Morgunblaðið - 15.03.2011, Side 3

Morgunblaðið - 15.03.2011, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011 Margrét LáraViðars- dóttir, landsliðs- kona í knatt- spyrnu, sagði í viðtali við mbl.is í gær að íslenska liðið þyrfti ekki að hræðast neina mótherja í und- ankeppni EM. „Það er ágætt að sleppa við Frakk- ana svona einu sinni. Í því er ákveðin tilbreyting að fá einhverja aðra þjóð úr fyrsta styrkleikaflokki. Við unnum Svíþjóð og Danmörku á Algarve og ættum að geta unnið Noreg líka. Við ætlum okkur aftur á EM og ég held að það sé engin ástæða til að fela það markmið,“ sagði Margrét, sem leist vel á að mæta Noregi.    Landsliðskonurnar Dóra MaríaLárusdóttir og Katrín Jóns- dóttir voru á skotskónum með sínu nýja félagi í Svíþjóð, Djurgården, á sunnudaginn. Dóra skoraði þá tvö mörk og Katrín eitt í 4:1 sigri í æf- ingaleik gegn nágrannaliðinu Hamm- arby.    Heiðar Helguson, framherji QPR,er í liði vikunnar í ensku 1. deildinni í knattspyrnu á opinberri heimasíðu ensku deildakeppninnar. Heiðar skoraði bæði mörk QPR í 2:1 sigri gegn Crystal Palace á laug- ardaginn en með sigrinum náði liðið 10 stiga forskoti á toppi deildarinnar. Heiðar hefur farið mikinn með QPR- liðinu á síðustu vikum en hann er annar markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 12 mörk í deildinni.    Ragna Ingólfs-dóttir verð- ur á meðal þátt- takenda á sterku alþjóðlegu bad- mintonmóti í Sviss sem hefst í dag en það heitir Sviss Open Grand Prix Gold. Ragna hefur vanalega farið beint í 1. umferðina á alþjóð- legum mótum en nú þarf hún að spila í forkeppni við Carolinu Marin frá Spáni. Sú spænska hefur sigrað Rögnu tvívegis í jafnmörgum við- ureignum á undanförnum tveimur ár- um, en mjög naumlega í seinna skipt- ið, 21:19 og 24:22. Marin er í 67. sæti heimslistans en Ragna er í 73. sæti svo búast má við hörkuleik þeirra á milli.    Paul Scholes, miðjumaðurinnreyndi í liði Manchester United, er kominn í tveggja leikja bann en hann fékk að líta sitt 10. gula spjald á leiktíðinni í uppbótartíma í sigurleik United gegn Arsenal í ensku bik- arkeppninni í knattspyrnu á laug- ardaginn. Scholes fer því sjálfkrafa í tveggja leikja bann og hann missir af leikjum sinna manna gegn Bolton og West Ham.    Ísland átti fjórafulltrúa á móti í efstu deild bandaríska há- skólagolfsins sem fram fór á Flórída og lauk á sunnu- dag. Axel Bóas- son lék best Ís- lendinganna á þremur höggum yfir pari samanlagt og hafnaði í 18. sæti. Axel er á sínu fyrsta ári í Bandaríkjunum og keppir fyrir Miss- issippi State-skólann. Ólafur Björn Loftsson náði sér ekki almennilega á strik fyrr en í lokahringnum þegar hann lék á höggi yfir pari en hann var samtals á ellefu yfir pari. Skólafélag- arnir Kristján Þór Einarsson og Pét- ur Freyr Pétursson voru einnig með í mótinu. Kristján endaði á þrettán yfir pari og Pétur á tuttugu og sjö högg- um yfir pari. Fólk sport@mbl.is VIÐHORF Kristján Jónsson kris@mbl.is Eins og lesendum Morgunblaðsins og mbl.is er kunnugt um náði kvennalandsliðið í knattspyrnu frá- bærum árangri á dögunum, þegar það lék til úrslita í Algarve- bikarnum. Liðið hefur á und- anförnum árum hreiðrað um sig á meðal bestu liða í Evrópu og undir- strikaði það með því að vinna þrjá leiki af fjórum gegn nokkrum af sterkustu liðum heimsins. Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson sagði við Morg- unblaðið að aðalmálið í mótinu væri að þróa leik liðsins. Landsliðskon- urnar sem Morgunblaðið ræddi við voru sammála um að liðið væri í framför og nýjar víddir væru í leik liðsins. Dóra María Lárusdóttir benti til dæmis á að íslenska liðið hefði nú sýnt meiri getu í því að halda boltanum á móti sterkum lið- um og sjálfstraustið væri meira. Hið síðastnefnda er að mínu mati sérstakt ánægjuefni og til þess fall- ið að auðvelda liðinu að komast upp að hlið bestu liðanna og bæta sinn besta árangur. Undirritaður velti einmitt þessum þætti leiksins nokkuð fyrir sér, eftir að hafa horft á liðið tapa 0:1 fyrir Frakklandi á síðasta ári, í úrslita- leik um að komast í umspil fyrir lokakeppni HM. Þá stóð liðið frammi fyrir því að þurfa að vinna með tveggja til þriggja marka mun til þess að komast áfram. Þegar á hólminn var komið var sú von held- ur lítil, vegna þess að liðið hafði ekki tamið sér að reyna að halda boltanum og stjórna leikjum gegn andstæðingum á borð við Frakk- land. Skref sem þarf að taka Kvennalandsliðið náði merki- legum áfanga með því að komast á EM í Finnlandi 2009. Þar skoraði liðið glæsilegt mark í upphafi