Morgunblaðið - 06.10.2010, Page 1
Annar leikjahæstur
» Hermann hefur verið í her-
búðum Portsmouth frá árinu
2007 og varð enskur bik-
armeistari með liðinu árið
2008.
» Hermann er annar leikja-
hæsti leikmaður íslenska
landsliðsins, Hann hefur leikið
85 landsleiki og hefur í þeim
skorað 5 mörk.
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
íþróttir
Áfangi Hrafnhildur Lúthersdóttir fékk skólastyrk hjá sterkasta bandaríska háskólaliðinu. Stór
áfangi fyrir sundkonuna úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Stefnan er sett á ÓL í London. 3
Íþróttir
mbl.is
VIÐTAL
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Ég tel okkar lið betra en það skoska en
við gerum okkur vel grein fyrir því að
þetta verða tveir mjög erfiðir leikir,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U21 árs
landsliðsins í knattspyrnu, við Morg-
unblaðið fyrir æfingu liðsins á Laugardals-
velli í gærkvöld. Á morgun mæta íslensku
strákarnir liði Skota í fyrri viðureigninni í
umspili um sæti í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins og mátti vel greina þann mikla
hug sem er í leikmönnum Íslands þegar
þeir hófu æfinguna í gær. Þeir ætla sér í
lokakeppnina og brjóta þar með blað í sögu
landsliðsins.
,,Skotarnir eru baráttuglaðir, spila sterk-
an og agaðan varnarleik og hlaupagetan er
mikil í þeirra liði. Ég tel hins vegar mögu-
leika okkar á að slá Skotana út góða. Við
höfum spilað virkilega vel í þessari keppni,
strákarnir eru í fínu standi og það er virki-
lega góð samstaða í hópnum,“ sagði Eyjólf-
ur, sem teflir fram ógnarsterku liði eftir að
U21 ára liðið fékk forgang á A-landsliðið.
Eyjólfur telur mjög mikilvægt að ná góð-
um úrslitum í fyrri leiknum og fara til Ed-
inborgar í næstu viku með gott veganesti.
„Lykillinn að því að komast áfram er að
ná mjög góðum úrslitum í heimaleiknum.
Helst þurfum við að halda hreinu og ná að
setja nokkur mörk á Skotana. Ég finn að
strákarnir eru mjög vel einbeittir og þessi
umræða um U21 árs liðið og A-landsliðið
hefur ekkert truflað þá,“ sagði Eyjólfur.
Spurður hvort það verði ekki erfitt að
velja byrjunarliðið miðað við þann úrvals-
hóp sem hann hefur úr að spila sagði þjálf-
arinn; „Nei, nei. Vissulega er hópurinn
sterkur og samkeppnin hörð og það er bara
af hinu góða. Það eru allir á tánum og ég
vel bara besta liðið sem ég tel henta hverju
sinni. Ég vona bara að fólk fjölmenni á
leikinn og standi með okkur í þessari bar-
áttu. Þessir strákar eiga það skilið.“
Erum með betra lið en Skotarnir
Eyjólfur Sverrisson reiknar með tveimur erfiðum leikjum gegn Skotum Mikill hugur í íslensku
leikmönnunum Eru vel einbeittir og láta umræðuna um A-landsliðið ekkert trufla sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Undirbúningur Íslenska U21 árs liðið í knattspyrnu á æfingu fyrir leikinn mikilvæga gegn Skotum sem fram fer á Laugardalsvellinum á morgun.
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Hermann Hreiðarsson hefur náð
samkomulagi við enska 1. deild-
arliðið Portsmouth um nýjan eins
árs samning með möguleika á fram-
lengingu um eitt ár. Hermann skrif-
ar undir samninginn í dag en sem
kunnugt er hefur hann verið frá
keppni í rúmlega hálft síðan hann
sleit hásin í leik með Portsmouth í
ensku úrvalsdeildinni í mars. Hann
hefur æft af krafti með Portsmouth-
liðinu undanfarnar vikur og væri
búinn að spila með varaliðinu ef það
væri til en það var lagt niður í sum-
ar vegna fjárhagsörðugleika félags-
ins.
„Samningurinn við Portsmouth er
klár og ég á bara eftir að skrifa und-
ir hann. Ég er ánægður að þessi mál
skulu vera komin á hreint og það
var alltaf fyrsti kostur hjá mér að
vera áfram hjá Portsmouth. Ég er
búinn að æfa á fullu í þrjár vikurog
bara kominn í fínt stand en skortir
bara leikæfingu,“ sagði Hermann í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hermann var valinn í íslenska
landsliðshópinn fyrir leikinn gegn
Portúgölum sem fram fer á Laug-
ardalsvellinum á þriðjudaginn.
Spurður hvort sé tilbúinn að spila-
þann leik sagði Hermann;
„Ég er maður í allt en við sjáum
hvað setur,“ sagði Eyjamaðurinn
sterki, sem lék síðast með íslenska
landsliðinu gegn Hollendingum á
Laugardalsvellinum í júní 2009.
Landsliðið kemur saman á föstu-
daginn og eftir æfingarnar um
helgina mun Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari meta það hvort
Hermann sé klár í slaginn en hann
segir afar gott að fá fyrirliðanna aft-
ur í hópinn hvort sem kemur til með
að spila eða ekki.
„Var alltaf fyrsti kosturinn“
Góður
Hermann
Hreiðarsson
er kominn í
landsliðs-
hópinn á ný.
Hermann Hreiðarsson skrifar undir nýjan samning við Portsmouth í dag