Morgunblaðið - 06.10.2010, Page 2

Morgunblaðið - 06.10.2010, Page 2
Á SVELLINU Kristján Jónsson kris@mbl.is Reykjavíkurliðin Björninn og SR buðu upp á frá- bæra skemmtun í Egilshöllinni í gærkvöldi þegar liðin mættust á Íslandsmótinu í íshokkí karla. Úr varð mikill markaleikur þar sem SR sigraði 7:5 og lagaði þar með slæma byrjun sína í mótinu þegar liðið tapaði óvænt á heimavelli fyrir Jötn- unum úr SA. „Tapið í fyrsta leiknum var svolítið spark í rassinn fyrir okkur. Við áttuðum okkur á því að við yrðum að gera miklu betur. Við höfðum eng- an baráttuvilja í þeim leik og við þurftum ein- faldlega að byrja að skauta og berjast,“ sagði landsliðsmaðurinn Pétur Maack í samtali við Morgunblaðið að leiknum loknum. Pétur myndar hina heilögu þrenningu í sóknarleik SR, með bræðrunum Gauta og Agli Þormóðssonum. Þrenningin fór á kostum í gærkvöldi og sýndu þeir félagar sparihliðarnar. Það verða þeir raun- ar að gera ef SR á ekki að missa af úrslitakeppn- inni eins og gerðist á síðustu leiktíð. Gauti skor- aði þrennu og gaf einnig þrjár stoðsendingar. Pétur skoraði tvívegis og átti þrjár stoðsend- ingar og Egill gaf tvær stoðsendingar og skoraði einu sinni. Þremenningarnir áttu stærstan þátt í því að SR tókst að slá Bjarnarmenn út af laginu í öðrum leikhluta. Að loknum fyrsta leikhluta benti nefnilega ekkert til þess að SR myndi sækja sigur í Grafarvoginn. Þá var staðan 3:1 fyrir Björninn og varnarmaðurinn Óli Þór Gunn- arsson hafði kórónað góða byrjun heimamanna með glæsilegu langskoti, skeytin og inn. Gríðarleg umskipti urðu í öðrum leikhluta en þá skoruðu SR-ingar fimm af sjö mörkum sínum. Þar af gerðu þeir þrjú á um fimm mínútna kafla og komust 4:3 yfir. Hvað gerðist eiginlega í öðr- um leikhluta? „Þá kom baráttuviljinn loksins eft- ir að við fengum að heyra það frá Gulla þjálfara. Við áttuðum okkur á því að við yrðum að vinna þessa Bjarnarhúna en það gerist ekki betra en að vinna með þessum hætti. Þegar við vorum komnir 4:3 yfir þá fundum við að þeir væru að brotna,“ svaraði Pétur. Félagi hans úr landslið- inu, Róbert Pálsson hjá Birninum, sagði Bjarn- armenn hafa misst einbeitinguna. „Við misstum hausinn og létum reka okkur alltaf of oft út af. Þeir refsuðu okkur fyrir það. Eftir fyrsta leik- hluta var andinn góður í liðinu en við létum reka okkur út af snemma í öðrum leikhluta og þeir nýttu sér liðsmuninn. Þeim tókst eiginlega að gera út um leikinn á örskömmum tíma, því okkur tókst ekki laga stöðuna þrátt fyrir að við ættum einhverja möguleika í síðasta leikhlutanum,“ sagði Róbert þegar Morgunblaðið ræddi við hann. Hin heilaga þrenning SR Morgunblaðið/Árni Sæberg Laus pökkur Róbert Pálsson Birninum og Gauti Þormóðsson SR berjast um pökkinn í gærkvöldi.  SR skoraði 5 í öðrum leikhluta gegn Birninum Á SVELLINU Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Merkilegur leikur fór fram á Ak- ureyri í gærkvöldi en þá léku tvö lið Skautafélags Akureyrar gegn hvort öðru á Íslandsmótinu í íshokkí. Þetta voru Jötnarnir gegn Víkingum. Leik- urinn fer aðeins í sögubækurnar fyr- ir það að þarna mættust lið frá sama félagi. Líklega hefur það aldrei gerst áður í efstu deild karla í nokkurri flokkaíþrótt hér á landi. Víkingarnir voru mun sterkari enda á það lið að vera flaggskip SA. Jötnaliðið er hins vegar enginn ryð- dallur en þar um borð eru m.a. þjálf- arinn