Morgunblaðið - 09.10.2010, Síða 3
uleik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
aj Inge var góður í lið Hauka í gær.
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
bergsson lék vörnina af krafti gegn
í Ljónagryfjunni í gær.
VIÐTAL
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Það er fínt að vera kominn aftur
inn í hópinn. Það var óvissuástand
hjá mér í sumar en gott að vera
núna kominn með sín mál á hreint
og vera kominn af stað aftur,“ sagði
Eiður Smári Guðjohnsen við Morg-
unblaðið fyrir fyrstu æfingu A-
landsliðsins í undirbúningi þess fyr-
ir stórleikinn gegn Portúgölum í
undankeppni Evrópumótsins sem
fram fer á Laugardalsvellinum á
þriðjudag.
Eiður var ekki valinn í leik-
mannahópinn fyrir leikina gegn
Norðmönnum og Dönum en á þeim
tímapunkti var hann á milli liða en
er nú samningsbundinn enska úr-
valsdeildarliðinu Stoke City.
Nú ert þú búinn að æfa með
Stoke í rúman einn mánuð. Ert þú
ekki að komast í ágætt form?
„Ég er bara í nokkuð góðu standi.
Ég hefði viljað vera búinn að spila
einn til tvo heila leiki en þeir
koma,“ sagði Eiður, sem lék síðast
með landsliðinu vináttuleik gegn
Liechtenstein um miðjan ágústmán-
uð. Hann hefur komið við sögu í
tveimur leikjum með Stoke frá því
hann gekk í raðir félagsins í byrjun
september en í báðum leikjunum
kom hann inn á sem varamaður.
Hvernig líst þér á þetta verkefni
gegn Portúgal?
„Við erum að mæta einni sterk-
ustu knattspyrnuþjóð heims sem
hefur í sínum röðum frábæra knatt-
spyrnumenn. Án þess að hafa séð
leiki okkar á móti Noregi og Dan-
mörku finnst mér súrt að við skul-
um ekki vera með stig. Það er gam-
an að fólk er spennt fyrir leiknum
og það er eðlilegt því hingað er að
koma væntanlega einn besti knatt-
spyrnumaður heims í dag. Þá er ég
tala um mig,“ sagði Eiður og rak
upp hlátur á KR-vellinum þar sem
landsliðið æfði í gær.
Hver er þín skoðun á málefnum
A-landsliðsins og U21 ára landsliðs-
ins sem hafa verið mjög til umræðu
síðustu dagana?
„Ég hef mjög sterkar skoðanir á
því en ég ætla ekki að tjá mig um
þær við fjölmiðla. Þessi leikur hjá
U21 ára liðinu er búinn og við höf-
um um annað að hugsa. Það breytir
engu hvað mér finnst og mikilvæg-
ast er að við undirbúum okkur vel
fyrir leikinn á þriðjudag. Þetta á
ekki að skipta neinu máli. Menn eru
valdir í landsliðshóp og ættu að
þjappa sér saman sama hvert
ástandið er. Það eitt að við séum að
spila við Portúgal þar sem uppselt
er á leikinn er nóg.“
Ert þú tilbúinn að spila í 90 mín-
útur? „Jú, þess vegna er ég kominn
í hópinn svo er það undir þjálf-
aranum komið hvað hann ákveður.
Ég er mættur til að taka þátt í
leiknum hvort sem það verður í 90
mínútur, 100 mínútur eða 15 mín-
útur. Ég er tilbúinn að fórna mér
fyrir liðið,“ sagði Eiður, sem leikur
sinn 63. landsleik á þriðjudaginn.
Morgunblaðið/Ernir
Mættur í slaginn Eiður Smári Guðjohnsen vildi ekki tjá sig um ákvörðun stjórn-
ar KSÍ að veita U21 árs landsliðnu forgang á A-landsliðið fyrir leikinn gegn
Portúgal á þriðjudag. Eiður hefur sterkar skoðanir á ákvörðun KSÍ.
Tilbúinn að fórna
mér fyrir liðið
Létt yfir Eiði Smára Guðjohnsen á fyrstu æfingu A-landsliðsins
geysilega skemmtilegur leikmaður,
frábær í sókn og lék góða vörn á móti
Sean Borton. Magni Hafsteinsson
sýndi „gamla“ takta og átti flottan leik
og Ben Stywall á örugglega eftir að
nýtast liðinu vel í vetur, lætur kannski
ekki mikið yfir sér en skilar sínu og er
bæði duglegur og óeigingjarn.
Hjá Snæfelli var Ryan Amoroso,
sem sást vart í úrslitaleik Lengjubik-
arsins á dögunum, mjög sterkur og
þeir Pálmi Freyr Sigurgeirsson og
Jón Ólafur Jónsson skiluðu sínu að
vanda.
eyrt“
aliðs Snæfells
tap 102:97
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Ef að líkum lætur kemur það í hlut Indriða Sig-
urðssonar að þurfa að kljást við Cristiano Ro-
naldo þegar Íslendingar mæta Portúgölum í und-
ankeppni EM á Laugardalsvellinum á
þriðjudaginn. Ronaldo og samherjar hans koma
til landsins annað kvöld en þessi einn af bestu fót-
boltamönnum heimsins er aftur kominn í sitt
besta form eftir að hafa náð sér af meiðslum.
