Austri - 20.02.1981, Qupperneq 2
2
AUSTRl
Egilsstöðum, 20. febrúar 1981.
$
Útgef andi:
Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jón Kristjánsson, sími 97-1314.
Afgreiðsla og auglýsingar:
Kristrún Jónsdóttir, sími 97-1151.
HÉRAÐSPRENT SF.
Ekki má gleyma því þegar rætt er um landbúnaðarmálin, að
vandi landbúnaðarins er ekki tilbúinn af bændastéttinni sjálfri.
Almenn verðbólguþróun í landinu hefur orðið þessari atvinnu-
grein mjög þung í skauti eins og öðrum atvinnuvegum. Verðbólg-
an hefur gert það að verkum að nú fæst rúm 40% af framleiðslu-
kostnaði fyrir kjöt sem flutt er út, en þegar best var fékkst um
70%.
Öflugur landbúnaður er eitt af lífakkerum okkar í þessu landi,
og engin atvinnugrein er tilbúin að fylla það skarð sem stórfelld
röskun hans myndi valda. Því skal hlúa að honum, og umfram
allt hætta því öfgafulla og ósanngjarna tali sem tíðkast hefur um
þessa starfsemi. Bændum er ekki láandi þótt þeir séu orðnir þreytt-
ir á því.
J. K.
Landbúnaðurinn
Samvinnustarf. . .
Alltaf skýtur upp af og til umræðum um landbúnaðarmál i
fjölmiðlum. Þessar umræður eru af ýmsu tagi, ýmist öfgafullt tal,
sem einkum er stundað í Dagblaðinu og Alþýðublaðinu, eða um-
ræður í alvöru um þau miklu vandamál sem þessi atvinnuvegur
stendur frammi fyrir, eins og reyndar allir höfuðatvinnuvegir
okkar.
Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastjóri Stéttasambands bænda
ræddi spurninguna um það hvort bændur ættu að framleiða ná-
kvæmlega fyrir innanlandsmarkað, á ráðstefnu sem Framsóknar-
flokkurinn hélt um landbúnaðarmál í síðustu viku. Komst Hákon
að þeirri niðurstöðu að ef þessi stefna væri upp tekin, kæmi upp
sú staða í landbúnaði, að um 1500 bændur misstu atvinnu sína.
Afleiðingarnar af slíku yrðu meiri fólksflutningar úr sveitum
heldur en áður hafa þekkst og byggðaröskun sem af mundi leiða
með geigvænlegum félagslegum afleiðingum. Það vill æði oft
gleymast hjá þéttbýlisfólki að landbúnaðurinn veitir fjölda fólks
í þéttbýlinu lífsviðurværi og vandamál þessa undirstöðuatvinnu-
vegar eru ekki vandamál bænda einna, heldur allrar þjóðarinnar.
Fjötdi starfsgreina í þéttbýli þjónar landbúnaðinum á einn eða
annan hátt.
Framleiðsla á mjólkurafurðum mun nú þegar vera komin niður
í það sem innanlandsmarkaðurinn þarf, og jafnvel er orðinn
svæðisbundinn skortur á einstökum tegundum mjólkurmatar. Ut-
flutningur mjólkurafurða er nær vonlaus eins og nú horfir, svo
að líklega verður að halda mjólkurmagninu svipuðu og þarf til
innanlandsneyslu.
Hins vegar þarfnast landbúnaðurinn þess að nokkurt magn
dilkakjöts verði flutt út eins og gert hefur verið. Það er mála
sannast að ekki hefur verið sýnt fram á það með viðhlýtandi rök-
um að slíkt geti ekki borgað sig þegar á allt er litið. Þar er efst á
blaði atvinnuöryggi þess fólks í dreifbýli og þéttbýli, sem við
þetta starfar, og einnig má benda á það að þetta eins og annað
gefur gjaldeyristekjur, og tollar af aðföngum til þessarar starf-
semi eru æði miklir. Þetta dæmi hefur því aldrei verið gert upp
af neinni sanngirni, og það er einföldun á málinu í meira lagi sem
nú er tíðkuð að benda á útflutningsuppbæturnar, og segja þetta
verður skattborgarinn að greiða. Málið var gert öðruvísi upp þeg-
ar rætt var um að leggja Atlandshafsflug Flugleiða niður. Þá var
það talið rétt að aðstoða félagið um þá upphæð sem ríkið myndi
missa í tekjum ef þessi starfsemi væri ekki fyrir hendi. Það verð-
ur að telja sanngjarnt að lþa þannig á málin.
