Austri - 12.02.1964, Page 7
Neskaupstað, 12. febrúar 1964.
AUSTRI
7
Ályktanir bændaíundar í
Austur-Skaítaíellssýslu
Brúargerðir
1. Fulltrúafundur bænda í
Austur-Skaftafellssýslu, haldinn
að Hroilaugsstöðum dagana 16.
og 17. nóvember 1963, lýsir
ánægju yfir því, að fyrirhugað
er af hálfu vegamálastjórnarinn-
ar, að Steinavötn verði brúuð
næsta sumar. Fundurinn treystir
því, að ekki bregðist að brúar-
smíðinni og fyrirhleðslum í sam-
bandi við brúna verði að fullu
iokið á næsta ári.
2. Fundurinn leggur ríka á-
herzlu á að Kotá í Öræfum verði
brúuð á næsta ári.
3. Fundurinn bendir á, að hag-
kvæmt væri, með tiliiti til efnis-
flutninga og vinnu, að Kotá og
Svínafelisá yrðu brúaðar um
sama leyti og af sama vinnu-
flokki og hann væntir þess, að
athugað verði til hlítar hvort
þess er nokkur kostur að afla
nægi.egs fjár til þess að brúa
Svínafellsá á sama ári og Kotá.
4. Fundurinn leggur ríka á-
herzlu á, að áætlunargerð, teikn-
ingum og öðrum undirbúningi a j
brú á Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi verði hraðað og að hafizt
verði handa um smíði þeirrar
brúar, eigi síðar en á árinu 1965.
Fundurinn bendir á, að með
brú á Jökulsá tengist vegakerfi
Austur-Skaftafellssýslu saman í
eina heild og að akvegarsamband
landsins yrði þá samfellt að
Skeiðaráisandi.
5. Fundurinn ítrekar svofellda
úlyktun frá síðasta bændafundi;
Þar sem brúin á Laxá í Nesjum
er svo veikbyggð og mjó, að ekki
er hægt að fara yfir hana með
stórar jarðýtuvélar, þá leggur
fundurinn áherzlu á að sú brú
verði endurbyggð innan skamms.
6. Fundurinn minnir á, enn
sem fyrr, að í miklum vatnavöxt-
um kemst vatnsmagn Kolgrímu
alls ekki undir brúna, svo af því
leiðir, að áin brýtur við og við
skörð í veginn vestan brúarinnar
og að biúin sjálf hefur laskazt.
Þess vegna telur fundurinn brýna
nauðsyn bera til, að byggð verði
ný brú á Kolgrímu, eða brúin sem
nú er þar endurbætt og stækkuð.
7. Fundurinn bendir á, að brú-
in á Holtakíl í Mýrahreppi er tré-
brú sem bráðlega þarf að endur-
bæta og stækka, þar eð vatns-
magn árinnar rúmast ekki undir
brúnni í miklum vatnavöxtum.
8. Fundurinn vekur athygli á,
að Hrútá er svo mikill farartálmi
að hún getur hindrað ferðir bif-
reiða yfir Breiðamerkursand og
hann telur nauðsyn bera til, að
hún verði brúuð innan skamms
og eigi síðar en jafnhliða Jök-
ulsá.
Vegag-erðir
1. Fundurinn væntir þess, að
lagningu vega í Austur-Skafta-
feilssýsiu verði hraðað eftir því,
sem kostur er á, og fé til vega-
viðha.ds aukið, frá því sem ver-
ið heiur. Fundurinn leggur á-
herziu á, að fullgeröir verði sem
fyrst þessir vegakaflar:
Frá Laxá vestur fyrir Brunná
í Lóni.
Frá Viðborðshraunum að
brúnni á Hoitakíl á Mýrum.
Frá Hestgerði austur fyrir
Tröliaskörð í Suðursveit.
Fundurinn vekur ennfremur
athygli á, að naðsyn bei til, að
gera sem fyrst umbætur i Hval-
nesvegi í Lóni og Skaftafellsvegi
í Öræfum.
