Morgunblaðið - 22.05.2010, Síða 1

Morgunblaðið - 22.05.2010, Síða 1
LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2010 Handbolti Kvennalandsliðið á tvo stórleiki fyrir höndum. Þarf eitt stig enn til að komast í úr- slitakeppni EM í fyrsta skipti. Mætir Frökkum í Laugardalshöll og síðan Austurríki ytra. 2 Íþróttir mbl.is yrði frá keppni í sex mánuði. ,,Hann er viss um að ég komi flottur til baka. Það voru settar tvær skrúfur í hné sem verða fjarlægðar eftir eitt ár og ég fæ að eyða öllum mínum fríum í þetta. Í fyrra sleit ég band í úlnliðn- um og var í veseni með höndina allt sumarið og nú þarf maður að finna sér eitthvað annað að gera næsta hálfa árið,“ sagði Guðjón sem segist mega byrja að hreyfa sig eftir um sex vikur. Erfitt að réttlæta HM ef ég verð ekki kominn í stand Ef allt gengur að óskum ætti Guð- jón að vera orðinn klár áður en flaut- að verður til leiks á heimsmeist- aramótinu sem haldið verður í Svíþjóð í janúar á næsta ári. Íslend- ingar unnu sér keppnisréttinn í úr- slitakeppninni með því að ná brons- inu á EM í Austurríki. ,,Þetta er búið að vera ansi leið- inlegt hjá mér eftir frábært mót með landsliðinu í Austurríki. Maður hefur misst af öllum leikjunum með Rhein- Neckar sem skipta máli og nú er útlit fyrir að maður spili ekki fyrr en í nóvember. Gummi þarf að hugsa sig vel um hvort hann velji mig í lands- liðið. Það er allt of snemmt að velta þessu fyrir sér en ef ég verð ekki kominn í stand skömmu fyrir HM þá verður erfitt að réttlæta að ég verði með. En við skulum vona að þetta gengi að óskum og að batinn verði góður,“ sagði Guðjón. Hafði ekki áhuga á að fá nýjan hnélið Morgunblaðið/Eggert Endurhæfing Guðjón Valur Sigurðsson hefur þurft að horfa á félaga sína í Rhein-Neckar Löwen spila síðan í febr- úar. Nú bendir allt til þess að hann leiki ekki aftur með liðinu fyrr en í lok nóvember vegna uppskurðarins í gær.  Guðjón Valur fór í aðra aðgerð á hné í gær  Verður frá keppni í hálft ár  Tvísýnt um þátttöku á HM í Svíþjóð VIÐTAL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði þýska hand- knattleiksliðsins Rhein-Neckar Lö- wen, leikur ekki handbolta næstu sex mánuðina en hann gekkst undir að- gerð á vinstra hné í gær, því sama og hann fór í aðgerð á fyrir þremur mánuðum. Guðjón hefur ekkert leikið með Rhein-Neckar Löwen-liðinu á þessu ári vegna meiðslanna og síðasti hand- boltaleikur hans var í Austurríki í janúar þegar Íslendingar tryggðu sér á eftirminnilegan hátt brons- verðlaunin á Evrópumótinu. ,,Það hefur verið vitlaust tog á hnéskelinni og aðgerðin gekk út það að færa hana til. Þegar ég fór í að- gerðina fyrir þremur mánuðum var búið til ákveðið plan en þegar ég fór að æfa aftur þá gekk það einfaldlega ekki upp. Ég var í sömu sporum og áður en hefði getað haldið áfram með því að bryðja töflur og fara í spraut- ur. Það var hins vegar engin lausn og ég hafði engan áhuga á að fá nýjan hnélið eftir einhver ár,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið í gær. Læknirinn viss um að ég komi flottur til baka Að sögn Guðjóns heppnaðist að- gerðin vel og læknirinn sem fram- kvæmdi hana tjáði honum að hann Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Redknapp vill halda Eiði og vilji Eiðs er að halda kyrru fyrir hjá Tottenham,“ sagði Arn- ór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, í samtali við Morgunblaðið í gær en lánssamningur Eiðs við Lundúnaliðið er runninn út. ,,Ég reikna með að á næstu dögum muni Tottenham hefja viðræður við Mónakó með það fyrir augum að fá að halda Eiði og von- andi verður það bara niðurstaðan. Ég er bjartsýnn á að svo verði en þegar peningar eru annars vegar er aldrei hægt að slá neinu föstu. Eiður er mjög ánægður hjá félaginu og ég sjálfur teldi það besta kostinn fyrir hann að vera áfram hjá Tottenham. Það er alltaf erfitt að koma til liðs á miðju tímabili eins og Eiður gerði og hann myndi vilja taka gott undirbúningstímabil með liðinu og spila með því á næsta tímabili,“ sagði Arnór. Eiður gerði þriggja ára samning við Móna- kó í fyrrasumar og á því tvö ár eftir af samn- ingi sínum við liðið frá furstaríkinu. Í janúar á þessu ári var hann lánaður til Tottenham þar sem hann kom við sögu í 14 leikjum, þar af 11 í úrvalsdeildinni, og skoraði í þeim 2 mörk. Fregnir bárust af því í enskum fjölmiðlum í gær að Aston Villa væri með Eið Smára í sigtinu og gæti farið í samkeppni við Totten- ham um að fá hann frá Mónakó. ,,Ég sá þessar vangaveltur en ég hef ekki heyrt neitt frá Aston Villa. Ég veit að það var mikill áhugi hjá Martin O’Neill að fá Eið áður en hann ákvað að halda kyrru fyrir hjá Barcelona en hvort hann ætlar að reyna aftur að fá hann veit ég ekki,“ sagði Arnór. „Redknapp vill halda Eiði Smára“  Eiður vill vera kyrr hjá Tottenham  Reiknað með viðræðum Tottenham og Mónakó fljótlega Reuters Áfram? Eiður Smári gæti leikið áfram með Tottenham á næsta keppnistímabili. íþróttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.