Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 23.09.1953, Blaðsíða 1

Framsóknarblaðið - 23.09.1953, Blaðsíða 1
i6. árgangnur. Vestmannaeyjum 23. sept. 1953 18. tölublað. Útgefandi: Framsóknarfélag V estmannaey j a. Ritstjóri og áb.: Trausti Eyjólfsson Prentsmiðjan Eyrún h. f. o e SVOXZI s VESTMANN AEYINGAR! Stjórn Framsóknarfélags Vestmannaeyja hef- ur falið mér, ritstjórn Framsóknarblaðsins. Mun ég sjá um útgáfu þess a. m. k. um stundar sakir. Eg vil taka það fram, að ég er viðvaningur í blaðamennsku og útgáfustarfsemi, og að auki verða þessi störf mín eingöngu unnin í frístund- um. Það er hinsvegar einlægur ásetningur minn að bregðast ekki trausti félaganna og gera mitt bezta í þessu efni. Framsóknarblaðið, sem er málgagn Framsókn- armanna í Vestmannaeyjum, mun koma út í þessu formi a. m. k. tvisvar í mánuði, svo sem verið hefur. Undir minni stjórn skal blaðið helg- að samvinnuhugsjóninni og málefnum Fram- sóknarflokksins innan héraðs og utan. Blaðið er opið hverju framfara og menningarmálefni hér- aðsins. Alla þá unnendur flokksins, er skrifa greinar í blaðið, bið ég athuga, að grein verður því aðeins tekin, að fullt nafn höfundar sé þar undir. Með ósk um góða samvinnu . Trausti Eyjólfsson. Landsblöðin areina frá mikl o um ágreiningi og átökum með ábyrgum bæjarráðsmönnum í Eyjum um þessar mundir. Eg telst enn einn í hópi þessara á- byrgu bæjarráðsmanna. Rógur- inn og riíðið gengur mér viir höfuð vegna afstöðu minnar til togaraútgerðar bæjarins. F.g á að vera að svíkja allt og alla og jiá sérstaklega málstað verka lýðs og sjómanna í Eyjum, með því að sjá ekki aðra leið færa en sölu annars eða beggja tog- aranna úr bænum. Eg á kunningja ,góðkunn- ingja, í öllum stjórnmálaflokk- um bæjarins. Sumir eru mér sam mála, aðrir álasa mér og tor- tryggja mig og gruna mig um græsku.. Það mun einnig eiga sér stað, að málstaður rninn sé affluttur við háborð framá- manna Framsóknarflokksins í Reykjavík. Þá er endurte'kinn og endur nýjaður sá rógur, þau ósann- indi, er margoft liafa kveðið við í eyru mér síðari hluta kjörtíma bilsins, að ég Itaíi aldrei sýnl áhuga á öðrum menningar- og framfaramálum bæjarfélagsins en byggingu Gagnfræðaskólans, láti önnur mál mig litlu varða. / Ritstjóraskipti. ) / Með pessu blaði lœtur ) ( Hclgi Benediktsson aj rit- / Ístjórn Framsák'narblaðsinSj en \ við ritstjórninni tekur Trnusti ) Eyjlófsson verzlunarmaður. < Undir stjórn H.clga Benedikts ) sonar jókst kaupen.dalala l blaðsins stórlega, og blaðið ; hefur komiö reglulega út ( tvisvar i mánuði. Fyrir petta i mikla starf, sem ávallt liefur ) verið ótaunað, pakkar útgef- j andi Hdga fyrir. Jafnframt ) vœntir útgefandi pess, að blað ( ið megi enn sem fyrr mœla ) vaxandi vinseeldum meðal ( lesenda sinna. ) . Stjórn Framsóknarfélags ) V estmannaeyja. ) Öllum þessum ósannindum og röngu sökum ætla ég að svara hér nú og síðar. Það cr mannlegt að vilja bera hönd fyrir höfuð sér. Það vi! ég reyna að gera að Jæssu sinni, j)ó að mér finnist það fremur leiðinlegt verk. Slík sjálfsvörn hins útflæmda bæjarfulltrúa getur naumast tal i/.t fordild með hliðsjún af því, að vafi getur á jrví leikið í dag, að ég komi