Austri - 29.04.1977, Blaðsíða 1
Efni í blaðið þarf að berast
í síðasta lagi á þrið.judegi
eigi það að birtast í sömu
viku, auglýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á miðvikudögum.
Góðir gestir HÍSVÍtlir ff Hjdll
Sunnudaginn 17. apríl s.l. heim-
sótti okkur hingað í Staðarborg karl-
akórinn ”Jökull“, úr Hornafirði og
hélt hér söngskemtun fyi'ir fullu húsi.
Þessi kór samanstendur af mönnum
úr öllum hreppum A-Skaftafellssýslu
úr öllum stéttum. Söngstjóri kórsins
er Sigjón Bjarnason en undirleikari
Guðlaug Hestnes. Kórinn var í söng-
för um Austfirði. Þessi kór er ungur
að árum aðeins 5 ára gamall, en hef-
ir náð svo góðum árangri í sínu
starfi að til fyrirmyndar verður að
teljast. Það er öllum ljóst sem um
það hugsa hvað mikið og fórnfúst
starf liggur þarna á bak við. Sumir
kórfélagar þurfa að sækja æfingar
um langa vegu, svo tugum og jafnvel
hundruðum kílómetra skiftir, en þeir
innheimta ekki daglaun að kveldi í
peningalegum skilningi en þess í stað
veita þeir samferðafólkinu og sjálf-
um sér þá ánægju sem aldrei gleym-
ist þeim sem á þá hlýða. Á söng-
skránni voru bæði innlend og erlend
lög og voru þau að mínum dómi mjög
vel flutt, og sum með þeim ágætum
að unun var á að hlýða.
Ég nefni hér nokkur dæmi. ”Úr
útsæ“ lag Páls Isólfssonar. "íslands
Eins og öllum er kunnugt sem af-
skipti hafa af íþróttamálum, er mik-
ill skortur á þjálfurum til starfa,
sérstaklega á afskektari stöðum á
landinu. Hefur þessi skortur á hæf-
um leiðbeinendum verið dragbitur á
allt íþróttastarf í landinu og hafa
Austfirðingar orðið fyrir barðinu á
þessu fyrirbæri sem og aðrir.
Til að mæta þessum vanda kom
íþróttasamband Íslands á fót þjálf-
araskóla og er hugsað að í framtíð-
inni verði hann í fjórum stigum, A,
B, C og D stig.
Námsefni I. stigs er komið út og
nefnist Grunnskóli Í.S.Í. fyrir leið-
beinendur í íþróttum. Er þetta al-
mennt undirstöðunám fyrir allar í-
þróttagi-einar og meðal námsgreina
í Grunnskólanum má nefna líffæra
og lífeðlisfræði, kennslufræði, sálar-
fræði, þjálffræði og margt fleira.
hrafnistumenn“ lag Inga T. Lárus-
sonar. ”Seljadalsrósin“ lag Charles
V. Glora, ljóð Friðrik A. Friðriksson.
” Ó Hornafjörður" lag Bjarna
Bjarnasonar, ljóð Þorbergur Þor-
leifsson, og fl. og fl. Einsöngvararnir
fóru mjög vel með sín hlutverk. Sig-
finnur Gunnarsson söng einsöng í
laginu ”Fjær er hann ennþá“, finnskt
þjóðlag og Benedikt Stefánsson bóndi
á Hvalnesi í Lóni í lagi Sigfúsar
Einarssonar ”Ég man þig“.
í söngskrána var prentað að Árni
Stefánsson skólastjóri á Höfn, gam-
all og góður sveitungi okkar, ætti að
syngja einsöng í lagi Inga T. Lárus-
sonar ”Átthagaljóð“, en því miður
gat ekki orðið af því vegna lasleika
hans í hálsi og þótti öllum það mið-
ur.
Ég vil svo þakka kórnum fyrir
komuna hingað og þeirra ágæta söng
og veit ég að ég mæli fyrir munn
allra sem á þá hlýddu.
Ágætu kórfélagar hafið þökk fyrir
komuna. Lifið heil.
Jóhann A. Pétursson
Ásunnarstöðum
Breiðdal.
Tvö af aðildarfélögum U.Í.A. hafa
haldið námsskeið í Grunnskólanum
nú í vetur, Umf. Eiðaskóla og íþrótt-
afélagið Höttur á Egilsstöðum. Á
Eiðum útskrifuðust 16 leiðbeinendur
og 6 á Egilsstöðum.
Er það vissulega mikið gleðiefni
að Austfirðingar era farnir að
mennta sína eigin leiðbeinendur í
íþróttum og má fullvíst telja að það
á eftir að spara margar krónur fyrir
fjárvana félög að geta ráðið þjálfara
úr röðum eigin félagsmanna.
