Austri


Austri - 04.06.1982, Síða 8

Austri - 04.06.1982, Síða 8
Minning Bjarni Þórðarson Neskaupstað Henn töldo það óhugiandí... Stutt spjoll vií Eirík Gunuþónson ó Borgarfirði Bjarni bæjarstjórí er dá- inn. Hann lést á Borgarspít- alanum í Reykjavík 21. maí 1982 eftir stranga sjúkdóms- legu. Áður hafði hann verið heilsuhraustur maður. Bjarni Steindór hét hann fullu nafni, foreidrar hans Þórður Bergsveinsson frá Urðarteigi við Berufjörð og Matthildur Bjarnadóttir af skaftfellskum ættum. Fæddur var Bjarni 24. apr- íl 1914 á Kálfafelli í Suður- sveit, frumburður sinna for- eldra, sem nú fluttust austur að Krossi á Berufjarðar- strönd og hófu þar búskap. Þórður sótti sjóinn jafn- framt. Hann fórst við fimmta mann skammt frá lendingu þegar Bjarni var 11 ára gamall. Sumir mæta miklum örlög- um þegar á barnsaldri. Fjög- ur voru systkinin á Krossi og það fimmta á leiðinni þegar faðirinn var allur. Framund- an var hörð barátta ekkju og ungra barna að halda hópinn, barátta fyrir lífsbjörg og fyrir heilsu og lífi barnanna, sem sum áttu við langvarandi veikindi að stríða. Eftir fimm ár á Krossi flutti Matthildur til Norð- f jarðar með börnin og barátt- an hélt áfram. Bjarni vann við sjóinn og á sjónum. Var tvo vetur í unglingaskóla. Lærði vélstjórn og tók vél- stjórapróf og gerðist mótor- isti á bátum í mörg ár. Hann fór í land 1946 og gerðist bæj- argjaldkeri og bæjarstjóri fjórum árum seinna og allt til 1973 að hann gaf ekki kost á sér. Eftir það vann hann ýmis störf, lengst gjaldkeri við Landsbankann í Neskaup- stað. Árið 1941 kvæntist Bjarni Önnu Eiríksdóttur. Þau eign- uðust tvo syni, Eirík og Berg- svein. Anna andaðist 1975. Fjórum árum síðar fórst Ei- ríkur með báti sínum í fiski- róðri. Síðari kona Bjarna var Hlíf Bjarnadóttir og lifir hún mann sinn. Bjarni Þórðarson hellti sér út í verkalýðs- og stjórnmála- baráttuna löngu áður en hann hafði náð kosningaaldri og hlotið kjörgengi. Frá upphafi barðist hann í fylkingar- brjósti og hvikaði aldrei. Harðfylginn og beinskeyttur í ræðum. Slíkt hið sama á ritvelli, mikilvirkur og þraut- seigur í blaðamennskunni, allt frá „Uppreisn“, fyrsta fjölritaða blaðinu, til „Aust- urlands“, sem orðið er næst- langlífast vikublaða á lands- byggðinni. Samhliða þessu sótti Bjarni sjóinn af atorku framan af og gerðist síðan framkvæmdastjói’i grósku- mikils og vaxandi bæjarfé- lags í nærri fjórðung aldar og löngum stjórnarmaður og stundum formaður umfangs- mikilla atvinnufyrirtækja í bænum, afköstin ekki smá. Margir minnast Bjama Þórðarsonar þessa dagana og rekja æviágrip. Síðar munu færir menn rita ævisögu hans í heild, því það er óhjá- kvæmilegt vegna íslandssög- unnar. En þegar ég nú hugsa til samferðamanns míns Bjarna bæjarstjóra, koma mér fyrst í hug fleyg orð: Hátt er siglt og stöðugt stjó'f'n^Ö. Að Bjarni sigldi hátt þekkjum við öll sem hon- um kynntumst. Og stöðugt stjórnað? Fjörutíu ára meiri- hluti í bæjarstjórn Neskaup- staðar staðfestir það. Bjarni Þórðarson var herðimaður og gekk heill að hverju verki. Hann var kom- inn af stórbrotnu kjarnafólki í alþýðustétt og sérstætt sumt. Bjarni var mikill á velli segir Sigurður Blöndal í minningargrein og hittir naglann á höfuðið. Þó var hann hvorki hár maður vexti né tiltakanlega gildvaxinn. Hann var yfirbragðsmikill, rómsterkur og hló hátt og hressilega, gamansamur al- vörumaður. Skarpgreindur var Bjarni, sjálfmenntaður í bestu merkingu og hertur að sægarpa sið. Kjörin settu á manninn mark þegar í upp- vexti og mótuðu lífsviðhorf sem síðan aldrei raskaðist. Á Bjarna sannaðist að hörð er lundin, hraust er mundin, og þó engu miður — hjartaÖ gott sem undir slær. Á það reyndi tíðum, svo hið innra þegar sortna tóku él, sem í starfi þegar nauðleitarmenn áttu í hlut. Við Bjarni Þórðarson vor- um jafnaldrar