Morgunblaðið - 08.09.2010, Page 18
18 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010
Heimili & hönnun
Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um
Heimili og hönnun föstudaginn 17. september.
MEÐAL EFNIS:
Ný og spennandi
hönnun.
Innlit á heimili.
Lýsing.
Lítil rými.
Stofan.
Eldhúsið.
Baðið.
Svefniherbergið.
Litir.
Gardínur, púðar, teppi
og mottur.
Blóm, vasar og kerti.
Arnar og pallaupphitun.
Þjófavarnir.
Ásamt fullt af öðru spen-
nandi efn um heimili og
hönnun.
–– Meira fyrir lesendur
S
ÉR
B
LA
Ð
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. september.
Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru að huga að
breytingar á heimilum sínum. Skoðuð verða húsgögn í stofu, eldhús, svefnherbergi og
bað, litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn (AGS) kom
fram á sínum tíma, þ.e.
árið 1999, í janúar 2001
og með skýrslu síðar
það sama ár, og varaði
eindregið við svoköll-
uðum gengistryggðum
lánum sem veitt höfðu
verið í krónum og
bundin erlendum
myntum sem hækkuðu
höfuðstól í krónum
þegar krónan veiktist. Í kjölfarið á
þessum skýrslum, sem ekki er hægt
að horfa framhjá í dag með vísan í
hlutverk AGS á Íslandi um þessar
mundir, komust fulltrúar þeirrar
nefndar, sem þáverandi við-
skiptaráðherra skipaði hinn 11. apríl
árið 2000 til að endurskoða vaxtalög
nr. 25/1987, að því að fortakslaust
yrði að taka fyrir gengistryggingu
eins og hún tíðkaðist áður en AGS
varaði við þessu, þ.e. gengistryggð
lán þar sem höfuðstóll í krónum
hækkaði við veikingu krónu og lækk-
aði við styrkingu krónu.
Hér skal vakin athygli á að í drög-
um að frumvarpi til laga um vexti og
verðtryggingu, sem nefndin sendi
ráðherra ásamt athugasemdum, er
ítarlega tekið fram að gengistrygg-
ing sé ekki heimiluð. Bent skal á að
þær athugasemdir, sem sendar voru
ráðherra, eru ítarlegri að efni en þær
sem fram koma með frumvarpinu
sem sent var Alþingi og varð síðar að
lögum nr. 38/2001 um vexti og verð-
tryggingu. Í 3. mgr. athugasemdar
sem send var ráðherra en ekki Al-
þingi stendur m.a.:
„Samkvæmt 13. gr. og 1. mgr. 14.
gr. frumvarpsins verður ekki heimilt
að binda skuldbindingar í íslenskum
krónum við dagsgengi erlendra
gjaldmiðla. Er talið rétt að taka af
allan vafa þar að lútandi. Hins vegar
gæti Seðlabankinn á
grundvelli 2. mgr. 14.
gr. gefið út sérstakar
gengisvísitölur eins og
nú tíðkast og heimilað
gengisbindingu á
grundvelli þeirra að
fengnu samþykki við-
skiptaráðherra. Þótt
nefndin hafi gengið frá
ákvæðinu með þessum
hætti mælir hún engu
að síður með því að
heimildin yrði ekki not-
uð.“
Svo ítarlega er ekki
að orði komist í athugasemdum sem
fylgdu frumvarpi því sem hér um
ræðir en engu að síður bent á mik-
ilvægi Seðlabanka Íslands í þessu
efni sem eftirlitsaðila innan íslensku
stjórnsýslunnar og samspil bankans
og viðkomandi ráðherra í þessu efni.
Nýlega bárust greinarhöfundi
svör við spurningum sem lagðar
voru fyrir fulltrúa Seðlabanka Ís-
lands fyrir margt löngu. Á næstunni
verða þessi svör reifuð ítarlega en
þar kemur m.a. fram að bankinn hafi
litið á svokölluð gengistryggð lán
eins og um lán í erlendri mynt væri
að ræða. Þar er samhljómur við það
sem viðskiptaráðherra hafði uppi í
fyrirspurnatíma á Alþingi á síðasta
ári.
Í svari Seðlabanka Íslands segir
m.a.: „Þegar ofangreindur texti var
ritaður í skýrslu Seðlabankans voru
engar forsendur til að fullyrða að
gengistryggð lán væru ólögmæt.
