Morgunblaðið - 09.11.2010, Síða 3

Morgunblaðið - 09.11.2010, Síða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2010 Jakob Örn Sig-urðsson og Hlynur Bærings- son voru báðir með Sundsvall Dragons í gær þegar liðið tapaði mikilvægum leik gegn LF Basket í sænsku úrvals- deildinni í körfuknattleik, 94:77. Leikurinn var mjög kaflaskiptur og munaði aðeins stigi á liðunum fyrir lokaleikhlutann. Jakob Örn skoraði 15 stig í leiknum, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar, en Hlynur gerði 9 stig og tók 8 fráköst. Hlynur var að spila á ný eftir að hafa misst af síð- ustu leikjum vegna meiðsla. Eftir leikinn er LF Basket með 12 stig í 3. sæti deildarinnar en Sundsvall í því fjórða með 8 stig og leik til góða.    Knattspyrnumaðurinn efnilegiKristján Gauti Emilsson var á skotskónum fyrir unglingalið Liver- pool um helgina þegar það vann 6:0 sigur á Bolton á útivelli. Kristján Gauti lék allan leikinn. Þessi fyrr- verandi leikmaður FH hefur verið á mála hjá enska stórliðinu frá því í desember á síðasta ári en hann er aðeins sautján ára gamall.    Ole GunnarSolskjær mun taka við þjálfun norska knattspyrnuliðs- ins Molde, liðinu sem hann spilaði með áður en hann sló í gegn með stórliði Man- chester United. Solskjær yfirgaf Molde árið 1996 þegar Manchester United ákvað að festa kaup á framherjanum fyrir 1,5 milljónir punda. Solskjær lék með United til ársins 2007 en hann neyddist þá til að leggja skóna á hill- una vegna þrálátra meiðsla. Frá árinu 2008 hefur hann stýrt varaliði Manchester United með góðum ár- angri.    Portúgalski knattspyrnumað-urinn Cristiano Ronaldo hefur gert dómsátt í meiðyrðamáli, sem hann höfðaði á hendur breska blaðinu Daily Telegraph. Blaðið sagði að Ronaldo hefði sótt sam- kvæmi í næturklúbbi í Hollywood á sama tíma og hann var að ná sér eft- ir ökklameiðsli. Fréttin birtist í júlí 2008 og sagði lögmaður Ronaldos, að hún hefði valdið leikmanninum vandræðum og hugarangri en Ro- naldo var þá leikmaður Manchester United. Hann leikur nú með Real Madrid á Spáni. Ekki er ljóst hve háar bætur Telegraph sættist á að greiða en Allan Dunlavy, lögmaður Ronaldos, sagði að blaðið hefði beð- ist afsökunar og mundi greiða um- talsverðar bætur og málskostnað.    Danski lands-liðsþjálf- arinn í knatt- spyrnu Morten Olsen hefur ákveðið að hætta að þjálfa liðið eft- ir Evrópumeist- aramótið 2012. Danmörk er, sem kunnugt er, með Íslandi í riðli í undankeppni mótsins en verður þar eflaust í harðri bar- áttu við Portúgal og Noreg um að komast í úrslitakeppnina.    Argentínski landsliðsmaðurinnWalter Samuel sem leikur með Ítalíu- og Evrópumeisturum Inter verður frá keppni næstu sex til átta mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik með Inter um ný- liðna helgi. Krossband í hné leik- mannsins gaf sig og þar með er ljóst að hann leikur ekki með með Míl- anó-liðinu á leiktíðinni. Fólk sport@mbl.is Íslenska landsliðið í karate gerði það gott á opna sænska meist- aramótinu sem fram fór í Stokk- hólmi um nýliðna helgi. Alls hrepptu Íslendingar 27 verðlauna- peninga á mótinu, þar af fimm gull- verðlaun, og þar fór hin 18 ára gamla Aðalheiður Rósa Harð- ardóttir úr Karatefélagi Akraness fremst í flokki en hún nældi sér í fern verðlaun, þar af tvenn gull- verðlaun. Minn besti árangur „Þetta gekk bara ansi vel hjá mér og ég er mjög ánægð með árang- urinn sem er sá besti hjá mér hing- að til,“ sagði Aðalheiður við Morg- unblaðið í gær. Aðalheiður keppti á þessu sama móti í fyrra en þá vann hún ein bronsverðlaun en mót þetta er sterkt og að þessu sinni voru kepp- endur 650 talsins frá 12 löndum. „Ég bjó mig vel undir mótið en ég átti nú samt ekki von á að þetta myndi ganga svona vel,“ sagði Að- alheiður, sem vann gull og brons í einstaklingskata og gull og silfur í hópkata en þar var hún í liði með Svönu Kötlu Þorsteinsdóttur og Kristínu Magnúsdóttur. Davíð Freyr Guðjónsson átti einnig góðu gengi að fagna á mótinu en hann vann gullverðlaun í flokki kadet dan-gráðu auk tvennra bronsverðlauna. gummih@mbl.is Góður árangur hjá ís- lenska karatelandsliðinu geti tekið tvær til sex vikur fyrir hann að ná sér. „Ég á eftir að fara í betri skoðun til að sjá hvort þetta er rifa eða bara mjög slæm tognun en sjúkraþjálfarinn segir að þetta sé rifa,“ bætti Rúrik við. OB tókst að merja 1:0 sigur í gær og var þetta þriðji sigurleikur liðsins í röð. OB er ásamt Bröndby í 3.