„Ég óttast ekkert að mæta Ronaldo. Hann er
mannlegur eins og allir aðrir en ég er svona að
reyna að spá ekkert of mikið í þetta núna. Ég tek
bara á því þegar að því kemur. Ronaldo er vissu-
lega frábær leikmaður og þeir
eru það margir í portúgalska
liðinu. Það þarf að taka vel á
mönnum eins og Ronaldo og
menn mega ekki hræðast hann.
Ef þú réttir honum litla puttann
þá tekur hann alla höndina en
ég býst við að fá góða hjálp til
að eiga við hann,“ sagði Indriði
við Morgunblaðið á æfingu
landsliðsins á KR-vellinum í
gær.
Yrðir þú sáttur að fá eitt stig út úr þessum leik?
„Það er erfitt að segja og fer eftir því hvernig
leikurinn þróast. Ég tel ósanngjarnt að við skul-
„Óttast ekkert að mæta Cristiano Ronaldo“
Indriði
Sigurðsson
um ekki vera komnir með nein stig miðað við
spilamennsku okkar í tveimur fyrstu leikjunum
en vissulega munum við reyna að taka þrjú stig
gegn Portúgölunum þó að um topplið sé að
ræða.“
Nú hafa orðið mikil aföll úr hópnum frá síðustu
leikjum en treystir þú þessum hópi til að standa
uppi í hárinu á Portúgölum?
„Það er stutt síðan þessir strákar úr 21 árs lið-
inu komu inn í A-landsliðshópinn og þeir stóðu sig
frábærlega gegn Skotunum. Í þessum hópi okkar
í dag eru leikmenn sem hafa spilað lengur saman
og það kemur maður í manns stað. Þetta er fínn
hópur sem við höfum og ég veit að við munum
þjappa okkur vel saman í þetta erfiða verkefni,“
sagði Indriði.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2010
Edwin vander Sar,
markvörður
Manchester
United, vísar
þeim fregnum á
bug að hann sé
líklegur til að
leggja hanskana
á hilluna næsta
sumar. Hollendingurinn verður fer-
tugur síðar í mánuðinum en hann
hefur staðið á milli stanganna hjá
United frá árinu 2005. ,,Þetta er al-
gjör vitleysa. Ég veit ekki hvaðan
þessar fréttir komu,“ sagði van der
Saar við hollenska netmiðilinn
Sportpromotion.
Ein viðureign í 32-liða úrslitumbikarkeppni HSÍ, Eimskips-
bikarnum, verður á milli liða úr úr-
valsdeild karla. Þá mætast HK og
Akureyri í Digranesi. Dregið var til
32-liða úrslita keppninnar í hádeg-
inu í gær en leikir fara fram 17. og
18. október. Bikarmeistarar Hauka
og silfurliðið, Valur, sitja yfir í þess-
ari umferð. Leikir 32-liða úrslitanna
verða eftirfarandi: Hamrarnir -
Fjölnir, Árborg - ÍR2, Hörður -
Stjarnan, Grótta2 - Grótta, Aftur-
elding2 - Víkingur, Haukar - HKR,
ÍBV - ÍR, ÍBV2 - Spyrnir, Völsung-
ur2 - Selfoss, KS - Fram, HK - Ak-
ureyri, Stjarnan2 - Afturelding, Völ-
sungur - FH, FH2 - Valur2.
Tap á rekstrienska knatt-
spyrnufélagsins
Manchester
United nam 83,6
milljónum punda
á síðustu leiktíð,
jafnvirði nærri
14,6 milljarða
króna. Mikil um-
skipti hafa orðið á rekstri félagsins
frá árinu á undan en þá nam hagn-
aðurinn 25,5 milljónum punda, að-
allega vegna sölunnar á Christiano
Ronaldo til spænska liðsins Real
Madrid fyrir 80 milljónir punda.
Íslensk knattspyrnufélög sem lékuí efstu deild í sumar fá um 40
milljónir króna í sinn hlut frá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA, til
eflingar barna- og unglingastarfs, en
um er ræða hluta af tekjum UEFA
af Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu leiktíðina 2009-2010. Að við-
bættu framlagi Knattspyrnu-
sambands Íslands renna nú um 90
miilljónir króna til knattspyrnu-
félaga víðsvegar um landið. Stjórn
KSÍ hefur samþykkt að leggja til um
50 milljónir króna til viðbótar sem
skiptast á milli aðildarfélaga í öðrum
deildum en skipting á framlagi til
barna- og unglingastarfs verður þá
með þeim hætti að félög úr Pepsi-
deild fá 3.400.000 kr. sem er framlag
UEFA, félög úr 1. deild fá 1.600.000
kr., félög í 2. deild karla fá 1.100.000
kr. hvert, önnur félög í deildar-
keppni 800.000 kr. og félög utan
deildarkeppni 250.000 kr. Úthlutun
er háð því að félög haldi úti starf-
semi í yngri flokkum.
Fólk sport@mbl.is