Framsóknarblaðið - 01.11.1943, Blaðsíða 1

Framsóknarblaðið - 01.11.1943, Blaðsíða 1
ð 6. árg. Vestmaniiaeyjiiiii, nóvember 1943 8. tbl. g?— Útgefandi: Framsóknarflokkurinn í Vestmannaeyjum Drengskapur Olíumálin Því er haldið á lofti, þegar rætt er um stjórnmál og stjórn- málamenn, að lítils drengskap- ar gæti oft í málflutningi. Mál- efnin jafnan túlkuð þannig, að þau jöfnum höndum gylla mál- stað málflytjenda og sverta andstæðinginn og andstæðar skoðanir. Það má vera, að eitt- hvað sé rétt í þessu, en sem bet- ur fer, er þetta aðeins önnur hliðin á stjórnmálabaráttunni, og þá líka sú dekkri, enda nær hún og frekar eyrum manna. Hins sjá menn síður getið, eða um talað, er drenglyndi er sýnt í málflutningi, og þó er það vissulega ekki ósjaldan. í þessu sambandi kemur manni í hug mál, sem vakið hefur mikla athygli upp á síðkastið. Löng, og má segja allhörð, deila hef- ur undanfarið átt sér stað milli málgagna Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins vegna vanefnda á samkomulagi, er varð milli ráðherra flokkanna, þeirra ! Hermanns Jónassonar og Ey- steins Jónssonar annarsvegar og Ólafs Thors og Jakibs Möllers hinsvegar, um afgreiðslu kjör- dæmamálsins. Út af deilu þess- ari hefur Ólafur Thors flutt varnarræðu á Alþingi, en Her- mann Jónass. og Eysteinn Jónss. hafa svarað henni með ýtarlegri greinargerð. í Tímanum, 105. tbl. frá 28. okt. s.l. Samkvæmt þeirri greinargerð hafði Ólafur Thors lofað og lagt við drengskap sinn, að flokkur hans félli frá því, að kjördæmamálið yrði afgreitt á því þingi (vetrarþingið 1942). Að lofa einhverju og leggja við drengskap er enn talið meðal siðaðra manna, næg trygging fyrir efndum, sem skriflegt væri. Alþjóð veit, að kjördæmamálið var afgreitt á þinginu, og kosn- ingar fóru í hönd. Ráðherrar Framsóknarfl. sögðu af sér. Á miðstjórnarfundi Framsóknarfl. 14. maí ’42, er miðstjórn og þing- menn voru mættir á, var skýrt frá drengskaparloforðinu er gef- ið var af Ólafi Thors þann 17. jan. s.l. Lögðu þeir H. J. og E. J. til að rofnu drengskaparheiti Ó- lafs Thors yrði ekki hreyft í kosningunum, vegna þeirrar smánar er þáverandi forsætis- og utanríkisráðherra Ólafur Thors sýndi drengtákaparheit- inu, og alveg sérstaklega vegna þess, að gerðir þjóðarinnar, og ekki sízt þessa manns, er með æðsta valdið fór, væri „undir smásjá tveggja stórvelda.“ Orð- rétt færði H. J. þessi rök fyrir því, samkv. gerðabók miðstjórn- ar: „.... En þótt þetta sé svona, þá lít ég svo á, að þetta mál sé sérstakt og þannig vaxið, að ekki megi nota það í kosning- unum né skýra frá því. Við erum hér í nábýli við tvær þjóðir, og megum ekki láta þær sjá, hve eymd okkar getur orðið mikil. Við Eysteinn Jónsson höfum mikið um þetta mál rætt, og förum þess eindregið á leit, að þetta vopn verði látið óhreyft í þessum kosningum, og verði tryggt með samþykki.