Morgunblaðið - 15.03.2011, Page 2

Morgunblaðið - 15.03.2011, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011 FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ef allt fer samkvæmt bókinni munu Ísland og Noregur heyja einvígi um efsta sætið í 3. riðli Evrópukeppni kvenna í fótbolta og sæti í lokakeppni EM í Svíþjóð sumarið 2013. Dregið var í riðla í gær og þá má sjá hér til hliðar. Fyrsti leikur verður væntan- lega í Búlgaríu 19. maí. Það er hinsvegar ljóst að allir hinir andstæðingarnir í riðlinum, Belgía, Ungverjaland, Búlgaría og Norður- Írland, geta reynst skeinuhættir mót- herjar. Í heildina verður þetta erfiðari riðill en í undankeppni HM þegar Eistland, Serbía og Króatía reyndust íslenska liðinu engin fyrirstaða. Í þessari riðlakeppni skiptir öllu máli að misstíga sig ekki í leikjunum við þau fjögur lið sem eru lægra skrif- uð. Það lið sem nær bestum árangri í öðru sæti fer beint á EM, en önnur lið í öðru sæti þurfa að fara í umspil, rétt eins og íslenska liðið gerði haustið 2008, þegar það komst síðan í loka- keppni EM í Finnlandi. En við skulum líta nánar á and- stæðingana í riðlinum: Noregur næststerkastur Noregur kom úr efsta styrk- leikaflokki, og var einn af erfiðari kostunum þar, ásamt Þýskalandi, Frakklandi og Englandi. Óskamót- herjar þaðan hefðu frekar verið Danir eða Finnar. Noregur var næststerkasta þjóðin sem hægt var að mæta í þessari und- ankeppni, miðað við FIFA-listann. Ís- land hefur einu sinni unnið Noreg, 3:1 á Algarve í mars 2009, en tapaði síðan 0:1 þegar liðin mættust á EM í Finn- landi um sumarið. Norska liðið hefur verið í fremstu röð í heiminum alla tíð, skartar heimsmeistaratitli frá 1995, Evrópumeistaratitlum frá 1987 og 1993, og fékk silfur á EM 2005 og bronsið á EM í Finnlandi 2009. Belgar stóðu í Svíum Belgía er samkvæmt FIFA- listanum eitt af lakari liðunum í C- flokki og því tiltölulega hagstæður mótherji. Erfiðara hefði verið að fá t.d. Pólland eða Sviss úr þeim hópi. Ís- land hefur aldrei mætt Belgíu sem varð í 3. sæti riðils í síðustu undan- keppni HM. Belgar voru þá seigir á útivöllum, töpuðu naumlega 1:2 í Sví- þjóð og unnu Tékka óvænt, 2:1, en lágu svo 1:4 og 0:3 í heimaleikjunum. Ungverjar voru í baráttunni Ungverjaland er aftur á móti sterk- asta liðið sem hægt var að fá úr D- flokki. Ungverjar voru nálægt því að komast áfram í undankeppni HM en urðu í þriðja sæti eftir tvísýna baráttu við Úkraínu og Pólland. Ungverska liðið var með 50 prósenta árangur í innbyrðis leikjum við þessa keppi- nauta sína. Ísland mætti Ungverjum í undankeppni EM 2003 og 2004 og vann 4:1 á Laugardalsvelli og 5:0 úti. Búlgarar gerðu jafntefli við Dani Búlgaría er hæst skrifaða liðið sem var í E-flokki, og kom mjög á óvart í Einvígi við Norðmenn?  Ísland og Noregur slást væntanlega um sæti á EM í Svíþjóð  Erfiðari riðill en í síðustu undankeppni  Allir mótherjarnir skeinuhættir  Byrjað í Búlgaríu í maí Leikir Íslands » Leikir á þessu ári: 19.5. Búlgaría – Ísland 17.9. Ísland – Noregur 21.9. Ísland – Belgía 22.10. Ungverjaland – Ísland 26.10. N-Írland - Ísland » Leikir á næsta ári: 4.4. Belgía – Ísland 16.6. Ísland – Ungverjaland 21.6. Ísland – Búlgaría 15.9. Ísland – N-Írland 19.9. Noregur – Ísland UNDANKEPPNI EM KVENNA Í FÓTBOLTA 2011-2012 1. riðill 2. riðill 3. riðill 4. riðill 5. riðill 6. riðill 7. riðill Riðlakeppnin fer fram frá maí 2011 til september 2012 Sigurliðin í riðlunum og lið með bestan árangur í 2. sæti fara í lokakeppnina 2013. Hin sex liðin í öðru sæti riðlanna fara í umspil um þrjú sæti í lokakeppninni Svíþjóð fer beint í lokakeppni EM sem gestgjafi sumarið 2013. * Tölur fyrir framan segja til um stöðu viðkomandi liðs á heimslista FIFA. 11 Ítalía 20 Rússland 30 Pólland 57 Grikkland 95 Bosnía 119 Makedónía 2 Þýskaland 19 Spánn 26 Sviss 37 Rúmenía 66 Tyrkland 78 Kasakstan 7 Noregur 17 ÍSLAND 35 Belgía 31 Ungverjaland 49 Búlgaría 64 Norður-Írland 8 Frakkland 24 Skotland 29 Írland 