Framsóknarblaðið - 30.05.1940, Síða 4
4
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ.
Hugleiðingar
Halls Hálendingfs
Því var stungið að blaðinu af gaman.
sömum náunga, hvort það vildi ekki
heita einhverjum verðlaunum fyrir að
gizka á fyrir hvað Gunnar Ólafsson
hefði fengið stórkrossinn á dögunum.
Þótti manninum þetta tilvalin verð-
launagáta. Blaðið vildi þó ekki taka
þetta upp. Það er hrætt um, að Gunnar
vinni sjálfur verðlaunin eða orðunefnd-
in. Aðrir komast fráleitt nálægt því
rétta.
Menn hafa veitt því eftirtekt, að
eftir að samkomuhúsið varð til, ber
lítið á að bíóin tvö beri opinber gjöld
svo nokkru nemi. Hvorugt þessara fyr-
irtækja hefir talið fram til skatts. Nýja
Bíó eru gerðar um 3200 kr. tekjur, en
samkomuhúsinu um 3500 kr. Útsvar
Nýja Bíós er 1200 kr., en samkomu-
hússins 640. kr. Auk bíósins hefir sam-
komuhúsið mikla veitingasölu og tekjur
af dansleikjum o. fl. Á „veltu“ verzlana,
útgerðar o. fl. er lagt, enda þótt tap
sé eða hafi verið. Það er auðséð, að
bæði skattanefnd og niðurjöfnunar-
nefnd telja ekki rétt að láta hinn
skemmtanasækjandi almenning borga
skatt hér eins og annarsstaðar. Því síð-
ur þá, sem græða á skemmtununum.
Það er annað með útgerðina eða verzl-
anirnar eða þá, sem kaupa uppsprengd-
ar vörur. Og þá er nú ekki síður vel-
vildin í garð Alþýðuhússins og dansins
þar. Eigandi þess er hvergi nefndur á
nafn í skattskrá eða útsvarsskrá. Já,
það er gott hér í bæ, að hafa tekjur af
skemmtunum. Það er munur að vinna
fyrir þeim með höndunum.
Verðlaunagáta: Hve margir aurar af
þúsund krónum er veltugjaldið á ofan-
nefndar stofnanir?
Frá bæjarstjóra barst bæjarfógeta
nýlega bréf, þar sem honum var til-
kynnt, að bæjarstjórn hefði samþykkt,
að þeim Stefáni Gíslasyni og Friðrik
Jessyni hefði verið veitt leyfi til þess
að halda „þarfahunda sína“, en að
leyfið væri „eingöngu bundið við nú-
verandi hund þeirra“. Sem í beiðnun-
um eru nefndir „Prins" og „Nora". —
Ennfremur er tekið fram, að bæjar-
stjórnin óski, „að öllum öðrum hundum
hér í Vestmannaeyjum verði útrýmt
svo fljótt sem kostur er á.“
Eftir þessu eru það eiginlega nefndir
tveir hundar (eru þeir hjón?), sem
bæjarstjórnin hefir litið í náð sinni til.
Þyldr ástæða til að óska hundum þess-
um og bæjarstjórninni til hamingju.
Hundunum fyrir að útrýmingin er ekki
látin ná til þeirra. Bæjarstjórninni fyrir
lífgjöfina og réttsýnina. En úr því að
farið er að tala um hunda, má benda
á fleiri hunda, sem virðast vera eins
miklir þarfahundar og þeir, sem bæjar-
stjórnin hefir „sett á“, og ættu eig-
endur þeirra að athuga, hve hundar
þeirra eru vel liðnir í bæjarstjóminni,
áður en hundarnir verða sendir í mið-
stöðina.
Laxfoss heldur nú uppi ferðum milli
Eyja og höfuðborgarinnar og hefir gert
um nokkurt skeið. Fyrir nokkru breytti
skipið um komu. og brottferðardaga
hingað. Við því var ekkert að segja.
En svo virðist, að með breytingu þess-
HITT OG ÞETTA
Saltfisksverð.