nærri bæjarmálun- um næsta kjörtímabil. Minnin um jiað litla, sem á- unnizt hefur jretta umliðna kjör tímabil vega eilítið upp á móti róginum og níðinu, sem yfir dynja þessa dagana. Og Jrað vil ég undirstrika, að það, sem ég hef gert og fengið á- orkað í samvinnu og samstarli við aðra bæjarfulltrúa, er í al- gjöru samræmi við stefnu Fram sóknarflokksins í bæjarmálum, jrar sem krafan er sú, að unnið sé skilyrðislaust að velferðar- og framfærslumálum almennings án tillits til þess, hvort fram- gangur og framkvæmd jieirra fer í bága við hag nokkurra einstakl inga eða ekki. Hafnarmálin. Þegar jjessi bæjarstjórn tók við bæjarmálunum, var svo á- statt um höfnina, að stórgrýti í L.eiðinni hamlaði siglingum stærri skipa inri á. liana nema á háflóði. ,,Vestmannaey“ var þess ekki megnug að grafa út Leiðina. Til þess þurfti að fá „Grctti", grafskip ríkisins. Svo hann fengist til að vinna verk- ið, þurfti að leggja kvartmilljón á borðið eða tryggja útgerð skipsins örugglega greiðslu á þeirri upphæð. Meirihluti bæjarstjórnar, þeir félagar mínir, senr mest níða mig nú, fólu mér að útvega peningana ,svo að Grettir feng- ist til Eyja. Leið mín lá því til Rvíkur. Hvar sem ég kom í lík- legar lánsstofnanir, nrætti mér andúð eða andspyrna vegna við- skiptahátta fyrrverandi meiri- hluta og óskila bæjarsjóðs við stofnanirnar. Þó tókst að lokum að útvega féð og fá grafskipið til Eyja. Þar vann Jrað verk í hafnarframkvæmdunum, sem sjó mennirnir okkar og Eyjabúar í heild hafa notið síðan og munu njóta um ókomna fram- tíð. Uppgjör viö Trygg- ingarstfífnunina. Ekki var langt liðið á kjör- tímabilið, j^egar okkur varð ljóst, að viðskiptum bæjarins við Tryggingastofnun ríkisins varð að kippa í lag hið bráðasta. Bæjarsjóður skuldaði Trygg- ingastofnuninni um goo Jrúsund ir króna og öll viðskipti Jrar í megnustu óreiðu. Bæjarsjóður hafði enga peninga handbæra til jjess að greiða með, aðeins nokkur hafnar- og rafveitu- skuldabréf, sem enginn virtist vilja eiga eða kaupa af höfn- inni eða rafveitunni. Með þessi skuldabréf var ég síðan sendur suður til þess að reyna að koma þeirn í peninga og koma viðskpt urn bæjarsjóðs við Trygginga- stofnunina í lag. Ekki fékk ég eina einustu krónu úr bæjar- sjóði með mér til þess að greiða upp í skuldir Jressar og hvergi ávísun á innstæðu. Eg leitaði fyrir mér um lán í Landsbank- anum. Þar fékk ég þvert nei í fyrstu vegna vangoldinna sktdda rafveitunnar við bankann. Námu þæi' óreiðuskuldir um 350 þúsundum króna. Hér var því samtals um eina og kvart milljón óreiðuskulda að ræða, sem mér var falið að glíma við og semja um greiðslu á, svo að lánadrottnar mættu við una. I’að tók ntig tvær ferðir til Reykjavíkur að fá sarnið um skuldir þessar-. Tókst mér að út- vega samtals um 370 jiúsundir að láni til greiðslu á skuldum þessum, að mig minnir. Að öðru leyti tókst að selja skulda- bréfin til að jafna Jrær með. Síð an hafa Jjessi viðskipti bæjar- sjóðs verið í lagi að ég bezt veit. Rafveitumálin. Einstaka Eyjabúum hafði verið það ljóst, að Eyjarnar yrðu að fá rafmagn fr-á fallvötn unum sunnanlands, ef nokkurt Framhald á 2. síðu

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.