Morgunblaðið - 21.08.2010, Page 1

Morgunblaðið - 21.08.2010, Page 1
LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2010 1. deild Mikill hiti var í Breiðholtinu í gærkvöldi þegar Leiknir og ÍR mættust í 1. deild karla í knattspyrnu. Leiknir hafði betur en Víkingur og Þór unnu einnig sína leiki. 04 Íþróttir mbl.is Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Merab Jordania, kaupsýslumaður frá Georgíu, hefur fest kaup á hol- lenska úrvalsdeildarfélaginu Vi- tesse Arnhem. Hann tók við á mánudag sem aðaleigandi og jafn- framt forseti, og lýsti því yfir að hann ætlaði sér að styrkja liðið verulega og gera Vitesse að hol- lenskum meisturum innan þriggja ára. Jordania er fyrsti útlending- urinn sem eignast knattspyrnu- félag í Hollandi. Það sem hins- vegar er merkilegt við málið fyrir Íslendinga er að hann lék á sínum tíma með einu knattspyrnuliði ut- an heimalands síns, og það var Stjarnan úr Garðabæ. Skoraði mark á Ísafirði Jordania kom til liðs við Stjörnumenn síðla sumars 1992, þá 31 árs að aldri. Georgía varð sjálfstætt ríki árið áður eftir að hafa tilheyrt Sovétríkjunum fram að því. Jordania spilað fimm leiki með Stjörnunni í næstefstu deild og skoraði eitt mark í leik gegn BÍ á Ísafirði. Að öðru leyti hefur Jordania starfað í heimalandi sínu og þar varð hann forseti og eigandi Dinamo Tbilisi, þekktasta knatt- spyrnufélags landsins árið 1994. Hann var kjörinn forseti knattspyrnusambands Georgíu árið 1999 og gegndi því embætti um nokkurra ára skeið. Hæglátur og góður félagi Bjarni Benediktsson, núverandi formað- ur Sjálfstæðisflokksins, lék með Stjörnunni um þetta leyti og man vel eftir Jor- dania. „Þetta var hæglátur og þægileg- ur maður og reyndist góður félagi. Mér heyrðist á honum að hann kæmi beint úr stríðsátökum í heimalandi sínu og hann var af- skaplega feginn að komast hingað,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið og telur að Grigol Matsjavariani, sem var þekktur georgískur Íslands- vinur á þessum árum, hafi aðstoðað Jordania við Íslandsförina. „Merab var ágætur fótboltamað- ur og var að ljúka sínum ferli þegar hann lék með okkur. Mjög lunkinn með boltann og með frábærar aukaspyrnur,“ sagði Bjarni og kvaðst hafa af og til heyrt af Jor- dania eftir Íslandsdvöl hans. Seldi Kinkladze til Man. City „Það næsta sem ég vissi var að hann var í Englandi að ganga frá sölu á Georgi Kinkladze, þekktasta knatt- spyrnumanni Georgíu, til Manchester City. Hann mun hafa verið góður vinur forseta landsins, Eduards Shevardnadze, og lið Di- namo Tbilisi flaug víst jafnan með ríkis- þotum á þessum árum. Nokkrum árum síð- ar bar Eggert Magnússon mér kveðju frá Merab sem þá var orðinn forseti knatt- spyrnusambandsins í Georgíu og Eggert hafði hitt hann á fundum hjá UEFA. Það er gaman að fá þessar fréttir af Me- rab og það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig gengur hjá honum í Hollandi,“ sagði Bjarni Benediktsson. Vitesse er með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í hollensku úrvalsdeildinni en liðið endaði í 14. sæti af 18 liðum í fyrra. Fyrrum Stjörnu- maður kaupir hollenskt lið Bjarni Benediktsson Merab Jordania  Jordania lék með Stjörnunni 1992  Ætlar að gera Vitesse að hollenskum meisturum  Bjarni Benediktsson ber Jordania vel söguna Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sænska fyrstudeildarfélagið Sundsvall hefur áfrýjað tveggja leikja banni sem Ari Freyr Skúlason, leikmaður liðsins, var úrskurðaður í fyrr í þessari viku af aganefnd sænska knatt- spyrnusambandsins, fyrir óvenjulegar sakir. Eftir leik Sundsvall gegn Väsby á dögunum, þar sem Ari var í leikbanni, sendi dómarinn frá sér skýrslu um orð Ara í sinn garð eftir leik- inn. Á henni var úrskurður aganefndarinnar byggður. Ari sagði við Morgunblaðið í gær að málið væri tóm vitleysa frá upphafi til enda. „Þetta er allt með ólíkindum. Við sátum þrír sam- herjar í liðinu uppi í stúku, allir í leikbanni í þessum leik, og fórum svo niður í búningsklef- ann til að fagna sigrinum. Ég gekk framhjá öðrum aðstoðardómaranum og sagði við hann í mestu rólegheitum: „Þetta var ekki ykkar dag- ur í dag.“ Hann svaraði engu og ég velti þessu ekki frekar fyrir mér. Svo var mér tilkynnt að það væri búið að setja mig í bann vegna skýrslu dómarans þar sem skrifað hefði verið að ég hefði hlaupið að aðstoðardómaranum, öskrað á hann, og sagt ljót orð um dómara leiksins. Það er fjarri lagi að ég færi að haga mér á þann hátt, og hvað þá eftir sigurleik okkar þar sem ég var í rólegheitum á meðal áhorfenda,“ sagði Ari. Hann vonast eftir að bannið verið stytt niður í einn leik. „Það kom fram vitni sem staðfesti að mín frásögn væri rétt og Sundsvall hefur áfrýjað úrskurðinum. En við eigum leik um helgina og ég kemst ekki hjá því að taka út leikbann í honum. Vonandi sér knattspyrnu- sambandið hvernig í málinu liggur og fellir niður hinn helminginn af banninu,“ sagði Ari Freyr Skúlason sem hefur verið í lykilhlut- verki hjá Sundsvall í ár en liðið á afar góða möguleika á að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Vitni staðfestir sakleysi Ara Freys Morgunblaðið/Matthías Árni Ingimarsson Leikbann Ari Freyr Skúlason með Sundsvall.  Sundsvall áfrýjar leikbannsúrskurði sænska knattspyrnusambandsins  Ari segir málið tóma vitleysu Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, tilkynnti í gær- kvöldi byrjunarliðið gegn Frökkum í hinum mikilvæga leik í undankeppni HM 2011 á Laugardalsvellinum í dag kl. 16:00. Katrín Jónsdóttir fyrirliði hefur jafnað sig af ökkla- meiðslum og verður með í leikn- um, en Þóra B. Helgadóttir er fjarri góðu gamni vegna meiðsla og verður hún ekki heldur með í leiknum gegn Eistlandi á miðvikudag. Byrjunarliðið er þannig skipað: Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir. Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir. Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir. Miðverðir: Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Sif Atladóttir. Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir. Hægri kantmaður: Dóra María Lárusdóttir. Vinstri kantmaður: Hólmfríður Magnúsdóttir. Sóknartengiliður: Margrét Lára Viðarsdóttir. Framherji: Dagný Brynjarsdóttir. Þeir leikmenn sem verða utan 18 manna hóps að þessu sinni eru Sylvía Rán Sigurðardóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Thelma Björk Einarsdóttir. Katrín fyrirliði klár í slaginn gegn öflugu liði Frakka Morgunblaðið/Kristinn Skallatækni Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir er íslenska liðinu mikilvæg í föstum leikatriðum. íþróttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.