Austri


Austri - 08.06.1979, Blaðsíða 2

Austri - 08.06.1979, Blaðsíða 2
2 AUSTRI Egilsstöðum, 8. júní 1979. Utgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson, sími 97-1314. Afgreiðsla og auglýsingar: Kristrún Jónsdóttir, sími 97 -1151 HÉRAÐSPRENT SF. Hælbítar Lúðvík Jósepsson þrífur upp pennann á dögunum og ritar leið- ara í Austurland, þann 31. maí. Hann hefur skrif sín á því að rekja aðdraganda stjórnarmyndunar á síðasta ári, segir m.a. að Alþýðu- bandalagið hafi eitt viljað vinstri stjórn, en Framsókn hafi verið í fýlu. I þessari upprifjun gleymist það meginatriði að það var Fram- sóknarflokkurinn sem kom þessari vinstri stjórn saman, því ann- ars væri hún ekki til. Óheilindin voru slík hjá Alþýðuflokki og Al- þýðubandalagi að þeir gátu alls ekki komið saman stjórn. Yissu- lega urðu kosningaúrslitin Framsóknarmönnum vonbrigði, en höf- um við verið í fýlu, þá voru Alþýðubandalagsmenn í ennþá meiri fýlu, svo mikil var fýlan í þeim að þeir gátu alls ekki komið saman stjórn með Krötum eða unnið með þeim heils hugar. Allt var þetta fyrir þau óskaplegu vonbrigði að Kratar skyldu koma út úr kosn- ingunum með jafnstóran þingflokk og þeir. Þetta skyggði svo mjög á gleðina yfir útkomu þeirra í kosningunum að þeir nutu hennar engan vegin. Þessi fýla Alþýðubandalagsmanna, óheilindi Krata og hræðsla við að taka á vandanum og standa við stóru orð- in fyrir kosningarnar urðu til þess að stjórnarmyndun dróst á langinn í allt fyrra sumar til stórtjóns fyrir alla. Þær tilraunir að koma óvinsælum hlutum yfir á samstarfsflokk- ana sem um er að ræða í áðumefndum leiðara, eru af ómerki'leg- asta tagi og eru tlls ólíðandi í stjómarsamstarfi og því alvarlegri þegar flokksformaður á í hlut. Meðan slíkir hælbítar eru innan stjórnarliðsins er engin von til þess að stjórnin geti sameiginlega komið fram neinu af þeim annars ágætu stefnumálum sem hún setti sér í fyrra sumar er hún hóf ftril sinn. Au5tijarðaspretturiBn í Landshlaupi FRÍ, alls 371 kíló- meter er nú í skipulagningn. Áætlað er að taka við boðhlaups- keflinu á Lónsheiði kl. hálf fimm síð- degis þann 19. júní n.k. og skila þvi í hendur Þingeyingum á Biskups- hálsi kl. 00.25 21. júní. Ákveðnum vegalengdum hefur ver- ið úthlutað til aðildarfélaga, og hafa mörg félög nú þegar hafið undirbún- ing af fullum krafti. Hlaupin verður fjarðaleið og um Fagradal til að gefa fleiri félögum kost á að hlaupa í gegn um sína heimabyggð. Þó verða nokkur stór félög utan hringsins, svo sem Austri, Þróttur, Huginn og Einherjar, og verðui- að treysta á liðstyrk þeirra til að hlaupa á jaðarsvæðunum, sunnan Breiðdals og norðan Jökulsár á Dal, þar sem byggð er tiltölulega 'dreifð. Allir sem þátt taka í hlaupinu fá sérstaka viðufkenningu, og ættu þeir sem áhuga hafa á að vinna til henn- ar að snúa sér til næsta ungmenna- félagsfomianns sem fyrst og panta sprett. Fljótlega verður dreift álieitaseðl- um, þar sem menn geta heitið 10 krónum á hvern þann sem tekur þátt í Austfjarðasprettinum. Austfirðingar! Við eigum lengsta kaflann í þessu Landshlaupi, og boðhlaupskeflið er smíðað af okkar listamanni, Halldóri Sigurðssyni á Miðhúsum. Sýnum nú þjóðinni hversu léttstig við 'erum, og hversu samtaka við er- um að koma keflinu Halldórsnaut í gegn um Múlaþing. Tökum hundruðum saman þátt í hlaupinu og látum sjá að íþrótta- mennska er Austfirðingum í blóð bor- in. Sigurjón Bjarnason. M hcfir hljnað Síðan gekk Framsóknarflokkurinn í sakirnar og var algjör sam- staða um það innan hans að taka þátt í stjórnarmyndun, eins og málin höfðu þróast. Lúðvík gerir síðan grein fyrir afrekum þessarar ríkisstjórnar og segir réttilega að tekist hafi að halda uppi fullri