Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
VIÐTAL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur
úr GKG, er kominn til Katalóníu þar
sem hans bíður lokastigið á úrtöku-
mótinu fyrir Evrópumótaröðina.
Birgir Leifur var ekki í vandræðum
með að komast í gegnum 2. stigið sem
lauk á þriðjudag. Birgir lék einn hring
á 68 höggum, tvo á 70 og einn á 74 við
afar erfiðar aðstæður. Samtals lék
Birgir á sex undir pari og hafnaði í 2.
sæti.
Rennir ekki blint í sjóinn
„Ég er mjög ánægður. Það var góð
stígandi í mínum leik og útkoman var
alveg frábær. Ég var þannig lagað
ánægður með allt í mínum leik og það
small allt saman,“ sagði Birgir þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í
gær. Hann hafði þá tekið æfingu og
skellt sér í ræktina. „Ég reikna með
því að taka níu holur á morgun (í dag)
og níu holur á föstudag. Ég held að
það sé ágætt að hvílast. Ég er að
koma úr talsverðri törn og það er önn-
ur framundan. Ég hef spilað báða vell-
ina áður og renni því ekki blint í sjó-
inn,“ sagði Birgir en annan völlinn
spilaði hann á Evrópumótaröðinni
vorið 2009 og hinn völlinn á 2. stigi úr-
tökumótsins fyrir nokkrum árum.
Birgir á góðar minningar frá þeim
velli en þá komst hann í gegnum nið-
urskurðinn eftir bráðabana. „Þá var
þessum tveimur völlum reyndar
blandað saman. Ég þurfti þá að fara í
dramatískan sjö manna bráðabana
um þrjú laus sæti. Það var virkilega
gaman. Annað höggið var blint en
þetta var par 4 hola. Þegar við komum
að flötinni voru þar fjórir boltar og
minn var 2 cm frá holunni. Ég setti
því annað höggið næstum ofan í. Það
var mikill léttir að sjá boltann því
þetta voru frekar stressandi að-
stæður.“
Sex hringir á tveimur völlum
Vellirnir tveir eru á Catalunya-
svæðinu. Leiknir verða tveir hringir á
hvorum velli og þá verður kepp-
endafjöldi skorinn niður. Um það bil
sjötíu kylfingar munu þá halda áfram
leik á öðrum vellinum og liðlega þrjá-
tíu þeirra öðlast þátttökurétt á Evr-
ópumótaröðinni 2011. Að sögn Birgis
eru vellirnir nokkuð ólíkir viðureignar
og því gæti sú staða komið upp, að
talsvert betra skor verði á öðrum vell-
inum og því erfitt að rýna í stöðuna
fyrr en eftir fjóra hringi. Fram kom
hjá Birgi að hann ætli sér að spila níu
holur á hvorum velli fram að mótinu
sem hefst á laugardaginn. Rétt er að
taka það fram að hann mun þó einnig
ganga þær holur sem hann ætlar ekki
að spila til þess að búa til leikáætlun.
Kuldi í kortunum
„Það er rólegt skipulag á þessu hjá
mér fram að mótinu. Ég mun æfa vel í
kringum flatirnar enda snýst allt um
það. Svo er bara að undirbúa gott leik-
skipulag og láta vaða á þetta,“ út-
skýrði Birgir sem er greinilega fullur
sjálfstrausts eftir góða spilamennsku
undanfarið. Blaðamanni lék forvitni á
að vita hvernig viðraði í Katalóníu
enda hefur veður verið skrautlegt í
Evrópu undanfarna daga.
„Það var mjög kalt í nótt og svarta-
þoka til klukkan 11 í morgun. Svo kom
sólin og reif þetta allt í burtu. Það var
því fimmtán stiga hiti og bongóblíða í
dag. Það spáir hins vegar miklum
kulda fram á laugardag með næt-
urfrosti og sjö stiga hita yfir daginn.
Ef sú spá rætist þá má reikna með að
einhverjar seinkanir kunni að verða á
mótshaldinu,“ sagði Birgir sem mun
njóta liðsinnis vinar síns, atvinnukylf-
ingsins Stefáns Más Stefánssonar, en
hann ætlar að vera kylfusveinn Birgis.
„Svo er bara
að láta vaða
á þetta“
Reuters
Einbeittur Birgir Leifur lék virkilega vel á dögunum og er fullur sjálfstrausts.
Stefán Már verður á pokanum
Birgir Leifur
» Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr GKG, er kominn til
Katalóníu þar sem hann mun
takast á við lokaúrtökumótið
fyrir Evrópumótaröðina.
» Kylfingarnir munu líklega
ekki fara varhluta af því kulda-
kasti sem gengur yfir víða í
Evrópu þessa dagana. Verði
það raunin gæti það sett móts-
haldið úr skorðum.