47Wales 61 Ísrael 16 Finnland 21 Úkraína 38 Hvíta-Rússland 42 Slóvakía 79 Eistland 10 England 15 Holland 60 Slóvenía 45 Serbía 65 Króatía 14 Danmörk 25 Tékkland 39 Austurríki 39 Portúgal 113 Armenía Á VELLINUM Skúli Sigurðsson sport@mbl.is Njarðvíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og slógu út Hauka í úrslitakeppni Ís- landsmóts kvenna í körfubolta í gær- kvöldi með því að sigra, 83:55, í öðrum leik liðanna. Þar með mæta þær deild- armeisturum Hamars í undanúrslitum mótsins. Tímabilið hefur verið nokkuð köflótt hjá Njarðvíkurliðinu í vetur. Þær hófu tímabilið með miklum krafti en svo virtist síga á ógæfuhliðina hjá þeim þegar leið á mótið. Nú eru þær hins- vegar á mikilli siglingu og tveir sigrar á sterku liði Hauka sýna það. Hauka- liðið átti í raun aldrei möguleika í þess- um leik. Þær skorti alla trú á verkefn- inu og ekki bætti það að erlendi leikmaður þeirra var langt frá sínu besta þetta kvöldið. Ljós í myrki þeirra að þessu sinni var hin unga Margrét Rósa Hálfdánardóttir sem skilaði 9 stigum en stúlkan er aðeins 16 ára gömul. Hjá Njarðvík virtist engu máli skipta hver tók við keflinu, allar skil- uðu sínu. Sheyla Fields virðist hins- vegar vera hjartavöðvinn í þessu liði en hún hefur spilað gríðarlega vel í síð- ustu leikjum. Njarðvíkurstúlkur fá storminn í fangið í þeirra næsta verk- efni, en þá halda þær í blómabæinn og etja kappi við hið feikilega sterka lið Hamars. „Nú er einu af markmiðum okkar náð og við þurfum að fara að huga að næsta verkefni. Í kvöld spiluðum við gríðarlega sterka vörn og áttu Haukar erfitt með að finna leiðir í gegnum hana. Við virtumst líka vera einbeittari og tilbúnari. Þær skora aðeins einhver 50 stig og vinna okkur ekki á því hér í Ljónagryfjunni. Þær voru komnar með bakið upp að vegg þannig að við bjuggumst við að þær myndu spila fast en við mættum því og það var þá fljótt að fjara út hjá þeim. Næsta verkefni er Hamar og ef við spilum í líkingu við það sem við gerðum í kvöld eigum við alla möguleika þar,“ sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur. Ætluðum okkur meira „Við ætluðum okkur meira í þessu einvígi en þetta. Við teljum okkur vera með jafngott lið og Njarðvík þó svo að við höfum ekki sýnt það í þessu einvígi. Þær voru bara betri og stóðu sig vel og við getum ekkert kvartað yfir því en þetta voru vissulega vonbrigði. Það vantaði allt sjálfstraust hjá mínum leikmönnum að þessu sinni. Við vorum 16 stigum undir í hálfleik og munurinn lá í því að þær settu sín skot niður á meðan við trúðum ekki á að við gætum skorað. Erlendi leikmaðurinn minn skilaði ekki sínu þannig að ég tók þá ákvörðun að leyfa yngri leikmönnum að spila. Njarðvíkurstelpunar eru á uppleið og það verður fróðlegt að fylgj- ast með þeim gegn Hamri sem mér finnst einmitt hafa verið að gefa eftir undanfarið,“ sagði Henning Hennings- son, þjálfari Hauka, og sagðist verða áfram með liðið, jafnvel næstu 10 árin. KR vann í Hólminum KR sigraði Snæfell í Stykkishólmi, 84:76, en fékk mikla mótspyrnu frá Hólmurum eins og í fyrri viðureign lið- anna. Snæfell komst yfir um tíma í þriðja leikhluta en KR náði tíu stiga forskoti í lok hans og hélt því að mestu eftir það. Chazny Morris skoraði 25 stig fyrir KR og Margrét Kara Sturlu- dóttir 23 en Monique Martin gerði 20 stig fyrir Snæfell og Laura Audere 19. Ákveðin Njarðvíkingurinn Auður Jónsd Jónasdóttur, fyrrum leikmanni Njarðvík Eigum alla mögu- leika gegn Hamri  Njarðvík í undanúrslitin eftir öruggan sigur á Haukunum Úrslitakeppnin » Njarðvík lagði Hauka að velli 2:0 og mætir Hamri í undan- úrslitum. » KR vann Snæfell einnig 2:0 og mætir Keflavík í undan- úrslitum. Danmörk OB – Lyngby............................................. 