Framsóknarblaðið - 23.09.1953, Blaðsíða 4
4
FRAMSOKNaRBLAÐIÐ
Framhald af 2. síðu.
því öllu saman, þegar líður á
hatistið.
Þegar hér var komið málum,
virtuust fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn tvístíg-
andi um sölu skipanna, gátu í
hvorugan fótinn stigið. Þeir
virtuust þó sjá hvert stefndi, en
hræðslan við kjósendur kitlaði
þá, svo að fiðringur fór um þá
og kvíði settist að þeim, blessuð-
um. Sú hræðsla helur aldrei
þjáð mig. Annað livort fell ég
með málstað mínum eða stend.
Hvorutveggja ber okkur að
reyna að taka með jafnaðargeði.
Háu útsvörin.
Á þessu ári voru lagðar á F.yja
búa yfir 7 milljónir króna í út-
svörum. Þetta eru efnalegar
drápsklyfjar. Eðlileg og sann-
gjörn útsvarsupphæð hér í Eyj
um er 5—5,3 milljónir. Það sem
umfram er, eru byrðir af tog-
araútgerðinni. Á síðustu fjárhags
áætlun bæjarins var gert ráð fyr
ir tæpri milljón til að greiða
vexti og afborganir af skuldum
útgerðarinnar, en rúmar 700
þúsundir var áætlað væntanlegt
tap á útgerðinni á þessu ári. Þó
gengum við út frá því vísu, þeg
ar fjárhagsáætlunin var samin,
að ekki mundi veita af 3—5
hundruð þúsundum að auki til
þess að mæta hallanum. Nú er
komið í r]ós,<að hallinn af út-
gerðinni nemur á þessu ári á
þriðju milljón. Það skortir því á
um 14 hundruð þúsundir eða
tæpa 1,5 milljón að hin háa
útsvarsupphæð hrökkvi til. Hvar
lendir þetta. Hvar endar þetta?
Verkamenn í kaupstöðunum
verða nú þegar að standa undir
drápsklyfjum útsvara. Allt að
fjórðungi teknauna er tekinn í
útsvarsgreiðslur og önnur opin-
ber gjöld. Þó hefðu útsvörin
þurft að vera 8,5 milljónir til
þess að standa undir töpum af
togaraútgerðinni á þessu ári.
Hvar er ábyrgðartilfinning
þeirra manna, þeirra bæjarfull-
trúa, sem vilja halda þessu á-
standi áfram óbreyttu? -
Máí mitt er orðið langt. Eg
læt því staðar numið að sinni.
Síðasta orðið er eftir. Eg vona
að grein þessi sannfæri hleypi-
dómalausa lesendur um það, að
áhugamál mín um velferð bæj-
arins og framfarir, eru ekki
bundin Gagnfræðaskólanum ein
vörðungu, og ég get ekki fund-
ið, að ég hafi af mér dregið eða
reynt.'að ota skyldum mínum við
bæjarfélagið á aðra fulltrúá,
gert kröfur til þeirra, án þess
að leggja mig fram sjálfur. Eg
-... 7,
fullyrði, að störf mín fyrir bæ-
inn umliðið kjörtímabil hafa
verið í fullu samræmi við
stefnu Framsóknarflokksins í
bæjarmálum, þar sem vinna skal
að alhliða framförum og hag
almennings án tillits lil einka-
hags eða sérhagsmuna vissra
manna.
Þ. Þ. V.
KviHun.
Eg hef lesið lnakyrtar níð-
greinar um mig í Þjóðviljanum
og Eyjablaðinu, vegna þess að
ég get ekki vitað togara bæjarins
liggja lengur aðgerðarlausa við
bryggju á sama tíma, sem þcir
cru að sökkva bæjarlelaginu í
botnlaust skuldafen. Þessar níð
greinar ertt nafnlausar. Það er
þó á vitorði almennings í bæn
um, að höfundur þeirra er Karl
Guðjónsson, uppbótarþingmað-
ur hér.