Óskar Örn Hauksson úr KR
lagði upp flest mörk allra í
úrvalsdeild karla í fótbolta,
Pepsi-deildinni í sumar.
Þetta kom fram í gær þegar
bókin Íslensk knattspyrna
2010 var kynnt á frétta-
mannafundi í höfuðstöðvum
KSÍ í Laugardal, en hún kom
þá út í þrítugasta skipti.
Lagði upp níu mörk
Óskar Örn lagði upp 9
mörk fyrir KR í deildinni í
sumar og þar af sex í síðustu
fimm leikjum Vesturbæj-
arliðsins í deildinni. Hann tók
í gær við verðlaunum sem
Víðir Sigurðsson, höfundur
bókarinnar, afhenti en sam-
antekt á stoðsendingum í
deildinni hefur verið í bók-
unum Íslensk knattspyrna
undanfarin 17 ár.
Þrír leikmenn voru á hæl-
um Óskars í 2.-4. sæti yfir
flestar stoðsendingar og þeir
tóku einnig við verðlaunum í
gær. Það voru þeir Atli
Guðnason úr FH, Kristinn
Jónsson úr Breiðabliki og
Baldur Sigurðsson úr KR, en
þeir lögðu upp 8 mörk hver í
deildinni í sumar.
Guðmundur Benediktsson,
sem þjálfaði Selfoss í ár, hef-
ur lagt upp flest mörk í
deildinni frá 1992 þegar
skráning stoðsendinga hófst
en hann hefur átt 87 stoð-
sendingar á þessum tíma.
Tryggvi Guðmundsson úr
ÍBV komst í annað sætið í ár
en hann hefur lagt upp 62
mörk fyrir samherja sína í
deildinni.
Eyjólfur fékk heið-
ursverðlaunin
Bókaútgáfan Tindur, sem
gefur út Íslenska knatt-
spyrnu, veitir árlega sérstök
heiðursverðlaun til ein-
staklings eða félags fyrir unn-
in afrek. Að þessu sinni var
það Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari 21 árs landsliðs Ís-
lands, sem fékk verðlaunin,
fyrir frábæran árangur liðs-
ins sem leikur í úrslitakeppni
Evrópumótsins í Danmörku
næsta sumar.
gummih@mbl.is
Óskar Örn varð stoðsendingakóngurinn
Verðlaunaðir Óskar Örn Hauksson, Atli Guðnason, Ólafur Krist-
jánsson fyrir hönd Kristins Jónssonar, og Baldur Sigurðsson.
Alfreð Gíslason, þjálfari Evrópu- og Þýskalandsmeistara
Kiel, hefur fengið til liðs við sig sænska línumanninn Ro-
bert Arrhenius. Hann á að leysa landa sinn, Marcus Ahlm
af hólmi en hann varð fyrir því óláni að handarbrotna á
dögunum. Arrhenius verður í láni hjá Kiel næstu vikurnar
en hann er á mála hjá spænska liðinu Aragon og fer aftur
í þeirra herbúðir eftir heimsmeistaramótið í Svíþjóð í jan-
úar.
Arrhenius verður sextándi Svíinn sem klæðist búningi
Kiel en þeirra á meðal eru Magnus Wislander, Staffan
„Faxi“ Olsson, Stefan Lövgren, Marcus Ahlm, Kim And-
ersson, Martin Boqvist og Henrik Lundström.
Arrhenius mátti ekki spila með Kiel í leiknum gegn Rhein-Neckar Löwen í
gær og er heldur ekki löglegur í leiknum gegn Barcelona í Meistaradeildinni
um næstu helgi en hann spilar sinn fyrsta leik gegn Hannover-Burgdorf hinn
11. þessa mánaðar. gummih@mbl.is
Enn einn Svíinn til liðs við Kiel
Alfreð
Gíslason
Aðeins einn leikmaður þýska liðsins Hoffenheim hefur
skorað fleiri mörk fyrir liðið en Gylfi Þór Sigurðsson á
yfirstandandi tímabili í þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Gylfi Þór hefur skorað 5 mörk í þeim 10 leikj-
um sem hann hefur komið við sögu í hjá Hoffenheim
og Bosníumaðurinn Vedad Ibisevic hefur einnig náð að
skora 5 mörk í þeim 12 leikjum hann hefur spilað á
tímabilinu. Senegalinn Demba Ba er markhæsti leik-
maður Hoffenheim en hann hefur náð að skora 6 mörk
í deildinni.
Gylfi Þór hefur skorað 2 mörk úr vítaspyrnum, 2
beint úr aukaspyrnum og eitt marka hans var skot sem
hafði viðkomu í varnarmanni.
Hoffenheim sækir Stuttgart heim í þýsku 1. deildinni á laugardaginn.
