Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 22.10.1952, Blaðsíða 2

Framsóknarblaðið - 22.10.1952, Blaðsíða 2
2 FRAMSÓKNARBLAÐIÐ --m Framhald af x. síðu. lánað Arsæli margskonar tæki frá Vestmannaeyjahöfn án þess a'ð endurgjald hafi komið á móti, og er litið á þetta sem lið í fyrirgreiðslu fyrir bættri að- stöðu til skipaviðgerða. 8. í þrjá fyrstu áratugi aldar- innar þá hafði Gísli J. Johnsen atvinnuforustuna í Vestmanna- eyjum. Gísli útvegaði flesta bát- ana á þessum árurn og útveg- aði efni til húsbygginga. Marga bátana byggði og keypti Gísli J. Johnsen í félagi og samlög- urn við aðra menn, oftast fé- litla, en reynslan varð sú, að yfii'leitt eignuðust þessir menn sjálfir bátana smám santan og hús yfir sig og sína. Við hliðina á Gísla J. Johnsen starfaði Jó- hann Jósefsson og félagar hans, þeir stóðu ekki fyrir bátabygg- ingum, en þeir eignuðust mik- inn fjölda báta og bátshluta á- sarnt húsum úr annarra eigu, og ekki er vitáð um neinn þann aflamann, sem ekki fór félaus og rúinn að eignum úr viðskipt um þar. 9- Þegar bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins tapaði völd- um í Vestmannaeyjum á árinu 1946 höfðu sjálfstæðismenn van í'ækt allan undirbúning að út- gerð togara þeirra, sem bæjar- stjórn Vestmannaeyja átti í pöntun. Ekkert hafði verið hugs að fyrir fjármagni til kaupa skipanna og þeim mun síður lxugsað fyrir eða gengið frá fé- lagslegri byggingu togaraútgerð arinnar, enda stóð hugur Guð- laugs Gíslasonar og félaga hans þá til þess að ná undir Sæfell öðru eða báðum skipunum. — Þegar verkalýðsflokkarnir konr- ust til vaida áttu þeir í vök að vei'jast og vafasamt, hvort þeir flokkar li^ffa haft aðstöðu til ' þess að sameina líkleg öfl í Eyjum til félagsmyndunar urn togarareksturinn í fullkominni -ándstöðu við mikinri hluta sjálfstæðisflokksins, þannig, að það' fóí samari að bæjarútgprð var jstefrium-ál þessájra; flokka og auk þess, eins og að fi'ainan getur, vafasamt hvort flokkarn- ir, sem við tóku 1946 áttu um aðra kosti að velja þá. — Fram- sóknarflokkurinn var eini flokk urinn í bænum, sem lagði á- herzlu á trausta félagslega bygg ingu togaraútgerðarinnar strax frá stofni, en sá flokkur hafði ekki aðstöðu til þess að hafa tir- slitaáhrif á þau ráð, sem ofan á urðu "í þessúm efrium. 10. IGJarútgerðin hefur frá upp- O hafi verið pólitískt bitbein í bænum og rekstur togaranna að nokkru goldið þess. Þó neit- ar enginn ábyrgur aðili því, að togararnir eru stórvirk og af- kastamikil atvinnutæki, sem hafa veitt mikla atvinnu og brú- að atvinnuleysisbilið á milli arð gæfra bátaveiðitímabila. Nú hefur bæjarstjórnarmeiri- hlutimr samþykkt að fela út- gerðarstjórninni, áð kanna hvort kaupendur séu innanbæjar að öðrum eða báðum Eyjatogurun- um, þannig að þeir verði áfram haldandi gerðir út frá Eyjum, en Björn Guðmundsson hefur af hálfu Sjálfstæðisflokksins vilj að ganga þeim mun lengia að selja annan togarann burt úr Eyjum, ef ekki fáist kaupendur innanbæjar. Utgerðarstjórnin hefur falið bæjarstjóra að skrifa þeirn aðil- um í Eýjum, sem mikilla hags- xnuna lxafa að gæta í sambandi við togarareksturinn og spyrjast fyrir um það, hvort viðkomend- ur séu kaupendur að öðium eða báðum togurunum annað tveggja einir eða í félagi við aði'a, og óskáð eftir svörum fyr- ir 1. nóvember n. k. 11. Vinnuaflið er dýrmætasta eign in og velfai'naður einstaklinga, stétta, bæjarféaga og ríkja fer eftir því, hversu tekst til um hagnýtingu vinnuaflsins. Það er ekkert aðalatriði í sjálfu sér liver hefur eignaráð á atvinnu- tækjum, ef það er nægilega tryggt að tækin séu vel og full- notuð til hagsbóta og atvinnu fyrir þá aðila, sem með eðlileg- um lxætti byggja afkomu sína og sinna á starfrækslunni, en slíkt er vitanlega bezt tryggt með fé- lagseign í einhverju formi. Einkareksturinn hefur alltaf viss hliðarsjónarmið, sent geta falið í sér hæLtu um stöðvun eða burtflutning flytjanlegra tækja. Bæ jar ú tgerðar togararn ir væru áreiðanlega vel komnir í eigu félagsskapar, sem tryggði nægi- lega rekstur þeina og útgerð serii; atvinnustofri fyrir Eyjar. En þáð þárf rétt meira heldur en að segja það að kaupa togara, og þá