Framsóknarblaðið - 20.12.1981, Blaðsíða 8
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Guðbjörg Sigurjónsdóttir:
Ferð til
Austurlanda 1981
Við íslendingarnir sem fór-
um í þessa ferð erum tíu og
komum við í gær 23. okt. til
Kaupmannahafnar og gistum
þar eina nótt. Það var mikil
tilhlökkun í mér, ævintýrið
mikla var að byrja spurningin
var, hvað fæ ég að sjá og upplifa
í þessu ferðalagi til þriggja
landa Jórdaníu, ísrael og
Egyptalands. ísrael var það
land sem ég elskaði næst ísl-
andi, gat það verið veruleiki að
bráðum stigi ég fótum mínum á
þá jörð, þar sem Jesú Kristur
frelsari mannanna gekk um
kring og kenndi og læknaði og
lét að síðustu lífið fyrir okkur
synduga menn. í því er hið ei-
lífa líf fólgið að þeir þekki þig
hinn eina sanna Guð og þann
sem sú sendir Jesúm Krist. Um
morguninn 24. okt., fórum út á
flugvöll og hittum við þar hóp-
inn frá Svíþjóð, sem við ætluð-
um með, það voru átján manns,
svo við vorum tuttugu og átta
manna hópur. Við erum komin
í loftið, það er glampandi sól í
háloftinu og allir í besta skapi.
Flugvélin sem við erum í er
Boing 707, fljúgum í 10.000 m
hæð og hraði 940 km á klst.
Fljúgum yfir Þýskaland, Tékk-
oslovakíu, Austurríki, Júgós-
lavíu, Grikkland millilent í
Aþenu. Ródos, Kýpur, Beirút,
Damaskus, Amman. Sessu-
nautur minn er fararstjórinn
okkar og var hann að fræða mig
á þessu sem á undan er sagt,
einnig var hann að kenna mér
eitt orð í arabisku, sukkerass
sama og þökk fyrir.
Þegar við komum til Amman
höfuðborgar Jórdaníu þurfum
við að flýta klukkum okkar um
tvo tíma. Það gekk fljótt og vel
að komast í gegnum tollinn,
það var farið með rútu upp á
hótel. Flerbergjunum fylgdi
flott baðherbergi og nutum við
þess að fara í bað eftir allan
hitann í flugvélinni. í dag 25.
okt. á að fara til Petra, það er
löng leið þangað, fararstjórinn
okkar er mjög léttur og
skemmtilegur og heldur uppi
góðum anda í hópnum með
skemmtilegum sögum og
skrýtlum. Á leiðinni sáum við
bedúinatjöld, hér og þar og
okkur var bent á tvo staði, þar
sem voru húsaþyrpingar og sagt
að ríkisstjórnin hefði látið
byggja þessi hús handa bedú-
inunum, en þeir vilja ekki búa í
þeim svo þau standa að mestu
auð. Við sáum mörg falleg hús í
þyrpingu og voru margir ungir
menn þarna fyrir utan, var
okkur sagt að þetta væri
bændaskóli og er það eini
bændaskólinn í landinu. Það
var stoppað við klettinn þar
sem Móse sló með stafnum og
spratt þá fram vatn mikið. Þetta
gerðist þegar Móse var að leiða
ísraelsþjóð til fyrirheitna lands-
ins IV. Mósebók 20. kap. 1 l.v..
Sáum við klettinn og vatnslind-
ina. Þegar við áttum eftir
nokkra kílómetra til Petra var
stoppað, voru þar þá fyrir karl-
ar með hesta, sem þeir leigðu
og var mikil ákefð í körlunum
að leigja okkur hest og stigum
við þar á hestbak og teymdu
karlarnir undir okkur gegnum
himinhá þröng hamragöng.
Þetta var stórkostlegt ævintýri.
þarna var sérstök stemming í
þessu öllu, allt í einu opnast
stórt svæði og erum við þá
komin inn í þessa fornu borg
sem hafði verið týnd svo lengi,
en í jarðskjálfta sprakk bergið í
sundur og þetta gil sem við
fórum eftir myndaðist þá. Það
var margt að sjá þarna t.d. kon-
ungsgrafreit, stórt áhorfenda-
svæði og margt fleira, klettarnir
voru allir úthöggnir. Við fórum
svo sömu leið til baka.
26. okt. Það er lagt af stað kl.
átta og var nú ekið upp á Nebó,
fjallið sem Móse fór upp á og
leit þaðan fyrirheitna landið
ísrael. Hann dó á þessu fjalli.
