Morgunblaðið - 09.11.2010, Page 2

Morgunblaðið - 09.11.2010, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2010 Danmörk OB – Randers ............................................1:0  Rúrik Gíslason, leikmaður OB, fór meiddur af leikvelli á 18. mínútu. Staðan: København 15 13 2 0 39:10 41 Midtjylland 15 7 4 4 25:15 25 Brøndby 15 6 5 4 24:21 23 OB 15 7 2 6 25:23 23 Lyngby 15 6 3 6 22:26 21 Silkeborg 15 5 5 5 20:22 20 Sønderjyske 15 6 1 8 17:20 19 Horsens 15 5 2 8 11:23 17 Esbjerg 15 3 6 6 19:25 15 Nordsjælland 15 4 3 8 15:23 15 Randers 15 2 8 5 14:18 14 AaB 15 3 5 7 15:20 14 Spánn Sevilla – Valencia.......................................2:0 Staðan: Real Madrid 10 8 2 0 27:5 26 Barcelona 10 8 1 1 22:7 25 Villarreal 10 7 2 1 21:8 23 Espanyol 10 6 0 4 9:13 18 Valencia 10 5 2 3 14:11 17 Sevilla 10 5 2 3 16:16 17 Real Sociedad 10 5 1 4 13:12 16 Atlético Madrid 10 4 2 4 13:12 14 Real Mallorca 10 4 2 4 11:12 14 Athletic Bilbao 10 4 1 5 18:18 13 Getafe 10 4 1 5 15:16 13 Osasuna 10 3 3 4 11:10 12 Sporting Gijon 10 2 4 4 10:16 10 R. Santander 10 3 1 6 9:16 10 Dep. La Coruna 10 2 4 4 8:15 10 Almería 10 1 6 3 8:9 9 Hércules 10 2 3 5 9:15 9 Levante 10 2 2 6 10:18 8 Zaragoza 10 1 4 5 10:17 7 Málaga 10 2 1 7 14:22 7 KNATTSPYRNA „Það voru nokkur lið búin að hafa samband en þegar Keflavík talaði við mig var aldrei spurning um hver niðurstaðan yrði. Ég á náttúrlega heima hér og Keflavík er flott félag með lið sem ég tel að geti verið í bar- áttunni um titla,“ sagði Grétar Hjartarson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann hafði þá samið við knattspyrnudeild Keflavíkur til eins árs, en Grétar kemur til félagsins frá Grindavík þar sem hann hefur leikið stærstan hluta ferilsins. Grétar lék með KR árin 2005-08 en fór þá um sumarið til Grindavík- ur. Hann missti af leiktíðinni 2009 vegna meiðsla en spilaði mikið í ár. „Ég spilaði 20 leiki og bjóst ekkert við því fyrir tímabilið að ná svona mörgum. En ég tel að ég verði sterk- ari á næsta tímabili og sýni mitt rétta andlit,“ sagði Grétar sem skor- aði 4 mörk í sumar. sindris@mbl.is Ætlar að sýna sitt rétta andlit Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu tekur þátt í Algarve Cup eins og undanfarin ár. Að þessu sinni fer mótið fram 2.-9. mars. Ísland er í B-riðli ásamt Svíþjóð, Kína og Danmörku. Fyrsti leikur ís- lenska liðsins verður gegn Svíum. Í hinum riðlinum eru: Japan, Finn- land, Bandaríkin og Noregur. Sig- urvegarar riðlanna leika svo til úr- slita í mótinu. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti riðlanna leika gegn hvort öðru, annarsvegar um þriðja sætið og hinsvegar um fimmta sætið. Neðstu lið hvors riðils leika svo við efstu liðin úr C-riðli um sjöunda og níunda sætið. Ekki hefur verið stað- fest hvaða þjóðir munu leika í C riðli. Af mótherjum Íslands í riðlinum eru Svíar efstir á styrkleikalista FIFA. Þeir eru í 4. sæti, Danir eru í 10. sæti og Kínverjar í 14. sæti. Ís- land er í 16. sæti. Kvennalands- liðið með á Algarve Cup Handknattleiksþjálfarinn Patrekur Jóhannesson sá fram á erfiða tíma hjá liði sínu Emsdetten í þýsku 2. deildinni þegar Svíinn Patrik Kvalvik meiddist en hann verður frá keppni næstu 6 vikur eða svo. Áður hafði Stefan Thünemann meiðst, en saman hafa þeir félagar myndað kjarnann í vörn Emsdetten. Patrekur dó hins vegar ekki ráðalaus. Hann skellti frekar inn skila- boðum á facebook-síðu sinni þar sem hann gerði grein fyrir vandamálinu og auglýsti eftir öflugum línumanni, sennilega þó frekar í gamni en alvöru. Auglýsingin var á þessa leið: „Svaka getur sportið verið grimmt eins og einn góð- ur maður sagði. Í gær þá puttabrotnaði sænski varn- armaðurinn minn og verður frá í 6 vikur! Nú vantar mig ekki bara línumann í sókn heldur einhvern sem getur lamið frá sér í vörninni. Einhver sem er klár? Leikur á morgun í Hildesheim. Best að fljúga til Dussel fyrir þá sem eru á Íslandi. Bis bald.