Morgunblaðið - 02.11.2010, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010
Þýski sýningarstjórinn Ellen
Blumenstein hefur verið ráðin til að
stýra sýningu listamannatvíeykisins
Ólafs Ólafssonar og Libiu Castro sem
verða fulltrúar Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum á næsta ári.
Blumenstein mun starfa með þeim að
mótun verksins, sem þau sýna, og
mun fylgja sýningunni úr hlaði.
Blumenstein, sem er virt fyrir störf
innan samtímalistarinnar, hitti Ólaf
fyrst í Brasilíu fyrir þremur árum og
þar hófust kynni sem hafa leitt til
þessa samstarfs. Í tilkynningu segir
hún að það hafi þurft hugrekki til að
velja Ólaf og Libiu til að vera fulltrú-
ar Íslands, sérstaklega á þessum tím-
um í kjölfar efnahagshruns. Ólafur og
Libia fjalla í verkum sínum um fé-
lagsleg og stjórnmálaleg efni og brýt-
ur umfjöllunin að mörgu leyti í bága
við ímynd íslenskrar samtímalistar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Feneyjafararnir Libia og Ólafur.
Vinnur
með Ólafi
og Libiu
Blumenstein ráðin
sem sýningarstjóri
Hans Jóhannsson
fiðlusmiður og
sex aðrir íslensk-
ir hönnuðir sýna
um þessar mund-
ir í New York, á
sýningunni Nor-
dic Models +
Common Gro-
und, sem opnuð
var í Scandinavia
House í liðinni
viku. Auk Hans taka þátt þau
Bjargey Ingólfsdóttir með „bara
Design“, iðnhönnuðirnir Fanney
Antonsdóttir og Dögg Guðmunds-
dóttir, Katrín Ólína hönnuður,
landslagsarkitektastofan Landslag
og vöru- og iðnhönnun Studiobility.
Sýnd eru verk framsækinna nor-
rænna hönnuða.
Fiðlusmiður
og hönnuðir
Hans
Jóhannsson
Steinunn Kristjánsdóttir, dós-
ent í fornleifafræði við Þjóð-
minjasafn Íslands og Háskóla
Íslands, mun í dag, þriðjudag-
inn 2. nóvember, flytja erindi
um fornleifauppgröft sem hef-
ur staðið yfir á rústum Skriðu-
klausturs í Fljótsdal frá árinu
2002. Fyrirlesturinn hefst í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafns-
ins kl. 12.05. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á rústum
Skriðuklausturs frá árinu 2002. Lokið hefur verið
við að grafa upp um 1.300 fermetra af rústum
klaustursins, ásamt kirkju og klausturgarði, tæp-
lega 200 grafir og skrá um 13 þúsund gripi.
Fornleifafræði
Uppgröfturinn á
Skriðuklaustri
Steinunn
Kristjánsdóttir
Annað kvöld, miðvikudag,
klukkan 20 er Handverkskaffi í
Gerðubergi. Þetta kvöld kynnir
Jeab (Siriworraluck Boonsart)
austurlenska blómagerð úr vír
og nælonsokkum. Kostir
blómarósa af þessari gerð eru
ótvíræðir, þær standa lengi og
óþarft er að vökva þær.
Hráefni til blómagerðar
verður á staðnum og gestir fá
að reyna sig undir handleiðslu
Jeab. Möguleikarnir til blómasköpunar með þess-
ari aðferð eru nánast óþrjótandi þar sem ímynd-
unaraflið er eina hindrunin.
Jeab er frá Taílandi. Hún hefur verið búsett hér
á landi um árabil og starfar hjá ÍTR.
Handverk
Blómarósir úr vír
og nælonsokkum
Rós úr vír og
næloni eftir Jeab.
Myndlistarkonan Erla Magna
Alexandersdóttir hefur opnað
sýningu á málverkum sínum í
Kaffi Mílanó í Faxafeni. Á sýn-
ingunni eru málverk sem lista-
konan hefur málað með akrýl-
og olíulitum og eru af ýmsum
stærðum. Hluti myndanna er
sóttur í náttúru og landslag en
hinn hlutinn er abstrakt; Erla
vinnur mikið með spaða og
rennir litunum til.
