Morgunblaðið - 05.08.2010, Side 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2010
01.09.2010
Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik Grindavíkur og Fram
Mættu við innganginn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu til að fá miða
BÝÐUR ÁSKRIFENDUM ÁVÖLLINN
GRINDAVÍK – FRAM
5. ágúst kl. 19:15 á Grindavíkurvelli
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Þormóður Árni Jónsson verður á
meðal keppenda á HM í júdó sem
haldið verður í Tókýó 9.-13. sept-
ember. Þormóður mun fara ásamt
sjö öðrum Íslendingum á Opna
þýska mótið um næstu helgi. Þar
mun hópurinn dvelja í um viku-
tíma til þess að undirbúa sig fyrir
HM.
Æfingabúðir í Þýskalandi
Þormóður sagði ekki veita af því
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann, því hann hefur ekki keppt á
móti síðan í apríl og tímabilið er
rétt að fara af stað. „Menn mæta á
opna þýska mótið til þess að und-
irbúa sig fyrir HM og margar
Evrópuþjóðir senda sína sterkustu
menn. Í framhaldinu verðum við í
æfingabúðum í Þýskalandi. HM í
Japan sparkar af stað undirbún-
ingnum fyrir Ólympíuleikana í
London árið 2012. Þá fer maður að
safna stigum til þess að vinna sér
inn keppnisrétt á leikunum,“ sagði
Þormóður í samtali við Morg-
unblaðið. Hann keppti á Ól í Pek-
ing og komst þar í sextán manna
úrslit. HM í Japan verður hans
þriðja heimsmeistaramót en Þor-
móður hefur komist í sextán
manna úrslit í báðum HM keppn-
unum hingað til.
„Mitt markmið hlýtur því að
vera að komast í átta manna úr-
slit. Það yrði þá framför en mótið
er auk þess orðið stærra en áður.
Nú mega þjóðirnar senda tvo
keppendur í hvern flokk en máttu
áður aðeins senda einn,“ sagði
Þormóður.
Tveir aðrir Íslendingar eiga
keppnisrétt á HM en það eru þeir
Hermann Unnarsson, sem keppir í
81 kg flokki og Kristján Jónsson
sem keppir í 73 kg flokki. Eru þeir
báðir að taka þátt á HM í fyrsta
skipti en Bjarni Friðriksson þjálf-
ari fer með þeim. Hermann varð
annar á Norðurlandamótinu sem
fram fór í fyrra í -81 kg flokknum.
Kristján komst einnig í úrslit á
Norðurlandamótinu í -73 kg
flokknum og þar tapaði hann úr-
slitaglímunni.
Þormóður komst í 16-manna úr-
slit á HM í Hollandi á síðasta ári.
Þar keppti hann í +100 kg flokki
og sat hjá í fyrstu umferð. Hann
glímdi við Ástralann Semir Pepic í
32-manna úrslitum og hafði betur.
Í 16-manna úrslitum mætti Þor-
móður Abdullo Tangriev frá Ús-
bekistan og tapaði hann þeirri við-
ureign.
Á síðasta ári varð Þormóður
Norðurlandameistari í +100 kg
flokki.
Þrír Íslendingar fara á HM í júdó
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Á leið á HM Þormóður Jónsson og Bjarni Friðriksson verða í eldlínunni á HM í Japan í september.
Þormóður,
Hermann og
Kristján til Japans
HM í júdó
» Heimsmeistaramótið fer
fram í Tókýó í Japan 9.-13.
september.
Keppt er í átta þyngdar-
flokkum í karlaflokki -60, -66,
-73, -81, -90, -100, + 100 og
opinn flokkur. Aðeins er hægt
að keppa í tveimur flokkum,
einum þyngdarflokki og opna
flokknum þar sem engin
þyngdarmörk eru.
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Spennan er farin að nálgast hættu-
mörk í Pepsídeild karla í knattspyrnu
og gæti færst enn nær þeim í kvöld
þegar 14. umferð lýkur með fimm
leikjum. Þeirra á meðal eru tveir leik-
ir sem teljast mega til stórleikja sum-
arsins hingað til. Íslandsmeistarar
FH geta blandað sér af krafti í tit-
ilbaráttuna með sigri á ÍBV í Vest-
mannaeyjum, og nýliðaslagur Hauka
og Selfyssinga að Hlíðarenda snýst
nánast um líf og dauða.
Haukar eru fyrir leikinn á botni
deildarinnar með sjö stig og hafa enn
ekki unnið leik, en Selfoss er með
stigi meira. Grindvíkingar hafa svo
níu stig, og þessi lið munu eflaust
berjast sín á milli um að halda sæti
sínu í deildinni.
„Þetta er átján stiga leikur. Eig-
um við ekki bara að segja það?“ sagði
Kristján Ómar Björnsson, leikmaður
Hauka, léttur í bragði aðspurður um
mikilvægi leiksins. Það lætur nærri
lagi, en Kristján var þó fljótur til að
draga úr mikilvæginu.„Fyrir mót eru
náttúrlega allir leikir jafn mikilvægir
og við ætlum okkur náttúrlega ekki
bara að vinna Selfoss, heldur öll hin
liðin. Í fyrri umferðinni töpuðum við
með hvað mest afgerandi hætti gegn
Selfyssingum [3:0 á Selfossi] þannig
að okkur finnst við kannski frekar
eiga inni sigra gegn öðrum liðum.
Þetta er ekki alveg „do or die“ leikur
en að sjálfsögðu ætlum við okkur þrjú
stig og það er mikið sjálfstraust í okk-
ar liði. Við höfum verið að spila vel í
fleiri leikjum en
Selfyssingarnir
þó að þeir eigi stig
á okkur,“ sagði
Kristján, en þessi
tvö lið léku sem
kunnugt er bæði í
1. deild í fyrra.
„Leikir lið-
anna hafa verið
hörkuspennandi
og skemmtilegir
síðustu ár og það er gaman hve marg-
ir leikmenn eru enn í báðum liðum þó
þau séu komin í úrvalsdeild, þó þeir
séu nú fleiri hjá Selfossi. Mér finnst
reyndar alveg aðdáunarvert hve
margir hjá þeim eru enn í liðinu sem
voru að spila í 2. deild með því fyrir
nokkrum árum. Það er skemmtilegra
að deildin sé ekki bara eins og skipti-
bókamarkaður Reykjavíkur,“ sagði
Kristján.
Eyjamenn stimpluðu sig ræki-
lega inn í Íslandsmótið í 3. umferð
þegar þeir unnu 3:2 sigur á FH í
Kaplakrika. Síðan þá hefur leiðin leg-
ið uppá við hjá þeim en Íslandsmeist-
arnir eru enn skammt undan. Leik-
urinn í kvöld er hins vegar lykilleikur
uppá framhaldið fyrir FH-inga sem
með tapi eru orðnir 10 stigum á eftir
ÍBV. KR fær breytt lið Stjörnunnar í
heimsókn en besti maður Garðbæ-
inga, Steinþór Freyr Þorsteinsson,
var seldur fyrir helgi. Grindavík og
Fram eigast við suður með sjó og
Fylkismenn taka á móti Keflvík-
ingum, en bæði Keflavík og Fram
eiga möguleika á að komast upp í 3.
sætið á kostnað FH.
„Þetta er átján
stiga leikur“
Haukar og Selfoss mætast í mikil-
vægum botnslag Eyjamenn geta
„losað sig við“ FH í titilbaráttunni
Kristján Ómar
Björnsson