Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.06.2010, Blaðsíða 3
varð okkar banabiti. Við fengum því- líkt dauðafæri til að gera út um leik- inn þegar leikurinn var við það að fjara út en því miður tókst Alfreð ekki að skora. Mér fannst við vera með góð tök á leiknum en þegar út í vítakeppni er komið getur allt gerst,“ sagði Ólaf- ur Helgi Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks við Morgunblaðið eftir leikinn. Guðmundur Pétursson kom Blik- unum yfir eftir skemmtilega sókn þeirra á 71. mínútu en Alfreð Finn- bogason stakk boltanum með glæsi- brag á Guðmund sem vippaði bolt- anum laglega yfir Gunnleif. Guðmundur hafði í fyrri hálfleik kom- ið boltanum rétta boðleið en var dæmdur rangstæður og líklega var um rangan dóm að ræða. Blikarnir voru rétt hættir að fagna markinu þegar ,,óþekki“ strákurinn Björn Daníel Sverrisson skoraði með góðu skoti en arkitektinn að markinu var Atli Guðnason. Gunnleifur verður að teljast maður leiksins en Tommy Nielsen stóð hon- um ekki langt að baki. Daninn átti stórleik í vörninni og fórnaði sér fyr- ir málstaðinn undir lok leiksins með því að fá sitt annað gula spjald þegar Arnór Sveinn var að sleppa í gegn. Hákon Hallfreðsson og Atli Guðna- son áttu einnig góðan leik í liði FH sem er hægt og bítandi að eflast. Í jöfnu og góðu liði Blika stóðu þeir einna helst upp úr þeir Kristinn Jónsson, Kári Ársælsson og Jökull Elísabetarson. Morgunblaðið/Ómar Vítabani Gunnleifur Gunnleifsson gómar boltann í leiknum í gærkvöld. Hann varði þrjár vítaspyrnur á sínum gamla heimavelli, Kópavogsvellinum. Gunnleifur varði mark HK um árabil áður en hann gekk til liðs við FH-inga í vetur. Gunnleifur magnaður  Varði þrjár vítaspyrnur og tryggði Íslandsmeisturunum sigur á bikarmeist- urunum  1:1 jafntefli eftir framlengingu en þá tók Gunnleifur til sinna ráða Á VELLINUM Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Mér fannst við allir vera frábærir og ég vil ekkert þakka mér frekar en öðr- um að við skyldum hafa þetta,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH-inga, eftir leik Breiðabliks og FH í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöld. Staðan var jöfn, 1:1, eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en í vítaspyrnukeppninni sýndi Gunn- leifur og sannaði að hann er besti markvörður landsins. Hann gerði sér lítið fyrir og varði þrjár síðustu spyrn- ur ríkjandi bikarmeistara og bjargaði liðinu og sá einn og sér um að tryggja liði sínu farseðilinn í 16-liða úrslitin en FH-ingar byrjuðu vítakeppnina ekki gæfulega því tvær fyrstu spyrnur Ís- landsmeistaranna rötuðu ekki rétta boðleið. ,,Mér finnst ekki gaman að tapa á Kópavogsvellinum og það kom ekki til greina að liggja aftur fyrir Blikunum. Baráttan í liðinu var til fyrirmyndar og ég held að þetta sé allt á réttri leið hjá okkur,“ sagði Gunnleifur, sem hef- ur verið þekktur fyrir að vera vítab- ani. ,,Þetta er oftast heppni. Ég er með ákveðnar reglur í þessu og þetta féll með mér í dag,“ sagði Gunnleifur. Hann kom liði sínu einnig til bjargar í uppbótartíma undir lok venjulegs leiktíma þegar hann varði dauðafæri Alfreðs Finnbogasonar. Það bar ekki mikið á milli meist- araliðanna í leiknum og sigurinn hefði getað endað hvorum megin sem var. Liðin skiptust á að ná undirtökunum í leiknum og greinilegt