2. Fundurinn ítrekar svofellda
ályktun frá tveimur síðustu
bændafundum Austur-Skaftfell-
inga;
„Þar sem ekki var ráðin bót á
samgönguörðugleikum við bæinn
Svínafell í Nesjum með brúnni á
Hornafjarðarfijótum, beinir fund-
uiinn því til vegamálastjórnarinn-
ar, að hlutast til um að athugað
verði til hlýtar hvernig hagkvæm-
ast er aö tryggja öruggt vega-
samband frá Svínafelli að þjóð-
veginum“.
Ennfremur verði tekin til at-
hugunar eftirtalin verkefni:
Að bæta úr samgönguerfiðleik-
um við bæinn Setberg í Nesjum,
með brúargerð á Grjótá og
vegagerð í sambandi við hana.
Að tryggja betur en nú er
samgöngur við bæinn Holtasel á
Mýrum vegna Djúpár, sem á ýms-
um tímum er ill yfirferðar eða
ófær. i
3. Fundurinn lýsir ánægju yf-
ir því, að á þessu ári var gerð
tilraun með vatnadreka á Skeið-
arársandi og telur að árangur
hafi orðið góður af þessari fyrstu
tilraun til samgöngubóta á þenn-
an hátt.
Fundurinn leggur áherzlu á,
að haldið verði áfram á sömu
braut, þannig, að á næsta sumri
verði teknar upp skipulegar ferð-
ir á vatnadrekum yfir Skeiðar-
ársand.
4. Fundurinn ítrekar fyrri á-
lyktanir bændafunda um veg yfir
Öxi og minnir á, að sá vegur
styttir leið til Fljótsdalshéraðs
um 60—70 kílómetra. í því sam-
bandi vill fundurinn vekja at-
hygli vegamálastjórnarinnar á
því, að allt efni til þeirra :mann-
virkja, sem unnið hefur verið að
síðastliðið sumar við Ódáðavötn
á vegum Rafmagnsveitna ríkisins,
hefur verið flutt um þennan ófull-
gerða veg, sem að mestu leyti
hefur verið komið upp fyrir at-
beina áhugamanna, svo sú vega-
gerð hefur verið eyðilögð. Telur
fundurinn ilistætt á því fyrir rík-
ísvaldið, ef það sér sér ekki fært
að leggja fram þegar á næsta ári,
nægiiegt fjármagn til endurbóta
á því sem aflaga hefur farið
vegna aðgerða ríkisstofnana og
þar að auki til undirbyggingar
nokkuis hluta framtíðarvegar á
þessum stað.
Fyrirhleðsla vatna
1. Fundurinn telur brýna nauð-
syn bera til að gerð verði fyrir-
hleðsla við Stigaá í Öræfum, til
að koma í veg fyrir skemmdir á
nytjalandi Hhappavalla og fyrir-
hleðslugarðar verði þannig lagðir
að sem stærst land verði friðað
fyrir ágangi árinnar.
2. Fundurinn bendir á, að
Djúpá í Mýrahreppi veldur land-
broti á túni jarðarinnar Holtasel
og telur nauðsyniegt að sem fyrst
verði gerð fyrirhleðsla við ána,
til verndar túni og öðru nytja-
landi jarðarinnar.
3. Fundurinn ítrekar ályktanir
fyrri bændafunda um nauðsyn
þess að gerð verði fyrirhleðsla
vestan megin Jökulsár í Lóni um
hér um bil 500 metra eða hlaða
samsvarandi garð neðar á sand-
inum til þess að koma í veg fyr-
ir að Jökulsá grafi sér farveg að
nýju austur á graslendið í grennd
við Byggðarholt. Fundurinn vænt-
ir þess að þetta verði fram-
kvæmt innan skamms.
5. Fundurinn beinir enn að
nýju þeim eindregnu tilmælum til
vegamálastjórnarinnar að á
næsta ári verði gerðar nákvæm-
ar athuganir á þessum verkefn-
um:
1. Á möguleikum á fyrirhleðslum
beggja megin Hornafjarðar-
fljóts sunnan brúarinnar með
sérstöku tilliti til landgræðslu
og landvarna' á þeim svæðum.
