Morgunblaðið - 06.10.2010, Qupperneq 3
ahöfn, sem Gísli Kristjánsson leikur
m það hafði unnið sér inn í fyrstu um-
rt þar sem hlutafélagið sem rak hand-
félag hefur verið stofnað og munu allir
það vilja leika sem áhugamenn að
il að búið verði að safna nægu fé í
nnumannasamning við leikmenn félags-
viknir hvernig fór með rekstur félags-
ndi þannig að aldrei var möguleiki á
leikmenn í sumar þegar FIF tók við
Allir stjórnendur handknattleiksfélags
ir ætla að þreyja þorrann og treysta á
yrjun næsta árs,“ sagði Gísli í gær en
FIF
VIÐTAL
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig
sem sundkonu að komast inn í svona
stóran skóla og mun aðstoða mig mik-
ið við að búa mig sem best undir þátt-
töku á Ólympíuleikunum í London
eftir tvö ár,“ segir sundkonan Hrafn-
hildur Lúthersdóttir úr Hafnarfirði
sem á dögunum fékk inngöngu í Uni-
versity of Florida. Skólinn hefur á að
skipa afar sterku sundliði, kallað The
Gators, sem m.a. varð bandarískur
háskólameistari í kvennaflokki í vor.
Yfirþjálfari sundliðsins er Gregg
Troy en hann var kosinn þjálfari árs-
ins af bandaríska sundþjálfara-
sambandinu. Einnig var hann þjálfari
bandaríska landsliðsins á Kyrrahafs-
leikunum. Öll umgjörð fyrir íþróttir í
skólanum er frábær og eru t.d. fimm
þjálfarar sem þjálfa sundliðið, auk
styrktarþjálfara.
Þjálfarar skólans munu verða í
nánu samstarfi við Klaus Ohk, þjálf-
ara Hrafnhildar hjá Sundfélagi Hafn-
arfjarðar, þar sem undirbúningur
fyrir Ólympíuleikanna 2012 í London
er þegar hafinn.
Spennandi tækifæri
Hrafnhildur segist ekki hafa gert
upp við sig ennþá í hvaða nám hún
ætlar. „Ég reikna með að byrja í al-
mennu námi og sjá síðan til. Ég hef
aðeins verið að velta sálfræðinni fyrir
mér en það á allt eftir að koma í ljós
með tíð og tíma.
Þetta er mjög spennandi tækifæri
fyrir mig, bæði séð út frá sundinu og
námi, þar sem skólinn er fyrsta
flokks,“ segir Hrafnhildur sem fær
fullan skólastyrk, sem er nokkuð sem
ekki stendur öllum til boða.
„Ég er bæði glöð og þakklát fyrir
að standa til boða eins veglegur
styrkur og raun ber vitni,“ segir
Hrafnhildur sem er hæverskan upp-
máluð þegar hún er spurð hvort þessi
veglegi skólastyrkur stafi ekki af því
að hún er bæði framúrskarandi
námsmaður og sundkona. „Jú, að
hluta til.“
Hrafnhildur er Íslandsmethafi í 50,
100 og 200 m bringusundi og 400 m
fjórsundi í 50 m laug og í 100 m
bringusundi í 25 m laug. Hún hefur
tekið stórstígum framförum síðustu
árin enda lagt hart að sér við æfingar
án þess þó að gefa eitthvað eftir við
námið.
Nóg að gera í desember
„Ég fer út á milli jóla og nýárs og
sest á skólabekk strax í byrjun nýs
árs. Ég er svo spennt að ég get varla
beðið. Ekki síst vegna þess að ég fór í
heimsókn til skólans í ágúst og þar
var tekið svo vel á móti mér. Það voru
allir mjög vinalegir við mig,“ segir
Hrafnhildur sem hefur nóg að gera
þangað til því framundan er að ljúka
stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í
Hafnarfirði skömmu fyrir jólin auk
þess sem hún ætlar að taka þátt í
heimsmeistaramótinu í sundi í 25 m
laug í Dubai 15.-19. desember.