Ólafur Thors segir í viðtali við Mbl.,
að verð á saltfiski hafi hækkað um
helming, miðað við ísl. krónu frá því í
fyrra. Ráðherrann telur, að verð á salt- j
fiski tryggi það, að útgerð smábáta j
geti borið sig. Ríkisstjómin, segir Ól. j
Th., mun gera allt, sem í hennar valdi ■
stendur, til þess að örfa menn til að J
gera út og hagnýta sér þennan mögu-
leika til atvinnuaukningar, eftir því
sem hægt er.
Neyðin kennir naktri konu að spinna,
segir gamalt íslenzkt orðtak. Horfur um
atvinnu fyrir verkamenn og sjómenn
hafa ekki hin síðari ár verið ískyggi-
legri en nú, enda em tímamir nú hinir
alvarlegustu, hvað viðskipta- og at- J
hafnalíf snertir.
Undanfarna daga hafa nokkrir menn j
hér, sér til gamans, farið á sjó með j
færi og aflað vel. Væri ekki athugandi 1
fyrir atvinnulausa menn að fara að i
þeirra dæmi og fara að róa á árabát !
með færisstúf meðan einhver afli er. :
Þessa dagana kaupir niðursuðuverk- j
smiðja S. í. F. hér keilu og löngu til í
niðursuðu. Að vísu er hér ekki völ á !
mörgum hentugum árabátum til slíkra j
sjósókna sem þessara nú orðið.en í góðu ;
og einsýnu veðri mætti sennilega notast >
við léttibáta vélbátanna hér. En þau
litlu tækifæri í atvinnumálum, sem hér I
bjóðast, þarf að notfæra til hins ítr-
asta.
ari hafi komizt á allmikil ringulreið á
brottferðartíma skipsins héðan. Hefir
það valdið óþarfa óþægindum, því ekki
verður séð, að afgreiðsla skipsins hér
gæti ekki að skaðlausu auglýst brott-
farartímann. Sérstaklega úr því að
hefðbundnum tima um brottför var
breytt. Þannig er málum komið, að
„Laxfoss“ hefir í tvígang a. m. k. farið
héðan um miðjan dag, í stað þess að
fara kl. 6 síðd., eins og hann gerði á
meðan hann kom hingað um helgar.
Æskilegast væri, ef afgreiðslan sæi sér
það fært, að hlutast til um að brott-
faratími skipsins verði framvegis aug-
lýstur. T. d. um leið og afgreiðsla „Lax-
foss“ í Reykjavík auglýsir brottferðir
, skipsins í útvarpinu, svo úr þessum
j agnúa verði bætt, og komið í veg fyrir
í óþarfa leiðindi í framtíðinni. Veit ég,
I að forráðamenn skipsins lagfæra þetta
! þegar í stað.
KOL
selur
HELGI BENEDIKTSSON
S í m i 9 0.
Teðdelldln
hefir krafist sölu á miklum fjölda hnseigna
hér. Auglýsingar verða sendar með Laxfossi
4»
13. júní n. k. Frekari aðvörun verðnr ekki né
frestnr gefinn, nema Veðdeildin ákveði eða
isóstkvittnn sé sýnd.
Bæjarfógetinn i Vestmannaeyjnm
27. maí 1940
Kr. Limiet.
Vorið er komlð.
Knattspyrnuæfingar hafnar. Knatt-
spyrnnskórnir, allar stærðir, ný-
komnar.
Creijuil.
Cróðfnslega
Pantið í sunnudagsmatinn á föstudaglnn, fyrir þann
tima sem verzlunum er lokað. Lokunartími er kl. 2
á laug'ardögum og kl. 6 á föstudögrum.
ísiélagf Vestmannaeyja.
Flöskur og glös
Við kanpnm fyrst um sinn allar algengar
tegundir af tómiim flösknm og ennfremur tóm
glös af öllum tegundum, sem frá okkur ern
komin, svo sem undan bökunardropum, hár-
vötnum og ilmvötnum.
Áfengisverzlun ríkísins.