sjálfur, Josh Gribben, og Ingv- ar Þór Jónsson landsliðsfyrirliði. Voru þeir báðir á sjúkralistanum í gær en fyrir utan þá félaga eru Jötn- arnir með skemmtilegt samansafn af leikmönnum, allt frá renglulegum unglingum upp í hálffimmtuga harð- jaxla. Þegar liðin eigast ekki við inn- byrðis þá geta fjórir leikmenn skipt um pláss og styrkt þannig hitt liðið. Að auki mega leikmenn sem enn voru 16 ára eða yngri þegar mótið hófst skipta frjálst á milli liða. Ingvar Þór segir þetta gott fyrir alla sem æfa, því menn fái að spila miklu meira og haldist lengur í sportinu fyrir vikið. Leikurinn í gær var hin besta skemmtun þótt harkan og baráttan hafi verið eitthvað minni en þegar SR eða Björninn eru í heimsókn. Vík- ingar tóku forustu fljótt og bættu smám saman við en Jötnar áttu nokkrar góðar sóknir og hefðu hæg- lega getað kynt betur undir andstæð- ingum sínum. Markmenn liðanna voru í góðu formi og vörðu þeir oft virkilega vel í leiknum. Atkvæða- mestur í leiknum var hinn tröllvaxni söngvari og þáttarstjórnandi Rúnar Freyr Rúnarsson en hann setti tvö og lagði upp eitt mark. SA-Víkingarnir eru nú eina taplausa liðið í deildinni en hún virðist ætla að verða einkar skemmtileg í vetur. SA fór létt með vængbrotið lið SA Ljósmynd/Þórir Tryggvason Barátta Það var hart barist í leik SA Jötna og SA Víkinga í Skautahöllinni á Akureyri í gærkvöld. Þar fór lið SA létt með vængbrotið lið SA. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010 Rakel Dögg Bragadóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Levanger, meiddist í landsleik Íslendinga og Hollendinga fyrir 12 dögum. Síðan hefur hún hvorki getað leikið handknattleik né æft að nokkru gagni. Liðband í utanverðu hné togn- aði í fyrrgreindum leik. „Hún er byrjuð í æfingum hjá sjúkraþjálfara og verður vonandi klár í leik með okkur eftir 10 daga eða svo,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Levanger, í samtali við Morgunblaðið. Levanger er í 9. sæti af 12 liðum norsku úrvalsdeildarinnar með tvö stig að loknum fjórum leikjum. „Það hefur gengið þokkalega. Við höfum gert tvö jafntefli og tapað tveimur viðureignum naumlega,“ sagði Ágúst. „Því miður er mikið um meiðsli í leikmannahópnum um þessar mundir. Fimm leikmenn eru úr leik vegna meiðsla, þar af fjór- ir landsliðsmenn. Það munar um minna,“ sagði Ágúst, sem stýrir Levanger-liðinu ann- að keppnistímabilið í röð. Ramune Pekarskyte, fyrrverandi leikmaður Hauka, gekk til liðs við Levanger í sumar. Ágúst segir hana hafa leikið afar vel það sem af er leiktíð. iben@mbl.is Rakel Dögg úr leik um tíma Rakel Dögg Bragadóttir Danska úrvalsdeildarliðið FIF frá Kaupmanna með, hefur verið svipt þeim fjórum stigum sem ferðum dönsku úrvalsdeildarinnar. Það er ger knattleiksdeild félagsins er gjaldþrota. Nýtt f leikmenn karla- og kvennaliðs félagsins sem þ minnsta kosti fram að áramótum. Vonast er t byrjun næsta árs svo hægt verði að gera atvin ins. Að sögn Gísla eru leikmenn vitanlega vonsv ins. Í ljós er komið að hann var byggður á san að uppfylla þá samninga sem gerðir voru við hluta af FCK-liðinu þegar það var leyst upp. A FIF eru á bak og burt en nýir menn komnir í þeirra stað. „Aðeins einn leikmaður úr karlaliðinu reri á önnur mið. Aðri að nýir stjórnendur geti gert samning við okkur frá og með by mikil óvissa hefur ríkt um framhaldið hjá FIF síðustu vikur. Gísli leikur launalaust hjá F Gísli Kristjánsson England Neðrideildabikarkeppnin: Huddersfield – Peterborough................. 