Hoffenheim er í sjötta sæti deildarinnar með 22 stig en Stuttgart er í næst-
neðsta sætinu með aðeins 11 stig eftir fjórtán umferðir. gummih@mbl.is
Gylfi Þór næstmarkahæstur
Gylfi Þór
Sigurðsson
England
Deildabikarinn, 8-liða úrslit:
Birmingham – Aston Villa ......................2:1
Sebastian Larsson 12. (víti), Nikola Zigic
84. – Gabriel Agbonlahor 30.
Ipswich – WBA .........................................1:0
G. Leadbitter 69. (víti).
Evrópudeild UEFA
A-riðill:
Lech Poznan – Juventus...........................1:1
Man City – Salzburg .................................3:0
Staðan: Man. City 10, Lech Poznan 8, Ju-
ventus 5, Salzburg 2.
B-riðill:
Atl.Madrid – Aris ......................................2:3
Rosenborg – Leverkusen .........................0:1
Staðan: Leverkusen 11, Aris 7, Atl. Madrid
7, Rosenborg 3.
C-riðill:
Gent – Levski Sofia ...................................1:0
Sporting – Lille..........................................1:0
Staðan: Sporting Lissabon 12, Gent 7, Lille
5, Levski Sofia 4.
G-riðill:
Hajduk Split – AEK..................................1:3
Zenit – Anderlecht ....................................3:1
Staðan: Zenit 15, AEK 7, Anderlecht 4,
Hajduk Split 3.
H-riðill:
OB – Getafe................................................1:1
Rúrik Gíslason er meiddur.
Young Boys – Stuttgart............................4:2
Staðan: Stuttgart 12, Young Boys 9, Getafe
4, OB 4.
I-riðill:
Kharkiv – Debrecen..................................2:1
Sampdoria – PSV ......................................1:2
Staðan: PSV 13, Kharkiv 10, Sampdoria 5,
Debreceni 0.
Ítalía
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Bari – Livorno ...........................................4:1
Frakkland
Marseille – Rennes....................................0:0
Valenciennes – Saint Etienne ..................1:1
KNATTSPYRNA
N1 deild karla
Úrvalsdeildin, 9.umferð:
Fram – HK.............................................36:26
Staðan:
Akureyri 8 8 0 0 248:204 16
Fram 9 7 0 2 310:258 14
HK 9 6 0 3 299:300 12
FH 9 5 0 4 256:245 10
Haukar 9 5 0 4 231:231 10
Afturelding 8 1 0 7 198:230 2
Selfoss 8 1 0 7 226:262 2
Valur 8 1 0 7 195:233 2
Þýskaland
Rhein-Neckar Löwen – Kiel ................29:26
Gummersbach – Hamburg...................29:33
Balingen – Melsungen ..........................26:30
Staðan:
Hamburg 14 13 0 1 451:364 26
Füchse Berlin 13 11 1 1 366:329 23
Kiel 14 11 0 3 453:344 22
RN Löwen 14 10 1 3 440:393 21
Göppingen 14 9 2 3 394:363 20
Flensburg 13 9 0 4 393:356 18
Gummersbach 14 8 1 5 420:401 17
Magdeburg 13 7 0 6 372:357 14
Grosswallst. 13 6 1 6 348:362 13
Lemgo 13 5 2 6 357:350 12
Balingen 14 4 3 7 385:425 11
N-Lübbecke 13 4 1 8 367:394 9
Wetzlar 13 4 1 8 325:363 9
Friesenheim 13 2 3 8 355:396 7
Melsungen 15 3 0 12 378:444 6
Ahlen-Hamm 13 2 1 10 348:402 5
Burgdorf 13 2 1 10 337:384 5
Rheinland 13 2 0 11 324:386 4
Svíþjóð
Redbergslid – GUIF.............................28:33
Haukur Andrésson skoraði 3 fyrir GU-
IF. Kristján Andrésson er þjálfari GUIF.
Ystad – Drott .........................................25:25
Gunnar Steinn Jónsson skoraði 5 mörk
fyrir Drott.
Danmörk
AaB – Nordjælland ...............................30:30
Ingimundur Ingimundarson skoraði
ekki fyrir AaB en stóð í vörninni.
Noregur
Fyllingen – Viking.................................28:22
Andri Stefan lék ekki með Fyllingen
vegna meiðsla.
Ingvar Árnason skoraði 2 mörk fyrir
Viking.
HANDBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Varmá: Afturelding – Akureyri .......... 18.30
Vodafonehöllin: Valur – Selfoss .......... 19.30
1. deild karla:
Víkin: Víkingur – Stjarnan .................. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla, 16 liða úrslit:
Borgarnes: Skallagr. – Njarðvík-b ..... 19.15
Í KVÖLD!