Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Tékkneska stórskyttan FilipJicha, leikmaður Evrópu- og
Þýskalandsmeistara Kiel, er búinn
að jafna sig af meiðslum og verður
með liðinu gegn Barcelona í Meist-
aradeildinni á morgun en liðin eigast
við á Spáni. Jicha var sárt saknað í
liði Kiel í vikunni í leiknum gegn
Rhein-Neckar Löwen en meist-
ararnir töpuðu þeim leik.
Grindavík hefurfengið góðan
liðsstyrk í kvenna-
fótboltanum því
Jóna Sigríður
Jónsdóttir hefur
skrifað undir eins
árs samning við
félagið. Jóna Sig-
ríður er 26 ára
varnarjaxl og kemur frá Haukum
þar sem hún hefur verið lykilleik-
maður undanfarin ár. Jóna Sigríður
hefur spilað 137 leiki í deild og bikar
fyrir Hauka og Stjörnuna. Þetta
kemur fram á vef Grindvíkinga.
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslandsútnefndi Ólaf H. Kristjánsson
og Frey Alexandersson þjálfara árs-
ins 2010 á aðalfundi sínum í vikunni.
Ólafur og Freyr stýrðu meistara-
liðum Breiðabliks og Vals í karla- og
kvennaflokki. Sveinbjörn Jón Ás-
grímsson, Júlíus Á. Júlíusson og
Halldór Þ. Halldórsson voru heiðr-
aðir fyrir vel unnin störf við þjálfun
yngri flokka.
Owen Coyle knattspyrnustjóriBolton var í gær útnefndur
stjóri nóvembermánaðar í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu og fram-
herji liðsins, Svíinn Johan Elm-
ander, var útnefndur besti
leikmaður mánaðarins. Bolton tapaði
ekki leik í nóvember. Liðið vann þrjá
leiki, gerði tvö jafntefli og endaði
mánuðinn í sjötta sæti deildarinnar.
Leikur liðsins hefur tekið gríð-
arlegum breytingum til batnaðar frá
því Coyle tók við liðinu af Gary Meg-
son í janúar.
Elmander hefur leikið sérlega vel í
framlínu Bolton en Svíinn hávaxni
skoraði þrjú mörk í nóvember.
Hópurinn hjánýliðum
Víkings stækkar
enn fyrir keppn-
ina í úrvalsdeild
karla í fótbolt-
anum næsta sum-
ar. Hörður Sig-
urjón Bjarnason
er á leið til félags-
ins á nýjan leik eftir að hafa spilað
með Þrótti R. í sumar.
Þetta staðfesti Hörður við vefmið-
ilinn Fótbolti.net í gær. Hörður, sem
er 29 ára gamall vinstri bakvörður
eða kantmaður, lék með Víkingum í
fjögur ár. Hann lék 19 leiki með
Þrótturum í 1. deildinni í sumar og
skoraði 5 mörk. Í efstu deild hefur
hann leikið 30 leiki með Víkingum og
16 með Breiðabliki og skorað alls 4
mörk.
Fólk folk@mbl.is
VIÐTAL
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Nei blessaður vertu. Það er engin
krísa hjá okkur. Við munum kom-
ast á gott skrið aftur og ætlum
okkur að verja titlana,“ sagði
landsliðsmaðurinn Aron Pálm-
arsson, leikmaður Evrópu- og
Þýskalandsmeistara Kiel, við
Morgunblaðið í gær.
Kiel tapaði fyrir Rhein-Neckar
Löwen í vikunni og var þetta þriðja
tap meistaranna í deildinni á leik-
tíðinni. Ekki er hægt að segja að
meistaraliðið sé á kunnuglegum
slóðum því það er sem stendur í
þriðja sæti deildarinnar.
Verðum komnir á toppinn
fljótlega eftir áramót
„Það er eins og það sé allt gert
til gera okkur lífið leitt. Í fyrri um-
ferðinni höfum við mætt Flens-
burg, Hamburg, Füchse Berlin og
Rhein-Neckar Löwen öllum á úti-
velli á meðan Hamburg hefur átt
öll sterkustu liðin á heimavelli. Ég
hef engar áhyggjur af okkar stöðu.
Hamburg á eftir að tapa stigum og
ég reikna með því að við verðum
komnir á toppinn fljótlega eftir
HM. Við höfum verið með marga
menn í meiðslum og auðvitað hefur
það tekið sinn toll,“ sagði Aron en
hann átti mjög góðan leik gegn
Rhein-Neckar í vikunni, skoraði 4
mörk og átti fjölda stoðsendinga í
leiknum.
Alfreð spurði mig hvort ég
gæti spilað í 60 mínútur
Aron, sem er tvítugur, er á sínu
öðru ári hjá Kiel og ef fram heldur
sem horfir er ekki þess langt að
bíða að hann verði orðinn einn af
lykilmönnum liðsins en Alfreð
Gíslason, þjálfari liðsins, hefur
jafnt og þétt verið að gefa Aroni
fleiri tækifæri og aukið ábyrgðina á
herðar Hafnfirðingsins unga.
„Alfreð kom til mín fyrir leikinn
og spurði mig hvort ég gæti spilað
í 60 mínútur þar sem Jicha gat
ekki spilað. Ég sagðist vera klár í
það og maður verður bara að nýta
tækifærið. Ég mjög sáttur með
minn leik en við þurftum mörkin
hans Jicha og hefðum unnið ef
hann hefði spilað,“ sagði Aron sem
stendur í ströngu þessa dagana.