Erfitt er að sjá á hvaða hátt það hefði
verið betur til þess fallið að tryggja
fjármálalegan stöðugleika og styðja
við peningastefnuna að banna ákveð-
ið form af gengistryggðum lánum en
leyfa önnur lán sem í eðli sínu voru
nákvæmlega eins.“ Hér er vísað í rit-
ið Fjármálastöðugleika frá því í maí
2008 eða fáeinum mánuðum áður en
aðallögfræðingur bankans komst að
allt öðru í ótvíræðu áliti sem mikið
hefur verið rætt um upp á síðkastið
þar sem hann taldi gengistryggingu,
eins og bankarnir beittu henni fyrir
sig, ólöglega.
Í svari Seðlabankans, sem lesa má
hér að ofan, er reynt að varpa því
fram að gengistrygging hafi verið al-
farið en svo þarf ekki að vera. Það er
aðeins óheimilt að binda skuldbind-
ingar í krónum við gengi erlendra
mynta en ekki óheimilt að binda
skuldbindingar í erlendum myntum
við gengi íslenskrar krónu.
Með lögum nr. 38/2001 um vexti og
verðtryggingu varð óheimilt að
hækka höfuðstól, sem tilgreindur er í
krónum og tengist erlendum mynt-
um, þegar króna veikist og óheimilt
að lækka hann þegar krónan styrk-
ist. Höfuðstóllinn á að vera fasti eins
og um var samið. Því og þess vegna
vék Hæstiréttur aðeins þessum lið til
hliðar en ekki öllum samningnum.
Það er því ekki óheimilt að skuld-
bindingar í erlendri mynt, þ.e. ef
sannast að aðilar telji sig hafa samið
þannig, séu bundnar gengi íslenskr-
ar krónu þannig að það er íslenski
höfuðstóllinn sem helst fastur og
höfuðstóll í erlendri mynt lækkar við
veikingu krónunnar en hækkar við
styrkingu krónunnar.
Því verður að gæta þess orðalags
og þeirra svara sem greinilega ber-
ast frá Seðlabanka Íslands enda hef-
ur gengistrygging ekki alfarið verið
dæmd ólögleg á Íslandi og hljóta
þeir sem hafa óskað eftir slíku nú að
fagna því frelsi sem í þessu felst. Því
hefur löggjafinn veitt frelsi til geng-
istryggingar, þó aðeins með þeim
hætti að höfuðstóll í krónum hækki
eða lækki ekki eftir breytingum í
gengi krónu gagnvart öðrum mynt-
um. Þetta samræmist réttmætum at-
hugasemdum AGS á sínum tíma og í
takt við fjármálastöðugleika.
Hvernig stendur á því að Seðla-
banki Íslands (sem nefndin, er einn
bankastjóri bankans sat í, sagði að
hefði ein stofnana landsins heimild
til að víkja frá hömlum á geng-
istryggingu) telur sig ekki hafa haft
forsendur til að fullyrða að geng-
istryggð lán væru ólögmæt eins og
þau voru reiknuð af bönkunum?
Þetta vekur ekki aðeins athygli held-
ur einnig furðu.
Seðlabanki Íslands
og gengistryggð ólán
Eftir Svein Óskar
Sigurðsson » Því og þess vegna
vék Hæstiréttur
aðeins þessum lið til
hliðar en ekki öllum
samningnum.
Sveinn Óskar
Sigurðsson
Höfundur er BA í heimspeki og hag-
fræði og viðskiptafræðingur MBA.
Ég er einn þeirra
fjölmörgu sem í
sumar fylgdust
áhugasamir og
spenntir með HM í
fótbolta. Eitt af því
sem vakti athygli
mína við keppnina
var hversu margir
leikmannanna sáu
ástæðu til að signa
sig í bak og fyrir,
fyrir og eftir leikina
og jafnvel meðan á þeim stóð.
Það verkaði þannig á mig að mér
fannst leikgleðin, ástríðan og
samstaðan jafnvel meiri í þeim
liðum og þá ekki síst þeim sem
alls ófeimin mynduðu bænahring
á miðjum vellinum fyrir og eftir
leik sinn.
Ég leyfi mér að efast um að
flestar af þessum stórstjörnum
hafi eingöngu verið að fara fram
á það við Guð almáttugan að lið
þeirra bæri sigur úr býtum í
komandi viðureign. Miklu frekar
að þeir hafi verið að biðja um
blessun, æðruleysi og varðveislu.