Sá böggull fylgir skammrifi að að-
eins eitt sérsamband er tilbúið með
B - námsefni, þ.e. Knattspyrnusam-
band Íslands (I.stig)L Er vonandi að
úr rætist og gefið verði út námsefni
í öðrum greinum íþrótta, hið fyrsta.
Emil B. Björnsson.
Mér virðist mega segja sama um
marga okkar ágætu náttúruverndar-
menn, a.m.k. þá þeirra, sem mest láta
á sér bera. Þessir menn rísa upp önd-
verðir, ef til mála kemur að drekkja
nokkrum sinustráum, þótt til hags-
bóta sé fyrir íbúa landsins, en þeir
þegja þunnu hljóði, horfandi upp á
hreindýra-hjarðir urga upp heiða-
gróður landsins, svo að til auðnar
horfir.
Seint á 18. öld eða 1787 var nokkr-
um hreindýrum frá Noregi, sleppt á
land hér á Austurlandi, illu heilli.
Sjálfsagt var það gert í þeirri góðu
trú að til hagsbóta mætti verða fyr-
ir landsmenn, sem óáran hafði þá
þjakað á undanförnum árum. Sú
varð þó því miður ekki reyndin á,
þau hafa aðeins orðið til tjóns.
Dýr þessi hafa nú hjarað á Fljóts-
dals - og Brúaröræfum í hart nær
200 ár. Lífsbarátta þeirra hefir ætíð
verið mjög hörð. í hörðum árum hafa
þau nær kolfallið, en hjarnað við og
fjölgað nokkuð á milli, er árferði
hefir batnað.
Nú um skeið hafa stjórnvöld lands-
ins tekið að sér að halda dýrastofni
þessum við (takmörkuðum fjölda þó).
Er gerður út leiðangur árlega til að
telja dýrin og síðan er ákveðið hve
Óli Valur Hansson garðyrkjuráðu-
nautur Búnaðarfélags Íslands ferð-
ast um þéttbýlisstaði á Austurlandi
frá Vopnafirði til Djúpavogs dag-
ana 5. - 15. maí 1977, heldur fundi
og ræðir ræktun á trjám og runnum
í görðum, sýnir litskyggnur og svar-
ar fyrirspumum.
Hann mun dvelja um hálfan dag-
á hverjum stað og gefst fólki þá kost-
ur á að ræða við hann.
Ferðum hans verður þannig háttað:
Á Vopnafirði þann 5. maí kl. 21.00
mörg skuli drepin og hverjir skuli
þar að vinna. Frá þessum ákvæðum
má ekki víkja og mega bændur og
aðrir, sem fyrir ágangi verða af dýr-
um þessum ekki verja eigur sínar
fyrir þeim. Má biðja þau góðfúslega
að færa sig, en það er undir hælinn
lagt, hvort þau gera það eða hvenær.
Nú er talið að afréttarlönd víðast
hvar á landinu séu ofsetin. Rætt er
um að takmarka þurfi fjárfjölda
þann, sem á þau er beitt á sumrin
bæði með tilliti til gróðursins og af-
urða fjárins. Sjálfsagt er þetta rétt,
en engum virðist detta í hug að út-
rýma af heiðunum hreindýrunum,
sem engum eru til nytja. Vil ég ætla
að þau eyði þó gróðrinum öllum öðr-
um framar, að eldgosum og öskufalli
einu undanskyldu. Enginn minnist á
að útrýma þessari plágu af landinu
og dýrunum alveg. Þau hefðu þó ald-
rei átt til landsins að koma. Má segja
að betra væri þó seint en aldrei að
losna við þau.
Mér sýnist það vera verðugt verk-
efni fyrir náttúruverndarmenn og
dýravini að sameinast nú um að út-
rýrna þeim að fullu. Þau hafa meira
en nógu lengi fengið að spilla gróðri
landsins.
E. Þ.
á Egilsstöðum þann 6. maí kl. 21.00
á Neskaupstað þann 7. maí kl. 16.00
á Reyðarfirði þann 8. maí kl. 16.00
á Eskifirði þann 9. maí kl. 21.00
á Fáskrúðsf. þann 10. maí kl. 21.00
á Stöðvarf. þann 11. maí kl. 21.00
á Breiðdalsv. þann 12. maí kl. 21.00
á Djúpavogi þann 13. maí kl. 21.00
á Seyðisfirði þann 15. maí kl. 21.00
Fundirnir verða nánar auglýstir á
hverjum stað.
Grunnshóli Í.S.Í. ií Austurlnndi
Find iim dariyrkju