Það var ekki gott skyggni þegar
við vorum þarna og sáum við
því mjög illa yfir til Israels. Það
er hús þarna uppi og þar inni er
mósaikgólf frá því 800 e.k. Við
skoðuðum Jabbots-vað, þar
sem Jakob glímdi við Guð. Eft-
ir mat fórum við að skoða
Jerash. Það var mikil borg á
dögum Rómaveldis, rómverjar
byggðu þarna stórkostleg
mannvirki, við sáum mikinn
leikvang sem tók um 4000
manns í sæti. Þetta var allt
höggvið út í stein, við gengum
flest upp öll þrepin, ég var svo-
lítið lofthrædd þegar ég var
komin alla leið upp. Þarna voru
mikil súlnagöng. Það var margt
stórkostlegt að sjá þarna, enda
vorum við lengi að skoða þetta
allt. Eftir þetta var farið í heim-
sókn á barnaheimili sem sænsk
kona rekur. Þetta heimili er
fyrir vangefin og bækluð börn.
Flún sýndi okkur dreng, hún
sagðist hafa tekið hann og
bræður hans tvo. Þeir höfðu
fundist einir í kofa, faðir þeirra
var dáinn og móðir þeirra hafði
gifst aftur og maðurinn, sem
hún giftist vildi ekkert með þá
hafa og skildi móðirin þá
drengina eina eftir. Mörg barn-
anna þarna eru mikið bækluð og
vangefin. í Jórdaníu er talið að
illir andar séu í þessum börnum
og þykir mikil skömm af þeim
og þau eru því lokuð inni og
falin. Nú er heimsókn okkar til
Jórdaníu senn á enda. Þessir
dagar hafa verið mjög spenn-
andi við höfum upplifað og séð
margt nýtt og framandi.
27. okt. Það er ekið að
landamærum ísraels og fórum
við þar í gegnum mikla toll-
skoðun, var ég öll þukluð,
skórnir mínir teknir og skoð-
aðir, ég varð að smella af
myndavélinni, ég var með sæl-
gæti í stauk og var það tekið og
hent. Þarna í tollstöðinni var
pósthús, þar sem hægt var að fá
skipt peningum, peningarnir í
ísrael heita siklar. Loksins vor-
um við komin í gegn um tollinn.
Þarna á landamærunum skipt-
um við um bíl og bílstjóra og
einnig um leiðsögumann. Nú
var ekið til Qumram að skoða
hellana, þar sem Jesaja hand-
ritin fundust og fleiri handrit.
Þarna er gömul uppgrafin borg,
þar höfðu búið menn sem köll-
uðu sig syni ljóssins, Essenar.
Þá var ekið ti! pálmaborgar-
innar Jeríkó, þar skoðuðum við
borgarmúrinn sem hrundi og
húsið þar sem Rahab bjó. Það
stendur svo í Biblíunni bls. 205.
Fyrirsögn kaflans Almin Jerí-
kó. En Jeríkó hafði lokað hlið-
um sínum og var harðlokuð
vegna ísraelsmanna, svo að
enginn maður komst þar út né
inn. Þá sagði Drottinn við
Jósúa: Sjá, nú gef ég Jeríkó í
þínar hendur, konung hennar
og kappa. Og þér skuluð allir
vígir menn, ganga kring um
borgina, hringinn í kring um
borgina einu sinni, svo skalt þú
gera í sex daga. Og sjö prestar
skulu bera sjö lúðra úr hrúts-
hornum fyrir örkinni, og sjö-
unda daginn skuluð þér ganga
sjö sinnum kring um borgina,
og prestar þeyta lúðrana. En
þegar hrútshornið kveður við,
þá skal allur lýðurinn æpa hróp
mikið, jafnskjótt og þér heyrið
lúðrahljóminn, mun þá borg-
armúrinn hrynja til grunna og
lýðurinn mega upp ganga, hver
þar sem hann er staddur. Júsúa
og lýðurinn gerði það sem
Drottinn bauð- ,, Þá sagði Jós-
úa við lýðinn, Æpið hróp, því
Drottinn hefur gefið yður borg-
ina. En borgin skal með banni
helguð Drottni og allt sem í
henni er, portkonan Rahab ein
skal lífi halda svo og allir sem
með henni eru í húsinu, því hún
leyndi sendimönnum er við
sendum. Borgarmúrarnir
hrundu 1407 fyrir krist. Nú ók-
um við til Tiberias það er falleg
borg, hér munum við stoppa í
tvo daga. Við fórum að synda í
Genesaretvatni, borgin stendur
við vatnið. Það var mjög góður
hiti hér og leið mér mjög vel.
Eftir kvöldmat komum við
Islendingarnir ásamt fararstj-
Qumran hellamir við Dauðahafið sem Jesaja handritin fundust í.
Höfundur á úlfalda fyrir utan hótel í Jerusalem.