3:2  Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan tím- ann fyrir Huddersfield. Cheltenham – Plymouth.......................... 0:2  Kári Árnason var ekki í leikmannahópi Plymouth. Hartlepool – Bradford ............................. 1:0  Ármann Smári Björnsson lék allan tím- ann með Hartlepool. KNATTSPYRNA Þýskaland A-DEILD: Wetzlar – Lemgo.................................. 24:24  Kári Kristján Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Wetzlar. Melsungen – Flensburg....................... 20:31 Staðan: Füchse Berlin 6 6 0 0 156:130 12 Flensburg 8 6 0 2 243:201 12 Kiel 6 5 0 1 199:137 10 Hamburg 6 5 0 1 204:157 10 RN Löwen 6 5 0 1 185:169 10 Gummersbach 6 5 0 1 183:167 10 Grosswallst. 5 4 0 1 138:131 8 Göppingen 6 3 2 1 175:162 8 Lemgo 7 3 2 2 201:198 8 Magdeburg 5 3 0 2 155:146 6 Friesenheim 7 1 2 4 174:203 4 N-Lübbecke 5 1 0 4 132:154 2 Burgdorf 5 1 0 4 125:155 2 Rheinland 5 1 0 4 109:139 2 Balingen 6 0 2 4 160:196 2 Wetzlar 7 0 1 6 169:196 1 Ahlen-Hamm 6 0 1 5 152:182 1 Melsungen 6 0 0 6 140:177 0 HANDBOLTI 2. deild Karlar, 3. umferð: KDK-D – ÍR-Nas ..............................1,5:18,5 KDK-A – KFA-ÍA-W..............................2:18 KFR-JP.Kast – ÍR-G........................13,5:6,5 ÍR-M – ÍR-Keila.is ..................................15:5 ÍR-T – KR-C............................................3:17  ÍR-Blikk sat hjá Staðan: KFA-ÍA-W 43 stig, ÍR-M 40, KR-C 38 ÍR-G 33,5, KFR-JP. Kast 32,5, ÍR- Keila.is 31, ÍR-Nas 31, ÍR-Blikk 21, KDK-D 14, ÍR-T 10, KDK-A 6. KEILA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kv., Iceland Express-deildin: Ásvellir: Haukar – KR ..........................19.30 Grindavík: Grindavík – Fjölnir ............19.30 Hveragerði: Hamar – Snæfell..............19.30 Njarðvík: Njarðvík – Keflavík .............19.30 Í KVÖLD! Íslandsmót karla, 3. umferð: SA Jötnar - SA Víkingar..........................1:5 Mörk/stoðsendingar: SA-Jötnar: Orri Blöndal 1/0, Sigurður Reynisson 0/1. SA-Víkingar: Rúnar Freyr Rúnarsson 2/1, Jón Benedikt Gíslason 1/0, Sigurður Sveinn Sigurðsson 1/0, Gunnar Darri Sigurðsson 1/0, Stefán Hrafnsson 0/2, Andri Mikaels- son 0/1, Einar Valentine 0/1. Björninn – SR............................................5:7 Mörk/stoðsendingar: Björninn: Brynjar Bergmann 2/0, Úlfar Jón Andrésson 1/0, Óli Þór Gunnarsson 1/0, Matthías Sigurðsson 1/0, Einar Sveinn Guðnason 0/2, Trausti Bergmann 0/2, Ró- bert F. Pálsson 0/1. SR: Gauti Þormóðsson 3/3, Pétur Maack 2/3, Egill Þormóðsson 1/2, Steinar Veigars- son 1/0, Kári Valsson 0/2, Andri Þór Guð- laugsson 0/1, Tómas Tjörvi Ómarsson 0/1, Guðmundur Björgvinsson 0/1. ÍSHOKKÍ Paulo Bento, nýráðinn landsliðs- þjálfari Portúgala, hefur þurft að gera tvær breytingar á leik- mannahópi sínum fyrir leikina gegn Dönum og Íslendingum í und- ankeppni EM sem fram fara á föstu- dag og þriðjudag. Framherjinn Liedson úr Sporting Lissabon og Miguel Veloso leik- maður Genoa á Ítalíu eru meiddir og hefur Bento valið í þeirra stað þá Ruben Micael úr Porto og Manuel Fernandes úr Valencia. Þess má geta að uppselt er á leik Íslands og Portúgal sem fram fer á Laug- ardalsvelli. Meiðsli hjá Portúgal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.