Morgunblaðið - 07.04.2010, Qupperneq 1
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
íþróttir
Meistaradeildin Argentínski snillingurinn Lionel Messi fór á kostum gegn Arsenal. Messi
skoraði öll fjögur mörk Evrópumeistaranna. Barcelona mætir Inter í undanúrslitunum. 4
Íþróttir
mbl.is
höndla það en ég hef þurft að beita öðrum að-
ferðum á stelpurnar. Ég er mýkri þjálfari en
ég var áður og kem hlutunum frá mér með fjöl-
breyttari hætti. Það er mikill kostur að hafa
lært það. Andlega hliðin hefur einnig verið
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„ÞAÐ er reyndar einn stór munur. Það eru
fleiri mistök gerð í kvennaboltanum þegar
spennan er sem mest. Gráu hárunum hjá mér
fjölgaði aðeins en ég gríðarlega stoltur af þess-
um stelpum,“ sagði þjálfarinn og fór yfir það í
frekar ítarlegu máli hve mikið leikmenn KR
hafa æft aukalega frá því sl. sumar. „Þær hafa
lagt ótrúlega mikið á sig. Sumar hafa æft allt
að þrisvar á dag. Styrktaræfingar, frjáls-
íþróttir og margt annað. Allt hefur þetta hjálp-
að okkur að ná settu marki. Þær eru líka gríð-
arlega reglusamar. Allt er 100%. Mataræðið
og allt sem því fylgir. Ég hef ekki getað verð-
launað þær með pítsu eða einhverju slíku. Þær
hafa ekki viljað það.“
Þjálfarinn er ekki í vafa um að hann hafi
lært gríðarlega mikið í vetur, og að konurnar
hafi kennt sér nýja hluti.
Óvissa um framhaldið
Benedikt gerði eins árs samning við KR sl.
sumar og er hann því í „biðstöðu“ hvað at-
vinnumálin varðar. „Ég sé ekki eftir því að
hafa tekið þetta starf að mér, og það er aldrei
að vita hvað verður í framhaldinu. Ég mun
gefa þessu einhvern tíma en í þessu starfi veit
maður aldrei hvað gerist. Ég lærði helling á
þessum vetri og tel að ég sé fjölhæfari og betri
þjálfari fyrir vikið.“
Hvað er það sem þú hefur lært?
„Maður þarf að fara öðruvísi að konunum.
Ég hef verið þessi „grófa“ þjálfaratýpa hjá
karlaliðunum sem ég hef þjálfað. Strákarnir
mikið í umræðunni hjá okkur. Stelpur spá oft
of mikið í hlutina. Velta hlutum fyrir sér sem
strákar pæla aldrei í. Þær gera oft of miklar
kröfur til sín og finnst þær vera að bregðast
liðinu og allur þessi pakki. Ég þurfti oft að
núllstilla á þeim höfuðið og það hefur verið
mikil reynsla að taka þátt í þessu. Liðið er vel
mannað og frábærir einstaklingar sem hafa
lagt sitt í það að gera liðið betra en áður,“
sagði Benedikt Guðmundsson. » 2-3
„Gráu hárunum fjölgaði“
Morgunblaðið/Ómar
Fögnuður Margrét Kara Sturludóttir (11) og Helga Einarsdóttir stukku hæð sína í leikslok eftir að KR landaði 14. Íslandsmeistaratitlinum.
„Þetta er aðeins öðruvísi en alveg jafngaman,“
sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari þegar
hann var inntur eftir því hvort einhver munur
væri að fagna Íslandsmeistaratitli sem þjálfari
kvennaliðs KR eða karlaliðs KR. Benedikt stýrði
karlaliði KR til sigurs á Íslandsmótinu í fyrravor
og í gær stóð hann í sömu sporum og nú sem
þjálfari kvennaliðs KR í fyrsta sinn á ferlinum.
Benedikt Guðmundsson sér ekki eftir því að hafa tekið áskoruninni Betri þjálfari fyrir vikið
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,ÉG fékk þau skilaboð frá félaginu á dög-
unum að ég fengi ekki framlengingu á samn-
ingi mínum eins og mér hafði verið lofað og
ég yfirgef því liðið í sumar,“ sagði handknatt-
leiksmaðurinn Einar Hólmgeirsson við Morg-
unblaðið í gær.
Einar er á mála hjá þýska fyrstu deildar
liðinu Grosswallstadt en hann gekk að nýju til
liðs við það sumarið 2008 eftir eins árs dvöl
hjá Flensburg.
,,Þetta er fljótt að breytast. Þegar ég var
búinn að ná mér af meiðslunum ræddu for-
ráðamenn liðsins við mig og tjáðu mér að þeir
vildu gera við mig nýjan eins árs samning. En
þegar nýr þjálfari og framkvæmdastjóri
komu til liðsins breyttist allt saman. Þeir
töldu það ekki borga sig að taka áhættuna á
því að bjóða mér samning þó svo að ég hafi
verið tilbúinn að lækka töluvert í launum. Op-
inbera afsökunin þeirra er meiðslasaga mín
en það var vitað fyrir nokkrum mánuðum að
ég hafði átt við meiðsli að stríða. Vissulega er
ákveðin áhætta að semja við mig vegna minna
meiðslasögu en ég var reiðubúinn að koma til
móts við félagið. Því var ekki tekið og nú er
umboðsmaður minn að kanna stöðuna fyrir
mig,“ sagði stórskyttan Einar Hólmgeirsson.
Einar hefur verið afar óheppinn með
meiðsli frá því hann hélt út í atvinnumennsk-
una fyrir fimm árum en hann sneri aftur inn á
handboltavöllinn í byrjun mars eftir að hafa
verið frá keppni í 10 mánuði. Nú síðast plög-
uðu brjóskskemmdir í hné Einar en þar áður
bakmeiðsli.
Fyrirspurnir frá liðum í 2. deildinni
,,Markaðurinn er frekar rólegur og það er
kannski engin gríðarleg eftirspurn eftir
mönnum sem hafa verið meiddir. Umboðs-
maðurinn er að þreifa fyrir sér í Þýskalandi.
Það hafa komið fyrirspurnir frá liðunum í 2.
deildinni, meðal annars einu sem ætlar sér
stóra hluti á næstu árum, en engin tilboð hafa
borist ennþá, enda er stutt síðan það spurðist
út að ég yrði ekki áfram í Grosswallstadt,“
sagði Einar.
Sverre Jakobsson verður því eini Íslending-
urinn sem spilar með Grosswallstadt á næsta
tímabili en varnartröllið á eitt ár eftir af
samningi sínum við félagið.
Einar fær ekki nýjan samning
Yfirgefur þýska liðið Grosswallstadt í sumar
Forráðamenn liðsins gengu á bak orða sinna
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stórskytta Einar Hólmgeirsson er á förum.