Morgunblaðið - 10.11.2010, Blaðsíða 4
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Framherjinn Fanney Lind Guð-
mundsdóttir er uppalin í Hvera-
gerði og hefur leikið með Hamri
allan sinn feril. Hún hefur því tekið
þátt í þeim uppgangi sem verið
hefur í félaginu á umliðnum árum
þó hún sé einungis 21 árs gömul.
Fanney segir að mikil stemning sé
hjá félaginu eftir að liðið fór alla
leið í úrslitarimmuna síðastliðið
vor, þar sem Hamar tapaði fyrir
KR í oddaleik og þar með rimm-
unni 2:3.
„Við erum miklu hungraðri í titil
núna en í fyrra þar sem við fórum
í fimmta leik og töpuðum honum
þar. Við erum því mjög hungraðar
og maður lærði mikið af úrslita-
leikjunum í fyrra. Við erum að
bæta okkur á hverju ári og komast
skrefinu hærra. Það þýðir þá von-
andi að við vinnum titilinn í ár. Það
er ekkert leyndarmál að við ætlum
okkur að fara alla leið í vetur og
vinna titil eða titla,“ sagði Fanney
þegar Morgunblaðið sló á þráðinn
til hennar í gær.
Fljótar að ná saman
Fanney telur að Hamarsliðið sé
svipað að styrkleika og á síðustu
leiktíð, þó að það eigi kannski að
vera veikara á pappírunum marg-
frægu eftir að hafa misst tvo leik-
menn sem spiluðu talsvert á síð-
asta keppnistímabili.
„Við misstum náttúrlega Sigrúnu
út í atvinnumennsku og Hafrún fór
í KR. Auk þess misstum við út-
lendingana tvo en fengum tvo aðra
í staðinn. Mér fannst við vera fljót-
ar að ná saman sem lið en í fyrra
vorum við að slípa saman nánast
alveg nýtt lið. Við höfum náð vel
saman í upphafi deildarinnar í
haust og styrkleiki liðsins er því að
mínu mati svipaður og á síðustu
leiktíð. Sú vinna sem við unnum í
fyrra skilar sér en það er alltaf
hægt að gera meira og slípa hlut-
ina betur til. Mér finnst við ennþá
eiga mikið inni,“ sagði Fanney en
Hamar er með fullt hús stiga eftir
sex umferðir, eins og Keflavík en
liðin mættast einmitt í toppslag í
kvöld.
Ánægð með útlendingana
Fanney sér fyrir sér fjögurra
liða baráttu í efri hlutanum. „Fyrir
utan okkur og Keflavík held ég að
KR verði líka í baráttunni. Ég
reikna einnig með því að Haukar
komi inn í toppbaráttuna og verði
sterkari en Njarðvík,“ sagði Fann-
ey ennfremur. Spurð um erlendu
leikmennina tvo, Slavicu Dimovsku
og Jaleesu Butler segir hún þær
vera góða liðsmenn. Dimovska er
bakvörður en Butler er framherji.
„Þær hafa komið mjög vel út, eru
bæði góðir liðsfélagar og góðir
leikmenn. Þær eru svolítið ólíkar
þeim erlendu leikmönnum sem við
vorum með í fyrra, Koren Schram
og Juliu Demere. Ef ég ber Slavicu
og Koren saman þá er Slavica mun
reyndari leikmaður. Julia sem var
undir körfunni hjá okkur í fyrra
var auðvitað mjög góð. Jaleesa er
mjög ólík henni en er mikill frá-
kastari og við þurftum á þannig
leikmanni að halda. Við höfum ver-
ið í basli með fráköstin og hún er
með 17 fráköst að meðaltali í leik í
deildinni. Það var eitthvað sem
okkur vantaði og mér finnst liðið
smella mjög vel saman. Við eigum
góða leikmenn í allar stöður og er-
um með allt sem þarf,“ sagði
Fanney Guðmundsdóttir við Morg-
unblaðið.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Ákveðin Fanney Guðmundsdóttir er staðráðin í að fylla sveitunga sína í Hveragerði stolti með titli í vetur.
Hungraðri en í fyrra
Fanney Guðmundsdóttir segir Hvergerðinga ætla sér að vinna titil
Telur Hamarsliðið vera svipað að styrkleika og á síðustu leiktíð
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 2010
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hamarskonur hafa unnið fyrstu sex leiki sína í
Iceland Express-deildinni í haust og fylgja því
eftir góðum árangri á síðustu leiktíð með við-
eigandi hætti. Það var hressandi að fá nýtt fé-
lag inn í toppbaráttuna í fyrra og Hvergerð-
ingar ætla sér greinilega að gera aðra atlögu
að titlinum í vetur.
Þjálfarinn Ágúst Björgvinsson vandaði valið
þegar kom að erlendum leikmönnum. Slavica
Dimovska er þekkt stærð og hefur orðið meist-
ari í tveimur löndum síðustu tvö keppn-
istímabilin. Hún mun vafalaust sýna sínar
bestur hliðar þegar í úrslitakeppnina verður
komið. Jaleesa Butler spilaði í háum gæða-
flokki í háskólakörfuboltanum undanfarin ár
og ljóst er að hún er öflugur leikmaður.
