfalli við fólksfjölda. Þess vegna hefur ver- ið talið óhjákvæmilegt að leggja nokkur gjöld á farartækin og eldsneyti þeirra til að standa straum af kostnaði við vega- og brúargerðir, enda mun það tiðk- ast meðal flestra þjó$a. Breyting með „viðreisninni“ Eftir að hinar nýju álögur, sem lögleiddar voru með „viðreisn- inni“, komu til, þá varð sú breyt- ing á, að tekjur ríkisins af um- ferðinni námu miklu hærri fjár- hæð en framlög til vega og brúa, svo að þær runnu raunverulega að nokkru leyti til almennra þarfa rík'sins. Á sama tíma jókst um- ferðin geysilega með fjölgun bif- reiða jafnframt því, að þær stækkuðu og þyngdust. Var þá auðsætt að hverju stefndi í vega- málum., Frumvarp um vega- og brúarsjóð Á Alþingi veturinn 1960—1961 fluttu nokkrir þingmenn Fram- sóknarflokksins frumvarp um vega- og brúarsjóð. Var þar lagt til, að benzínskattur og gjöld af bifreiðum yrðu látin renna í sér- stakan sjóð og því fé eingöngu varið til nýbygginga vega og brúa. Hins vegar skyldu tolltekj- ur af bifreiðum renna beint í rík- issjóð, en hann greiða þar á móti kostnað af vegaviðhaldi. Stjórnarfiokkarnir komu í veg fyrir að frumvarp þetta yrði lög- fest, en samþykktu þingsályktun um að fela ráðherra að skipa nefnd til að endurskoða vegalög- in. I því sambandi fengust stjórn- arflokkarnir ekki til að fallast á það, að nefnd þessi yrði þing- kjörin og að fulltrúuim allra þingflokka gæfist kostur á að fjalla um málið, heldur felldu til- lögu þess efnis. Nokkru eftir þinglok vorið 1961 skipaði samgöngumálaráð- herra fimm manna nefnd sam- kvæmt ályktun Alþingis. 1 hana voru skipaðir ráðuneytisstjórinn í samgöngumálaráðuneytinu, vega- málastjóri, einn verkfræðingur og tveir alþlngismenn, sinn úr hvor- uim stjórnarflokki. Málið var síð- an rúm tvö ár í athugun á veg- um nefndarinnar og ráðuneytis- ins. Vegalagafrumivarpið I fyrstu viku desembermánaðar lagði ríkisstjórnin fyrir Alþingi frumvarp til vegalaga, er fól í sér gagngerar breytingar frá eldri vegalögum. Þær helztu voru þess- ar: Allir vegir skyldu flokkaðir í þjóðvegi, sýsluvegi, fjallvegi og einkavegi, en hreppavegir lagðir niður. ' ' ' 1--- Þjóðvegum skyldi skipt njóra flokka, hraðbraut A, hraðbraut B, þjóðbraut og landsbraut, og fer sú skipting eftir umferðinni og gerð vega. Skipting milli þjóðvega og sýsluvega skyldi fara eftir al- mennum reglum og vissuim skil- yrðum, en heiti hvers þjóðvegar og takmörk ekki lengur ákveðin í lögum. Gerð skyldi áætlun um vega- og brúargerðir til 5 ára í senn, en ekki teknar í fjárlög sundur- liðaðar fjárveitingar til þessara framkvæmda. Samkvæmt hinni almennu reglu skyldu allmargir vegakaflar víðs- vegár, seim verið hafa þjóðvegir, falla úr þjóðvegakerfinu eða sam- tals 654 km, en ýmsir vegir á öðrum stöðum verða þjóðvegir, alls 793 km, svo að þjóðvega- kerfið í heild átti að lengjast samkv. "'■umvarpinu um 139 km. Benzínskattur og gjöld af bif- reiðum skyldi hækkuð verulega og fé til vega- og brúargerða aukið að sama skapi. Lagt var til, að um 11% af fjárframlögum til vegamála rynni til aðalvega í kaupstöðum og kauptúnum. Sýsluvegir yrðu efldir með auknum framlögum frá ríki og héruðum. Hvernig átti hlutur Austur- lands að verða? Samkvæmt vegalagafrumvarp- inu átti að fella úr þjóðvegatölu allmarga vegakafla og bæta nýj- um við á öðrum stöðuim. I Austurlandskjördæmi áttu breytingarnar að verða þannig: Niður felld, þ. e. stytting þjóð- vega: I Norður-Múlasýslu: Hafnarvegur, Bakkaf. 3 km Strandhafnarvegur 9 — Jökuldalsvegur 12 — Hróarstunguv. nyrðri 5 — Seyðisfjarðarvegur syðri 6.1 — Hólalandsvegur í Borgarf. 2.5 — Skóga- og Fljótsdalsvegur 1 — I Suður-Múlasýslu: Hólavegur í Norðfirði 3.9 — Viðfjarðarvegur 7 — Vaðlavíkurvegur 2.7 — Skriðdalsvegur 6.4 — Fáskrúðsfjarðarvegur 16 — Dalavegur í Fáskrúðsf. 