var að hvorugt lið ætlaði sér að falla úr leik. Það kom hins vegar í hlut Blikanna að þessu sinni svo Kópavogspiltarnir ná ekki að verja bikarmeistaratitil sinn en Breiðablik fagnaði sínum fyrsta bik- artitli í fyrra. ,,Við tókum einfaldlega bara slakari vítaspyrnur en FH-ingarnir og það Íþróttir 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 SpánverjinnRafa Bení- tez er hættur sem knatt- spyrnustjóri enska stórliðsins Liverpool eftir sex ár við stjórn- völinn þar. Á þeim tíma fagnaði liðið einum Evrópumeistaratitli og einum bikarmeistaratitli auk þess að verða í 2. sæti ensku úrvalsdeild- arinnar á næstsíðustu leiktíð. Á ný- afstaðinni leiktíð náði liðið hins veg- ar aðeins 7. sæti. „Ég get ekki lýst því hve þakklátur ég er fyrir að hafa þjálfað hér í þessi ár og verið ykkar stjóri. Takk enn og aftur og munið: Þið munuð aldrei ganga einsömul (e. yoúll never walk alone),“ voru skila- boð Benítez til stuðningsmanna.    Nokkrir hafaþegar verið nefndir sem hugsanlegir eft- irmenn Benítez hjá Liverpool og þar á meðal goð- sögn félagsins Kenny Dalglish sem verið hefur yfirmaður akademíu félagsins, sem og Martin O’Neill, Roy Hodgson og Hollendingarnir Louis Van Gaal og Guus Hiddink.    Danski landsliðsmaðurinn LarsChristiansen lék sinn síðasta heimaleik með þýska liðinu Flens- burg í fyrrakvöld þegar liðið sigraði Lemgo, 34:31. Þessi frábæri horna- maður er að kveðja Flensburg sem hann hefur leikið með undanfarin 14 ár og var hann hylltur af þúsundum stuðningsmanna Flensburg eftir leikinn en Christiansen hefur sallað inn mörkum fyrir félagið og er einn mesti markaskorari í sögu þýsku 1. deildarinnar. Christiansen hefur ákveðið að halda heim á leið og mun líklegast ganga í raðir Kolding.    Danski línumaðurinn JesperNøddesbo hefur framlengt samning sinn við spænska liðið Barcelona en Daninn fór á kostum með liðinu í úrslitaleiknum gegn Kiel í Meistaradeildinni um síðustu helgi þar sem Kiel vann nauman sig- ur. Sænski landsliðsmaðurinn Magnus Jernemyr hefur sömuleiðis gert nýjan samning við Börsunga en Svíinn er talinn vera í hópi bestu varnarmanna heims.    Portúgalinn Andre Villas Boas,lærisveinn hins magnaða José Mourinho, nýskipaðs þjálfara Real Madrid, hefur verið ráðinn þjálfari portúgalska liðsins Porto til tveggja ára. Hann fetar þar með í fótspor Mourinho sem þjálfaði Porto og gerði að Evrópumeisturum 2004.    Villas Boas er aðeins 32 ára gam-all og verður yngsti þjálfarinn í sögu Porto. Hann starfaði með Mo- urinho í sex ár, frá 2003 til 2009, hjá Porto, Chelsea og Inter en hann hóf sinn þjálfaraferil í fyrra með liði Academica Coimbra og undir hans stjórn varð liðið í 11. sæti í portú- gölsku deildinni í ár. Porto endaði í þriðja sæti í deildinni í ár eftir að hafa unnið titilinn fjögur ár í röð.    Avram Grantvar í gær ráðinn knatt- spyrnustjóri enska úrvals- deildarliðsins West Ham og hann tekur við af Gianfranco Zola sem var sagt upp störfum í lok nýlið- ins keppnistímabils. Grant hætti á dögunum sem stjóri Portsmouth en samningur hans við West Ham er til fjögurra ára. Fólk sport@mbl.is Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Danir mæta með öflugt lið til Íslands en þjóðirnar mætast í tveimur vináttulandsleikjum í Laugardals- höll í næstu viku. Leikirnir eru liður í undirbúningi Dana fyrir leikina