Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Íslandsmótið í skylmingum barna, 12 ára og yngri, með
höggsverði fór fram í Skylmingamiðstöðinni í Laug-
ardal síðasta sunnudag.
Þar er glæsileg aðstaða fyrir skylmingafólk, undir
stúku Laugardalsvallar, eða í Baldurshaga eins og sá
hluti svæðisins hefur lengi verið nefndur og áður var
notaður sem keppnis- og æfingaaðstaða fyrir frjáls-
íþróttafólk.
Keppt var í flokkum 11-12 ára, 9-10 ára og 7-8 ára en
síðan var sérstakur sýningarflokkur fyrir börn 6 ára
og yngri. Í hverjum aldursflokki var keppendum síðan
skipt í byrjendaflokk, fyrir þá sem ekki hafa keppt áð-
ur, og í keppnisflokk þar sem lengra komnir í íþrótt-
inni áttust við. Í byrjendaflokkum fengu allir þátttak-
endur sömu viðurkenningu en í keppnisflokkum var
keppt til úrslita.
Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari Morgunblaðsins,
betur þekktur sem Golli, mætti í Skylmingamiðstöðina
á sunnudaginn og tók meðfylgjandi myndir af krökk-
unum. vs@mbl.is
Skylmingakrakkarnir á fullri ferð
Morgunblaðið/Golli