2.3 — Norðurdalsvegur 5 — Breiðdalsvegur nyrðri 7.2 — I Austur-Skaftafellssýslu: Hvalnesvegur 6.6 — Bæjarvegur 12 — Hornsvegur 5.9 — Innnesja-, Mýra- og Mela tangavegir 46.2 — Við bætt, þ. e. lenging þjóð- vega: I Norður-Múlasýslu: Sunnudalsvegur 1.2 km Fjallabæjavegur 6.5 —• Vegurinn hjá Hólmatungu og Árteigi 15 — Steinsvaðsvegur 6.7 — Húsavíkurvegur 36 — í Suður-Múlasýslu: Fjallabæjavegur 10 — Suðurdasvegur 5 — Axarvegur 20 — I Austur-Skaftafellssýslu: Vegur í Djúpavogi 1 — Suðurlandsvegur 10 — Hafnarvegur 4.5 — Óslandsvegur 0.5 — Flateyjarvegur 3 — Samningarnir Þegar frumvarpið kom til af- greiðslu á Alþingi, varð stjórn- arandstæðingum, sem höfðu ekki getað fjallað um imálið fyrr, vandi á höndum. Ríkisstjórnin vildi knýja málið fram á þrem vikum. Frumvarpið var yfirgrips- mikið með ýmsum nýmælum,, m. a. lagt til að bæta við nýjum álögum. Hins vegar blasir sú stað- reynd við allra augum, að vega- Síðastliðið laugardagskvöld var haldinn á Egilsstöðum stofnfund- ur Félags ungra Framsóknar- manna á Fljótsdalshéraði, en það nær auk Héraðsins einnig yfir Borgarfjarðarhrepp. Gunnar Guttormsson á Litla- Bakka, formaður undirbúnings- nefndar setti fundinn, en fundar- stjóri var kjörinn Sveinn Guð- mundsson, Egilsstöðum. Stofnendur félagsins reyndust alls 178. Form. var kjörinn Magnús Ein- arsson, skrifst.stj. Egilsstöðum og auk hans í stjórn: Sveinn Guð- mundsson, bankafulltrúi, Egils- stöðum, Gunnar Guttormsson, skólastjóri, Litla-Bakka, Jón Kristjánsson, verzlunarmaður, Eg- ilsstöðum og Kristján W. Magn- ússon, skrifstofumaður, Egils- stöðum. í varastjórn voru kjörnir: Guðmundur Benediktsson, flug- afgreiðslumaður, Egilsstöðum, Pálmi Stefánsson, verzlunarmað- ur, Egilsstöðum og Ásgrímur Ingi Jónsson, sjómaður, Borgarfirði. Fulltrúaráð félagsins er skipað einum fulltrúa úr hverjum hreppi. I það voru kjörnir: Hrafnkell Björgvinsson, Víðivöllum, Fljóts- dal, Bragi Hallgrímsson, Holti, Fellahreppi, Þórður Sigvaldsson, Hákonarstöðum, Jökuldal, Svavar Bjönxsson, SJeðbrjótsseli, Jökuls- Páll Þorsteinsson. kerfið þarf víða bráðra og stór- felldra endurbóta og enn eru margar ár óbrúaðar. Framsóknarflokkurinn gekkst þá fyrir því að leita samninga milli flokkanna á þeim grundvelli að greiða fyrir afgreiðslu máls- ins, ef gerðar yrðu á frumvarp- inu verulegar breytingar. Því var vel tekið og síðan setzt að samnlngaborði og nefndavinnu, unz frumvarpið var lögfest rétt fyrir jólin, Framsóknarmenn lögðu áherzlu á, að sníða af frumvarpinu ýmsa galla, er þeir töldu augljósa. Samgöngumálaráðherra, stuðn- ingsmenn hans í samgönguimála- Framh. á 7. síðu. árhlíð, Hermann Eiríksson, Bót, Hróarstungu, Kjartan Runólfsson, Þorvaldsstöðum, Skriðdal, Jón Bergsson, Ketilsstöðum, Valla- hreppi, Guðmundur Benediktsson, Egilsstöðum, Ásmundur Þórhalls- son, Ormsstöðum, Eiðaþinghá, Valur Þorsteinsson, Sandbrekku, Hjaltastaðaþinghá og Ásgrímur Ingi Jónsson, Borgarfirði. Á fundinum kom fram mikill áhugi og tillögur um framtíðar- starfsemi af ýmsu tagi. Að fundi loknum var dansað til klukkan tvö eftir miðnætti. Á sunnudag var haldinn stofn- fundur Félags ungra Framsókn- armanna á Eskifirði. Fundarstjóri á stofnfundinum var Gunnar Hjaltason. Stofnend- ur félagsins voru um 30. 1 félags- stjórn voru kjörnir: Hilmar Thorarensen, bankarit- ari, formaður, og meðstjórnendur: Gunnar Hjaltason, bókari, S.igmar Hjelm, verkamaður, Júlíus Ingv- arsson, bankaritari og Hákon Sóf- usson, verkamaður. Varastjórn skipa: Guðjón Hjaltason, bifreiðarstj., og Ríkharður Einarsson, iðnnemi. Erindreki frá Sambandi ungra Framsóknarmanna hefur verið staddur hér eystra að undanförnu og aðstoðað við félagsstofnanirn- ar. Tvö félög ungra Framsóknar manna stofnuð um helgina

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.