Morgunblaðið - 06.10.2010, Qupperneq 4
VIÐTAL
Sigurður Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
„Jú, það er rétt, ég er langelstur í
þessu liði, þrátt fyrir að vera „að-
eins“ 29 ára gamall. Svona er þetta
bara en ég er nokkuð bjartsýnn á að
veturinn verði ekki eins slæmur og
margir hafa spáð. Það hafa fáir trú á
okkur en heimavöllurinn verður
áfram okkar sterkasta vígi,“ segir
hinn þaulreyndi bakvörður Tinda-
stóls, Friðrik Hrein Hreinsson.
Tindastóll endaði í 7. sæti deild-
arinnar í fyrra en tapaði í 1. umferð
gegn Keflavík í úrslitakeppninni.
„Við erum í svipaðri stöðu núna og
í fyrra, leikmannahópurinn er nán-
ast nýr, og það voru engir íslenskir
leikmenn sem vildu koma á Sauð-
árkrók til þess að spila. Við erum því
með fjóra erlenda leikmenn og við
því er ekkert að gera. Maður hefur
auðvitað heyrt að liðið okkar sé ein-
göngu skipað útlendingum en fyrir
okkur skiptir það engu máli. Íslend-
ingar eða útlendingar, ef þeir kunna
að spila körfubolta og eru góðir liðs-
félagar þá erum við sáttir,“ sagði
Friðrik sem starfar sem lög-
regluþjónn á Sauðárkróki.
Nóg að gera
Hvernig fer það saman að vera í
vaktavinnu og stunda körfuboltaæf-
ingar?
„Ég er með sem betur fer frábæra
samstarfsfélaga og yfirmann. Við
látum þetta ganga upp og ég er
þakklátur fyrir það. Ég er einnig að
starfa sem einkaþjálfari samhliða
lögreglustarfinu og það er því nóg að
gera.“
Eins og áður segir verða fjórir er-
lendir leikmenn í Tindastóls liðinu
og tveir þeirra mættu á svæðið á
mánudag á fyrstu æfinguna.
„Þetta er í raun mjög eðlilegt
ástand fyrir okkur sem lið. Svona
hefur þetta verið undanfarin haust.
Útlendingarnir koma seint og við
verðum eflaust að slípa leik okkar
fram eftir vetri.“
Ánægður með þjálfarann
Makedóníumaðurinn Borce Ili-
veski er þjálfari Tindastóls en hann
tekur við af Karli Jónssyni sem
þjálfað liðið í eitt tímabil. Karl og
Borce eiga það báðir sameiginlegt
að hafa báðir þjálfað KFÍ á Ísafirði.
Borce kom KFÍ upp í efstu deild sl.
vor og var kjörinn þjálfari ársins í 1.
deild á lokahófi KKÍ. Friðrik segir
að Borce Iliveski hafi komið með
nýjar áherslur í leik Tindastóls.
„Ég held ég geti fullyrt að hann
er mjög skipulagður og veit hvað
hann ætlar að gera. Leikstíll okkar
verður án efa mun agaðri en áður ég
fæ eflaust ekki að dúndra ein-
hverjum þriggja stiga skotum úr
vonlausum færum,“ sagði Friðrik og
hló.
„Mér líst ljómandi vel á Borce.
Hann hefur mikla reynslu og hann
er einnig að stýra barna- og ung-
lingastarfinu hjá okkur. Það er horft
til framtíðar með ráðningu hans.
Samningur til þriggja ára og ég á
ekki von á öðru en að þetta eigi eftir
að ganga vel í vetur.“
„Langelstur í liðinu“
Lögreglumaðurinn Friðrik Hreinn Hreinsson blæs á alla spádóma og telur að
Tindastóll verði áfram í hópi bestu liða landsins Miklar breytingar á liðinu
Ljósmynd/Hjalti Árnason
Elstur Friðrik Hreinn Hreinsson, lögreglumaður á Sauðárkróki, getur ekki neitað þeirri staðreynd að hann er elsti leikmaðurinn í liði Tindastóls.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2010
Sigurður Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Stuðningsmenn Tindastóls á Sauðárkróki
þurfa enn og aftur að læra helling af nýjum
nöfnum í upphafi keppnistímabilsins. Stál-
minni og góð „sveifla“ er reyndar eitt af
helstu einkennum Skagfirðinga og þeir
kippa sér eflaust ekki mikið upp við að sjö
leikmenn eru horfnir á braut úr liðinu sem
náði 7. sætinu á síðustu leiktíð.
Það vita fáir hvar Tindastólsliðið stendur
í samanburði við önnur lið. Ástæðan er ein-
föld. Liðið hefur ekki verið fullskipað á
undirbúningstímabilinu og ágústmánuður
hefur eflaust verið erfiður fyrir Borce
Ilievski, þjálfara liðsin,s og þá fáu leik-
menn sem eru búsettir á Sauðárkróki.