atvinnu og leysa meiri háttar deilur á vinnumarkaði, síðan koma staðhæfing- ar sem ákaflega erfitt er að fella sig við þegar um stjórnarsam- starf er að ræða. Þær hníga í þá átt að kenna samstarfsflokkunum um óvinsæla hluti og segja að það sé harðfylgi síns flokks að þakka að ekki hafi farið verr. Meðan Alþýðubandalagið er í stjórnarandstöðu hefur það veist harkalega að einstökum ráðherrum og frammistaða þeirra í mála- flokkum sem undir þá heyra var ekki talin til fyrirmyndar. Þami- ig var til dæmis með vegamál, meðan þau mál voru í höndum Framsóknarmanna. Það var látið í veðri vaka að ef þau mál lytu forystu Alþýðubandalagsins yrði betri tíð með blóm í haga. Nú sjá aillir árangurinn af þeirra stjórn, óbreytt framlög til vegamála og þá er enn gripið til þess að segja að þetta sé bara allt Framsókn að kenna, að enn verða ýmsir að bíða með bráðnauðsynlegar vega- framkvæmdir. Sama er uppi á teningnum með orkumálin. Menn sjá það svo sem þessa dagana svo ekki verður um villst að það er út af fyrir sig ekkert lausnarorð þó að Alþýðubandalagið stýri einstökum ráðuneytum, og markar engin tímamót. Hins veg- ar hefur þessi ríkisstjórn ýmis góð áform. Hún hafði það á stefnu- skrá sinni að glíma við verðbólguna, koma á nýju skipulagi í orku- sölunni, tryggja fulla atvinnu og vernda kauþmátt launa svo eitt- hvað sé nefnt. Hins vegar hefur það verið svo að vinnufriðurinn innan stjórnarinnar hefur verið alltof lítill, og þar hefur ekki vald- ið um hin máttlausa stjómarandstaða Sjálfstæðisflokksins, heldur stanslaus órói og upphlaup innan þingliðs A - flokkanna sem svo eru kallaðir og eru sérstök fyrirbrygði í íslenskri pólitík. Nú hefur brugðið til betri tíðar, og snjóa leysir nú ört í hlýindum sem hafa verið síðan fyrir hvíta- sunnu. Útlitið er nú stórum betra en þá var því að gróður tekur mjög ört við sér. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það harða vor sem nú hefur ver- ið, enda hafa fjölmiðlar gert því nokkur skil. Hins vegar munu bænd- ur ekki búnir að bíta úr nálinni, því víða hafa borist fréttir af lamba- dauða, sem á rót sína að rekja til innistöðu fjár á sauðburðinum. Þetta er svokallað „innistöðuskjögur”, sem Fundir Fromsóhnorfélojji Síðastliðna viku voru haldnir fundir í Framsóknarfélögum í nokkrum þéttbýliskjörnum á Austur- landi. Voru á þessum fundum rædd skipulagsmáL og stjórnmálaviðhorf- ið almennt. Á fundina mættu Gylfi Kristinsson ritari S.U.F., en Gylfi vinnur nú sem erindreki S.U.F. og Framsóknarflokksins, Halldór Ás- grímsson og Jón Kristjánsson. Á fundunum kom almennt fram sú skoðun að ekki mætti slaka frekar á í baráttunni við verðbólguna held- ur en orðið væri, og bæri að láta á það reyna hvort samstarfsflokkarnir væru tilbúnir til þess að stjórna. Ef mun vera vöðvabólga á mjög háu stigi. Sauðburður hefur eins og að lík- um lætur verið mjög erfiður tími fyrir bændur, bæði vegna fóður- skorts, en margir voru orðnir tæpir með hey, og ekki síður fyrir þrengsli í húsum, en tíðarfarið var þannig að ekki var hægt 'að létta á sér með því að sleppa nokkurri skepnu. Erfið- leikarnir eru þeim mun meiri vegna þess að nú er yfirleitt mikið fleira tvílemt en áður var. En nú verður að vona að góða tíðin haldist, og gróðri fleygi eins fram eins og verið hefur undanfarna daga. sú reyndist ekki raunin á voru menn mjög í vafa um að stjórnin ætti lengur tilverurétt. Fundir þessir voru haldnir á Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði, Seyðisfirði og Fáskrúðs- firði. ÓDÝRT! Flauelsbuxur verð kr. 7000.- Mussur verð kr. 5000.- Skór verð frá kr. 4200.- - 13.900.- VERSLUNIN SKÓGAR Egilsstöðum.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.