Bændur hafa tekið föstum tökum á vanda offramleiðslunnar,
og mættu aðrar stéttir taka þá til fyrirmyndar um margt. Það er
ekki létt verk að ná samstöðu um framkvæmd aðgerða viðlíka og
kvótakerfis og fóðurbætisskatts og framkvæmdin ein er erfið og
flókin. Það væri því ekki til of mikils mælst að þeir aðilar sem
haldið hafa uppi árásum á landbúnaðinn af fyllstu ósanngirni
hvíldu sig á því um hríð.
Það er ekki að ófyrirsynju að horft er til aukabúgreina í þeim
vanda sem nú steðjar að, og vissulega er margt álitlegt í þeim
sökum. Hins vegar vill brydda á því að ef eitthvað er álitlegt í
þessu efni koma fjársterkir aðilar í þéttbýli og segja, nú get ég.
Vissulega verður að gera allt til þess að aukabúgreinar þjóni því
markmiði að auka atvinnu og treysta byggð í sveitum. Að því
marki verður hiklaust að stefna.
framhald af bls. 4
hugsjónum sem samvinnumenn
áttu í upphafi og eiga enn.
Ég vil vara við þeirri full-
yrðingu sem oft heyrist að hug-
sjón samvinnunnar sé ekki fyr-
ir hendi hjá nútímafólki sem
betur fer er ástandið ekki svo
slæmt, þótt tímarnir séu breytt-
ir og hugsunarhátturinn með.
LÖG OG REGLUR
Því má heldur ekki gleyma
þegar rætt er um stefnuskrá
samvinnuhreyfingarinnar að
hún verður að vera í samræmi
við lög og reglur í þjóðfélaginu.
Sámvinnumenn skipa að sjálf-
sögðu sínum málum í samræmi
við þær reglur sem löggjafinn
setur. Auðvitað þarf að færa
margt í þeim lögum til nútíðar
og það er einnig mikið verkefni
samvinnumanna að hafa áhrif á
framvindu þeirra mála.
(ramMir vii grunnshóta i
Austurlendi
Á Austurlandi eru ýmis skólamannvirki í gangi, og er veitt til
þeirra á f járlögum fyrir árið 1981. Þessar fjárveitingar eru ýmist
til skólanna eða íþróttamannvirkja við þá, og eru þessar fram-
kvæmdir á ýmsum stigum, allt frá því að vera á byrjunarstigi til
þess að vera nær lokið. Hér birtist listi yfir framkvæmdii’ við
grunnskóla á Austurlandi sem veitt hefur verið fé til á fjárlög-
um, einnig framkvæmdir við leikskóla.
SKÓLA- OG ÍÞRÓTTAM.ANNVIRK1
Seyðisfjörður, sundlaug, íþróttah. endurbætur . . Nýkr. 50.000.00
Neskaupstaður, gagnfræðaskóli................... — 270.000.90
Eskifjörður, skóli.............................. — 370.000.00
Skeggjastaðahreppur, skóli...................... — 110.000.00
Vopnafjörður, skóli Torfastöðum................. — 30.000.00
Hlíðarhreppur, skóli ........................... — 100.000.00
Vopnafjörður, íþróttahús ....................... — 290.000.00
Jökuldalshreppur, stækkun skóla, íþr.salur .... — 130.000.00
Egilsstaðir, íþróttahús 1. áfangi............... — 550.000.00
Eiðahreppur, íbúð, skóli ....................... — 10.000.00
Eiðahreppur, stækkun skóla ..................... — 30.000.00
Mjóifjörður, skóli, endurbætur.................. — 80.000.00
Reyðarfjörður, íþróttahús ...................... — 280.000.00
Stöðvarfjörður, skóli, sundlaug................. — 60.000.00
Breiðdalshreppur, skóli......................... — 390.000.00
Djúpivogur, skóli, íþróttahús................... — 150.000.00
Geithellnahreppur, skóli ....................... — 150.000.00
Nesjahreppur ................................... — 150.000.00
Höfn í Hornafirði, skóli........................ — 450.000.00
Mýrarhreppur, íbúð.............................. — 50.000.00
Hofshreppur, skóli ............................. — 50.000.00
LEIKSKÓLAR
Egilsstaðir .................................. Nýkr. 50.000.00
Fáskrúðsfjörður................................. —- 23.000.00
Höfn í Homafirði................................ — 30.000.00