Nýr Stormur


Nýr Stormur - 10.06.1966, Blaðsíða 1

Nýr Stormur - 10.06.1966, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 10. J 0 N I 1966 Údeigur skrifar um aðhaid borgarstjórnar á b!s. 4. 2. árgangur Reykjavík 23. tölublafl LAUSN RÍKISSTJORNARINNAR: GENGIS KKUNINA BRAEDA MEÐ ALI! næðir um stjórnarfiokkana með komandi sumri og hækkandi sól Allt útlit er nú fyrir, að senn dragi til stórtíðinda í efna- hagsmálum íslenzku þjóðarinnar, því nú er svo komið að stjórnarblöðin eru þegar farin að „undirbúa“ almenning, ef svo mætti að orði kveða. S.l. laugardag birtir Vísir for- ustugrein undir fyrirsögninni: „Kóiga framundan", og dag- inn eftir upplýsir Benedikt Gröndal „helgispjaliahöfundur" Alþýðublaðsins, að „vinnuveitendur séu fokvondir"! Sama dag gengur Tíminn á lagið og birtir leiðara undir fyrirsögn- inni: „Gengisfellingu hótað“! Þannig er þá málum komið, að gengisfelling íslenzku krónunnar virðist óhjákvæmileg, svo sem Nýr Stormur skýrði frá í marz s.l. Hrunadansinn heldur þannig áfram, enda hafa allar ráðstafanir íslenzku ríkis- stjórnarinnar og hagspekinga hennar orðið óraunhæfari með hverri vikunni sem líður. Heimskulegt kák stjórnvald- anna nálgast nú hámarkið! höfðu ríkisstjórnarflokkarnir sífellt á því klifað, að hagur ríkissjóðs færi síbatnandi og jafnframt væri ekkert að ótt- ast í sambandi við „ýruggt“ gengi íslenzku krónunnar! Valdhafarnir létu sig ekki muna um að halda því blá- kalt fram, að velmegun þjóð- arinnar færi blómstrandi með hverjum degi og blaðakostur ríkisstjórnarinnar hefur allt fram til þessa dags dásamað viðreisnarandann, sem blési nýjum og ferskum straumum inn í allt lif þjóðarheildarinn- ar. Ríkisstjórnin hefur hingað til fullyrt, að vegna mikils góðæris til lands og sjávar og þar af leiðandi kappnógr- ar atvinnu landsmanna, væri allt að miklum mun í betra horfi en nokkurn tíma áður fyrr. Bölmóður vísitöluhækk- unar væri hégómi einn, runn- inn undan vondra manna rifjurn, sem engin áhrif gæti haft á íslenzku krónuna — og allra sízt til að rýra gildi hennar, né hafa áhrif á breytt gengi hennar til lækkunar! Framh. á bls. 2. í marzmánuði s.l. var sagt frá því í forsíðugrein Nýs Storms, að „framleiðslukostn- aður útflutningsafurðanna vœri orðinn svo hár, að ó- hugsandi væri, að framleiðslu atvinnuvegirnir gætu borið hann lengur“. Þessi yfirlýsing Nýs Storms vakti mikla at- hygli meðal almennings, enda LEIÐARLJÓS í dag hefst hér í blaðinu nýr þáttur, sem hlotið hef- ur nafnið „Leiðarljós". Er ætlanin að þessi þáttur komi framvegis í blaðinu og er hugmyndin með birt- ingu þessa þáttar að kynna í örfáum orðum heims- kunna menn, sem unnið hafa sér varanlegan sess í sögunni. Er þá einkum haft í huga að birta það sérstak lega, sem kalla mætti leið- arljós þessara manna og kvenna í lífsbaráttu þeirra. Fyrsti þátturinn er um Churchill. (Sjá bls. 2). Þegar yfirvaldið fangelsaði ellina! „ EKKI AMALEGT AÐ VERA HEIT- INN EFTIR PÁLI AMTMANNI” NÝR STORMUR hefur allt frá því hann hóf göngu sína lagt megináherzlu á að kynna fyrir almenningi, hversu mjög rotið réttar- far'ið er hérlendis. Hefur blaðið sýnt fram á það með gildum og góð- um rökum, að hér þróast hvers konar svívirða gagn vart ýmsum þegnum lands- ins og þá einkum þeim sem smáir eru og vinafáir. — Valdniðslan er á stundum svo óheyrileg, að nálgast lygilegustu reyfarafrásagn- ir. Hér skal sagt frá einni sem engan mun eiga sinn líka. Fyrir nokkru fóru fram svokölluð yfirlandskipti þriggja jarða í Árnessýslu og er það út af fyrir sig ekki sérstaklega í frásög- ur færandi. Eftir að landskiptanefnd in hafði lokið störfum sín- um þótti einum bóndan- um mjög gengið á sinn rétt ' skiptin og vildi ekki una þeim. Nábúi hans hófst handa um að girða landsvæði það er honum var úthlutað og taldi sig fara eftir landa- merkjabréfinu. Óánægði bóndinn taldi hins vegar að girðingin væri ekki réttilega staðsett. Hann tók sig því til og klippti burtu vírstrengi girð ingarinnar, en við það vildi nábúinn ekki sætta sig og kærði málið til sýslu mannsins í Árnessýslu. Yfirvöldin á Selfossi, Páll Hallgrímsson, sýslumaður og Snorri Árnason, fulltrúi hans, brugðu skjótt við og sendu lögreglu sína á vett- vang. Yfirlögreglumaðurinn og annar lögreglumaður tóku síðan skýrslu af hinum ó- ánægða bónda, sem kvaðst hvergi mundu fara eftir yfirlandskiptagjörðinni. — Lauk málþófinu á þann veg að bóndinn var tek- inn að boði yfirvaldanna og fluttur miðvikudaginn fyrir uppstigninvardag í fangahúsið að Litla- Hrauni og þar mátti bóndi dúsa nóttina eftir og á upp stigningardag, en þá var honum sleppt. Enginn úrskurður var uppkveðinn og engin skýrsla hefur enn verið gerð af þessu tilefni; Hitt er svo meginmálið, að hinn fangelsaði bóndi er 77 ára gamall maður, hrumur og frekar heilsu- veill! Þessi átakanlega mynd af „réttarfarinu“ skýrir sig sjálf. Málið hefur nú ver- ið afhent lögmanni, sem mun freista þess að kæra atferli yfirvalda Árnes- sýslu til dómsmálaráð- herra — en hvers sé svo að vænta þaðan er óskráð saga og skai heldur engu þar um spáð. Svona getur til tekizt, þegar ónefndur sýslumaður var skipaður kornungur og reynzlulaus i embætti forðum — og það eitt nánast látiö nægja til að réttlæta embættaveit- inguna — að sá hinn skip- aði hét Páll og var heit- inn eftir Páli amtmanni

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.