Þá sé sérstaklega athugað um
garð frá Stapasandi í Skógey.
2. Nauðsyn á fyrirhleðslum við
Hólmsá á Mýrum sunnan brú-
arinnar til varnar gróðurlendi.
3. Á möguleikum á því, að gera
fyrirhleðslu við Kolgrímu
sunnan við brúna til þess að
koma í veg fyrir landbrot.
4. Á skilyrðum1 til þess að auka
að miklum mun með fyrir-
hleðslum gróðurlendi í grennd
við Kotá í Öræfum.
Flugmál
Fulltrúafundur bænda í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, haldinn að
Hrollaugsstöðum í Suðursveit
dagana 16. og 17. nóvember
1963, lýsir ánægju yfir þeirri fyr-
irætlun flugmálastjórnarinnar, að
gerður verði nýr flugvöllur í
landi Árnaness í Homafirði, er
komi í stað flugvallar á Mela-
tanga og þeim framkvæmdum
sem þegar hafa verið gerðar þar.
Væntir fundurinn þess, að þessu
verki verði hraðað.
Samgöngur á sjó
Fulltrúafundur bænda í Aust-
ur-Skaftafellssýslu haldinn að
Hrollaugsstöðum í Suðursveit
dagana 16. og 17. nóvember 1963,
lýsir ánægju sinni yfir því, að
strandferðaskipið Herjólfur hef-
ur haft viðkomu á Hornafirði
hálfsmánaðarlega síðustu mánuði
og væntir þess eindregið, að sú
samgöngubót, sem við það skap-
aðist verði eigi skert. Ennfremur
ítrekar fundurinn ályktun frá
bændafundi 1962, þess efnis, að
hringferðir Herðubreiðar verði
tafarlaust felldar niður, en skip-
ið snúi við á Norður- eða Norð-
austurlandi og hafi viðkomu á
öllum höfnum Austfjarða og
Hornafirði í hverri ferð.
Vegalögin
Framhald af 4. síðu.
nefndum og embættismenn, er um
þetta fjölluðu, héldu með lipurð
á sínu máli.
Framsóknarmenn freistuðu þess
að fá feildan niður kaflann, sem
kveður á um nýjar álögur, með
skírskotum til mikilla tekna um-
fram áætlun og ríflegra greiðslu-
afganga hjá ríkissjóði. Þess var
ekki kostur að fá samkomulag
um það. Stjórnarflokkarnlr höfðu
ákveðið hina nýju tekjuöflun til
vegamála. Því varð að fallast á
þann kafla gegn því að fá sam-
þykktar aðrar breytingar. Samn-
ingum lauk þannig, að gerðar
voru verulegar breytingar á
frumvarpinu og eru þær veiga-
mestu sem hér greinir:
1. Enginn vegur skal falla úr
þjóðvegatölu næstu 5 ár eftir
gildistöku laganna, nema nýr
vegur hafi komið í stað gaimals,
og þannig komið í veg fyrir, að
vegakaflar, langir eða skammir,
verði fyrirvaralaust felldir úr
þjóðvegakerfinu og kostnaður við
þá lagður á sýsluvegasjóðina.
2. Hin almenna regla, sem tak-
markar þjóðvegi, gerð þrengri en
mælt var fyrir um í frumvarp-
inu, þannig, að færri vegakaflar
og styttri falla úr þjóðvegatölu
en orðið hefði samkvæmt frum-
varpinu.
3. Vegaáætlun skal gerð til 4
ára í senn, en ekki 5 ára.
4. Vegaáætlun skal endurskoða
á tveggja ára fresti.
5. Áhrif Alþingis og aðstaða
við gerð vegaáætlunar og skipt-
ingu vegafjár tryggð með skýr-
ari ákvæðum en voru í frumvarp-
inu. P.Þ.