Framsóknarblaðið - 03.05.1968, Page 2
2
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Beiihor stoðreyndir
Miklar breytingar til hins verra
hafa orðið á högum þjóðarinnar
undanfarna mánuði. Svokölluð
verðstöðvunarlög voru afnumin í
ágúst í fyrra og leiddi sú ráðstöf-
un af sér verðhækkanir og álögur
á þjóðina upp á mörg hundruð
milljónir króna. Nokkrum vikum
síðar vógu stjórnarvöldin enn 1
sama knérunn með gengisfellingu,
sem dró á eftir sér nýja dýrtíðar-
öldu. Til að fullkomna þessar að-
gerðir var verðtryggingin á laun
afnumin svo kjaraskerðingin
skyldi nú öll koma niður á launa-
fólkinu. Þar við bættist, að nú kom
fram, að atvinnuvegirnir stóðu
mjög illa og sérstaklega sjávarút-
vegurinn, sem ekki hafði lengur
raunverulegan rekstrargrundvöll.
EINS OG REIÐARSLAG.
—i_____ -ihinniíii’
Allt þetta kom eins og reiðarslag
yfir þjóðina, og þó sérstaklega yfir
það fólk, sem hafði treyst orðum
stjórnarliðsins í kosningabarátt-
unni. Hvað var eiginlega að ger-
ast? Höfðu ekki formælendur
stjórnarliðsins bent á verðstöðvun-
arlögin eins og eilífan sigurfána á
kumli dýrtíðardraugsins? Höfðu
þeir ekki sagt, að unnt væri að
standa af sér nokkrar verðlækkan
ir á lýsi og mjöli, án þess að til
kjaraskerðingar þyrfti að koma,
þar sem til væri gildur gjaldeyris-
varasjóður? Höfðu þeir ekki full-
yrt, að gjaldeyri þjóðarinnar, ís-
lenzka krónan, væri trygg og á
traustum grunni? Og höfðu þeir
ekki staðhægt, að atvinnuvegirnir
væru reknir með blóma? Já, hvað
var eiginlega að ske?
Það skyldi þó ekki vera komið
fram, sem framsóknarmenn sögðu
í kosningabaráttunni, að verðstöðv
unarlögin væru eins og stífla í á,
sem hlyti að bresta fyrr en seinna,
nema ný og skynsamlegri stefna
yrði tekin upp í efnahagsmálun-
um? Var það rétt, sem framsóknar
menn höfðu sagt, að viðreisnar-
stjórnin væri sí og æ að safna í
nýjar og nýjar gengislækkanir? Og
loks, var það að koma fram, sem
Framsóknarmenn höfðu sagt, að
atvinnuvegirnir ættu í vök að verj
ast eftir átta ára góðæri og átta
ára viðreisnarstjórn í landinu?
Þannig mætti lengur telja, en þeir
sem vöruðu háttvirta kjósendur í
fyrra við óheilindum Framsóknar-
manna, ættu nú að hugleiða fram
vindu málanna.
VERKALÝÐSHREYFINGIN
SNÝST TIL VARNAR.
Fjárhagsleg velmegun alþýðunn-
ar hefur að mestu byggzt á löngum
vinnutíma, það er: mikilli eftir-
og næturvinnu. Nú, þegar fór að
sverfa að atvinnuvegunum, fóru
atvinnurekendur að segja upp
starfsfólkinu og stytta vinnutím-
ann. Bar því á atvinnuleysi yfir
skammdegismánuðina og fjöldi
manna stóð nú allt í einu frammi
fyrir þeirri staðreynd, að dag-
vinnutekjur hrökkva hvergi nærri
fyrir heimilisþörfum. Greiðslu-
vandræði sigldu í kjölfarið og fá-
tæktin fór að berja að dyrum.
Með afnámi verðstöðvunarlaganna
sprengdi dýrtíðardraugurinn af sér
alla fjötra og lék nú lausum hala.
Framhald á 4. síðu.
Mmmm Gunnais stofno m§\.
Stuðningsmenn Gunnars Thoroddsens í Vestmannaeyjum hafa stofn-
að samtök vegna forsetakosninganna og opna skrifstofu í Drífanda innan
skamms.
Formaffur nefndarimiar er Pétur Gautur Kristjánsson, bæjar-
fógetafulltrúi.
Kosningasíminn verffur 1080.
Stuðningsmenn Kristja'ns stofno samtöh
Stuðningsmenn Kristjáns Eldjárns hafa stofnað kosninganefnd hér í
Eyjum. Nefndin mun opna á næstunni skrifstofu í Víðidal.
Formaður nefndarinnar er Andri Hrólfsson, forstjóri Flugfélags
íslands í Vestmannaeyjum.
IR BIFREIÐAR HUSBUNAÐUR
og minnst 5 BÍLAR í hverjum ílokki