og lengst af nágrannar og áttum mörg sameiginleg áhugamál, t.d. pennatök og pólitík. Gaman var að hitta hann á förnum vegi og góður var hann heim að sækja. Við þrættum bara í blöðum okkar en harka- lega fyrir hverjar kosning- ar. Hvorugur gaf það hinum að sök. Þótt hvor færi sína leið og oft væri vík milli vina í pólitískum skilningi sáum við jafnan til ferða hvors annars og kepptum að sama marki: framför fólks og byggða í því landi sem báðum féll vel. Vopnabræður Bjarna Þórð- arsonar róma að vonum og sér í lagi baráttu hans fyrir hinn sósíaliska málstað. Öðr- um er það nóg að hann var hetja og íslendingur. Ég er einn af þeim. Við fráfall Bjarna sendi ég Bergsveini, Hlíf og öðrum ástvinum hans — og nágrönn- um mínum öllum í Neskaup- stað — innilegar kveðjur. Vilhjálmur Hjálmarssson. Ný flugvél Nú í vikunni kom til Egils- staða ný flugvél Flugfélags Austurlands. Flugvélin er af gerðinnj Piper Navajo og er eins og sú sem félagið átti fyrir og keypt af sömu aðil- Á Borgarfirði veldur hafn- leysi því að ekki er um útgerð stórra báta þaðan að ræða. Eingöngu eru þar gerðar út trillur yfir sumai’ið svo og nokkrir 7-11 tn. bátar. Byrjað var á hafnargerð á Borgarfirði 1944 þegar byggður var 150 m langur hafnargarður 514 m breiður, inn við Bakkagerði. Áður var landað úr trillunum við hinar erfiðustu aðstæður, í vogum og við klappir sem þóttu henta. Síðan hefur verið bæti. við þennan garð, hann lengd- ur og breikkaður að hluta og er hann allgóður til löndunar fyrir þá útgerð sem nú er stunduð frá Borgarfirði. Árið 1973 var byrjað á hafnargerð út við Hafnarhólma sem breytir mikið til batnaðar út- gerð minni báta frá Borgar- firði. Lokað var sundinu út í Hólmann með brimvarnar- garði síðan var byggður grjótgarður suðvestur úr Hólmahorni og byggð bryggja úr landi þannig að komið er þar dágott bátalægi, Önnur myndin sýnir for- ráðamenn Flugfélagsins við komu vélarinnar. Talið frá vinstri: Kolbeinn Arason flugmaður, Guðmundur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri og Þorkell Þorkelsson flug- virki. Hin myndin sýnir vélakost Flugfélags Austurlands nú. of lítið að vísu, fyrir trillur og báta af minni stærð og með talsvert meirí aðgerð má bæta þetta lægi mikið, þ.e. ef það væri dýpkað og byggðir viðlegukantar. Þar sem yfirleitt fer lítið fyrir tali eða skrifum í fjöl- miðlum um útgerð slíkra báta sem að ofan greinir, það rúm- ast eflaust ekki í þeim fyrir fréttum af nýjum skuttogur- um og útgerð þeirra, loðnu- og síldarbátum svo og vertíð- arbátum og helst hver verði nú með mestan afla eftir vet- urinn, þá hafði tíðindamaður Austra tal af Eiríki Gunn- þórssyni sem á 11 tn. bát, Björgvin NSl og rabbaði ör- stutt við hann um útgerð slíks báts gerðan út frá Borgar- firði. Eiríkur hefur allan sinn aldur átt heima á Borgarfirði og stundað sjómennsku allt sitt líf, bæði frá Borgarfirði og öðrum stöðum. — Hvenær og hvar er bát- urinn smíðaður, Eiríkur? — Hann er smíðaður hér á Borgarfirði 1970 - 71 af Herði Björnssyni sem hefur smíðað fjölda báta. — Var það ekki bjartsýni að ætla að fara að gera út slíkan bát frá Borgarfirði við þær aðstæður sem þá voru? — Jú, það niá segja það og flestir töldu það óhugsandi. En fyrir mér vakti að reyna að lengja úthaldstímabilið því maðui’ sá báta koma drekk- hlaðna frá Langanesi fyrir f j örðinn snemma á sumrin og þótti manni það sárt að geta ekki sótt þangað. En varðandi það að gera út slíkan bát í hafnleysi má segja það að maður hefði fljótlega gefist upp ef ekki hefði verið byrjað á hafnargerð við Hafnar- hólma, því vegna þessa á- stands þurfti maður alltaf að flýja með bátinn í hafáttum á aðra firði, oftast Seyðisfjörð eða Loðmundarfjörð, þar sem við gátum legið í vari. Yfir- Framhald á bls. 7 um.

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.