“ Eysteinn Jónsson tekur í sama streng og segir, orðrétt úr gerðabókinni: „Ég staðfesti það; sem forsætis- ráðherra hefur sagt um loforð- in um kjördæmamálið og stjórn- arskrárbreytinguna. Ég legg á það hina mestu áherzlu, að þetta mál verði ekki notað í kosninga- baráttunni." í þessum ummælum og fram- komu þeirra ráðherranna H. J. og E. J. kemur fram svo mikill drengskapur, að ekki má óhreyft liggja. í þessu tilfelli lá hinn Fátt hefir vakið meiri furðu cg eftirtekt, heldur en skýrsla sú, sem ríkistjórnin gaf á Al- þingi nú nýverið um olíumálin. EÍ'ns og menn rekur minni ril, þá hófu Síldarverksmiðjur rík- isins á næstliðnu sumri olíusölu til síldveiðiskipa þeirra, er síld lögðu upp hjá þeim, og lækkuðu verðið um þrettán aura kílóið og mun sú lækkun svara til um hálfrar þriðju miljónar lækk- unn á árseyðslu íslenzka fiski- flotans, en olíufélögin héldu verði sínu óbreyttu. Síldarverksmiðjurnar fengu olíuna keypta fyrir atbeina at- vinnumálaráðherra, Vilhjálms Þór. Samkvæmt skýrslu þeirri, sem ríkisstjórnin gaf Alþingi, þá er það nú upplýst, að olíufélögin kaupa olíuna á seytján cg hálf- an eyri kílóið upp í Hvalfirði og hafa til skamms tíma selt hana á fimmtíu og einn eyri kílóið til veiðiskipanna. pólitíski andstæðingur Fram- sóknarfl. alveg sérstaklegavelvið höggi og hefði áreiðanlega gold- ið nokkuð afhroð. En til þess að forða þjóðinni frá þeirri smán, sem hún hlaut að verða fyrir útávið, er það vitnaðist, að æðsti maður þjóðarinnar mat drengskaparheit sitt ekki neins, var sverðið slíðrað. Við Framsóknarmenn sjáum ekki eftir því að láta hjá líða, að höggva á viðkvæman blett andstæðinga okkar í þetta sinn. Strandvegurinn. í haust hefir verið unnið að því að steypa Strandveginn. Var áætlað til þess um kr. 300 þús. Vegurinn er 10 m breiður. Eftir framkomu þessara upp- lýsinga báru fjórir þingménn, sinn úr hverjum stjórnmála- fiokki, fram tillögu um að opin- ber rannsókn yrði látin fara fram á rekstri olíufélaganna, og þar á meðal að rannsökuð yrðu skattaframtöl þeirra og hvort þau hefðu blekkt verðlagseftir- litið í landinu og reyndi enginn nema Ólafur Thors að bera í bætifláka fyrir olíuokrið. En hvað skeður? Þegar tillaga þessi kom til umræðu á Alþingi, þá fengu Sjálfstæðismennirnir því til leiðar komið, að því var vísað til nefndar, hvort rann- sóknar skyldi beiðast. í olíumálunum verður Sjálf- stæðisflokkurinn að ganga undir prófraun, þar sem rekast á hags- munir nokkurra flokksmanna hans og aftur á móti allra sjó- manna og útgerðarmanna í landinu. En meðal nnnarra orða, hvað hefði verið gert við smásölu- verzlanir, sem hagað hefðu verðlagningu sinni hliðstætt við olíufélögin. Reykvíkingar o; blöð þeirra eru nú að springa af vandlæt- ingu um mjdlkurmálin. Hvort mjólkin er eins góð og æskilegt er, skal ekki rætt hér, en það er óumdeilt, að allur dreifingar- kostnaður Mjólkursamsölunnar nemur ekki nema um sex pró- sent af útsöluverði hennar, og er þó mjólk afgreidd í smáum máleiningum alla leið niður i pela, en brennsluolían, sem bát- arnir nota og oft er-afgreidd í tonnatali, og ekki í minni mál- einingu en hundruðum kílóa. Á henni nemur dreifingarkostn- aðurinn nær tvö hundruð pró- sentum. H. B.

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.