gegn Sviss í umspili um sæti í úr- slitakeppni HM sem fram fer í Svíþjóð í janúar á næsta ári. Fyrri leikur Dana og Svisslendinga verð- ur í Bröndby þann 13. júní og viku síðar mætast þjóðirnar í St.Gallen. Íslendingar tryggðu sér far- seðilinn á HM með árangrinum á Evrópumótinu í Sviss en þar hafnaði Ísland í þriðja sæti. Danir mæta með nær sama lið og þeir tefldu fram á Evrópumótinu í Austurríki í janúar en þar höfn- uðu þeir í 5. sæti. Ísland og Danmörk voru í sama riðli á Evrópumótinu og höfðu Íslendingar betur í rimmu liðanna, 27:22. Línumaðurinn Jesper Nød- desbo, leikmaður Barcelona, hlaut náð fyrir augum Ulriks Wilbeks, landsliðsþjálfara Dana, á nýjan leik en Wilbek sá Nøddesbo skora sex mörk fyrir Barce- lona í úrslitaleiknum gegn Kiel í Meistaradeildinni um síðustu helgi þar sem Kiel hafði betur. Hópurinn sem Wilbek hefur valið er þannig skip- aður: Markverðir: Niklas Landin, BSV Søren Rasmussen, AaB Håndbold Útispilarar: Lars Christiansen, Flensburg Anders Eggert, Flensburg Lasse Svan Hansen, Flensburg Hans Lindberg, Hamburg Jacob Bagersted, FCK Håndbold René Toft Hansen, Kolding Henrik Toft Hansen, AaB Thomas Mogensen, Flensburg Mads Christiansen, AaB Lasse Boesen, Flensburg Nikolaj Markussen, Nordsjælland Simon W. Kristiansen, BSV Bo Spellerberg, Kolding Jesper Nøddesbo, Barcelona Henrik Møllgaard, AaB Kasper Søndergaard, Kolding Mikkel Hansen, FC Barcelona Kasper Nielsen, Faaborg HK Danirnir mæta með öflugt lið Keflvíkingar, toppliðið í úrvalsdeild- inni í knattspyrnu, þurfti svo sann- arlega að hafa fyrir því að sigra 2. deildarlið KS/Leifturs, 1:0, í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar í gærkvöld. Leikið var á núverandi heimavelli Keflvíkinga, Njarðtaksvellinum, í talsverðum vindi. Keflvíkingar voru með hann í bakið í fyrri hálfleik en náðu samt sjaldan að ógna þéttri og vel skipulagðri vörn norðanmanna. Andri Steinn Birgisson var næstur því að skora en hann átti þrjár góðar skottilraunir sem þó geig- uðu allar. Heimamönnum gekk betur að spila í seinni hálfleik og um hann miðjan skoraði Magnús Þórir Matthíasson af stuttu færi eftir sókn upp hægri kantinn. Litlu munaði að hann bætti öðru marki við úr skyndisókn undir lokin en markvörður KS/ Leifturs varði þá skot hans á glæsi- legan hátt. vs@mbl.is Mark Magnúsar Þóris skildi að Keflavík og KS/Leiftur Magnús Þórir Matthíasson Fjölnismenn skiptu við Hauka eftir síðasta tímabil, féllu úr úrvalsdeild- inni og Hafnarfjarðarliðið kom í stað- inn. En í gærkvöld voru það Fjöln- ismenn sem höfðu betur í bikarslag liðanna á gervigrasinu á Ásvöllum í Hafnarfirði, unnu 2:0 og eru komnir í 16-liða úrslitin. Haukar, sem loks léku á rétta heimavellinum, eru þar með enn án sigurs á þessu keppnistímabili en Fjölnismenn, sem byrjuðu 1. deild- ina á þremur jafnteflum, eru hins- vegar taplausir og virðast til alls lík- legir. Fjölnir komst yfir snemma þegar Kristinn Freyr Sigurðsson sendi boltann fyrir Haukamarkið frá hægri og Guð- mundur Karl Guð- mundsson af- greiddi hann í netið með hörkus- kalla. Guðmundur Karl var síðan aft- ur á ferðinni seint í leiknum þegar hann fékk boltann frá Aroni Jóhannssyni og skoraði af stuttu færi, 2:0. vs@mbl.is Haukar féllu á heima- vellinum gegn Fjölni Kristinn Freyr Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.