„Það verður því nóg að gera hjá
mér á næstunni. Útskrift úr Flens-
borg, HM í Dubai og eftir það að
flytja út og standa á eigin fótum í
fyrsta sinn. Það breytist því margt
hjá mér en ég held að þetta sér bara
allt mjög spennandi,“ sagði þessi
unga og upprennandi sundkona sem
lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna og hikar greinilega ekki við að
stökkva út í djúpu laugina. „Ég ætla
að keppa sem mest á næstu vikum og
freista þess að bæta mína bestu tíma
eins og kostur er áður en ég held út
til Dubai á HM,“ sagði Hrafnhildur
en auk hennar hefur Ragnheiður
Ragnarsdóttir úr KR einnig sett
stefnuna á þátttöku á heimsmeist-
aramótinu í Dubai.
„Það er mjög mikilvægt fyrir mig
að komast undir handleiðslu svo
góðra þjálfara sem eru við skólann nú
í undanfara Ólympíuleikanna,“ segir
Hrafnhildur, sem nýlega varð 19 ára
og er staðráðin í að að taka þátt í sín-
um fyrstu Ólympíuleikum í London
sumarið 2012. Þeir eru aðalmark-
miðið um þessar mundir.
Önnur íslensk sundkona leggur
stund á nám við skólann í Flórída,
Sara Blake Batemann. „Hún er voða
fín, tók á móti mér og sýndi mér allt í
skólanum þegar ég kom í heimsókn í
sumar,“ sagði sundkonan efnilega
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Hafn-
arfirði.
Hrafnhildur í sterkasta
skólaliði Bandaríkjanna
Morgunblaðið/Ómar
Stór áfangi Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir mun æfa og keppa með gríðarlega sterku háskólaliði á næsta ári.
Fær fullan skólastyrk Hefur í mörg horn að líta á næstunni Stefnir á ÓL 2012
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Arnór Smára-son leik-
maður danska úr-
valsdeildarliðsins
Esbjerg verður
frá keppni í 4-6
vikur vegna
meiðsla sem hann
varð fyrir í leik
gegn Nordsjæll-
and um helgina. Arnór missir því af
báðum landsleikjum U21 árs liðsins
gegn Skotum í umspili um laust sæti
í úrslitakeppni EM í Danmörku.
Arnór meiddist undir lok fyrri
hálfleiks en um er að ræða tognun á
liðbandi í hné. Sjúkraþjálfari Es-
bjerg segir í frétt á heimasíðu fé-
lagsins að meiðsli Arnórs séu ekki
alvarleg en hann þurfi í það minnsta
fjórar vikur í endurhæfingu.
Handknattleiksdómararnir Arn-ar Sigurjónsson og Svavar
Pétursson, sem stóðust alþjóðlegt
dómarapróf á síðustu leiktíð, hafa nú
fengið sitt fyrsta verkefni í Evr-
ópukeppninni í handknattleik. Þeir
hafa nú verið settir dómarar á báðar
viðureignir H.A.C. Handball frá
Frakklandi og Colegio Joao de Bar-
ros frá Portúgal í Evrópukeppni fé-
lagsliða í kvennaflokki, en leikirnir
fara fram í Frakklandi 23. og 24.
október.
Hollenski harðjaxlinn Nigel deJong er enn í fréttunum. Nú
hefur José Enrique, varnarmaður
Newcastle, lagt til að miðjumað-
urinn verði dæmdur í keppnisbann
sem standi þar til Hatem Ben Arfa,
sem hann fótbraut á sunnudaginn,
geti spilað fótbolta á ný. Frakkinn er
tvíbrotinn á fæti og verður vænt-
anlega frá keppni fram í mars. At-
vikið átti sér stað eftir nokkrar mín-
útur í leik Manchester City og
Newcastle á sunnudaginn.
Stjórn kvennaráðs knatt-spyrnudeildar Grindavíkur og
Gunnar Magnús Jónsson hafa kom-
ist að samkomulagi um að Gunnar
láti af störfum sem þjálfari Grinda-
víkur í Pepsideild kvenna en hann
hefur þjálfað liðið undanfarin 3 ár.
Grindavík hafnaði í 7.sæti í Pepsi-
deildinni á nýafstaðinni leiktíð.
Alex, brasilískivarnarmað-
urinn hjá Eng-
landsmeisturum
Chelsea, meiddist
undir lok leiksins
við Arsenal á
sunnudaginn og
nú er ljóst að
hann verður frá
keppni í einar þrjár vikur. Hann dró
sig í gær útúr brasilíska landsliðs-
hópnum en Brasilíumenn leika við
Íran á fimmtudag og Úkraínu á
mánudag. Ljóst er að auk landsleikj-
anna verður Alex ekki með Chelsea
gegn Aston Villa í fyrsta leik úrvals-
deildarinnar eftir landsleikjahléið,
og ekki heldur gegn Spartak
Moskva í Meistaradeild Evrópu.