Mæta Barcelona á morgun
Kiel heldur til Barcelona í dag
en liðið mætir Börsungum í Meist-
aradeildinni á morgun. Kiel er efst
í riðlinum með 10 stig, Rhein-
Neckar Löwen er með 8, Barcelona
og Chambery 6, Celje 4 og Kielce 2
en fjögur efstu liðin komast í 16
liða úrslitin. Kiel og Barcelona
skildu jöfn í fyrri leiknum, 28:28,
en Aron fagnaði sigri á heimavelli
Barcelona í Meistaradeildinni á síð-
ustu leiktíð.
„Við viljum vinna riðilinn og því
er mikilvægt að ná sigri á móti
Barcelona. Með sigri í þeim leik er-
um við komnir í mjög góða stöðu.
Það er mikið álag á manni. Strax
eftir leikinn í Barcelona flýg ég til
Svíþjóðar og spila þar með landslið-
inu á þriðjudag og miðvikudag og
með Kiel á móti Burgdorf á laug-
ardag. Eftir leikinn á laugardaginn
verð ég búinn að spila átta leiki á
20 dögum en maður kvartar ekki.
Þetta er svo gaman,“ sagði Aron.
„Eins og allt sé gert til
að gera okkur lífið leitt“
Ljósmynd/Jürgen Pfliegensdörfer
Íslendingaslagur Aron Pálmarsson ógnar marki Rhein-Neckar Löwen en
Ólafur Stefánsson reynir að stöðva hann í leik liðanna á dögunum.
Aron Pálmarsson hefur engar áhyggjur af gengi Kiel Meistararnir hafa tapað
þremur leikjum í deildinni Mikið leikjaálag, Aron spilar átta leiki á 20 dögum
Þýskaland
» Hamburg er á toppnum í
þýsku 1. deildinni með 26 stig.
Füchse Berlín er með 23, Kiel
22, Rhein-Neckar Löwen 21,
Göppingen 20, Flensburg 18 og
Gummersbach 17 stig.
» Kiel á eftir að mæta Burg-
dorf heima, Gummersbach
heima, N-Lübbecke úti, Frie-
senheim úti og Rheinland
heima áður en gert verður hlé
á deildinni vegna HM í Svíþjóð.
Apostol Apostolov, nýráðinn landsliðsþjálfari kvenna
í blaki, hefur valið 18 manna hóp til æfinga fyrir
Novotel Cup, alþjóðlegt mót sem fram fer í Lúx-
emborg 7.-9. janúar. Sjö leikmenn eru frá Íslands-
meisturum HK, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Fríða Sig-
urðardóttir, Karen Björg Gunnarsdóttir, Velina
Apostolova, Birta Björnsdóttir, Steinunn Helga
Björgólfsdóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir. Þá
koma fjórar frá Þrótti í Neskaupstað, þær Kristín
Salín Þórhallsdóttir, Helena Kristín Gunnarsdóttir,
Zaharina Filipova og Miglena Apostolova. Frá KA
koma Auður Anna Jónsdóttir og Birna Baldursdóttir,
frá Stjörnunni þær Hjördís Eiríksdóttir og Hjördís Marta Óskarsdóttir,
og svo Fjóla Rut Svavarsdóttir frá Þrótti R. Frá dönskum liðum koma
Elsa Sæný Valgeirsdóttir frá Holte og Ásthildur Gunnarsdóttir frá Ama-
ger. Tólf leikmenn verða síðan valdir til ferðarinnar. vs@mbl.is
Sjö frá HK í æfingahópi
Elsa Sæný
Valgeirsdóttir
Leik Blackpool og Manchester United í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu sem fram átti að fara á Bloomfield vell-
inum í Blackpool síðdegis í dag hefur verið frestað. Völl-
urinn er frosinn en engar hitalagnir eru í honum og hann því
ekki leikfær.
Þar með fá Chelsea og Arsenal tækifæri til að komast upp-
fyrir United í dag. Arsenal tekur á móti Fulham og Chelsea
fær Everton í heimsókn en bæði lið eru tveimur stigum á eft-
ir Alex Ferguson og hans mönnum. Flestallir vellir liða í úr-
valsdeildinni eru upphitaðir og því er yfirleitt hægt að spila,
nema ef erfiðleikar verða með umferð til og frá völlunum.
Nokkrum leikjum í 1. deildinni hefur einnig verið frestað
sem og fjölmörgum leikjum í neðri deildunum en mikið vetr-
arríki er á Bretlandseyjum eins og víða í Evrópu. Meðal ann-
ars fá Íslendingarnir hjá QPR, Portsmouth og Reading helg-
arfrí en leikjum þeirra hefur þegar verið frestað. vs@mbl.is
Helgarfrí hjá United
Vefmiðillinn Talksport heldur áfram að
orða Gylfa Þór Sigurðsson við Manchester
United. Fram kemur í frétt á vefnum að
Gylfi ætli sér ekki að fara frá þýska liðinu
Hoffenheim á yfirstandandi tímabili þrátt
fyrir áhuga bæði Manchester United og
Arsenal.
Forráðamenn Hoffenheim eru meðvitaðir
um áhuga annarra liða á Gylfa og ku verð-
leggja hann á sem svarar 12 milljónum
punda sem gerir 2,2 milljarða íslenskra
króna en Hoffeheim greiddi helming þeirr-
ar upphæðar þegar það keypti hann frá enska liðinu Reading
í sumar. ,,Við reiknum með því að Gylfi verði hjá okkur í vet-
ur. Hann vill ekki fara frá liðinu strax,“ segir heimildarmaður
Hoffenheim við Talksport. gummih@mbl.is
Metinn á 2,2 milljarða
Gylfa Þór
Sigurðsson