Morgunblaðið - 13.01.2011, Page 30
HM-STJÖRNUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Mikil veisla er framundan fyrir hand-
knattleiksunnendur þegar HM hefst
í Svíþjóð. Hjörtu landsmanna slá
vitaskuld með strákunum okkar í ís-
lenska liðinu og mun Morgunblaðið
fylgjast rækilega með gangi mála hjá
þeim. Í þessari samantekt verður
hins vegar gerð tilraun til að nefna
nokkra áhugaverða leikmenn til sög-
unnar, sem leika í hinum riðlunum í
keppninni
Verði úrslit eftir bókinni marg-
frægu í riðlakeppni HM þá munu Ís-
lendingar mæta ríkjandi heimsmeist-
urum Frakka í Jönköping, en þeir
eru raunar einnig Evrópu- og ólymp-
íumeistarar. Einn af mönnunum á
bak við ótrúlega velgengni Frakka á
undanförnum árum er markvörð-
urinn Thierry Omeyer.
Omeyer hefur verið afskaplega
sigursæll á sínum ferli. Hann byrjaði
18 ára gamall að leika sem atvinnu-
maður með liði Selestat en var keypt-
ur þaðan til stórliðsins Montpellier
árið 2000. Þar varð hann franskur
meistari fimm ár í röð 2002-2006 auk
þess sem Montpellier sigraði í Meist-
aradeild Evrópu árið 2003. Árið 2006
fór hann til þýska stórveldisins Kiel
og leikur þar enn undir stjórn Al-
freðs Gíslasonar. Með Kiel hefur
hann tekið upp þráðinn þar sem frá
var horfið í Þýskalandi og safnar
Þýskalandsmeistaratitlum auk þess
að hafa sigrað tvívegis í Meist-
aradeildinni, 2007 og 2010.
Löng bið hjá Omeyer
Það tók tíma hjá Omeyer að brjóta
sér leið inn í byrjunarliðið hjá
franska landsliðinu. Fyrir voru
reyndir og sigursælir markverðir,
Christian Gaudin og Bruno Martini.
Eftir að þeir komust á aldur eignaði
Omeyer sér stöðuna og fáir mótmæla
því í dag að Omeyer sé sá besti í sinni
stöðu í heiminum. Ekki þarf að leita
langt eftir rökstuðningi því hann er
lykilmaður bæði í besta landsliði
heims og besta félagsliði heims ef
horft er til síðustu ára. Þar fyrir utan
hefur hann fengið fjölda persónu-
legra viðurkenninga. Omeyer var val-
inn handboltamaður ársins í heim-
inum árið 2008 og var þá í úrvalsliði
Ólympíuleikanna. Hann var valinn
leikmaður ársins í Þýskalandi árið
2009 og var þá í úrvalsliði heims-
meistarakeppninnar. Omeyer er á 35.
aldursári en gefur ekkert eftir og for-
vitnilegt verður að sjá hversu lengi
honum tekst að halda sér í fremstu
röð.
Omeyer og samherjar hans leika í
A-riðli og liðin þrjú sem komast
áfram úr honum munu mæta þremur
liðum úr riðli Íslands í milliriðli. Í A-
riðli er að finna þrjú handbolta-
stórveldi, Frakkland, Þýskaland og
Spán. Í franska liðinu er valinn mað-
ur í hverju rúmi og þar er Nikola
Karabatic fremstur meðal jafningja.
Hann missti nokkuð úr í vetur vegna
meiðsla og því spurning hvort hann
verði í sínu besta formi. Einn áhuga-
verðasti leikmaður Frakka er Luc
Abalo sem iðulega leikur í hægra
horninu en hann og Karabatic eru
jafnaldrar og voru báðir teknir ungir
inn í landsliðið. Þegar Abalo leikur
handbolta er engu líkara en að hann
sé liðamótalaus og hann liðast ein-
hvern veginn áfram eins og ormur.
Hann hefur fremur sérstakar hreyf-
ingar og nýtir sér þær til fullnustu.
García er skemmtilegur
Spánverjar eiga líka afskaplega
skemmtilegan hornamann í Juan
García sem lengi hefur verið í
fremstu röð. García er 33 ára gamall
og leikur með Barcelona. Hann varð
heimsmeistari með Spánverjum árið
2005 og vann til bronsverðlauna á Ól-
ympíuleikunum 2008. García er flink-
ur í að klára færin sín og mikill
hraðaupphlaupsmaður. Þegar hann
er í stuði er afskaplega gaman að
fylgjast með honum.
Stelur Bitter senunni?
Þjóðverjar eru með afar sterkt lið
og eiga fjölda frambærilegra hand-
knattleiksmanna. Í þeirra liði eru
kannski ekki miklar stjörnur sem
skera sig úr af því liðið er afskaplega
jafnt. Líklegasti senuþjófurinn er
kannski markvörðurinn snjalli Jo-
hannes Bitter. Hinn litríki Stefán
Kretzschmar fangaði alla athygli á
sínum tíma og eftir að hann hætti
hefur enginn komist með tærnar þar
sem hann hafði hælana í töffaraskap.
Púður í Hammed og Hmam?