Karl skrifaði margar rógi
meingaðar greinar fyrir síðustu
þingkosningar, en birti þær á-
vallt nafnlausar. Karl reynir
þannig að skríða upp eftir baki
almennings í skjóli annarra eins
og kunnur sexfætlingur lætur
sauminn skýla sér og bítur tir
launsátri.
Við, sent þekkjum Karl vel,
vitum, að honum er ýmislegt
annað betur gefið en heilindin
og hreinlyndið. Þetta eðli hans
hefur m. a. gert hann óhæfan
til samstarfs í verkalý^shreyf-
ingu bæjaríns á undanförnum
árum. Eg mun koma nánar að
þessum manní í næsta Fram-
sóknarblaðí.
Þ. Þ.V.
Ný ríkissfjóm.
Hinn 11. september s. 1. baðst
ríkisstjórn Steingríms Steinþórs
sonar lausnar. Hinn sama dag
var mynduð ný ríkisstjórn und-
ir forsæti Ólafs Thors. Hin
nýja ríkisstjórn er samsteypu-
stjórn Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur Thors er forsætis- og
sjávarútvegsmálaráðherra. Ey-
steinn jónsson, fjármálaráðherra,
Steingrímúr Steinþórsson, land-
búnaðar- og fé I agsmálaráðheræa,
dr. Kristinn Guðmundsson, utan
ríkismálaráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, dóriis- og mtenntamála
ráðherra, Ingólfur Jónsson, við-
skiptamálaráðherra.
Bœjarfréttir
Aflabrögð.
Undanfarnar vikur hefur
þorri Éyjabáta verið á reknet-
um. Afli hefur verið misjafn,
frá 20 upp í 150 tununur. Afli
hefur verið sæmilegur bæði í
dragnót og á línu.
Síldarsöltun.
Síldarsöltun hófst hér fyrir
nokkru síðan. Megin hluti síld
arinnar er söltuð, og mun nú
vera búið að salta hér um 5000
tunnur. Talið er að búið sé að
liysta 4—5 þús. tunnur, og eitt-
hvað rnagn hefur verið látið í
bræðslu.
í
Karfavinnsla.
Nokkrir aðkomutogarar hafa
hafa lagt hér upp karfa til
vinnslu. Atvinna hefur því ver-
ið geysimikil í bænum, bæði
við flökun í hraðfrystihúsunum,
og svo við síldarsöltun. M ásegja
að marga daga hafi atvinnulífið
hér verið jafn blómlegt, eins og
á vertíð, er bezt gengur.
T ogarkaupanefnd.
Um síðustu helgi var hér
nefnd manna frá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar, til viðræðna við
sölunefnd bæjartogaranna hér.
Munu Hafnfirðingar hafa gert
tiiboð í v/s Elliðaey. Stjórn Bæj
arútgerðarinnar hér og bæjar-
stjórn mun ekki vera búin að
afgreiða málið.
Óbrennt kaffi
Verzlunin BORG
Kvenhailar
Hef til sölu kvenhatta.
Tek einnig breytingar á
gömlum höttum. — Til við
tals eftir kl. 8 á kvöldin.
Margrét Þorgeirsdóttir.
Skólaveg 33.
Sími 211.
Karlmannaföt
SOLID-SN’Ð OG STÆRÐIR.
KARLMANAFÖT — 1. floks efni. —
GABERDINE-FRAKKAR —
margir litir og stœrðir.
•óéóéóéö*oéöéöéöéc*ö»ö«ð»ó*öéöeö*öiö*ö»öööiöéö«5éö«ö«ó«o«o«o«o«?
örðsending írá öagnfræðaskóianum
skólinn verður settur 1. október n. k. kl. 2 e. h..
SKÓLASTJÓI.
Aukafundur
í Bœjarstjórn Vestmannaeyia, verður haldinn í Sam-
komuhúsinu kl. 8,30 e. h. í kvöld.
Fundarefni:
Rekstur og sala bœjartogaranna.
Fundurinn er haldinn í Samkomuhúsinu til þess að
aimenningi gefist kostur á, að hlusta á rœðuhöld bœjar-
fulitrúa.