“ Það er skemmst frá því að segja að skilaboðin báru góðan árangur því rúmum klukkutíma síðar hafði fyrr- verandi landsliðsmaðurinn Sigfús Sigurðsson svarað: „Ég er geim Patti!“ „Ég veit um einn sem betur barið vel frá sér í vörn. Spurning með sóknina!“ Skömmu síðar bætti hann við: „Ég er geim Patti“. Þetta var á fimmtudaginn og síðan hafa hlutirnir gerst hratt, svo Sigfús heldur til Emsdetten í dag. Þar mun hann verða næstu 6-8 vikurnar og spila með lið- inu, með möguleika á áframhaldandi samningi. Sigfús, sem er 35 ára gamall, lék síðast handbolta með Val í úrslitakeppni Íslandsmótsins í vor. „Hann er ekki að koma fyrir peninga, hann vill bara hjálpa okkur,“ sagði Patrekur í samtali við Ems- dettener Volkszeitung. „Hann lofaði að hann væri í góðu formi. Hann mun reynast okkur mjög vel,“ bætti Patrekur við en fyrsti leikur Sigfúsar verður líklega á laugardag gegn toppliði Minden. sindris@mbl.is Sigfús kom Patreki til bjargar eftir að hafa séð „auglýsingu“ á facebook Rúrik Gíslason mun ekki geta leikið með íslenska landsliðinu í knattspyrnu þegar það sækir Ísrael heim í æfinga- leik 17. nóvember. Rúrik var valinn í hópinn sem Ólafur Jóhannesson til- kynnti um miðjan dag í gær, eins og sjá má á forsíðu, en um kvöldið varð Rúrik fyrir því óláni að rífa vöðva aftan í læri í leik með liði sínu OB gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni. „Ég var bara að hreinsa boltann frá eftir hornspyrnu þegar þetta gerðist. Ég hef aldrei lent í svona áður og þetta er mjög skrýtið. Þetta var eins og ég væri skotinn í lærið, og kom bara eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ sagði Rú- rik við Morgunblaðið. Hann segir erfitt að meta það strax hve lengi hann verði frá keppni en það g a a s a v O d e a o E R O l h „Þetta var eins væri skotinn í l VIÐTAL Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Norðfirðingar hafa verið duglegir síðustu áratugi að koma með mjög frambærilega blakara. Einn þeirra er Elsa Sæný Valgeirsdóttir sem nú leikur með danska liðinu Holte. Hún var hér á landi um helgina með liði sínu á Norðurlandamóti félagsliða og gaf sér tíma til að setjast niður með undirrituðum og segja honum undan og ofan af ferli sínum í blakinu. Sex ár í blaki í Danmörku „Ég er búin að vera í sex ár í Dan- mörku, fór þangað út til að spila blak og er enn að,“ segir Elsa sem hóf fer- ilinn hjá danska liðinu Ikast í annarri deildinni þar í landi. „Það gekk bara fínt þannig að ég ákvað að prófa hvort ég gæti komist aðeins hærra í deild og fór til Holte og hef verið þar síðan,“ segir Elsa, sem er Þróttari í húð og hár ef svo má segja. Hún hóf ferilinn nefnilega hjá Þrótti í Nes- kaupstað og þegar hún flutti til Reykjavíkur skipti hún úr Þrótti í Þrótt í Reykjavík. „Ég er algjör Þróttari! segir hún og hlær. En hún gerir fleira í Danmörku en æfa blak, þó svo mikill tími fari í það. „Ég byrjaði í hagfræði, en líkaði það ekki og hætti fljótlega og nú er ég á öðru ári í sjúkraþjálfun.“ Ekki á leiðinni heim Hún er ekki lengi að svara þegar hún er spurð hvort hún sé ekkert á leiðinni heim: „Nei!