er á hitt að líta, að bæjar félag, sem er búið eins og Eyj- arnar, að leggja fram af eigin fé auk ábyi'gða, um 4,5 milljónir til útgerðar, þarf að fá fé sitt tryggt um leið og eignaráðun- um væri sleppt. Á þetta kemur til með að reyna nú á nálægum tíma, og þá kemur það í Ijós, hvort hægt er áð laða saman og samstilla þau öfl í Eyjum, sem geta byggt i upp togarareksturinn á breiðari grunni heldur en nú er, en skrif þau sem Morgunblaðið birtir varðandi þessi mál, eru ekki líkleg til þess að brúa þau bil, sem brúa þarf, og mörg- urn verður á að spyrja hvenær sjálfstæðismennirnir í Reykja- vík ætli að leggja niður sína bæjarútgerð, sem líka er rekin með tapi. 12. Að sjálfsögðu mun útgerðar- stjórn gera það ,sem bæjarstjórn hefur fyrir lagt, að sannreyna, hvort hægt er að selja togarana innanbæjar, eða skjóta breiðari grundvelli undir togararekstur- inn með breiðari félagsgrunni og viðbótafjárfi'amlögum frá nýjum aðilum, og væri æskilegt að slíkt reyndist framkvæman- legt, en ef þetta tekst ekki, ég segi, ef þetta tekst ekki, þá reyn ir á hvort óskað er eftir áfram- haldi bæjarútgerðar eða þá því að gripið verði til þess að selja skipin burt úr bænum, en það á að vera hagkvæmara að reka tvö skip undir einni og sömu stjórn heldur en á fleiri höndum. Framtíð togaraútgerðarinnar í Vestmannaeyjum er mál, sem snertir lxvern og einn bæjarbúa, og þess vegna er það fullkom- lega tímabært fyrir almenriing að gera þáð fullkomlega upp við sig, hvaða stefna óskað er eftir að tekin verði. Eins hvort bæjarbúar vilja afhenda févana fyrirtæki togarana og láta fram- lag og ábyrgðir bæjarsjóðs standa sem einskonar áhættufé. Í3- Yfirstandandi fjárhagsár bæj- arsjóðs Vestmannaeyja er liðið a ðnær fimm sjöttu hlutum og búið er að greiða af gjöldum fjárhagsáætlunarinnar fast að 70%, en af tekjunum er aðeins innheimt um helmingur. Það er þess vegna engin furða þótt sitthváð sé ógreitt ennþá hjá bæjarsjóði. Ekki fara heldur tvær síldveiðileysisvertíðir á sama árinu fram hjá gjaldend- um bæjarsjóðs, sem kemur frarn í seinni gjaldagreiðslum, sam- tímis og staðið er í stórfelldum framkvæmdum eins og gagn- fræðaskólabyggingunni og end- urbótum sjúkrahúss og barna- skólans svo dærni séu nefnd og föst lán lækkuð til muna. Sanngjarnir menn undrast bókstaflega, hve langt hefur þok azt áleiðis. En bæjarsjóðinn myndi áreið anlega muna um það, ef Guð- laugur Gíslason greiddi Sæfells- skuld sína eða Samkomuhúsið sætagjöldin, en þetta er spegil- mynd af málflutningnum, og svo er reynt að koma á samtök- um milli stórra útsvarsgjald- enda um að greiða ekki bæjar- gjöld sín. 14. Það muna margir þann tíma, þegar Guðlaugur Gíslason var gjaldkeri bæjar- og hafnarsjóðs, og fullyrða má, að það langar engan til þess að fá Guðlaug aftur. Þá er ekki öllum gleymd Sasfellsútgerðin hans Guðlaugs Gíslasonar, meðal annars minna rústir fyrirtækisins, sem fullur vilji er fyrir að koma yfir á bæjarútger'ðina, á tilveru fyrir- tækisins, og vera má að einhverj ir hluthafar, sem þurftu að verja hlutaeign sína með mála- ferlum séu ekki búnir að gleyma. Hvers vegna er svo Guðlaug ur Gíslason og sálufélagar hans hryggir? Hefur Guðlaugur ekki fengið margar óskir uppfylltar? Eða er geðillskan einungis vegna þess, að ö'ðrum hefur gengið betur með stjórn bæjar- mála Vestmannaeyja heldur en Guðlaugi Gíslasyni sjálfum? Þeim spurningum má svara síð- ar eftir því sem tilefni gefst. Oagnfræðaskólinn seftur. Gagnfræðaskóli Vestmanna- eyja er nú tekinn til starfa í hinum nýju húsakynnum. Skól- inn var settur s. 1. sunnudag 19. þ. m. að viðstöddu fjölmenni, á þriðja hundrað manns var þar saman komið. Athöfnin hófst með því, að Lúðrasveit Vestmannaeyja lék nokkur lög, síðan bauð skóla- stjórinn, Þorsteinn Þ. Víglunds- son, gesti og nemendur vel- komna. Þá flutti forseti bæjar- stjórnar ávarp og afhenti Gagn fræðaskólanum skólahúsið af hálfu bæjarstjórnar Vestmanna- eyja. Síðan flutti skólastjórinn GLUGGATJALDA-VELÚR Breidd 105 cm. Verð 68.50 verzl. Miðstræti 4. H. B. PLUSS- veggteppi og mottur. verzl. Miðstræti 4. H.B. Hversvegna erfu hryggur!

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.