Morgunblaðið - 08.09.2010, Page 5
Miklu hraðara Internet
Nú býður Síminn viðskiptavinum sínum upp á enn meiri hraða en áður á Internetinu.
Hraðinn í Grunnáskrift, Leið 1 og Leið 2 fer upp í allt að 12 Mb/s.
Núverandi viðskiptavinir fá sjálfvirka uppfærslu á næstu mánuðum.
Það erFáðu þér Internet Símans í síma 800 7000 eða á siminn.is.
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
Frá því í október í fyrra hefur
heilsuhýsið, nokkurs konar heilsu-
vernd á hjólum, verið á götunum
þar sem jaðarhópum samfélagsins
býðst aðhlynning. Fyrsta starfsárið
gekk vel og virðist heilsuhýsið hafa
unnið sér sess sem nýr og þarfur
liður í velferðarkerfinu.
„Þetta hefur reynst mjög vel,“
segir Þór Gíslason, verkefnastjóri
heilsuhýsisins hjá Reykjavíkurdeild
Rauða krossins. „Það er alveg ljóst
að þörfin er fyrir hendi, ekki síst
vegna þess að þessum hópi finnst
erfitt að fara á venjulegar heilsu-
gæslur þannig að hann bíður oft í
lengstu lög með að leita sér að-
stoðar og þá verða vandamálin oft
verri að eiga við. Vonandi náum við
að fyrirbyggja það og þá dregur um
leið úr álagi á heilbrigðiskerfið að
öðru leyti.“
Fleiri karlar leita hjálpar
Heilsuhýsinu er ætlað að ná til
fólks sem stundar skaðlega lifnaðar-
hætti, sem um leið eru oft ástæða
þess að það leitar sér ekki aðstoðar.
Hugmyndafræðin nefnist skaða-
minnkun og hefur henni víða verið
beitt í stórborgum heimsins.
Síðustu 11 mánuði hafa 64 ein-
staklingar leitað aðstoðar hjá hjálp-
arhýsinu 127 sinnum. Þjónustan
virðist nýtast báðum kynjum nokk-
uð jafnt en karlar leituðu þó ívíð oft-
ar aðstoðar en konur, eða í 58% til-
fella. Aðsóknin var nokkuð
sveiflukennd að sögn Þórs og virtist
fylgja árstíðunum. Starfið fór mjög
öflugt af stað og hefur aðsóknin ver-
ið nokkuð jöfn að því undanskildu
að yfir kaldasta tímann í janúar og
desember duttu heimsóknir niður,
og eins yfir hásumarið í júlímánuði.
Að sögn Þórs hafa viðfangsefnin
verið fjölbreytileg, margir koma til
að láta skipta á umbúðum sára eða
taka sauma, í öðrum tilfellum eru
sýkingar og sár meðhöndluð. Flest-
ar heimsóknir, eða 74 þeirra, fela þó
meðal annars í sér að sprautufíklum
eru gefnar nýjar og hreinar spraut-
ur eða nálar til að forðast hættu-
legar sýkingar, s.s. HIV og lifrar-
bólgu C.
„Það er viðamikill þáttur í þessu.
Við látum fíkla fá hreinar sprautur
og nálar og útvegum þeim líka sér-
stök ílát til að geyma þetta í þegar
þau eru búin að nota þær. Ílátunum
skila þau svo til okkar og við látum
farga þeim,“ segir Þór. Hann við-
urkennir að þessi nálgun sé umdeild
en segist engu að síður telja að
þetta sé afar mikilvægt verkefni.
Allt í sjálfboðaliðastarfi
„Þetta er vandamál sem er til
staðar í samfélaginu, margs konar
eiturlyfjanotkun, og við erum með
ýmsar aðferðir til að berjast gegn
því, bæði meðferðir og forvarnir, en
gagnvart þeim einstaklingum sem
lenda í þessu reynum við með þessu
að draga sem mest úr skaðanum. Í
leiðinni fáum við tækifæri til að
spjalla við þau og fræða.“
Þór segir að það geti tekið tíma
að vinna sér inn traust þessa fólks.
„Það er mjög erfitt fyrir marga að
stíga þetta skref, í því felst ákveðin
viðurkenning fyrir öðrum á vanda-
málinu, að koma og biðja um þetta.“
Heilsuhýsið hefur flakkað um bæ-
inn en er á föstum tímum við dag-
setur Hjálpræðishersins og Konu-
kot, og þaðan koma flestir þeir sem
leita aðstoðar. Þór segir að starf-
semin spyrjist smám saman út til
fleiri frá fastakúnnunum.
Þá segist hann vonast til þess að
unnt verði að efla starfsemina, en
mest aðkallandi sé að fá nýtt far-
artæki. Sem stendur er notast við
hjólhýsi, en vonast er til að hægt
verði að útvega gamlan sjúkrabíl
sem verði mun hentugri. Starfsemi
heilsuhýsins er vottuð af landlækni
og unnin í sjálfboðavinnu og geta
áhugasamir læknar og hjúkrunar-
fræðingar haft samband við Rauða
krossinn.
Heilsuvernd
fyrir jaðarhópa
reynist vel
Margir fá hreinar sprautur og nálar
Morgunblaðið/Ómar
Við Konukot Guðríður Þorleifsdóttir, sjálfboðaliði hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands, er einn 25 hjúkr-
unarfræðinga sem standa reglulega vaktina í heilsuhýsinu. Að auki eru í hópnum tveir læknar og félagsráðgjafi.127
heimsóknir voru í heilsuhýsið á
fyrstu 11 mánuðum starfseminnar
58%
heimsókna fólust m.a. í sprautu-
og nálaskiptum fyrir fíkla.
átján
sinnum voru sár og sýkingar
meðhöndluð
42%
heimsókna voru frá konum
‹ STARFSEMIN ›
»