Framsóknarblaðið - 02.05.1963, Side 1
26. árgangur.
Vestmannaeyjum, 2. maí 1963.
9. tölublað.
GLÆSILEGT FLOKKSNNG
Hér birtast nokkrir kaflar úr stjórnmálaályktun 13 flokkþings Framsóknarflokksins, sem haldið
var í Reykjavík dagana 21.—25. apríl.
I.
Þrettánda flokksþing Framsóknarmanna vill með tilliti til dag-
skrármálefna á líðandi stund taka fram og leggja áherzlu á, að
stefna flokksins er og hefur ætíð verið:
Að vernda sjálfstæði landsins og afsala í engu réttindum þess.
Að eila menntun, vísindi og tæknikunnáttu.
Að vinna að jafnvægi í byggð landsins og sífelldu landnámi.
Að styðja þegna þjóðfélagsins jöfnum höndum til einstaklings-
framtaks og frjálsra félagslegra samtaka.
Að útvega fjármagn eftir því sem unnt er og skynsamlegt þykir
til uppbyggingar atvinnulífsins við sjó og í sveit* og dreifa
því til atvinnugreina og landshluta með þeim kjörum, sem
viðráðanleg eru.
Að vinna að því að sætta fjármagn og vinnuafl og tryggja svo
sem hægt er, að hver og einn beri sem réttastan hlut frá
borði af þjóðartekjunum.
Að stuðla að aukinni framleiðslu og framleiðni.
Að vinna móti verðbólgu og jafnvægisleysi í fjármálum þjóð-
arinnar.
II.
Árið 1959 stofnuðu núverandi stjórnarflokkar — með stuðn-
irxgi Alþýðubandalagsins — til kjördæmabyltingar í þeim tilgangi
að reyna að tryggja aðstöðu sína til frambúðar og skerða Fram-
sóknarflokkinn, ef unnt væri.
í tvennum alþingiskosningum það ár lofuðu Sjálfstíeðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn, svo sterklega sem þeir áttu orð til,
að þeir skyldu stöðva dýrtíð og kveða niður verðbólgu, ef þeir
héldu völdum — og gera þetta án þess að þyngja álögur. Leiðin
til bættra lífskjara er að kjósa okkur, sögðu þeir.
Ennfremur lýstu þeir yfir því, að þeir ætluðu í engu að kvika
frá 12 mílna landhelginni, sem vinstri stjórnin hafði knúið fram.
Út á þessi loforð fengu flokkarnir meirihluta á Alþingi, sam-
anlagt, þótt naumur væri.
:i": III. ...... . - ‘
Núverandi ríkisstjóm var mynduð síðla árs 1959. Hún skírði
sjálfa sig Viðreisnarstjórn, en tók upp starfsemi og stefnu, sem
braút algerlega í bág við kosningaloforð flokka hennar. Hún setti
SB*8 '
með atbeina þingflokka sinna efnahagslöggjöf í febrúar 1960, sem
fól í sér kollsteypu frá kosningaloforðunum.
I árslok 1960 gaf forsætisráðlierrann út þann gleðilega boð-
skap, að ef óviðráðanleg óhöpp steðjuðu ekki að, væri framundan
tírni „stöðugs verðlags og batnandi efnalrags". Sá boðskapur var
út í hött og hlaut að reynast blekking, eins og í pottinn var búið.
Síðan hafa verið metár aflabragða. En þrátt fyrir það neydd-
ist sarni ráðherra um s. 1. áramót til að játa, að algerlega hefði
mistekizt að stöðva verðbólguna, sem hafði þó verið höfuðverk-
efni ríkisstjórnarinnar. Þannig fórst fyrir að bæta lífskjörin.
í landhelgismálinu gerðu stjórnarflokkarnir undansláttar-
samninga við Breta, minnkuðu landhelgina um þriggja ára skeið,
og í framhaldi af því má búast við, að þá skorti festu til að synja
um framlengingu þeirra samninga. Ennfremur afsöluðu þeir um
alla framtíð af hálfu íslands einhliða rétti á útfærslu íslenzkrar
landhelgi. Þannig lítilsvirtu þeir kosningaloforð sín í því máli
einnig.
XII.
Nú eru kosningar til Alþingis fyrir dyrum. Kjósendum ber að
gera sér grein fyrir því við þessar kosningar:
Að þeir flokkar, sem nú fara með meirihlutavaldið, stefna að því
að koma á efnahagskerfi á íslandi í stíl stórkapitalisma, og
hafa á þessu kjörtímabili sóað í þær tilraunir afurðum ein-
muna góðæris.
Að hin næstu ár verða örlagarík í innanlandsmálum. Ofsaleg
dýrtíð með kjaraskerðingu í kjölfari sínu er afleiðing ríkj-
andi stjórnarhátta og sækir á með sívaxandi þunga. Mikil
átök verður að gera til uppbyggingar. Skiptingu þjóðartekn-
anna verður að koma á heilbrigðan grundvöll.
Að sú landhelgi, sem íslendingar nú hafa og veitt hefur skil-
yrði til metafla, hefði aldrei fengizt, ef Sjálfstæðisflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn hefðu ráðið för í því máli, — ög nú
getur á það reynt á næsta ári, hvort íslenzk stjórnarvöld vilja
framlengja veiðirétt Breta, sem þessir flokkar veittu þeim
innan Iandhelginnar.
Að stjórnarflokkarnir ráðgera nýja stefnu í sjávaiútvegsmálum,