“ „Á meðan ég get spilað blak á þessu stigi, meðal þeirra bestu í Dan- mörku, þá er ég ekkert að hugsa mér til hreyfings. Ég kann rosalega vel við mig þarna og verð áfram í Dan- mörku. Það er allt svo flott í kringum þetta hjá Dönunum. Við æfum mikið og ég hef bara tvo daga á ári sem ég er löglega afsökuð fyrir því að mæta ekki á æfingar. Við æfum fimm sinn- um í viku, erum í sérstöku lyft- ingaprógrammi og það er allt bara rosalega flott í kring um þetta hjá þeim,“ segir Elsa og greinilegt að hún kann mjög vel við allt í kringum íþróttina í Danmörku, enda er liðið í efsta sæti í deildinni með tíu stig eft- ir sex leiki, reyndar ásamt Bröndby og Gentofte, en með hrinuhlutfallið 17-5. „Við töpuðum okkar fyrsta leik um síðustu helgi, 2:3 fyrir Gentofte. Það var lélegur leikur hjá okkur og eins og við hefðum lent í einhverri lægð og það hefur sést á leik okkar hérna í Digranesi. Við komum hingað til að komast áfram, enda er markmiðið alltaf að vera í úrslitakeppninni á NM, í úrslitum bikarsins og í deild- inni. Við vorum ferlega lélegar í fyrstu tveimur leikjunum hér og það voru mikil vonbrigði þannig að við ákváðum þá að setja okkur það markmið að finna leik okkar á nýjan leik, ef svo má segja, og okkur tókst það í síðasta leiknum á móti HK.“ Árangurinn mikil vonbrigði „Þetta eru því mikil vonbrigði, það er að segja blakið, en ferðin sem slík var fín. Mótið mjög gott og fínt að spila hér á blakgólfi í stað þess að vera stundum á „harpix“ gólfum. Það var virkilega gaman að spila á þessu blakgólfi. Það var rosalega vel staðið að þessu móti í alla staði og allir mjög ánægðir með það. Þetta var al- veg frábært. Það er verst að stelp- urnar fara heim strax eftir leik, ann- ars hefði ég getað sýnt þeim aðeins meira af landinu. En við fórum í morgunmat heim til mömmu á laug- ardaginn og það var mjög gaman,“ segir Elsa sem fékk nokkurra daga frí til að vera með vinum og ætt- ingjum hér á landi. 45 landsleikir á átta árum Elsa, sem er 27 ára gömul, byrjaði ung í blaki á Norðfirði. „Besta vin- kona mín var í blaki og mamma hennar var þjálfari þannig að þetta kom af sjálfu sér. Ég var í fótbolta líka en blakið varð síðan fyrir val- inu.“ Hún hefur leikið 45 landsleiki fyrir Ísland í blaki, fyrsta landsleik- inn lék hún á móti Kýpur 31. maí árið 2000 og síðast lék hún 2008. Hún var valin efnilegasti blakarinn árið 2001. Spurð hvernig henni hafi fundist lið HK segir Elsa: „Þær eru með fínt lið. Baráttan er rosalega mikil í liðinu og þarna eru margar mjög ungar stelpur. Systir mín, Berglind Gígja (15 ára gömul) kom inná og það var rosalega gaman að spila á móti henni. Við vissum að baráttan yrði mikil og að við yrðum að hafa fyrir hlutunum og það kom á daginn. Maður þurfti að vera á tánum allan tímann því það er ekkert gefið á móti þeim.“ Það vakti athygli að Holte kom beint úr flugi í fyrsta leikinn á föstu- dagskvöldinu. „Það var ekki alveg nógu gott. Við komum hingað í húsið klukkutíma fyrir leik, beint úr flug- inu. Maður fann alveg fyrir því, en það er samt engin afsökun fyrir slök- um leik,“ segir Elsa. Morgunblaðið/Eggert Blakari Elsa Sæný Valgeirsdóttir, nr 7., situr á bekknum þar sem leikmenn danska blakliðsins Holte fara yfir stöðuna. Ekkert á leiðinni heim  Elsa Sæný kann vel við sig í Danmörku  Ekki sátt með leik Holte á Norður- landamótinu í Digranesi  Byrjaði í blaki á Norðfirði og er Þróttari í húð og hár Handknattleikur Bikarkeppni kvenna, Eimskipsbikarinn Kaplakriki: FH – Fylkir ...................... 20.00 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.