Að biðja um styrk og auðmýkt til
að takast á við komandi krefjandi
verkefni og síðan að þakka Guði
fyrir að hafa fengið að taka þátt í
leiknum.
Ekki marklaust handapat
Signingin er ekki hjátrú eða
eitthvert marklaust handapat út í
loftið, heldur einlæg trúarjátning
og hljóðlát bæn. Bæn um æðru-
leysi og kjark, þrek og þor, áræði
og styrk, fyrirgefningu og frið,
varðveislu og blessun. Síðast en
ekki síst tjáir hún þakklæti fyrir
að fá að vera með í lífsins leik,
jafnt í meðlæti sem mótlæti. Og
fyrir það að fá að tilheyra höf-
undi og fullkomnara lífsins sem
yfir okkur vakir hverja stund og
vill umvefja okkur og næra í öll-
um aðstæðum lífsins.
Þannig minnir hún okkur á að
við stöndum ekki ein frammi fyr-
ir verkefnum daganna heldur er
gengið með okkur, haldið í hönd-
ina á okkur og við jafnvel borin á
bænarörmum af frelsaranum
sjálfum þegar okkur skortir
kjark, þrek og þor til orða og
verka.
Signingin getur því einnig ver-
ið mikilvægur vitnisburður okkar
í umhverfinu. Hún minnir okkur
á það hver við erum, hverjum við
viljum tilheyra og treysta fyrir
daglegu lífi okkar frá vöggu til
grafar. Lífi sem reyndar nær út
yfir gröf og dauða og
aldrei tekur enda.
Sigurtákn lífsins
Það er nefnilega
gott að staldra reglu-
lega við til þess að
minna sig á hver
maður er, hverju eða
hverjum maður vill
tilheyra og hvert
maður vill stefna í líf-
inu. Þannig er ómet-
anlegt að vita til þess
að maður skuli mega
signa sig kvölds og morgna og
jafnvel um miðjan dag ef því er
að skipta og fela sig og sína og
öll þau verkefni sem dagurinn
kann að færa manni í Guðs al-
máttugs hendur í trausti þess að
hann verði með og muni vel fyrir
sjá.
Það er góð tilfinning að mega
merkja sig sigurtákni lífsins og
biðja þannig um æðruleysi og
styrk í öllum aðstæðum lífsins.
Þeirri einföldu athöfn og einlægu
bæn fylgir nefnilega ólýsanlegur
innri friður sem enginn og ekkert
megnar frá okkur að taka.
Signingin er heilagt tákn, bæn
án orða en fyllt djúpu innihaldi
sem höfundur og fullkomnari lífs-
ins skilur og meðtekur, sá er
þekkir hugsanir og hugrenningar
hjartans.
Þótt einstaka viðureignir
kunni að tapast
Við erum nefnilega öll þátttak-
endur í þeim leik sem lífið er. Og
þótt einstaka viðureignir kunni
jafnvel að tapast þá er gott að
mega minna sig á það reglulega
að við erum í sigurliðinu þrátt
fyrir allt. Því að við munum sann-
arlega að lokum standa uppi sem
sigurvegarar. Þess vegna er full
ástæða til þess hvern dag að
þakka fyrir lífið og láta það eftir
sér að njóta þess að gleðjast og
fagna yfir sigri lífsins.
Innrömmun
dagsins og lífsins
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
» Þótt einstaka
viðureignir kunni
að tapast, þá erum við
í sigurliðinu þrátt fyrir
allt og munum því að
lokum standa uppi
sem sigurvegarar.
Höfundur er rithöfundur og sinnir nú
m.a. tímabundnum verkefnum sem
ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun.
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánudaginn 6.9.
2010. Spilað var á 10 borðum. Með-
alskor 216 stig. Árangur N-S
Auðunn Guðmss. – Björn Árnaron 264
Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 258
Ægir Ferdinandss. – Ragnar Björnss. 241
Árangur A-V
Helgi Hallgrímss.– Ólafur Kristinss. 241
Sigurður Tómass. – Guðjón Eyjólfss. 240
Jóhannes Guðmannss. – Björn Svavarss. 232
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 3. september var spilað á 14
borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Jens Karlsson – Örn Einarsson 394
Sverrir Gunnarsson – Einar Markússon 370
Auðunn Guðmss. – Óli Gíslason 328
Rafn Kristjánss. – Magnús Halldórss. 318
A/V
Lilja Kristjánsd. – Sigríður Gunnarsd. 387
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 376
Ágúst Stefánss. – Helgi Einarsson 357
Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 342
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is