Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 30.05.1940, Síða 1

Framsóknarblaðið - 30.05.1940, Síða 1
3. árg. Vestmannaeyjum, 30. maí 1940 8. tbl. Njómannadagnr Vestmannaeyja Hinum fyrsta sjómannadegi Vestmannaeyja, sem og raunar alls landsins, má líkja við barn- ið, sem gengur hin fyrstu spor frá vöggunni út í hið ólgufulla mannlíf, að öðru leyti en því, að æfidagarnir líkjast ekki manns- æfinni. Því má óhikað gexa ráð fyrir, að sjómenn íslands haldi sjómannadag hátíðlegan meðan aldir renna, til þess að minnast lífsstarfs síns. Hins hættusama starfs, sem aðeins hugdjarfir og harðfengnir menn fá gegnt. Það er gleðiefni öllum Vest- mannaeyingum, að sjómenn vorir hefjast nú handa um að halda hátíðlegan sjómannadag og velja til þessa hinn fegursta tíma áfsins, eftir að hafa lokið harðri baráttu, vetrarvertíðinni. Myrkrið og vetrarélin eru horf- in fyrir hækkandi sól, og endur- minningin um hreystilega sókn er sú undirmeðvitund, sem hlýt- ur að vera sjómönnum það til- efni, að fagna og gleðjast eftir unna þraut. Sjómannadagurinn er fyrst og fremst til þess, að sjómennirn- ir fagni þeim sigri, sem náðst hefir, til minningar um unnin hetjuverk, til hvíldar og gleði, í hópi. stéttarbræðra og ástvina. En verið minnugir þess, sjó- menn, að dagurinn á einnig að vera dagur minninganna, þar sem þér og við öll minnumst þeirra manna, sem látið hafa lífið í hinni hörðu baráttu, og hvíla nú i úthafsins djúpu gröf. Það eru tilmæli mín til sjó- manna Vestmannaeyja, að þér helgið deginum minningu drukknaðra stéttarbræðra yðar, með því að styðja að þvi, að vér sem fyrst getum reist hið fyrirhugaða minnismerki, kap- ellu. En sú bygging hefir tvenns- konar markmið: Að heiðra : minningu drukknaðra sjó- manna um leið og hún á að vera talandi tákn þeirrar virð- j ingar og þakklætis, sem vér öll viljum sýna sjómannastétt vorri, lífs og liðnum. Páll Oddgeirsson. Mlnnist sjómannadagsins Sjómannastéttin íslenzka hef- ir nú í tvö til þrjú síðustu ár haldið árlegan hátíðisdag sjó- manna. Að þessu sinni hefir 2. júní verið valinn. í fyrsta sinn ætla sjómenn hér í Eyjum að j ganga í fylkingar stéttarbræðra ' sinna og minnast dagsins. í tilefni þess hafa þeir undir- búið daginn allrækilega og vilja í hvivetna gera dag þennan þann hátíðisdag, sem hann á að vera. Engum dylst, hve þýðingar- mikið það starf er, sem sjómað- urinn leysir af hendi. Það dylst og engum, hve hætturnar eru miklar. Allra sízt nú, þegar á bárum hafsins hoppa vítisvélar villimennskunnar, bíðandi eftir að fá að granda fari og far- mönnum, sem eru að fara með björg í bú og afla nauðsynja handa þeim, sem heima sitja. Árlega gjalda sjómennirnir mikla skatta til ægis, og oft er skarð fyrir skildi í hópi stéttar þeirra, þegar að loknu ofviðri er horft yfir hóp þeirra. Á síðustu árum hafa farar- tæki þeirra batnað og öryggi aukizt. Þeir hafa nálgast meir heimili sín og land, eftir því sem tækni nútímans hefir vaxið. En þrátt fyrir alla tækni og ör- yggi, er sjómannastéttin sá hluti Stýrimannaskólinn í nýútkomnu blaði las ég nöfn þeirra, sem lokið _ höfðu skip- stjóraprófi á Stýrimannaskól- anum síðastl. vetur og var það stór hópur manna. En það, sem ég hlaut um að lesturinn, var það, að í hópnum var enginn Vestmannaeyingur. Þetta má aldrei framar endurtaka sig. Það er ekki vanzalaust fyrir okkar þróttmiklu sjómannastétt í Eyjum, að hér skuli ekki vera nema einn starfandi skipstjóri, sem hefir menntun til þess að stýra stærra skipi en 75 smálesta og að sigla á milli landa, auk tveggja eldri manna, sem lagt hafa sjósókn niður. Sumir vilja afsaka þetta með með því, að hér hafi ekki verið völ á skipum, sem gerðu meiri menntun en vélbátaskip- þjóðarinnar, sem alltaf horfist í augu við hina mestu erfiðleika. Þeir dvelja til langframa langt frá heimilum sínum og vensla- fólki. Þeir lifa og hrærast á fari sínu mestan hluta æfi sinnar. Þeir eru ánægðir með hlutskipti sitt. Þeir óska einskis fremur en að geta sótt björg í bú, og að í framtíðinni sem hingað til verði það þeir, sem verða líf- fjöður í athafnalífi þjóðarinnar. Framsóknarblaðið óskar sjó- mönnum í- Vestmanaeyjum, svo og sjómönnum á öllu landinu, að þeir á sjómannadeginum fái óskir sínar uppfylltar um happa- sælt starf á þeim áfanga, er næstur er. Að erfiðleikar þeir, sem nú standa fyrir dyrum í sjávarútveginum, megi hverfa sem dögg fyrir sólu. Að fiski- floti landsmanna geti sótt afla sinn í faðm ægisdætra, án þess að þurfa að örvænta um eigið líf eða framtíð hinnar íslenzku þjóðar. stjórn nauðsynlega, en þetta er engin afsökun. Sjómanna- skólinn hefir á undanförnum áratugum verið sóttur ekki hvað sízt af svo að segja öllum út- kjálkastöðum, en úr Eyjum, stærstu veiðistöð landsins, og þeim stað, sem vart getur orðið um aðra uppistöðuatvinnu að ræða en sjósókn í ýmsum mynd- um, hefir skólinn alls ekki verið sóttur. Ungu Eyjasjómenn, aflið ykk- ur þess siglingatíma sem með þarf til þess að komast í Stýri- mannaskólann, og setjið ykkur það mark, að innan hóflegs tíma, verði hér úrval manna með þekkingu og réttindum til þess að sigla skipum af öllum stærð- um. Þótt hér sé að vísu ekki ennþá um stór skip að ræða, þá bendir þróunin í þá átt, að skip- in haldi áfram að stækka og verði til fjölbreytilegri notkun- ar en verið hefir hér og Vest- mannaeyingar hafa alla mögu- leika til þess að skapa sér virðu- legan sess meðal íslenzkra far- manna. H. B. ÚTVEGURINN. Góður fiskafli nyrðra Að því er frá er skýrt í frétt- um dagblaða um þessar mundir, hefir verið góður fiskafli norðan lands hinar síðustu vikur. í Skagafirði hefir 4il dæmis fengizt inni í fjarðarbotni, þeg- ar náðst hefir í síld til beitu. í Eyjafirði hefir einnig verið ágætur afli. Víðar að hafa fréttir borizt um góðan afla norðlenzkra báta í vor. 4

x

Framsóknarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.