loka- keppninnar en fleiri urðu þau ekki í leikjunum þremur. Til þess að liðið geti tekið næsta skref og náð enn lengra þurfa landsliðskonurnar að geta spilað boltanum á milli sín gegn sterkum andstæðingum og byggt þannig upp sóknir. Liðið er öflugt í föstum leikatriðum og jafn- framt hættulegt í skyndisóknum. Öflugri sóknarleikur er því viðbót við þau vopn sem fyrir eru í vopna- búrinu. Ekki er eingöngu hægt að stóla á að snillingurinn Margrét Lára Viðarsdóttir dragi kanínur upp úr hattinum uppi við mark andstæðinganna. Nú gafst manni ekki kostur á því að sjá leiki íslenska liðsins í Portú- gal en úrslit og gangur leikjanna bera því vitni að íslensku landsliðs- konurnar séu að færa sig upp á skaftið í sókninni. Ég trúi því held- ur ekki fyrr en ég tek á því að leik- mennirnir á miðsvæðinu, Edda Garðarsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Dóra María, geti ekki haldið boltanum undir pressu. Þær þurfa einfaldlega að hafa sjálfstraust til að láta á það reyna og koma því upp í vana. Getan er fyrir hendi. Ánægjuleg teikn á lofti  Framfarir í leik íslenska landsliðsins  Spil og sjálfstraust nauðsynlegt síðustu undankeppni HM með því að gera 0:0 jafntefli við Dani. Því svaraði danska liðið hinsvegar með 9:0 sigri í seinni leiknum í Danmörku. Búlgarar voru þá í 4. sæti í sínum riðli, töpuðu stórt fyrir Skotum en náðu að vinna Grikki á útivelli, ásamt Georgíu á heimavelli. Norður-Írar erfiðir síðast Norður-Írar voru líka í E-flokki og miðað við frammistöðu þeirra í síð- ustu undankeppni HM kemur á óvart hve neðarlega þeir eru á FIFA- listanum. Norður-Írar urðu þá þriðju, á eftir Frökkum og Íslend- ingum. Þeir voru fyrir ofan Eista, Króata og Serba og töpuðu aðeins einum leik af sex gegn þessum liðum. Íslenska liðið lenti í basli með Norð- ur-Íra í báðum leikjum. Sérstaklega í fyrri leiknum á útivelli sem endaði 1:0, og síðan fór 2:0 á Laugardalsvell- inum. Morgunblaðið/Golli Frænkuslagur Edda Garðarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir kljást við Trine Rönning í viðureign Íslands og Noregs í úrslitakeppni EM í Finnlandi 2009. Ljósmynd/Skúli Sigurðsson dóttir reynir að komast framhjá Helgu kur, í leiknum við Hauka í gærkvöld. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Jóhannes Valgeirsson, annar reynd- asti knattspyrnudómari landsins af þeim sem voru í starfi á síðasta tíma- bili, dæmir ekki á vegum KSÍ í ár. Gylfi Þór Orrason, formaður dóm- aranefndar KSÍ, staðfesti það við Morgunblaðið í gær. Jóhannes sendi frá sér yfirlýsingu í gær, sem birt var á mbl.is, þar sem hann hafnaði því að hann hefði sagt upp störfum sem dómari hjá KSÍ með formlegum hætti. „Þetta hef ég ítrekað reynt að leið- rétta á undanförnum vikum en komið að lokuðum dyrum. Allt þetta er byggt á samtali í síma við Birki Sveinsson, mótastjóra KSÍ og starfsmann dóm- aranefndar. Þar lýsti ég fyrir honum í löngu máli hvaða upplifun ég hefði af þróun mála að undanförnu og ef það væri stemmingin að bola mér út og enginn vildi ræða það, þá væri eflaust rétt að ég léti það eftir mönnum. Hið rétta er að dómaranefnd KSÍ, með Gylfa Þór í fararbroddi, hefur með mjög svo furðulegum og and- styggilegum hætti bolað mér út. Skýr- inga hef ég ítrekað leitað en algerlega án árangurs. Jú, mér hefur verið sagt að um samstarfserfiðleika sé að ræða en við slíkt kannast ég ekki,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. „Jóhannes sagði af sér frammi fyrir dómaranefndarmanni á æfingu dóm- ara á Akureyri og staðfesti það síðan nokkrum vikum síðar í samtali við starfsmann nefndarinnar. Við erum einhuga um að ákvörðunin standi og ætlum ekki að ræða hans mál frekar í fjölmiðlum,“ sagði Gylfi. Jóhannes hefur dæmt í efstu deild karla undanfarin 13 ár, næstlengst af þeim sem dæmdu í fyrra, og á alls 137 leiki að baki í deildinni. Jóhannes og Magnús Þórisson dæmdu flesta leiki allra í deildinni á síðasta ári, 17 leiki hvor. Gylfi sagði að þetta hefði ekki í för með sér breytingar á dómarahópnum. „Nei, við breyttum kerfinu í vetur á þann hátt að nú er dómurum ekki lengur skipað í A-, B- og C-hópa. Í staðinn eru landsdómararnir allir í einum hópi og þeir bestu hverju sinni dæma í efstu deild,“ sagði Gylfi Þór Orrason. Yfirlýsingu Jóhannesar í heild sinni má lesa á mbl.is/sport/efstadeild. „Við erum einhuga um að ákvörðunin standi“  Jóhannes dæmir ekki  Hafnar því að hafa sagt upp Morgunblaðið/Ómar Reyndur Jóhannes Valgeirsson hefur dæmt í 13 ár í efstu deild.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.