Morgunblaðið - 09.11.2010, Side 1

Morgunblaðið - 09.11.2010, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2010 íþróttir Handbolti Guðmundur Þórður Guðmundsson er að gera flotta hluti með þýska handboltaliðið Rhein-Neckar Löwen. Lærisveinar Guðmundar tróna í toppsæti deildarinnar 3 Íþróttir mbl.is Hjörtur Logi Valgarðsson leikmaður FH og U21 ára lands- liðsins í knatt- spyrnu er kom- inn til Svíþjóðar þar sem hann verður til skoð- unar hjá sænska úrvalsdeildarlið- inu Helsingborg út þessa viku. Hjörtur mætti á sína fyrstu æfingu með liðinu í gær en Helsinborg rétt missti af meist- aratitlinum. Liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar sem lauk í fyrra- kvöld, varð tveimur stigum á eftir Malmö. Hjörtur var á dögunum við æfingar hjá Viking í Noregi og þá hafa fleiri lið sýnt bakverðinum sterka áhuga. gummih@mbl.is Hjörtur til skoðunar hjá Helsingborg Hjörtur Logi Valgarðsson Markverðir: Gunnleifur Gunnleifsson, FH Árni Gautur Arason, Odd Varnarmenn: Hermann Hreiðarsson, Portsmouth Indriði Sigurðsson, Viking Kristján Ö. Sigurðsson, Hönefoss Grétar Rafn Steinsson, Bolton Birkir Már Sævarsson, Brann Ragnar Sigurðsson, Gautaborg Sölvi Geir Ottesen, FC Köbenhavn Miðjumenn: Aron Einar Gunnarsson, Coventry Ólafur Ingi Skúlason, SönderjyskE Rúrik Gíslason, OB Jóhann Berg Guðmundsson, AZ Alkmaar Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts Birkir Bjarnason, Viking Gylfi Þór Sigurðsson, Hoffenheim Sóknarmenn: Kolbeinn Sigþórsson, AZ Alkmaar Alfreð Finnbogason, Breiðabliki Landsliðs- hópurinn Ljósmynd/Craig Watson Í hópnum Knattspyrnumaðurinn efnilegi Gylfi Þór Sigurðsson verður eflaust í eldlínunni þegar Ísland sækir Ísrael heim í æfingaleik 17. nóvember. Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari teflir fram sterku liði gegn Ísraels- mönnum en hann valdi í gær 18 manna hóp sem mætir Ísrael í vin- áttuleik í Tel Aviv þann 17. þessa mánaðar og koma leikmennirnir sjö sem spiluðu með U21 ára liðinu gegn Skotum allir inn í hópinn á nýjan leik. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í landsliðshópnum að þessu sinni og heldur ekki Heiðar Helguson en Heiðar boðaði forföll þar sem hann hefur átt við meiðsli að stríða und- anfarnar vikur og hefur ekki getað spilað með QPR. Ólafur ákvað að velja Alfreð Finn- bogason í hans stað en Alfreð fór á kostum með Ís- landsmeisturum Breiðabliks í sumar. Eiður hefur átt erfitt uppdráttar hjá Stoke frá því hann kom til liðsins í september en spurður hvers vegna hann hafi ekki verið valinn í hópinn sagði Ólafur: „Ég ákvað sleppa Eiði að þessu sinni því mér fannst tilvalið að gefa fleiri yngri leikmönnunum tækifæri til að spreyta sig í þessum leik. Við erum að horfa til framtíðar og hver leikur sem þessir ungu menn spila með A-landslið- inu er dýrmæt reynsla fyrir þá,“ sagði Ólafur í samtali við Morg- unblaðið. Þetta verður þriðji landsleikur þjóðanna en árið 1992 mættust þær í tveimur leikjum. Í þeim fyrri sem háður var í Ísrael varð jafntefli, 2:2, þar sem bræðurnir Sigurður og Arn- ar Grétarssynir gerðu mörk Íslands en Ísraelsmenn höfðu betur á Laug- ardalsvellinum í seinni leiknum, 2:0. „Það er mjög fínt að fá þetta verk- efni og ég er ánægður að geta teflt fram jafnsterku liði og raun ber vitni. Ég þekki vel til þessara leik- manna sem eru í hópnum enda hafa þeir allir leikið meira eða minna undir minni stjórn. Það var erfitt að ætla að velja fleiri leikmenn sem spila hér heima enda langt síðan tímabilinu lauk. Það eru hægt og bít- andi að verða kynslóðaskipti í lands- liðinu. Við eigum orðið marga unga og efnilega stráka sem eru að taka sín fyrstu skref með landsliðinu og leikur sem þessi fer í reynslubank- ann hjá þeim,“ sagði Ólafur. Ólafur veðjar á þá ungu  Eiður Smári ekki í landsliðshópnum sem mætir Ísraelsmönnum í Tel Aviv Ólafur Jóhannesson Eiður Smári Guðjohnsen Sigfús Sigurðs- son, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, hefur ákveðið að leika undir stjórn Patreks Jóhann- essonar hjá Ems- detten í þýsku 2. deildinni næstu 6-8 vikurnar. Sigfús verður þar með fjórði Íslendingurinn í her- búðum Emsdetten því fyrir eru hjá félaginu þeir Hreiðar Levý Guð- mundsson markvörður og skyttan Fannar Friðgeirsson, sem lék með Sigfúsi hjá Val á síðustu leiktíð. Að sögn Frank Thünemann, yf- irmanns íþróttamála hjá Ems- detten, gæti Sigfús fengið hálfs til eins árs samning standi hann sig vel. »2 sindris@mbl.is Sigfús til Emsdetten Sigfús Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.