-4. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 23 stig en FC Köbenhavn hefur tekið afger- andi forystu með 41 stig. Danska deildin fer í frí 6. desember og hefst aftur í mars, en OB leikur í Evrópudeildinni 16. desember. Verði Rúrik ekki orðinn klár þá, og komist OB ekki áfram í Evrópudeildinni, er því ljóst að ansi langt er í næsta alvöru leik hans. sindris@mbl.is s og ég lærið“ Morgunblaðið/Ómar Meiddur Rúrik missir af landsleik. VIÐTAL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Maður er er að sjálfsögðu búinn að prenta stöðuna út,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, þjálf- ari þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen, og hló við þegar Morgunblaðið spjallaði við hann í gær. Lærisveinar Guðmundar tróna í toppsæti þýsku 1. deild- arinnar í handknattleik en liðinu hef- ur gengið allt í haginn síðan Guð- mundur tók við þjálfun liðsins af Svíanum Ola Lindgren í lok sept- ember. Búið að ganga frábærlega „Að sjálfsögðu er gaman að vera á toppnum þó að liðin fyrir aftan okk- ur eigi leik til góða. En er á meðan er. Þetta er búið að ganga frábær- lega og ég get ekki annað en verið kátur með gang mála,“ sagði Guð- mundur en Rhein-Neckar Löwen er með 19 stig eftir 11 leiki, Kiel og Hamburg hafa 18 og Füchse Berlin 17 en liðin þrjú hafa öll spilað 10 leiki. Íslenskir þjálfarar þjálfa þrjú af toppliðunum, Guðmundur er við stjórnvölinn hjá Rhein-Neckar Lö- wen, Alfreð Gíslason stýrir Kiel og Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin, sem hefur komið skemmti- lega á óvart. Þetta hefur vakið verð- skulda athygli í handboltaheiminum enda þýska deildin talin sú sterkasta í heimi. Guðmundur segir að það stefni í rosalega baráttu um meistaratitilinn í ár en fram undan er ansi strembið leikjaprógramm hjá Rhein-Neckar Löwen. Næstu tveir leikir liðsins í deildinni eru á útivelli gegn Flens- burg og Hamburg og síðan koma þrír leikir í beit gegn meistaraliði Kiel. Fyrst tveir leikir í Meist- aradeildinni og síðan í deildinni en leikirnir á móti Kiel fara fram á níu dögum. Aldrei vitað annað eins „Ég hef aldrei vitað annað eins og þetta er erfiðasta törn sem ég hef lent í sem þjálfari. Það mun virki- lega reyna á liðið í þessum leikjum og það má segja að stund sannleik- ans renni upp. Ég lagði áherslu á það við leikmenn mína að við þyrft- um að reyna að laga markatöluna og okkur tókst að laga hana um 23 mörk í síðustu tveimur leikjum. Okk- ur hefur tekist að ná varnarleiknum tiltölulega góðum en sóknarleikurinn þarf að vera betri hjá okkur,“ sagði Guðmundur en þrír íslenskir lands- liðsmenn leika undir stjórn Guð- mundar, þeir Ólafur Stefánsson, Ró- bert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson. Eins og fram kom í viðtali við Guðjón Val í Morgunblaðinu í gær mun hann hefja æfingar með liði Rhein-Neckar í dag en Guðjón hefur verið frá keppni vegna meiðsla frá því í lok janúar. Fram undan er heimsmeistaramót sem haldið verður í Svíþjóð í janúar og þangað stefnir Guðjón en næstu vikur skera út um það hvort af því verði en Guðjón hef- ur verið mikilvægur hlekkur í lands- liðinu til fjölda ára. Stórkostlegar fréttir ef Guðjón getur byrjað að spila „Ég vona það svo innilega að þetta sé að koma hjá Guðjóni. Ég ætla að vera bjartsýnn og það yrðu stórkost- legar fréttir fyrir liðið og íslenska landsliðið ef hann gæti byrjað að spila aftur fljótlega. Ég held svo sannarlega í vonina um að hann geti verið með landsliðinu á heimsmeist- aramótinu. Landsliðið þarf svo sann- arlega á honum að halda en það ætti að koma fljótlega í ljós þegar hann byrjar að æfa á fullu hvernig þetta heldur hjá honum,“ sagði Guð- mundur Þórður. „Að sjálfsögðu er gam- an að vera á toppnum“  Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen efstir  Mæta Kiel þrívegis á rúmlega viku  Bjartsýnn fyrir hönd Guðjóns Vals Morgunblaðið/Kristinn Efstir Guðmundur Þórður Guðmundsson er svo sannarlega að gera góða hluti með Rhein-Neckar Löwen Á toppnum » Rhein-Neckar Löwen er í efsta sæti í þýsku 1. deildinni, er stigi á undan meisturum Kiel og Hamburg » Rhein-Neckar er einnig í efsta sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni ásamt Kiel. Bæði hafa 7 stig eftir fjóra leiki. » Ólafur Stefánsson, Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson leika með Rhein- Neckar Löwen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.