Austri - 24.02.1978, Síða 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 24. febrúar 1978.
Útgefandi:
| Kiördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jón Kristjánsson, sími 97-1314.
Afgreiðsla og auglýsingar:
Margrét Einarsdóttir, sími 97 - 1314.
HÉRAÐSPRENT SF. ■
Viðbrögð við efnahagsráðstöfunum
Efnaihagsifáðstafanir ríkiisstjórnarinnar eru að vonum efst á
baugi um þessar mundir. Umræður um gengisfellinguna sjálfa
hafa þó fallið í skuggann hjá deilum um aðrar ráðstafanir einkum
þær sem snerta verðbætur launa.
Ekki held ég að neinum hafi blandast hugur um að aðgerða var
þörf. Því hefur hins vegar verið haldið fram að ytri skilyrði þjóð-
arbúsins hafi farið batnandi og aukning þjóðartekna hafi orðið
meiri en áætlað var. f þessu sambandi ber að athuga það að búið
var að ráðstafa aukningu þjóðartekna og gott betur með þeim
launahækkunum sem urðu á síðasta ári. Ef þjóðartekjur hefðu
aukist minna en raun varð á hefði ástandið einfaldlega verið enn
þá verra.
Ymsar stórorðar og öfgafullar yfirlýsingar hafa fallið um þess-
ar ráðstafanir. Ég hjó eftir því í yfirlýsingu frá BSRB að launa-
fólk væri ekkert betur sett en á fyrri hluta þessarar aldar þegar
réttleysi þess var algjört.
Ef grannt er skoðað blandast þó engum hugur um að vægilega
var farið í sakirnar og reynt að milda ráðstafanirnar gagnvart
þeim sem lægst launin hafa. Hins vegar er það staðreynd að út-
reikningur vítitöluuppbóta á laun, eins og verið hefur, með pró-
sentutölu, eykur launamismuninn til muna og þeir sem hærri laun
hafa eru ofan á.
Því verður ekki trúað að stefnt verði í stórátök á vinnumarkað-
inum vegna þessara ráðstafana. Ég trúi því að launafólk sjái í
gegn um stórorðar yfirlýsingar forystumanna sinna og verði sér
meðvitandi um kjarna málsins. Markmiðið með þessum aðgerðum
er fyrst og fremst að tryggja atvinnuöryggi og rekstrargrundvöll
útflutningsatvinnuveganna, án þess að óviðráðanleg verðbólga
fylgi í kjölfarið. Ef svo fer að verkfallsátök verða, mætti gjarnan
hugleiða þá gagnrýni sem stjórnvöld hafa orðið fyrir á valdatíma
þessarar ríkisstjórnar, að beita ekki hörðum aðgerðum í efnahags-
málum vegna mikils meirihluta á alþingi. Ef þessar aðgerðir sem
eru tiltölulega vægar standast ekki í framkvæmd hvað þá um enn-
þá harðari aðgerðir, eins og hefur þurft að beita í ýmsum ná-
grannalöndum okkar.
Sannieikurinn er sá að enginn árangur næst í viðureigninni við
verðbólguna nema það komi við einhvern, og með þeirri aðferð sem
nú hefur verið höfð er reynt að fara vægilega í sakirnar. Dæmin
fyrir skerðingu vísitölubóta eru næg á undanförnum árum og næg-
ir að benda á það að Alþýðubandalagsmenn voru reiðubúnir til að
standa að slíkum aðgerðum árið 1974.
Ef til vill hefði verið hægt að velta á undan sér vandanum fram
yfir kosningar, gera bráðabirgðaaðgerðir í nokkrar vikur til lausn-
ar vanda fiskvinnslunnar og láta svo skeika að sköpuðu. Ríkis-
stjórnin kaus þá leið að leggja spilin á borðið og leyna ekki þeim
vanda sem við er að glíma. Það hefur ekki verið tíðkað síðustu ára-
tugina að beita aðhaldsaðgerðum á kosningaári og getur það verið
ein af orsökum verðbólguþróunai'innar.
Stjómarandstaðan mun auðvitað halda því fram að fara hefði
mátt niðurfærsluleið eða verðlækkunarleið. Aðal gallinn á þeim
leiðum var sá að þær gerðu ráð fyrir skattlagningu upp á rúmlega
fimm miljarða á atvinnuvegina sem verið var að bjarga. Án þeirr-
ar skattlagningar er ekki hægt að fara þá leið nema með hrikaleg-
um niðurskurði á félagslegri þjónustu og framkvæmdum ríkisins.
Því verður ekki trúað að stjórnarandstæðingar séu almennt fylgj-
andi slíku.
Vorskip kemur á Vopnafjörð
Á öldum áður þóttu það gleðifrétt-
ir ef vorskip kom á Vopnafjörð. Þess-
ari gömlu staðreynd skaut upp í
koll minn, eftir að mér bárust nýj-
ustu fréttir frá Skipaútgerð ríkisins.
Þeim háu herrum datt í hug' að bæta
nú skipasamgöngur meðfram strönd-
um landsins. Og var það vonum
seinna að þeirri hugsun skyti upp.
