Austri - 08.06.1979, Side 1
24. árgangur.
Egilsstöðum, 8. júní 1979.
20. tölublað.
RÉTTUR DAGSINS
Spergilsúpa, lambasteik,
kaffi kr. 2.800,-
Hálft g’jald fyrir
6-12 ára. Frítt fyrir
yngri en 6 ára.
SmyrMI í fyrstu ferð sumarsins
— Rætt við Thomas Arebo
Bílferjan Smyrill kom til Seyðis-
fjarðar í sína fyrstu fei'ð laugar-
daginn fyrir hvítasunnu. í tilefni af
þessari ferð hafði útgerðin boð inni
fyrir nokkra gesti meðan skipið
staldraði við. Þar afhenti Jónas Hall-
grímsson bæjarstjóri á Seyðisfirði
gjöf frá Seyðfirðingum, málverk frá
Seyðisfirði eftir Steinþór Eiríksson
á Egilsstöðum, og mun það prýða
salarkynni ferjunnar. Óskaði Jónas
skipshöfn og útgerð skipsins allra
heilla, og vonaðist eftir jafn ánægju-
legu samstarfi hér eftir sem hingað
til.
Með í þessari fyrstu ferð var
framkvæmdastjóri útgerðar Smyrils
en hann er gerður út af „Strandfar-
arskip landsins” í Færeyjum. Fram-
kvæmdastjórinn Thomas Arebo var
góðfúslega við beiðni minni að svara
nokkrum spurningum blaðsins.
— Hvað eru margar ferðir fyrir-
hugaðar í sumar?
Við förum 16 ferðir í sumar. Held-
ur fleiri fara með skipinu í ár held-
ur en í fyrra, en þó eru færri íslend-
ingar sem taka sér fari. Sennilega
er erfitt efnahagsástand einhver or-
sök að þessu.
— Hvenær eru annirnar mesta/r?
— Það er mest að gera í júlí og
fram í ágúst. Minna er um að vera
í fyrstu og síðustu ferðunum. Núna
komu með skipinu 35 farþegar og 16
bílar og 56 farþegar fara til baka og
19 bílar.
— Standa þessar ferðir undir sér?
— Þær gera það yfir sumarmán-
uðina.
—• Nokkrar hugmyndir um stærri
ferju?
— Já við hugsum til þess að
kaupa stærra skip, en það tekur
langan tíma að undirbúa slíkt. Við
mundum þá nota Smyril til innan-
landssiglinga í Færeyjum, ef stærra
skip kemst í gagnið.
— Hvemig er aðstaðan hér A
Seyðisfirði til afgreiðslu og fyrir
farþega?
— Við erum mjög ánægðir með að
sigla hingað til Seyðisfjarðar og
fyrirgreiðsla hér hefur verið ágæt.
Farþegar hafa ekki átt í erfið-
leikum hér enda er viðlegufólk í
miklum meirihluta af því fólki sem
hingað kemur.
— Hvaðan er það fólk eiríkum sem
kemur hér með skipinu?
— Það eru Frakkar og Þjóðverjar,
Skandinavar stoppa gjarnan í Fær-
eyjum. Hingað kom í fyrra fólk af
16 þjóðernum með skipinu, og fólk
af 19 þjóðernum tók sér far til baka.
— Ferðast Færeyingar mikið
hingað?
— Þeir gera það dálítið, en það
er lítill túrismi tengdur við það,
miklu frekar kunningja og fjöl-
skyldutengsl sem valda þvi.
— Er flutt mikil frakt með skip-
inu?
— Það er einkum kindakjöt og
hausar sem fara héðan til Færeyja.
Núna fara 10 tonn af sviðahausum
með skipinu.
— Þó það sé annað mál, hvemig
hefur veturinn verið í Færeyjum?
— Þetta hefur verið snjóavetur
og vai' snjór síðan fyrir jól og til
20. maí. Þetta er mjög óvanalegt
hjá okkur.
— Hvernig er atvinnuástandið?
— Það má segja að það sé gott,
það hefur verið nóg að gera í fisk-
vinnslustöðvum, þrátt fyrir að fisk-
veiðar eru takmarkaðar á flestum
miðum sem Færeyingar veiða á þai'
á meðal hér við ísland.
Við þökkum Thomasi Arebo fyrir
spjallið, og óskum útgerð Smyrils
góðs gengis. Siglingar hans hingað
til lands hafa nú staðið í fimm sum-
ur, og hafa Færeyingar með þessu
framtaki sínu aukið einum þætti i
sumarsamgöngurnar hingað til lands.
Það er alltaf ys og þys á hafnar-
bakkanum á Seyðisfirði þegar þung-
hlesstir bílar af viðlegubúnaði skríða
frá borði, sumir með hjólíhýsi eða
tjaldvagn. Sumir koma á reiðhjólum,
aðrir á skellinöðrum og enn aðrir á
tveimur jafnfljótum.
Bílalestin skríður svo af stað yf-
ir Fjarðarheiði en Smyrill leysir
landfestar og siglir til hafg. Svona
mun það ganga til hausts.
J. K.
Gdrðyrhjurabb
Þann 12. maí síðastliðinn gengust
nokkrir áhugasamir félagar í Garð-
yrkjufélagi íslands fyrir stofnun
garðyrkjudeildar á Egilsstöðum og
hlaut hún heitið Egilsstaðadeild G.í.
Starfssvið hennar er Fljótsdals-
hérað. Slíkar deildir hafa verið stofn-
aðar í þéttbýliskjörnum víða um
landið og er tilgangur þeirra að efla
áhuga og þekkingu á ræktun og
snyrtilegu umhverfi. Tilgangi sínum
hyggst deildin ná með fræðsluerind-
um, fræðslumyndum, blómasýningum,
skoðunarferðum o.fl.
Þeir einir geta orðið félagsmenn í
deildinni, sem eru félagsmenn í
Garðyrkjufélagi íslands, eða ganga í
félagið um leið og þeir gerast félag-
ar í deildinni.
Árgjaldið til Garðyrkjufélags ís-
lands er nú kr. 3000.-, en til Egils-
staðadeildar kr. 2000.-.
I stjórn voru kjörnar: Erla Salo-
monsdóttir, Lagarási 18, sími 1470,
Soffía Erlendsdóttir, Laufskógum 4,
sími 1126, Guðlaug Sveinsdóttir,
Tjarnarlöndum 15, sími 1267.
Þeir sem hafa áhuga á að gerast
félagar geta haft samband við ein-
hvern stjórnarmeðlima.
Fyrsti fræðslufundur deildarinnar
var þriðjudagskvöldið 5. júní. Þar
mætti Jón Loftsson, skógfræðingur á
Hallormsstað, og fræddi félaga um
limgerði, tré og runna.
Smyrill á siglingu.