Fólk folk@mbl.is
Jón Páll Pálmason hefur verið ráðinn þjálfari
kvennaliðs Fylkis í knattspyrnu til næstu þriggja
ára. Jón Páll þjálfaði karlalið Hattar í 2. deildinni
í sumar og undir hans stjórn hafnaði Egils-
staðaliðið í fjórða sæti deildarinnar en þar áður
þjálfaði hann yngri flokka FH með góðum ár-
angri.
Jón tekur við Fylkisliðinu af Birni Kristni
Björnssyni en hann hefur þjálfað Árbæjarliðið
undanfarin fjögur ár og hafnaði liðið í 5. sæti í
Pepsi-deildinni á nýafstaðinni leiktíð. „Mér líst
bari ansi vel á þetta starf og hlakka til. Það er
fínn efniviður til staðar hjá Fylki og margar stelpur sem hafa spil-
að með yngri landsliðunum. Fylkir hefur síðustu tvö árin endað um
miðja deild en nú er stefnan að taka næsta skref fram á við,“ sagði
Jón Páll í samtali við Morgunblaðið. gummih@mbl.is
Jón Páll þjálfar Fylki
Jón Páll
Pálmason
Íslandsmótið í körfuknattleik kvenna hefst í kvöld þegar heil umferð fer fram
í Iceland Express-deildinni. Alls eru átta lið í deildinni en Fjölnismenn eru
nýliðar í deildinni og taka sæti Vals sem féll síðastliðið vor.
Titilvörn KR hefst gegn Haukum á útivelli. Forráðamenn Hauka tóku þá
ákvörðun að segja upp samningi félagsins við bandaríska leikmanninn Alysha
Harvin og verður hún ekki með Haukum gegn KR. Liðin áttust við í árlegum
leik meistarar meistararanna í Stykkishólmi um síðustu helgi þar sem Ís-
landsmeistararar KR-inga höfðu betur en vesturbæjarliðinu er spáð öðru sæt-
inu í deildinni.
Grindvíkingar taka á móti nýliðum Fjölnis en danski leikmaðurinn Ida
Tryggedsson er farin frá Grindvíkingum eftir skamma dvöld þar á bæ. Ham-
ar, sem lék til úrslita gegn KR um titilinn sl. vor, tekur á móti Snæfelli úr
Stykkishólmi.
Í Njarðvík verður sannkallaður Suðurnesjaslagur þar sem Keflavík kemur í
heimsókn í „Ljónagryfju“ Njarðvíkinga. Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19.30.
seth@mbl.is
KR sækir Hauka heim
Svo getur farið að Guðjón Þórðarson
verði ráðinn næsti þjálfari karlaliðs
KA í knattspyrnu. Bjarni Áskelsson,
formaður knattspyrnudeildar KA,
segir á vef KA að félagið hafi átt við-
ræður við Guðjón og áhugi sé fyrir
hendi hjá knattspyrnudeildinni að
ráða hann til starfa. Englending-
urinn Dean Martin hefur stýrt Ak-
ureyrarliðinu undanfarin ár en
ákveðið var að fram-
lengja ekki samn-
inginn við hann.
Guðjón gerði KA-
menn að Íslands-
meisturum árið 1989
en það er í eina
skipti sem KA hefur
hampað titlinum eft-
irsótta. gummih@mbl.is
Guðjón
Þórðarson
KA í viðræðum við Guðjón
Dagur Sigurðsson skrifaði í gær
undir nýjan samning um að þjálfa
þýska handknattleiksliðið Füchse
Berlín fram á mitt árið 2013.
Dagur tók við þjálfun liðsins í
fyrrasumar og náði athyglisverðum
árangri á síðustu leiktíð. Á nýhaf-
inni leiktíð hefur allt leikið í lyndi
hjá Degi og Füchse-liðinu. Það er
hið eina taplausa í deildinni þegar
sex umferðir eru að
baki.
Með Berlínarlið-
inu leikur landsliðs-
maðurinn Alexander
Petersson en hann
kom til liðsins frá
Flensburg í sumar
og hefur styrkt það
verulega. iben@mbl.is
Dagur
Sigurðsson
Dagur samdi við Füchse Berlín