Þeir komust að þeirri augljósu stað-
reynd að skipakostur útgerðarinnar
væri ófullnægjandi og nauðsynlegt
væri að hafa þrjú skip í gangi til að
þjóna viðskiptavinunum sem skyldi.
Þegar sú staðreynd var ljós, settust
þeir við að semja ferðaáætlun fyrir
þrjú skip, en hafa ekki nema tvö.
Afleiðing: einhverjar hafnir verða
útundan með þjónustu, þar til þrjú
skip geta séð um flutninga. Og þá
er sjálfsagt að ráðast á garðinn þar
sem hann er lægstur, fækka ferðum
til Norðausturlands sem hefur eng-
ar aðrar samgöngur en sjóleiðina að
vetrarlagi. Ferðum fjölgað annars
staðar. Ferðir frá Akureyri til Norð-
austurlands felldar niður. Tvisvar á
tímabilinu frá í des. 1977til febr.
1978 munu skip Skipaútgerðarinnar
koma á Vopnafjörð, þannig virka í
reynd tilraunir Skipaútgerðarinnar
til bættra samgangna.
Mun þess skammt að bíða að við í
þessum landshluta verðum að sætta
okkur við ferðaáætlun einokunartím-
ans og eiga von í vorskip, ef hafís
hamlar ekki.
Hreppsnefndir á Norðausturlandi
munu safa sent harðorð mótmæli
gegn þessum áðurnefndu ferðaáætl-
unum Skipaútgerðarinnar og er nú
forvitnilegt að bíða frétta af afskipt-
um samgöngumálaráðuneytis og ráð-
herra af málunum. En þingmönnum
Nox-ðausturlands er ekki til setunnar
boðið að rétta hlut okkar tafarlaust.
Ágústa Þorkelsdóttir
Refstað.
Fundur um skipulagsmál
Þriðjudaginn 14. febrúar gekkst
hreppsnefnd Egilsstaðahrepps fyrir
almennum fundi um skipulagsmál. Á
fundinn komu Zóphónías Pálsson
skipulagsstjói-i ríkisins og Sigui-ður
Thoroddsen arkitekt, en hann hefur
haft með höndum skipulagsmál Egils-
staðahi-epps hin síðari ár. Fluttu þeir
Zóphónías og Sigurður framsöguer-
indi og Þórhallur Pálsson arkitekt
af hálfu heimamanna.
Margt fróðlegt kom fram í máli
þeirra og urðu fjörugar umræður að
erindum þeirra loknum.
Nýlega hefur verið samþykkt
skipulag að þjónustumiðbæ á tún-
inu norðan Fagradalsbrautar og vest-
an Lagaráss. Er gert ráð fyrii-, að
þar verði rúm fyrir ýmis verslunar-
og þjónustufyrirtæki og léttan þrifa-
legan iðnað. Þá var einnig í haust
samþykkt skipulag að iðnaðaixhvei-fi
sunnan við núverandi byggingar
Brúnáss hf. og Ræktunarsambands-
ins. Einnig er á núverandi skipulagi
gert ráð fyrir iðnaðai-- og þjónustu-
fyrirtækjum austan Vallavegar, inn-
an við kaupfélagið.
Eins og eðlilegt er, eru skoðanir
manna nokkuð skiptar um ýmis at-
riði skipulagsmála og mjög gagnlegt
fyrir þá, sem um þessi mál fjalla,
hi-eppsnefnd og starfsmenn skipu-
lags ríkisins, að kynnast sjónarmið-
um fólksins, fá fram hugmyndir og
atsugasemdir, og fjalla um þæi\ Nú-
verandi aðalskipulag Egilsstaðakaup-
túns er orðið 10 ára gamalt og er
orðið aðkallandi að endui-skoða. Þá
gefst mönnum tækifæri til þess að
koma á framfæri tillögum og ábend-
ingum til hreppsnefndar.
Frá Skáksambandi Austurl.
Svæðismót Austurlands 1978 fer
fram á Eskifirði 4. - 5. mai-s —teflt
verður í barnaskólanum og hefst tafl-
ið kl. 10 f.h.
í yngi-i flokki verða tefldar undan-
rásir eftir monrad-kerfi laugardag-
inn 4. mai-s og úrslit sunnudaginn 5.
mars.
í eldri flokki verða tefldar 6 um-
ferðir eftir mom-ad-kerfi.
Skólamót Austui-lands 1978 fer
fram á Reyðarfix-ði 20. apríl — teflt
verður í skólanum og iiefst taflið kl.
10 f.h.
Teflt verður í yngri flokki — 6. b.
og yngri og eldri flokki — 7. b. og
eldri.
Sveitakeppni Austurlands 1978 fer
fi-am á Neskaupstað 13. - 14. maí.
Laugardaginn 25. febrúar n.k. tefl-
ir tékkneski stói-meistarinn Hort
fjöltefli í Valaskjálf og hefst það kl.
14.00. Væntanlegir þátttakendur hafi
með sér töfl.
J. K.