Ásamt þessum tveimur leikmönnum verða
fjórir íslenskir leikmenn sem munu bera hit-
ann og þungann af leik liðsins. Tveir þeirra eru
uppaldir í Hveragerði, fyrirliðinn Íris Ásgeirs-
dóttir og Fanney Guðmundsdóttir. Rétt eins
og í fyrra eru Kristrún Sigurjónsdóttir og
Guðbjörg Sverrisdóttir í stórum hlutverkum
hjá Hamri. Kristrún gæti raunar orðið stiga-
hæsti íslenski leikmaðurinn á tímabilinu. Þessi
sex manna leikmannakjarni er nægilega góður
til þess að koma liðinu langt. Áhyggjuefnið í
Hveragerði er hins vegar að varamenn liðsins
eru lítt reyndir. Þar af leiðandi er algerlega
óvíst hvernig Hamar mun ráða við áföll sem
upp kunna að koma eins og meiðsli.
Hamar er lítið félag í fremur fámennu sveit-
arfélagi og það gæti hjálpað liðinu. Hamar ætti
að geta fengið góðan stuðning og búið til
heimavallarvígi sem nýst getur vel í úr-
slitakeppninni. Bæjarbúar fengu smjörþefinn
af Íslandsmeistaratitlinum í vor og þeirri
stemningu sem slíkum úrslitarimmum fylgir.
Bæði kvenna- og karlalið félagsins hafa byrjað
afskaplega vel á þessari leiktíð og stemningin í
félaginu og í kringum félagið hlýtur því að vera
afar góð.
Morgunblaðið/Ómar
Þjálfarinn Ágúst Björgvinsson er orðinn
reynslumikill þrátt fyrir ungan aldur.
Sterkur kjarni en óreyndir varamenn
Lið Hamars sem hafnaði í 2. sæti áÍslandsmótinu síðasta vor hefur
misst fjóra leikmenn sem voru í nokk-
uð stórum hlutverkum. Fyrsta skal
nefna Juliu Demere sem var mjög
áberandi í teignum. Hinn erlendi leik-
maðurinn Koren Schram er einnig
horfinn á braut. Sigrún Ámundadótt-
ir kom til Hamars í fyrra frá KR en
freistar nú gæfunnar í atvinnu-
mennsku í Frakklandi. Þá ákvað Haf-
rún Hálfdánardóttir að leika með
KR í vetur auk þess sem Sóley Guð-
geirsdóttir tekur sér frí.
Hamar fékkSlavicu Di-
movsku til liðs við
sig í sumar og
nældi sér þannig í
leikmann sem
þekkir vel íslensk-
an körfuknattleik.
Dimovska kemur
frá Makedóníu og
er fastamaður í landsliðinu. Di-
movska kom fyrst til Íslands árið
2007 og lék eitt tímabil með Fjölni.
Þar fór hún á kostum og skoraði 24
stig að meðaltali á tímabilinu. Þá
gekk hún til liðs við Hauka og átti
stóran þátt í Íslandsmeistaratitli fé-
lagsins vorið 2009. Dimovska ætti því
að reynast Hamri vel í toppbarátt-
unni í vetur.
Hvergerðingarhafa einnig
fengið bandaríska
framherjann Ja-
leesu Butler til
liðs við sig. Butler
er 23 ára og lék
með hinum kunna
Georgetown-skóla
í háskólaboltanum
í fyrra. Butler hefur látið til sín taka í
upphafi tímabilsins og virðist vera
góður liðsstyrkur. Auk útlending-
anna tveggja er Rannveig Reyn-
isdóttir komin frá Skallagrími. Þá
hafa Dagný Lísa Davíðsdóttir, Marín
Laufey Davíðsdóttir og Regína Ösp
Guðmundsdóttir gengið upp í meist-
araflokk úr yngri flokkunum.
Ágúst Björgvinsson þjálfar liðHamars og kom liðinu í úrslit á
síðustu leiktíð. Ágúst er reyndur
þjálfari og gerði lið Hauka að Íslands-
meisturum tvö ár í röð, 2006 og 2007.
Ágúst var auk þess landsliðsþjálfari
kvenna um tíma.
Ágúst fékk öfluga leikmenn til fé-lagsins fyrir síðustu leiktíð.
Kristrún Sigurjónsdóttir og Guð-
björg Sverrisdóttir komu frá Hauk-
um og Sigrún Ámundadóttir frá KR.
Kristrún er einn öflugasti leikmaður
deildarinnar og Guðbjörg var kjörin
besti ungi leikmaðurinn á síðustu
leiktíð.
Adda María Óttarsdóttir 16 ára Bakvörður (1,70 m)
Bylgja Sif Jónsdóttir 17 ára Bakvörður (1,70 m)
Dagný Lísa Davíðsdóttir 13 ára Framherji (1,78 m)
Fanney Guðmundsdóttir 21 árs Framherji (1,80 m)
Guðbjörg Sverrisdóttir 18 ára Bakvörður (1,82 m)
Íris Ásgeirsdóttir 23 ára Bakvörður (1,72 m)
Jaleesa Butler 23 ára Framherji (1,84 m)
Jenný Harðardóttir 18 ára Framherji (1,80 m)
Kristrún Antonsdóttir 16 ára Bakvörður (1,68 m)
Kristrún Sigurjónsdóttir 25 ára Bakvörður (1,78 m)
Marín Laufey Davíðsdóttir 15 ára Framherji (1,80 m)
Rannveig Reynisdóttir 25 ára Bakvörður (1,75 m)
Regína Guðmundsdóttir 17 ára Miðherji (1,85 m)
Slavica Dimovska 25 ára Bakvörður (1,70 m)
Leikmannahópurinn
HAMAR VETURINN 2010-2011