2:0  Rúrik Gíslason lék allan leikinn með OB. Staðan: København 21 17 3 1 51:17 54 OB 21 11 2 8 39:30 35 Brøndby 21 9 7 5 34:27 34 Midtjylland 20 9 6 5 35:23 33 Horsens 21 8 3 10 20:29 27 Silkeborg 21 6 8 7 27:33 26 Randers 21 5 10 6 29:26 25 SønderjyskE 21 7 4 10 23:30 25 Lyngby 20 6 6 8 27:34 24 Nordsjælland 21 6 5 10 23:34 23 Esbjerg 21 3 8 10 23:35 17 AaB 21 3 8 10 19:32 17 England B-DEILD: Norwich – Bristol City............................. 3:1 Staða efstu liða: QPR 37 20 13 4 59:23 73 Norwich 37 18 12 7 61:46 66 Swansea 37 19 6 12 50:34 63 Cardiff 37 18 8 11 57:43 62 Leeds 37 16 13 8 69:58 61 Nottingham F. 37 15 15 7 46:32 60 Burnley 35 15 11 9 51:42 56 Hull 37 14 13 10 41:37 55 Leicester 37 16 7 14 56:55 55 Reading 36 13 15 8 59:42 54 Spánn Getafe – Athletic Bilbao........................... 2:2 Staða efstu liða: Barcelona 28 24 3 1 79:14 75 Real Madrid 28 22 4 2 67:20 70 Valencia 28 16 6 6 42:32 54 Villarreal 28 15 6 7 47:30 51 Espanyol 28 14 1 13 37:39 43 Athletic Bilbao 28 13 3 12 44:40 42 Atlético Madrid 28 11 6 11 41:37 39 Sevilla 28 11 6 11 42:43 39 Real Sociedad 28 11 2 15 38:46 35 Real Mallorca 28 10 5 13 29:38 35 Getafe 28 9 7 12 38:43 34 KNATTSPYRNA Njarðvík – Haukar 83:55 Njarðvík, úrslitakeppni kvenna, 1. umferð, 2. leikur, 14. mars 2011 Gangur leiksins: 3:0, 10:8, 13:13, 17:15, 22:17, 27:19, 29:22, 35:24, 39:26, 44:28, 54:34, 58:36, 63:40, 68:44, 74:46, 83:55. Njarðvík: Shayla Fields 24/7 fráköst, Julia Demirer 16/8 fráköst, Ólöf Helga Pálsdótt- ir 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, Eyrún Líf Sigurðardóttir 9, Dita Liepkalne 8/15 frá- köst, Ína María Einarsdóttir 7, Anna María Ævarsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4, Árnína Lena Rúnarsdóttir 1. Fráköst: 28 í vörn, 12 í sókn. Haukar: Ragna M. Brynjarsdóttir 11/8 frá- köst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/4 frá- köst, Margrét Hálfdánardótir 9/4 fráköst, Kathleen Snodgrass 6/5 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 5, Ína Sturludóttir 5, Íris Sverrisdóttir 4/5 fráköst, Bryndís Hreinsdóttir 3, Helga Jónasdóttir 2/7 frá- köst, Guðrún Ósk Ámundadóttir 1. Fráköst: 27 í vörn, 15 í sókn.  Njarðvík áfram, 2:0, og mætir Hamri. Snæfell – KR 76:84 Gangur leiksins: 4:7, 7:12, 13:16, 15:21, 18:24, 24:26, 26:30, 33:35, 41:37, 47:44, 51:59, 54:64, 59:68, 64:74, 69:78, 76:84. Snæfell: Monique Martin 20/10 fráköst, Laura Audere 19/6 fráköst, Berglind Gunn- arsdóttir 13/4 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 10/6 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartans- dóttir 6/4 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 3, Björg Guðrún Einarsdóttir 3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 2/4 fráköst. Fráköst: 19 í vörn, 16 í sókn. KR: Chazny Morris 25/9 fráköst/3 varin skot, Margrét Kara Sturludóttir 23/5 frá- köst, Hildur Sigurðardóttir 14/5 fráköst/5 stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteins- dóttir 10/6 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 4/5 fráköst, Signý Hermannsdóttir 3/6 frá- köst, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 3, Svandís Anna Sigurðardóttir 2. Fráköst: 25 í vörn, 15 í sókn.  KR áfram, 2:0, og mætir Keflavík. NBA-deildin Boston – Milwaukee............................. 87:56 Toronto – Charlotte ............................. 90:95 Cleveland – Oklahoma ......................... 75:95 Phoenix – Orlando .............................. 88:111 New York – Indiana ........................... 93:106 Golden State – Minnesota ................. 100:77 Efstu lið í Austurdeild: Boston Celtics 64 47 17 73,4% Chicago Bulls 65 47 18 72,3% Miami Heat 66 45 21 68,2% Orlando Magic 67 42 25 62,7% Atlanta Hawks 66 38 28 57,6% New York Knicks 65 34 31 52,3% Efstu lið í Vesturdeild: San Antonio Spurs 66 54 12 81,8% Dallas Mavericks 66 47 19 71,2% Los Angles Lakers 67 47 20 70,1% Oklahoma Thunder 65 42 23 64,6% Denver Nuggets 66 39 27 59,1% New Orl. Hornets 68 39 29 57,4% Svíþjóð Solna – Borås ....................................... 75:72  Logi Gunnarsson skoraði 15 stig fyrir Solna. KÖRFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.