Erla hefur numið myndlist í Myndlistaskóla
Reykjavíkur, í Flórens á Ítalíu og í Salzburg í
Austurríki. Hún hefur tekið þátt í samsýningu í
Salzburg og haldið margar sýningar hér á landi.
Sýningin stendur út nóvember.
Myndlist
Erla Magna sýnir
í Kaffi Mílanó
Erla Magna
Alexandersdóttir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
„Stóru tíðindin frá Máli og menn-
ingu eru ný skáldsaga eftir Braga
Ólafsson,“ segir Silja Aðalsteins-
dóttir, útgáfustjóri Máls og menn-
ingar, spurð um þau íslensku skáld-
verk sem forlagið gefur út þetta
árið. „Bragi er búinn að vera með
þessa bók í smíðum í fjögur ár og
hún ber hið langa nafn Handritið að
kvikmynd Arnar Featherby og Jóns
Magnússonar um uppnámið á veit-
ingahúsinu eftir Jenný Alexson.
Þetta er ótrúlega fyndin bók, og
persónurnar eru ekkert venjulegar
skáldsagnapersónur. Þessi bók
tengist síðustu bók Braga, Sendi-
herranum, nokkuð mikið og þar
koma fyrir sömu persónur.“
Sögukaflar af Einari
Einar Kárason sendir frá sér nýja
bók Mér er skemmt. „Þetta eru
sögukaflar af Einari sjálfum, þar
sem hann skiptir ævi sinni upp í
þemu,“ segir Silja. „Hann fjallar
meðal annars um menntun sína, al-
veg frá Ísaksskóla, afskipti af kvik-
myndalist og félagsmálastörf, þar á
meðal fyrir Rithöfundasambandið.
Einar er einlægur í þessum sögum
og segir glaðhlakkalega frá sigrum
og ósigrum. Bókin er afskaplega
skemmtileg aflestrar. Einar hefur
gefið manni margar persónur í
gegnum skáldverk sín, en þarna
verður hann sjálfur heimilismaður
hjá manni.“
Ófeigur Sigurðsson sendir frá sér
Skáldsöguna um Jón sem hann hef-
ur unnið að í nokkur ár.
Skáldsagan um Jón
„Þetta er söguleg skáldsaga sem
gerist árið 1755 þegar Jón Stein-
grímsson, síðar nefndur eldklerkur,
flæmdist norðan úr landi, sakaður
um að hafa drepið fyrri eiginmann
konu sinnar. Ásamt bróður sínum
settist hann að í helli í Mýrdal,
Katla gýs eldi og eimyrju og ástand-
ið er hroðalegt á Suðurlandi, en þar
situr Jón í hellinum og skrifar konu
sinni. Þetta er viðburðarík bréfa-
saga og afar sjarmerandi. Ég er
spennt að vita hvernig þessari bók
verður tekið því það er ekki algengt
að ungir höfundar leggi á sig jafn
mikla rannsóknarvinnu og Ófeigur
gerði fyrir þessa bók.“
Spánnýr höfundur
Allt fínt … en þú? er ný og hressi-
leg skáldsaga eftir Jónínu Leósdótt-
ur. „Jónína talaði við mig fyrir um
tveimur árum og sagði að sig lang-
aði til að skrifa konubók um venju-
legt fólk og amstur þess í dagsins
önn. Það hefur hún gert og tekst
svona ljómandi vel upp,“ segir Silja.
„Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir
er svo spánnýr höfundur. Bókin
hennar, Stolnar raddir, er um
stúlku sem á sér uppáhaldsmynd af
ömmu og afa, trúlofunarmyndina af
þeim. Myndin skekkist í ramma og
þegar stúlkan ætlar að laga hana
finnur hún á bak við hana mynd af
ömmu með öðrum manni. Þegar hún
fer að rýna í myndirnar sér hún að
amman er hamingjusamari á mynd-
inni með hinum manninum.
Hugrún vefur inn í söguna af
stelpunni í samtímanum sögu ömmu
og afa í fortíðinni, það fólk reynist
eiga allt aðra sögu en hún hélt.
Þetta er fallega unnin saga hjá
Hugrúnu. Ég féll sérstaklega fyrir
aðalpersónunni í sögunni, sem er
mátulega lygin, lausgyrt og drykk-
felld!“
Reynslubolt-
ar og nýir
höfundar
Forvitnileg skáldverk íslenskra höf-
unda koma frá Máli og menningu
Morgunblaðið/RAX
Útgáfustjórinn „Stóru tíðindin frá Máli og menningu eru ný skáldsaga eftir
Braga Ólafsson,“ segir Silja Aðalsteinsdóttir um nýju skáldverkin.
Dýrin í Saigon og ljóð
» Í vor gaf Mál og menning út
söguna Dýrin í Saigon eftir
Sigurð Guðmundsson mynd-
listarmann og ljóðabækur árs-
ins eru eftir Jóhannes úr Kötl-
um (Ljóðaúrval), Berg Ebba
Benediktsson, Anton Helga
Jónsson og Gerði Kristnýju.
En hér gefst tækifæri
til að njóta þessara
gæðamynda á ný á breið-
tjaldi.30
»
Íþessari stuttu en haganlegaskrifuðu nóvellu, Svar viðbréfi Helgu, vinnur Berg-sveinn Birgisson með eitt
elsta form skáldsögunnar, bréfasög-
una, og er líka æði hefðbundinn hvað
söguefni og sviðið varðar; þetta er
ástarsaga úr
sveit. Að auki er
ekkert verið að
fela fyrir lesand-
anum í upphafi
hvernig fer. Til-
einkun í ljóð Stef-
áns Harðar
Grímssonar, Þau,
um elskendur
sem ganga sinn
veginn hvort,
segir sitt. Enda kemur strax í ljós að
gamli bóndinn sem skrifar bréfið til
gamallar ástkonu, er að velta fyrir
sér því sem gerðist og því sem hefði
getað orðið, hefði hann tekið aðrar
ákvarðanir en hann gerði.
Þetta er persónuleg örlagasaga og
lesandinn er hrifinn með í sveitina
að hitta þetta fólk. Persónur lifna í
upprifjun bóndans og tilfinning-
arnar eru margbreytilegar; sárar í
uppgjörinu, heitar þegar ástarbrím-
inn heltekur fólkið, og svo er það eft-
irsjáin sem litar alla frásögnina.
Stór þáttur í því hvað Svar við
bréfi Helgu er vel lukkað verk, felst í
vönduðum, liprum og lifandi stíl
Bergsveins. Höfundur þekkir sögu-
heiminn og skilur þau verkefni sem
bóndinn þarf að takast á við, hvort
sem þau snúast um að sinna fólki eða
skepnum í fámenninu, eða þær til-
finningar sem bóndinn ber til lands-
ins sem hann hefur hlotið í arf. Hlýj-
an í textanum er blönduð
góðlátlegum húmor, og að auki er
brugðið upp bráðfyndnum senum,
senum sem minna á stundum á
sagnafléttur Jóns Kalmans Stef-
ánssonar úr Dalaþríleiknum.
Dæmi um það er leifrandi vel skrif-
aður kafli þar sem því er lýst
hvernig bóndi er bjó afskekkt, bjó
um lík konu sinnar í reykkofa. Sem
dæmi um galsafenginn og vel unn-
inn stílinn má síðan nefna senu þar
sem lýst er þeim leik bónda og ást-
konu að hann þuklar hana bak við
vélageymslu eins og forða-
gæslumaður þuklar hrút: „Þú
baðst mig skoða þig, og ég þuklaði
geislungana á þér og fann hvergi
hnota á og síðan hvert rifið á fætur
öðru, og fyllingu hryggjar, þá
mjaðmagrindina og lærin niður á
hækilinn svo þú titraðir sem ösp í
vindi, þreifaði þig með munúðar-
fingrum og kannaði nákvæmlega út-
legur á brjóstkassa og bringufyll-
ing.“ (51)
Kjartan Hallur myndskreytir
bókina með vinjettum í upphafi
nokkurra kafla og með tveimur heil-
síðumyndum. Myndirnar eru vand-
aðar og kallast á við efnið á áhuga-
verðan hátt, þótt sumar jaðri við að
vera of sætlegar fyrir sögusviðið.
Svar við bréfi Helgu er ekki stór
bók en hún segir forvitnilega sögu
og er afar vel skrifuð.
„... þuklaði geislungana á þér og fann hvergi hnota á...“
Svar við bréfi Helgu bbbbn
Eftir Bergsvein Birgisson.
Bjartur 2010. 106 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
SKÁLDSAGA
Bergsveinn
Birgisson