Hinsvegar gæti allt gengið liðinu í hag ef
það nær að stilla saman strengi sína þegar
líður á tímabilið. Tveir erlendir leikmenn
komu til landsins í byrjun vikunnar og þeir
fá ekki mikinn tíma til þess að aðlagast
fyrir fyrsta leikinn gegn nýliðum KFÍ á
Ísafirði. Samkvæmt þeim samtölum sem ég
hef átt við forsvarsmenn Tindastóls er ljóst
að það heillar ekki marga Íslendinga að
leika í efstu deild á Sauðárkróki. Forsvars-
menn liðsins ræddu við nánast alla leik-
stjórnendur landsins sem geta dripplað
tvisvar í röð með vinstri – en niðurstaðan
var eins og oft áður. Það hafði enginn
áhuga. Vandamálið er því leyst með því að
fá erlenda leikmenn í þær stöður sem þarf
að fylla. Og þessa hringekju hafa Tinda-
stólsmenn oft farið í á undanförnum árum.
Í Tindastólsliðinu eru nokkrir burðarásar
sem kunna sitt fag og hafa reynslu. Má þar
nefna Friðrik Hreinsson, Helga Rafn
Viggósson og nafna hans Frey Margeirs-
son.
Eins og oft áður veltur gengi Tindastóls
á getu þeirra erlendu leikmanna sem komu
í haust. Og eru þeir eins og svo margt ann-
að á Íslandi – óskrifað blað.
Ljósmynd/Hjalti Árnason
Þjálfarinn Borce Iliveski er þaulreyndur
þjálfari en hann var áður hjá KFÍ.
Nánast allt nýtt á hverju hausti
Alls hafa 7leikmenn úr
15 manna æf-
ingahóp Tinda-
stóls horfið á
braut. Einn
reyndasti leik-
maður liðsins, Ax-
el Kárason, fór
til Danmerkur í
nám í dýralækningum. Og enn
reyndari leikmaður, Svavar Birg-
isson, er hættur. Svavar skoraði
rúmlega 16 stig að meðaltali í leik á
síðasta tímabili og Axel var einn
sterkasti varnarmaður liðsins.
Sigmar Logi Björnsson, efnilegurleikstjórnandi liðsins, gekk í
raðir Keflvíkinga. Sveinbjörn Skúla-
son verður ekki með liðinu í vetur.
Einn besti bandaríski leikmað-urinn sem leikið hefur á Ís-
landi, Cedric Isom, lék með Tinda-
stól í 11 síðustu leikjum liðsins á
síðustu leiktíð. Hann skoraði 26,4
stig a meðaltali og tók að auki 7 frá-
köst í leik og gaf 8 stoðsendingar.
Isom skilur eftir sig skarð sem verð-
ur vandfyllt.
Í liði Tindastólseru fjórir er-
lendir leikmenn.
Bandaríkjamað-
urinn Josh Ri-
vers verður leik-
stjórnandi liðsins
en hann er ný-
kominn til lands-
ins. Um helgina
fengu Tindastóls-
menn miðherja frá Búlgaríu, Rados-
lav Kolev, en hann er um 2 metrar
og sterklega byggður. Serbinn Dra-
goljub Kitanovic er enn hærri en
Kolav, eða 2.05 metrar. Dimitar Pet-
rushev er 21 árs gamall bakvörður
en hann kemur líkt og þjálfarinn frá
Makedóníu.
Besti árangur Tindastóls í úrvals-deild er 2. sætið en liðið tapaði
gegn Njarðvík, 3:1, í úrslitum Ís-
landsmótsins árið 2001. Valur Ingi-
mundarson var þjálfari Tindastóls á
þeim tíma. Tindastóll komst í undan-
úrslit árið 2003 en liðið tapaði 3:2
gegn Grindavík. Kristinn Frið-
riksson var þjálfari Tindastóls á
þeim tíma.
Borce Iliveski er aðeins níundiþjálfarinn hjá Tindastól í efstu
deild. Borce er fjórði erlendi þjálf-
arinn og sá fyrsti frá árinu 1996-
1997. Hinir þrír eru Milan Rozanek
(1990-1991), Petar Jelic (1993-1994),
Agoston Nagy (1996-1997). Valur
Ingimundarson, Kári Marísson, Páll
Kolbeinsson, Kristinn Friðriksson
og Karl Jónsson hafa einnig þjálfað
liðið.
Josh Rivers (Bandar.) 23 ára Bakvörður (1,86 m)
Dragoljub Kitanovic (Serb.) 25 ára Miðherji (2,05 m)
Dimitar Petrushev (Maked.) 21 árs Bakvörður (1,89 m)
Friðrik Hreinn Hreinsson 29 ára Bakvörður (1,85 m)
Hreinn Gunnar Birgisson 21 árs Framherji (1,90 m)
Halldór Halldórsson 21 árs Bakvörður (1,87 m)
Helgi Freyr Margeirsson 28 ára Bakvörður (1,90 m)
Pálmi Geir Jónsson 17 ára Framherrji (1,95 m)
Guðmundur Guðmundsson 17 ára Bakvörður (1,87 m)
Loftur Páll Eiríksson 18 ára Bakvörður (1,85 m)
Einar Bjarni Einarsson 18 ára Bakvörður (1,87 m)
Helgi Rafn Viggósson 27 ára Miðherji (1,92 m)
Þorbergur Ólafsson 18 ára Bakvörður (1,80 m)
Radoslav Kolev (Búlgaría) 26 ára Miðherji (2,00 m)
Leikmannahópurinn
TINDASTÓLL VETURINN 2010-2011