Túnis er einnig í A-riðli og það
verður áhugavert að sjá hvort enn sé
eitthvert púður í þeim félögum Ay-
men Hammed og Wissem Hmam
sem slógu eftirminnilega í gegn á
HM í Túnis árið 2005. Þeir leika báðir
með Montpellier í Frakklandi og eru
alla vega á besta aldri, Hammed er
27 ára og Hmam er tæplega þrítug-
ur.
Fjallað er sérstaklega um and-
stæðinga Íslands í B-riðlinum annars
staðar í blaðinu og því ekki þörf á því
að nefna hér áhugaverða leikmenn úr
þeim riðli.
Hansen spennandi skytta
Danir leika í C-riðli og þeir hafa
innan sinna raða einhverja áhuga-
verðustu skyttu í handboltanum í
dag. Sá heitir Mikkel Hansen og er
samherji Arnórs og Snorra hjá AG
Kaupmannahöfn. Kraftmikill leik-
maður sem virðist hafa lítið fyrir því
að skora mörk. Er einungis 23 ára
gamall en vakti snemma athygli og
fór um tíma til Barcelona en sneri
aftur heim til að taka þátt í ævintýr-
inu í kringum AG. Hansen mun vafa-
laust láta hraustlega til sín taka í Sví-
þjóð.
Af öðrum leikmönnum í danska lið-
inu þá er spurning hvort markvörð-
urinn Niklas Landin muni springa út
í keppninni. Hann er 22 ára gamall og
markmannsstaðan í landsliðinu er
eyrnamerkt honum þegar Kasper
Hvidt dregur sig í hlé.
Ilic, Balic og Vori
Serbinn Momir Ilic ætti að vera ís-
lenskum handknattleiksáhuga-
mönnum að góðu kunnur, í það
minnsta þeim sem fylgjast með
þýsku deildinni. Ilic hefur lengi verið
undir handleiðslu Alfreðs Gíslasonar
með góðum árangri. Fyrst hjá Gum-
mersbach og fylgdi honum síðar til
Kiel. Ilic er þrítugur og ætti því að
vera á hátindi síns ferils. Hann er í
lykilhlutverki hjá Serbum.
Króatar verða vafalaust ógnar-
sterkir eins og jafnan á undanförnum
árum. Þeirra leiðtogi er Ivano Balic
en fleiri leikreyndir kappar bera
mikla ábyrgð í liði Króata eins og
línumaðurinn Igor Vori og skyttan
Blazenko Lackovic en allir urðu þeir
ólympíumeistarar árið 2004.
Beðið eftir Ahlm og Anderson
Í D-riðli munu heimamenn spila og
væntingarnar til þeirra eru nokkrar
þrátt fyrir magurt gengi á und-
anförnum árum. Ekki er ósanngjarnt
að halda því fram að tími sé kominn
til að Marcus Ahlm og Kim And-
erson nái sömu hæðum með landslið-
inu og þeir hafa gert hjá Kiel. Nú
horfir hins vegar svo við að Ahlm er
meiddur og Anderson er að stíga upp
úr langvarandi meiðslum. Oscar Car-
lén er einnig öflugur leikmaður en
hann er sonur Pers sem var línumað-
ur hjá landsliðinu þegar Svíar brutu
ísinn og urðu heimsmeistarar árið
1990.
Eineygða skyttan
Merkilegt má telja að pólska stór-
skyttan Karol Bielecki skuli aftur
vera farinn að leika handknattleik
eftir að hafa misst sjón á öðru auga.
Pólverjar eiga fleiri gæðaleikmenn
og má þar nefna Grzegorz Tkaczyk
sem leikið hefur árum saman í
Þýskalandi við góðan orðstír. Hann
spilar með Íslendingaliðinu Rhein-
Neckar Löwen rétt eins og Karol
Bielecki.
Nýr Kang í Kóreu?
Rétt er að geta þess til öryggis að
Suður-Kórea er í D-riðlinum. Þeir
eru óútreiknanlegir og þar gæti hæg-
lega einhver snillingur komið fram á
sjónarsviðið sem handboltaheim-
urinn þekkir ekki. Þann lærdóm
drógu menn af HM í Sviss árið 1986
þegar Jae-Won Kang skaust upp á
stjörnuhimininn með þvílíkum til-
þrifum. Árin á eftir var hann almennt
talinn einn sá snjallasti í heiminum.
Markinu ennþá lokað?
Thierry Omeyer á stóran þátt í velgengni Frakka undanfarin ár Liðamótalaus Luc Abalo
Ógnarsterkir Króatar og Balic enn á fullu Væntingar til heimamanna Áhugaverð AG-skytta
Morgunblaðið/hag
Sigursælir Thierry Omeyer, besti markvörður heims, fær góð frá frá hinum magnaða Claude Onesta.
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningar-
verkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja landsmenn
til þess að fara eftir ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um hreyfingu og gera
hreyfingu að föstum lið í lífsstíl sínum.
Lífshlaupið
byrjar 2. febrúar!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
52
84
0
12
/1
0
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
Samstarfsaðilar
Ólympíufjölskyldan
Skráning og nánari upplýsingar á:
www.lifshlaupid.is
Fersk sending
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir: